Morgunblaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013 Smáauglýsingar Gisting Gisting Akureyri Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að- staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að hafa hund í Skógarhlíð. Er með fleiri orlofshús við Akureyri og öll með heitum potti. orlofshus.is Leó 897 5300 Rafvirkjun AH-Raf. Dyrasímakerfi, töfluskipti og öll almenn raflagnavinna. Tilboð/ tímavinna. Vönduð vinnubrögð. ahraf@ahraf.is - Hermann, sími 845 7711, og Arnar, sími 897 9845. Óska eftir Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir, Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is - sími 551 6488. KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Skattframtöl Skattframtal 2013 Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga og rekstraraðila. Mikil reynsla - hag- stætt verð. Uppl. í síma 517 3977. www.fob.is. Netfang: fob@fob.is. Bílaþjónusta Húsviðhald Hreinsa þakrennur laga ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni og hreinsa veggjakrot. Sími 847 8704, manninn@hotmail.com ✝ Sigrún Björg-vinsdóttir fæddist á Hrafn- kelsstöðum í Fljótsdal 20. maí 1931 en ólst upp á Víðilæk í Skriðdal. Hún lést í Nes- kaupstað 4. mars 2013. Foreldrar henn- ar voru Níels Björgvin Sigfinns- son, bóndi á Víðilæk, og Aðal- björg Metúsalemsdóttir Kjerúlf húsfreyja. Sigrún átti ellefu systkini. Maður Sigrúnar var Sigbjörn Magnússon, f. 21.5. 1919, d. 19.3. 1993. Börn þeirra eru: 1) Víðir, f. 6.5. 1958, maki Helga Magna Eiríksdóttir, f. 20.6. 1961, börn þeirra a) Vikt- or Sigbjörn, b) Vignir Sær. 2) Björk, f. 6.5. 1958, maki Valur 6.7. 1963, börn Lindu Hlínar eru a) Steinunn, sambýlismaður hennar er Hafþór Haraldsson og b) Þórarinn. Sigrún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laug- arvatni 1959 og stundaði kennslu á Eiðum frá 1961-1971. Síðan starfaði hún lengi við mötuneyti skólanna á Eiðum. Hún var blaðamaður hjá Austra og fréttaritari hjá DV í nokkur ár. Einnig starfaði hún hjá Gróðrarstöðinni Barra á Egilsstöðum auk ýmissa ann- arra starfa. Sigrún var rithöf- undur og komið hafa út eftir hana þrjár bækur auk smá- sagna og ljóða í tímaritum og á liðnu ári kom út ljóðabók eftir Sigrúnu. Einnig vann hún mik- ið við listsköpun úr ull og hélt fjölda sýninga. Sigrún stundaði skógrækt, bæði á Víðilæk og í Hamragerði í Eiðaþinghá, en það að yrkja jörðina var henni afar hugleikið. Útför Sigrúnar fer fram frá Egilsstaðakirkju í dag, 11. mars 2013, og hefst athöfnin kl. 14. Stefánsson, f. 16.4. 1957, börn þeirra a) Hafþór Máni, sambýliskona hans er Margrét Páls- dóttir og sonur þeirra er Ivan Myrkvi, b) Hafrún Sól. 3) Hlynur, f. 19.6. 1960, maki Elísabet Þóra Pét- ursdóttir, f. 22.8. 1960 börn þeirra a) Davíð Logi, sambýliskona hans er Valdís Vaka Kristjáns- dóttir og dóttir þeirra er Bryn- dís Hekla, b) Lovísa Ösp, maki hennar er Karl Fannar Gunn- arsson. 4) Lára Heiður, f. 31.7. 1962, maki Bjarni Gunnarsson, f. 4.6. 1959, börn Láru Heiðar eru a) Brynja Sóley, b) Hilmir Örn. 5) Linda Hlín, f. 4.9. 1963, maki Páll Arnar Ólafsson, f. Elsku mamma mín litla. Svo snöggt og óvænt ertu farin. Farin frá okkur og komin í Sumarland- ið sem þú varst búin að tala svo mikið um. Búin að hitta alla ást- vinina sem farnir eru, móður þína sem þú misstir aðeins 18 ára gömul og saknaðir alla tíð óend- anlega mikið, föður þinn, Dísu, Birgi og Sala og síðast en ekki síst hann pabba sem fór fyrir réttum 20 árum. Ég á eftir að sakna þín svo óskaplega mikið. Nú er enginn til að hringja í og fá ráðleggingar og leiðbeiningar hjá. Þú varst svo vel gefin, fróð og víðlesin og ég kom aldrei að tómum kofunum hjá þér. Þú unnir íslenskri tungu og hafðir svo fallegan framburð. Skáldagyðjan var vinkona þín, öll ljóðin sem þú ortir höfðu sál og voru svo falleg, og sögurnar þín- ar sömuleiðis. Bragfræðina hafð- ir þú í blóðinu og heyrðir undir eins ef vísa var vitlaust kveðin. Þú varst mikill náttúruvernd- arsinni og unnir náttúrunni og að róta í mold var þitt uppáhald og þér leið aldrei betur en þegar þú varst að planta og rækta skóg, bæði uppi á Víðilæk og úti í Hamragerði. Þú varst sjálfstæð, ákveðin og hreinskiptin með sterkar skoðan- ir á lífinu og tilverunni og lést ekki aðra hafa áhrif á þig, fórst þínu fram af dugnaði og atorku og lést aldrei neitt bíða til morg- uns sem hægt var að gera í dag. Þú hafðir yndi af ferðalögum og varst búin að fara svo víða, til Ástralíu og Indlands, Bandaríkj- anna og Kanada svo eitthvað sé nefnt og þetta fórstu ein á efri ár- um og fórst létt með. Einnig elsk- aðir þú fósturjörðina sem þú þekktir svo vel af öllum ferðalög- unum og eins af landakortinu sem við skoðuðum svo oft saman. Þær eru ómetanlegar stund- irnar þegar við komum öll saman í Hamragerði og við systur sung- um bæði lög við ljóðin þín og ann- arra. Þér fundust þetta yndisleg- ar stundir og ekki má gleyma hvað þú varst stolt og ánægð þeg- ar við systur sungum fyrir þig þegar ljóðabókin þín kom út í ágúst sl. Þú varst snillingur í höndum, hvort sem var að sauma, vefa, spinna, þæfa, prjóna eða hlúa að móður jörð. Eftir þig liggja mörg listaverk og þú hélst sýningar á listverki þínu víða. Elsku mamma, kostir þínir voru ótal margir. Þú varst laus við alla fordóma, hvattir okkur öll til góðra verka, ótrúlega réttsýn og á undan þinni samtíð í svo mörgu. Hér fylgir eitt af ljóðunum þín- um sem mér finnst svo fallegt. Vestanvindur, veistu hvað mig langar austur yfir fjöll að fylgja þér? Hvaðan komstu, hvert er för þín búin? Vestanvindur, viltu dvelja andartak hjá mér? Vestanvindur, veistu að fyrir handan er mín bjarta, ljúfa bernskusveit? Lítill dalur luktur bláum fjöllum. Vestanvindur, veistu hvað mín þrá er djúp og heit? Vestanvindur, vertu hlýr og mildur, syngdu þar með söngvablíðum hreim. Kysstu tún og kjarri vaxnar hlíðar. Vestanvindur, viltu bera kveðju mína heim? Ég kveð þig að sinni, elsku mamma, með orðunum sem við notuðum þegar farið var í lengri ferðir: Þú gáir að þér elskan. Þín dóttir, Björk. Elsku amma Sigrún. Fyrir mörgum árum sagðir þú við mig að þegar kæmi að þér að kveðja þennan heim yrði óþarfi að syrgja og gráta. Það skyldi held- ur gleðjast með þér, því þá værir þú komin á draumastaðinn. Þar sem allt er í blóma, grasið er grænt og myrkur er eitthvað sem fyrirfinnst ekki. Þessi orð þín höfum við hjónin reynt að hafa í huga frá því að fréttirnar bárust okkur og við höfum leitað hugg- unar í viðhorfi þínu til lífsins og dauðans. Hvorugt okkar var þó undirbúið undir þá sorg sem ríkir nú í hjörtum okkar. Hvorugt okk- ar var viðbúið þeim tómleika sem við finnum fyrir, því þrátt fyrir að hafa verið búsett fjarri þér þá varst þú alltaf hluti af okkar lífi. Það sem veitir okkur þó huggun er hversu viðbúin þú varst þess- um næsta kafla. Við viljum því virða þitt viðhorf og reyna að gleðjast með þér. Okkur langar að gleðjast yfir öllum stundunum sem við höfum átt saman. Okkur langar að gleðj- ast yfir þeim dýrðarstað sem þú skilur eftir handa okkur, Hamra- gerði. Betri gjöf er ekki hægt að gefa og þar munum við ætíð finna fyrir nærveru þinni. Við viljum gleðjast yfir öllum þeim stuðn- ingi sem við höfum ávallt fundið frá þér í hverju því sem við tök- um okkur fyrir hendur. Þú hefur alltaf og munt áfram standa upp við bakið á okkur og styðja okkur í lífsins raunum. Við viljum gleðj- ast yfir því hversu fagnandi þú tókst Kalla inn í fjölskylduna og hversu mikla hamingju það færði okkur að þú tækir þátt í brúð- kaupinu okkar síðastliðið sumar. Við gleðjumst einnig yfir þeirri birtu sem sá dýrðardagur færði þér þinn hinsta vetur. Við mun- um ætíð geyma þær minningar sem þar voru búnar til, og ekki síst þann titil sem Kalli hlaut eft- ir tveggja daga dvöl í Hamra- gerði að brúðkaupi loknu: Óðals- bóndinn í Hamragerði, sem hann ber nú enn stoltari en áður. Okk- ur langar að gleðjast yfir öllum þeim hlutum sem minna á þig, elsku amma, en helst af öllu lang- ar okkur að gleðjast yfir því að hafa fengið heiðurinn af því að eiga þig að sem ömmu og tengda- ömmu. Mér þér var lífið ríkara, yndislegra og umfram allt skemmtilegra. Á þinn einstaka hátt hafðir þú áhrif á okkur og snertir við okkur, meira en þig sjálfa grunar. Ég, Lovísa, var eitt sinn spurð að því hver væri mín fyrirmynd í lífinu og svarið var einfalt: Sigrún Björgvinsdóttir. Þín verður sárt saknað, elsku amma, en við gleðjumst yfir öllu því sem þú hefur gefið okkur, því þannig lifir þú áfram innra með okkur öllum. Við gleðjumst yfir allri þeirri birtu sem nú umlykur þig, allri þeirri blómadýrð og gleði sem fyrirfinnst í Sumar- landinu þínu. Við verðum að gleðjast með þér, elsku amma, en um leið getum við ekki annað en syrgt, hugsað til baka og óskað þess að hafa fengið meiri tíma með þér. Þú munt ætíð eiga stór- an stað í hug okkar og hjarta. Við þökkum þér allar góðu og fallegu stundirnar sem við höfum átt saman og óskum þér góðrar ferðar í hinu hinsta ferðalagi sem þú leggur nú í. Ástarkveðjur til þín elsku amma. Frú Lovísa Ösp, húsfreyja í Hamragerði, og herra Karl, óðalsbóndi í Hamragerði. Elsku amma mín. Nú ertu lögð af stað í ferðalagið sem þú þráðir. Nú ertu búin að sjá landið sem þú þráðir, Sumarlandið. Nú ertu bú- in að hitta allt fólkið sem þú þráð- ir að hitta. Amma mín, ég þakka þér fyrir samfylgdina öll þessi ár. Ég þakka þér fyrir allt sem þú kenndir mér, sagðir mér og gerð- ir fyrir mig. Ég á margar minn- ingar um þig í geymsluhólfinu mínu. Þú varst ótrúlega dugleg og allt lék í höndunum á þér. Þú fylgdir alltaf eigin sannfæringu og lést aldrei stjórnast af öðru fólki, ég ætla að fylgja í þessi fót- spor þín og taka þig til fyrir- myndar. Við vorum og verðum alltaf góðar vinkonur. Ég reyndi alltaf mitt besta í að hjálpa þér og láta þér líða vel. Það verður leiðinlegt að geta ekki farið til þín í Árskóga 5, eins og ég gerði svo oft, bara til að spjalla, spila, horfa á sjónvarpið eða bara hvað sem er. Þú hafðir alltaf svör við öllu, og það var mjög gott að eiga þig að til að fá svör við ýmsum spurningum eða ráð við vandamálum. Amma mín, við ferðuðumst mikið saman, hvort sem var á Ís- landi eða í öðrum löndum. Síðasta ferðalagið okkar fórum við í síð- asta sumar. Við vorum þá nokkra daga á Vestfjörðunum, þræddum firðina, skoðuðum litlu sjávar- þorpin og fengum æðislegt veður. Toppurinn á ferðinni var svo þeg- ar við komum á Rauðasand, því þangað hafðir þú aldrei komið. Við fórum út á sandinn í glamp- andi sólskini og þú tókst með þér sand í poka til að hafa heima við. Svo skoðuðum við Dynjanda seinna sama dag. Ég keyrði og þú varst á landakortinu. Mikið ofsa- lega er ég glöð í mínu hjarta yfir að hafa farið með þér í þessa ferð, og ánægðust er ég með hve ham- ingjusöm þú varst með ferðina. Amma mín, nú skilur leiðir í bili en ég er alveg viss um það, að við munum hittast á ný. Þú varst búin að tala svo mikið um líf eftir dauðann, og því trúi ég, að þegar minn tími kemur, þá takir þú á móti mér hinum megin. Þar til við hittumst aftur ætla ég að reyna mitt besta í að taka þig til fyrirmyndar, því betri fyrirmynd er ekki hægt að hafa. Ég er svo stolt og þakklát yfir að hafa átt þig sem ömmu. Elsku amma mín, ég ætla að enda þessa grein á sömu setn- ingu og þú skrifaðir til mín í ljóðabókina þína sem þú gafst mér, og svo hef ég eitt ljóð úr bókinni þinni, sem mér finnst eiga svo vel við þig: Ástarþakkir fyrir allar yndislegu samveru- stundirnar fyrr og síðar. Einkum og sér í lagi ferðalögin. Handan við ljóshraðann er landið sem ég þrái. Þar sem tíminn er leikfang og líður aftur á bak ef maður vill. Ef maður bara vill. Og þá getum við tínt blómin sem urðu eftir í brekkunni. Og máð út víxlsporin sem vildu ekki hverfa en settust að í sálinni. Við sjáumst seinna amma mín, og þangað til mun ég ætíð heiðra minningu þína og halda henni á lofti. Þín ömmustelpa og vinkona, Hafrún Sól Valsdóttir. Þeir horfnu bíða okkar í landi morgunroðans. Við hin bíðum eftir fari. (Sigrún Björgvins.) Sigrún kom til náms í 2. bekk Menntaskólans að Laugarvatni haustið 1956 og sat með okkur þann vetur, las 3. bekk utan skóla og eignaðist tvíbura vorið 1958. Kom aftur í 4. bekk skólans um haustið og lauk stúdentsprófi vorið 1959, fjórum árum eftir landsprófið eins og við hin. Það er ekki víst að ungt fólk í dag skilji hvílíkan kjark og einbeitni, auk námsgáfna, þurfti til að kona lyki stúdentsprófi við slíkar að- stæður þá. Bekkjarsystkinin skildu það reyndar ekki heldur, hún var bara ein af okkur. For- eldrahúsin austur í Skriðdal voru of fjarri til að veita skjól, enda móðirin fallin frá, en vissulega átti Sigrún góða að, eins og hún sagði okkur. Sigrún settist svo að austur á landi í sínum heimahögum við kennslu og fleiri störf og börn- unum fjölgaði. Heimahögunum unni hún og minntist oft á skóg- ræktina á Víðilæk og sumardval- arstaðinn í Hamragerði. Eins og gengur var minna um samskipti bekkjarsystkina meðan lífsins annir voru mestar, en sambandið slitnaði aldrei, og á síðari árum fjölgaði fundum og forn vinátta dafnaði. Eftirminnileg verður heimsókn á Egilsstöðum sl. sum- ar og skoðunarferð í Hamra- gerði. Sigrún Björgvinsdóttir var listræn og draumlynd en gat brugðið fyrir sig tvíræðni, jafnvel kaldhæðni þegar svo bar undir. Hún virti það sem vel var gert en lét ekki mikillæti né frægðar- ljóma slá ryki í augun. Fór sínar eigin leiðir. Sigrún unni gróðri og fagurri náttúru, og sú ást flétt- aðist inn í ljóðlist hennar og myndlist. Sýningar hélt hún a.m.k. tvær í höfuðborginni og voru henni til sóma, ljóðræn tján- ing í náttúrulegum efnum eins og ullarflóka var einlæg og oft með blæ dulúðar. Ljóðlistin var Sig- rúnu í blóð borin, eins og glöggt má sjá í bókinni sem kom út í fyrra, Handan við ljóshraðann. Ljóðin eru mótuð af lífsreynslu, stundum tregablandin, jafnvel reiðiþrungin, en yfirgnæfandi er næmi fyrir fegurð og þeirri gleði sem skyndilega vaknar. Drengur hjólar fram hjá dapurri konu og hlær: Og regnið í huga þínum varð að þrastasöng. Á menntaskólaárum þýddi Sigrún úr þýsku lítið ljóð eftir Goethe, Unser Herz, sem birtist í þessari nýju bók. Það sýnir tök hennar á ljóðlistinni og hvernig hún dróst að andstæðum: Okkar hjarta er gullin gígja, gripi tveggja strengja búin. Annan gleðikenndir knýja úr kveinum sárum hinn er snúinn. Fimir leika um eilífð alla örlaganna fingur styrkir. Í dag mun brúðkaups gleðin gjalla, grafar síðar hljómar myrkir. Við þökkum vináttu ógleyman- legrar konu og sendum aðstand- endum samúðarkveðjur. Unnur Alexandra Jónsdóttir og Vésteinn Ólason. Sigrún Björgvinsdóttir VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn www.kvedja.is 571 8222 82o 3939 svafar 82o 3938 hermann Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir og mágkona, DAGBJÖRT FJÓLA ALMARSDÓTTIR frá Hellissandi, Borgarheiði 14, Hveragerði, lést á heimili sínu miðvikudaginn 27. febrúar. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 14. mars kl. 13.00. Kittý Arnars Árnadóttir, Pétur Ingi Haraldsson, Eyrún Arnars Árnadóttir, Þorgrímur Óli Victorsson, Emanúel Þór Þorgrímsson, Danelíus Sigurðsson, Margrét Ellertsdóttir, Alfreð Almarsson, Helga Haraldsdóttir, Sigfús Almarsson, Sigrún Sigurðardóttir, Pálmi Almarsson, Vilborg Sverrisdóttir, Sveindís Almarsdóttir, Kjartan Snorrason, Vignir Almarsson, Inga Yngvadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.