Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 15
MENNING
KENNARARNIR Inga Rósa
Þórðardóttir, Kristjana Kjart-
ansdóttir og Sigrún Franklín
bjóða íbúum og öðrum áhuga-
sömum á sagnakvöld í boði
Sveitarfélagsins Garðs. Saga
Hraðfrystihúss Gerðabátanna
er mjög áhugaverð en með til-
komu fyrirtækisins efldist
byggðin mikið. Inga Rósa, sem
er afkomandi útvegsmanna í
Garði, kynnti sér söguna og
vill miðla henni áfram til íbúa og annarra gesta. Á
milli atriða verður fjöldasöngur og veitingahúsið
Flösin verður opið. Sagnakvöldið verður í
Byggðasafninu á Garðskaga á fimmtudag kl. 20.
Sagnfræði
Saga Hraðfrysti-
húss Gerðabátanna
Sólsetur við
Garðskagavita.
BRYNDÍS Björgvinsdóttir er
meistaranemi í þjóðfræði við
Háskóla Íslands og The Uni-
versity of California, Berkeley.
Bryndís hefur gert bandarísk
úthverfi og menningararf að
rannsóknarefni sínu. Fimmtu-
daginn 17. janúar kl. 12.10
heldur hún fyrirlestur í Opna
Listaháskólanum um rann-
sóknarefni sitt. Þar skoðar hún
birtingarmyndir úthverfa í af-
þreyingarefni eins og kvikmyndum og tölvu-
leikjum, saga bandarískra úthverfa verður rakin,
hönnun þeirra og staða kynjanna innan þeirra
verður skoðuð. Fyrirlesturinn verður í stofu 113.
Fyrirlestur
Bandarísk úthverfi
í samtímamenningu
Bryndís
Björgvinsdóttir
SÖGUMIÐLUNIN hefur í
samstarfi við Leikminjasafn
Íslands gefið út bókina Leik-
myndlist á Íslandi eftir Ólaf J.
Engilbertsson.
Bókin er að grunni til BA-
ritgerð höfundar í sagnfræði
við Háskóla Íslands, aukin og
endurbætt.
Í þessu riti er fjallað um
hina myndrænu hlið leikhúss,
sjónvarps og kvikmynda; gerð
leikmynda, búninga og leikbrúða. Leikmyndlist er
samheiti þessara greina. Í bókinni er fjöldi viðtala
við leikmyndahöfunda og leikbrúðuhöfunda og um
40 myndir frá sýningum.
Sagnfræði
Bók um íslenska
leikmyndalist
Leikmyndalist á Ís-
landi, bókarkápa.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Á ÞESSU ári eru liðin 30 ár frá
stofnun Kvikmyndasafns Íslands. Af
því tilefni hefur verið ákveðið að
efna til sérstakrar afmælisdagskrár
sem standa mun yfir allt árið. Sér-
stakt tillit hefur verið tekið til 100
ára afmælis Hafnarfjarðarkaup-
staðar í afmælisdagskránni, en safn-
ið er staðsett þar í bæ.
Dagskráin skiptist í sjö liði. Undir
liðnum „Hátíðarsýningar“ ber fyrst
að nefna sýningu á hinni heims-
þekktu sænsku kvikmynd Fjalla-
Eyvindur með undirleik Kamm-
ersveitar Hafnarfjarðar á frumsam-
inni tónlist Atla Heimis Sveinssonar
við myndina. Þessi merka mynd
verður 90 ára á árinu. Af því tilefni
hefur verið útbúið nýtt sýning-
areintak með íslenskum millitextum
í þýðingu Jóns Viðars Jónssonar
leikhúsfræðings.
„Fjalla-Eyvindur er mynd sem við
höfum lengi haft mætur á og viljað
gera eitthvað fyrir. Myndin var
frumsýnd á nýársdag 1918 og verður
hápunkturinn í afmælishaldinu hjá
okkur,“ segir Erlendur Sveinsson,
safnvörður hjá Kvikmyndasafninu.
„Hún verður sýnd tvisvar í nóv-
ember í Bæjarbíói og fengum við
Atla Heimi til að semja nýja íslenska
tónlist við myndina svo þetta verður
mikill menningarviðburður.“
Að sögn Erlendar verða rúmlega
þrjátíu kvikmyndir sýndar á afmæl-
isárinu. Auk Fjalla-Eyvindar falla
undir liðinn Hátíðarsýningar mynd-
irnar Land og synir eftir Ágúst Guð-
mundsson og Billeder fra Island eft-
ir Andreas M. Dam.
Merkur bíóbær
Í annan stað verður dagskrárliður
sem nefnist „Mekka kvikmyndasýn-
inganna“ og er þar vísað til Hafn-
arfjarðar sem var merkur bíóbær
hér á árum áður. Sýndar verða sex
kvikmyndir undir þessum lið, sem
allar voru frumsýndar á Íslandi í
Hafnarfjarðarbíóunum og nú teljast
til sígildra kvikmyndaverka.
Í þriðja lagi er dagskrárliður sem
samanstendur af úrvali íslenskra
kvikmynda sem að hluta eða öllu
leyti hafa verið teknar í Hafnarfirði
á tímabilinu 1922 til 1997.
Í dagskráliðnum „Storaro og Sig.
Sverrir“ er sjónum beint að hlut
kvikmyndatökumannsins við gerð
kvikmynda. Undir þennan lið falla
14 myndir, 6 íslenskar, kvikmyndað-
ar af Sig. Sverri Pálssyni, og 8 er-
lendar, myndaðar af hinum heims-
fræga ítalska kvikmyndatökumanni
Vittorio Storaro. Þá verða sýndar
fimm úrvalsmyndir úr nýju aðfangi
rússneskra mynda úr fórum MÍR.
Undir liðnum „Ítölsk kvikmynda-
saga“ verða sýndar þrjár sígildar
myndir og undir liðnum „Sjöström
og sænska gullöldin“ verða sýndar
þrjár myndir sem tilheyra gullöld
sænskra þögulla mynda.
Dagskráin hefst í kvöld með sýn-
ingu á myndinni Á bout de souffle
(Andnauð) sem er lykilmynd í sögu
frönsku nýbylgjunnar frá árinu 1960
eftir Jean-Luc Godard. Myndin var
frumsýnd á Íslandi á sínum tíma í
Hafnarfjarðarbíói og fellur því undir
dagskrárliðinn „Mekka kvikmynda-
sýninganna“. Sýningar fara fram í
Bæjarbíói á sýningartíma safnsins,
sem er á þriðjudögum kl. 20 og laug-
ardögum kl. 16.
Haldið upp á þrjátíu ára afmæli Kvikmyndasafns Íslands með veglegum hætti
Sérstök afmælisdagskrá
HÁTÍÐARSÝNING verður á sænsku kvikmyndinni Fjalla-Eyvindur, eða
Berg-Ejvind och hans hustru,með undirleik Kammersveitar Hafnarfjarðar
á frumsaminni tónlist Atla Heimis Sveinssonar við myndina. Myndin, sem
er gerð eftir leikriti Jóhanns Sigurjónssonar undir stjórn Victors Sjö-
ströms, verður 90 ára á árinu. Útbúið hefur verið nýtt sýningareintak af
þessu tilefni með íslenskum millitextum í þýðingu Jóns Viðars Jónssonar.
Fjalla-Eyvindur 90 ára
STYTTA af breska sakamálahöf-
undinum Ken Follett hefur verið
opinberuð nærri Santa Maria-
dómkirkjunni í höfuðstað Baska-
lands, Vitoria-Gasteiz. Myndin sýn-
ir Follett íbygginn á svip með hönd
á höku.
Það er ekki að undra staðsetn-
inguna; Santa Maria-kirkjan var
kveikjan að síðustu sögu Folletts,
World Without End, sem lengi hafði
verið beðið eftir, en hún var fram-
hald sögunnar The Pillars of the
Earth. Sú bók hefur reyndar sett
Spánarmet því þar hefur engin bók
í 20 ár verið jafnmikið lesin. Nýja
bókin hefur þegar selst í 750 þús-
und eintökum frá því að hún kom út
í desemberlok.
Í nýlegu viðtali í spænska blaðinu
El País segir Follett að fyrstu tíu
bækur hans hafi ekki verið nógu
góðar og ráðleggur rithöfundum að
taka sér ár í að skipuleggja bók áð-
ur en þeir byrja að skrifa.
Ken Follett
í öðru veldi
Spánverjar sólgnir í
bækurnar og búnir
reisa honum styttu
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
ÁSGERÐI Júníusdóttur söngkonu
hefur verið boðið að koma fram á
óperuhátíðinni Die Lange Nacht
der Oper í Volksbühne-leikhúsinu í
Berlín 26. janúar. Die Lange Nacht
der Oper er verkefni sem er ætlað
að vekja spurningar um óperul-
istina og blása í hana nýju lífi. Að
sögn Ásgerðar var það hugmynd
leikhússtjórans, Franks Castorf, að
nota þetta starfsár til þess að kanna
möguleika óperunnar í leikhúsinu.
„26. janúar verður eins konar
menningarnótt í Berlín, Margar
menningarstofnanir með opið fram
á kvöld og því heilmikil dagskrá í
leikhúsinu,“ segir Ásgerður. For-
svarsmenn Volksbühne höfðu haft
spurnir af starfi og hugmyndum Ás-
gerðar á þessu sviði en hún er bú-
sett í Berlín í vetur. „Maggie Bell
heitir sú sem meðal annarra skipu-
leggur þessa tilteknu dagskrá hjá
Volksbühne en hún frétti af mér hjá
sameiginlegum kunningja og eftir
að við hittumst í boði kallaði hún
mig á sinn fund. Þetta er mjög
skemmtileg og skapandi kona með
mikla reynslu af nýstárlegum óp-
eruuppfærslum. Við hittumst á
kaffihúsi þar sem ég lét hana fá
geisladiskana mína og sagði henni
frá hugmyndum mínum um óperuna
og þeim tilraunum sem ég hef gert
til að skapa eitthvað nýtt og vinna
áfram með þetta form. Í framhaldi
af þessu var mér boðið að setja
saman dagskrá með sýnishorni af
þeim verkefnum sem ég komið að á
síðustu árum,“ segir Ásgerður.
„Þetta bar brátt að þannig að ég
ákvað að flytja efni sem ég á í hand-
raðanum.“
Ásgerður nefnir dagskrána
Opera/Electronica og verða þar
meðal annarra flutt verk eftir
Magnús Blöndal Jóhannsson, Ragn-
hildi Gísladóttur og Ghostigital en í
miðpunkti verður óperuinnsetningin
Hanaegg eftir Ólöfu Nordal og Þur-
íði Jónsdóttur.
Ásgerður kveðst finna fyrir
áhuga í Þýskalandi á nýsköpun í óp-
erunni. „Hér er áhugi á því að vinna
með þetta form og fólki finnst enn
þá margt hægt að gera við það þótt
sannarlega mættum við vera fleiri í
tónlistarheiminum sem værum
tilbúin að helga okkur þessu verk-
efni.“
Ásgerður Júníusdóttir syngur á Volksbühne
Söngkonan Ásgerður Júníusdóttir
Í HNOTSKURN
» Kvikmyndasafn Íslands varstofnað með lögum frá Al-
þingi í maí árið 1978.
» Það er til húsa í Hafnarfirðiog fara sýningar þess fram í
Bæjarbíói.
» Afmælisárið hefst í kvöldmeð sýningu á myndinni Á
bout de souffle.
HERBIE Hancock, Nancy Wilson,
Quincy Jones og æðstu menn Kan-
ada voru meðal þúsundanna sem
kvöddu Oscar Peterson á stórtón-
leikum í Toronto um helgina, en Pet-
erson lést á Þorláksmessu. „Ég man
ekki eftir mörgum snillingum, en
hann var einn þeirra,“ sagði Jones.
Séní kvatt
♦♦♦
Ken Ken Follett og brons- Follett.
HÖRN Hrafnsdóttir og Margrét
Grétarsdóttir í tríóinu Sopranos hafa
verið valdar af dómnefnd í söngvara-
keppninni Barry Alexander Interna-
tional Vocal Competition til 1. og 2.
sætis vinningshafa. Keppnin er hald-
in til að hjálpa söngvurum við að
koma sér á framfæri og verður um-
boðsskrifstofum og hljómsveitar-
stjórum boðið á tónleika með vinn-
ingshöfum. Söngvurunum er boðið
uppá námskeið í því að koma sér
áfram í hörðum heimi atvinnu-
mennskunnar í listinni.
Hörn komst í hóp fyrsta sætis
vinningshafa og hefur það í för með
sér að hún mun syngja í Carnegie
Hall í New York 27. janúar. Margrét
var valin í hóp 2. sætis vinningshafa
og syngur á tónleikum í Bechstein
Auditorium í New York í febrúar.
Verðlaunasópranar
TENGLAR
..............................................
www.sopranos.is
VESTMANNAEYINGAR!
Á síðasta ári fengu 535 Vestmannaeyingar vinning í Happdrætti Háskólans.
Sumir halda Þjóðhátíð oft á ári.
– Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni.
TIL HAMINGJU