Morgunblaðið - 17.05.1987, Side 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1987
BLAÐ
SJÁ BLAÐSÍÐUR
B14, B15 og B16
TT
JHL mHLí inn 21.maí 1927 varð
sænskættaður sveitapiltur frá Minnesota, Charles
Augustus Lindbergh, sem hafði stundað sýninga-
og póstflug í nokkur ár, heimsfrægur. Klukkan
10.24 að kvöldi þess dags lenti hann lítilli og
veikbyggðri einþekju sinni, „The Spirit of St.
Louis,“ (Andanum frá St. Louis) á La
Bourget-flugvelli í París eftir 33 1/2 klukkustunda
flug yfir Atlantshaf frá Roosevelt-flugvelli í New
York án viðkomu. Þessi atburður markaði þáttaskil
í flugsögunni.
Einmanalegt flug Lindberghs yfir Atlantshaf fyrir
60 árum þótti eins frækilegt og fyrsta mannaferðin
til tungslins 42 árum síðar. Langtímum saman sá
hann rétt grilla í öldur Atlantshafs gegnum
skýjaþykkni. Hann barðist við svefninn og hafði
enga talstöð til að biðja um aðstoð, ef eitthvað
færi úrskeiðis. ísing olli honum erfiðleikum og um
tíma hugleiddi hann að snúa við, en harkaði af
sér. Stundum flaug hann ofar skýjum, stundum
rétt yfir öldutoppum. Loks kom hann auga á
fiskibát og reyndi að spyrjast fyrir um hvar írland
væri, en fékk ekkert svar. Von bráðar birtist strönd
Irlands framundan og hann flaug sigri hrósandi
síðasta spölinn yfir suðvesturodda Englands og
Ermarsund til Frakklands.