Morgunblaðið - 17.05.1987, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.05.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1987 B 15 Morgunblaðið/ÓI.K.M. • Flugvél Lindberghs, „The Spirit of St. Louis“, í Smithsonia-safninu í Washington. Lindbergh heiöraður meö skrúðgöngu á Broadway. J0LS«- ajitotticfivðe Öutent^-fíuG gaiiablc rá funös cutrcnfc at Q <mu Uotk Qlearinq n ousc 25,00 0.N//íoo Verðlaunaávfsunin, skrautrituð. hinna 48 ríkja Bandaríkjanna og haldið flugsýningar. Ég hef oft flogið með póst í aftakaveðri." Betri maður var líklega vand- fundinn í það hlutverk, sem hann tók að sér. Lindbergh var ekki fyrsti mað- urinn, sem flaug yfír Atlantshaf, þótt ferð hans væri mikið afrek á þessu tíma, þegar langleiðaflug- menn gátu alltaf misst flugvélar sínar og týnt lífí. Arið 1919 hafði tvívegis verið flogið yfír Atlantshaf. Fyrst flugu fímm menn N-C-4-flugvél banda- ríska sjóhersins frá Nýfundna- landi til Azoreyja. Síðan tókst John Alcock og Arthur Brown að fljúga beint frá Nýfundnalandi til írlands. Brezka loftfarið R-34 hafði flogið frá Skotlandi til Long Island með 31 manni innanborðs og síðan aftur til Englands. Þýzki loftbelgurinn ZR-4 (seinna „Los Angeles") hafði flogið frá Fried- richshafen til Lakehurst í New Jersey með 32 mönnum. Tvær hnattflugvélar banda- ríska landhersins höfðu flogið yfír Norður- Atlantshaf um Is- land, Grænland og Nýfundnaland. Flug Lindberghs var nýstárlegt fyrir þá sök að hann flaug alla leið frá New York til Parísar í stað þess að fara frá Nýfundna- landi, lenti á nákvæmlega tilsett- um stað og flaug einn síns liðs. Þetta var lengsta „glæfraflug“, sem reynt hafði verið til þessa. Þegar Lindbergh hafði tekið þá ákvörðun að fljúga yfír Atl- antshaf einn síns liðs gerði hann allt sem í hans valdi stóð til að sjá til þess að allt gengi að ósk- um. Hann tók sjálfur þátt í hönnun flugvélarinnar til að tryggja að hún samrýmdist hug- myndum hans, ákvað hvaða leið hann skyldi fljúga og fór vandlega yfír allt það sem kynni að geta farið úrskeiðis. Tvennt gat Lindbergh ekki reiknað út: veðrið og hæfni sína til að halda sér vakandi. Hann gerði ráð fyrir þeim möguleika að veðrið gæti orðið slæmt. Hon- um gekk erfíðlega að halda sér vakandi, en hann sigraðist á þeim vanda með viljafestu, þótt hann játaði að stundum hefði litlu mátt muna að hann hnigi út af. Ekki Franskir iögreglumenn og hermenn umkringja flugvól Lindberghs eftir lendinguna i París 21. maí 1927. bætti úr skák að hann hafði sofíð lítið áður en hann lagði af stað. Eitt af því sem gerði freistaði hans voru 25,000 dollara verð- laun, sem hafði verið heitið fyrir slíkt flug. Lindbergh barðist um jau við nokkra kunna keppi- nauta, þeirra á meðal Clarence Chamberlain og Lloyd Bertraud í „Columbia" og Richard E. Byrd sjóliðsforingja, sem hafði flogið yfir Norðurpólinn 1926, í „Amer- t“. Fyrirfram var ógemingur að spá því hver mundi sigra í keppn- inni, þótt Lindbergh væri sigur- viss. Almenningur hélt greinilega með hinum unga og yfirlætislausa flugkappa, sem virtist kunna sitt fag og sýndi dirfsku með því að fara einn í slíka hættuför, og at- hyglin beindist aðallega að honum. Blaðamennimir kölluðu hann „Flugfíflið" og „Lucky Lindy,“ — Linda heppna — sem varð titill á frægu dægurlagi, en síðan varð ferðin sjálf til þess að hann hlaut enn eitt viðumefni: Öminn einmana". Þegar „Lindy" ákvað að búast tii brottferðar að kvöldi 19.maí 1927 var súld á Long Island, en veðurfréttir bentu til þess að heiðskírt yrði úti á Atlantshafi. Hann undirbjó ferðina í smáatrið- um um nóttina, fór til Curtiss- flugvallar, fékk nánarí veðurfrétt- ir og lét aka flugvélinni út á Roosevelt- flugvöll og fylla elds- neytisgeymana. Laust fyrir kl. 8 um morguninn klifraði hann um borð og lagði af stað til Parísar. Um leið hófst í Bandaríkjunum sú mikla hrifningaralda, sem fylgdi flugferð Lindberghs. Ungir og gamlir, ríkir og fátækir, bænd- ur og veðbréfasalar, heittrúar- menn og efahyggjumenn, menntaðir og ómenntaðir, bundu vonir sínar við unga Bandaríkja- manninn í „Spirit of St. Louis.“ Um kvöldið háðu Maloney og Sharkey einvígi í „Yankee Stad- ium“ I New York og 40,000 harðsnúnir hnefaleikaunnendur risu á fætur og tóku ofan þegar þulur bað alla viðstadda að biðja fyrir Charles A. Lindbergh. Gylliboð Seinna sagði Lindbergh að það sem hefði vakað fyrir honum með fluginu til Parísar hefði verið að bæta stöðu sína sem flugmaður og hreppa verðlaunin. Þótt blöðin hefðu sagt ítarlega frá undirbún- ingi keppninnar og mikill áhugi væri á henni hafði hann ekki órað fyrir þeirri hrifningu, sem afrek hans vakti, og því lofí, sem á hann var borið. Hann hafði heldur ekki gert ráð fyrir þvi að margir mundu líta á hann sem „almenn- ingseign" upp frá því, einkum fréttamenn og ljósmyndarar, sem hann fékk fljótt óbeit á. Þeir fylgdu honum hvert fótmál og í mörg ár leið varla sá dagur að nafn hans væri ekki í fréttunum. „Þær aðstæður, sem ég lenti í, voru vægast sagt stórfurðuleg- ar og oft ótrúlegar," sagði hann seinna um eftirhreytumar. Hann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.