Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurnóvember 1994næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    303112345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    27282930123
    45678910

Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 1
KNATTSPYRNA LárusOrri á bekknum hjá Stoke GOLF 1994 ÞRIDJUDÁGUR 1. NOVEMBER BLAD Víkingar fá ekki borgað VÍKINGSSTÚLKUR seldu heimaleik sinn í Evr- ópukeppninni gegn tyrkneska liðinu Kulturspor en hafa enn ekki fengið borgað. Upphæðin er að sögn Theódórs Guðfínnssonar þjálfara Vikinga um 400.000 krónur og telur Theódór að Kulturspor fái ekki að taka þátt í næstu umferð ef málið verður ekki útkljáð. Sem kunnugt er vann Víking- ur fyrri leikinn með tveimur mörkum og tapaði þeim síðari með sex mörkum en ef tyrkneska liðið gerir ekki upp sín mál gætu Víkingsstúlkur kom- ist áfram í þeirra stað. HSÍ er inní málinu og vill gefa Evrópska handboltasambandinu 10 til 14 daga að ganga frá málinu. Niðurstaða ætti því að liggja fyrir í vikunni. KIVIATTSPYRNA: RAFMAGIMAÐ ANDRÚMSLOFT / B4 LÁRUS Orri Sigurðsson sat á varamannabekknum hjá Stoke er liðið gerði jafntefli 1:1 gegn ef sta iiði 1. deildar, Wolves, á heimavelli á sunnudaginn. Það var ofsalega gaman að fá að finna smjörþefinn af at- vinnumennskunni með því að vera svona óvænt í hópnum hjá Stoke. Eg var sendur nokkrum sinnum í síðari hálfleik til að hita upp, en leikurinn þróaðist þannig að ég fór ekki inná,“ sagði Lárus Orri. Lárus Orri frétti það á föstu- dagskvöld að hann væri í 18 manna leikmannahópi Stoke en gerði ekki ráð fyrir því að hann yrði einn af þremur varamönnum liðsins gegn Wolves á sunnudaginn. Þorvaldur Örlygsson, sem lék allan leikinn, sagði að Lou Macari, stjóri Stoke, væri óútreiknanlegur og taldi jafn miklar líkur á því að Lárus Orri yrði í byijunarliðinu í næsta leik eins og að hann sæti uppi í stúku. Macarí hefur þegar boðið Lárusi Orra tveggja ára samning en Lárus Orri vildi lítið tjá sig um innihald samningsins og hvort hann myndi skrifa undir hann að óbreyttu. „Þetta er allt í biðstöðu eins og er,“ var það eina sem hann vildi láta hafa eftir sér um samninginn. Lárus Orri ætlaði að funda í gær- kvöldi með forráðamönnum Stoke um væntanlegan samning. Það ætti að skýrast í vikunni hvort Lárus Orri muni leika með Stoke það sem eftir er keppnistímabils- ins. Sá tekjuhæsti Router Colln Montgomerie frá Skotlandi varð tekjuhæstur á evrópsku mótaröðinni í golfi sem lauk um helgina. Hann varð að vísu að sætta sig vlð fjórða sætið f síðasta mótinu en verðlaunafé hans á þessu ári nemur um 83 milljónum króna. KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA HANDKNATTLEIKUR Amór í uppskurd Amór Guðjohnsen leikur ekki með ís- lendingum gegn Svisslendingum í Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu eftir hálfan mánuð. í byijun næstu viku verður hann skorinn upp vegna kviðslits og gerir ráð fyrir að vera frá í sex til átta vikur. Aðgerðum vegna kviðslitsins hefur verið frestað lengi og vonaði Arnór að draga mætti þær fram yfir landsleikinn en eftir skoðun í gær og að höfðu samráði við lækni var ákveðið að bíða ekki lengur. „Ég get ekki tekið neina áhættu í þessu sam- bandi,“ sagði Arnór við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Ef ekki þyrfti að skera væri þetta aðeins spurning um 10 daga, en uppskurður virðist óumflýjanlegur og þar sem gera má ráð fyrir að það taki sex til átta vikur að ná fullum bata er ekki eftir neinu að bíða. Eins er liugsanlegt að verk- fall sjúkraliða sé framundan og ef það yrði kæmi það til með að fresta aðgerð- inni um óákveðinn tíma. Því má ég ekki við þar sem æfingar hjá Örebro byija á fullu 3. janúar og þá verð ég að vera tilbú- inn í slaginn." Eins og greint hefur verið frá varð Orebro í 2. sæti í sænsku deildinni, sem lauk fyrir skömmu. Arnór var potturinn og pannan í leik liðsins og hefur félagið gert honum tilboð um árs samning til við- bótar. „Drögin að nýjum samningi liggja fyrir og þó málið sé ekki 100% frágengið heid ég að ég verði áfram," sagði Arnór. Ingi Björn samdi við Keflvíkinga INGI Bjöm Albertsson verður næst þjálfari 1. deildar liðs Keflvíkinga í knattspyrnu. Frá því var gengið í gærkvöldi og skrifað undir tveggja ára samning. Ingi Björn sagði við Morgunblaðið að hann hefði tekið sér góðan tíma til að hugleiða málið og hefði keyrslan á milli Reykjavikur og Keflavíkur fyrst og fremst staðið í sér, en góður hópur hefði haft meira að segja. Byggt yrði á heimamönnum og ekki leitað eftir frekari liðs- styrk, þó allir væru velkomnir, en eina breytingin, sem fyrir lægi, væri sú að Gunnar_Oddsson væri farinn frá nýliðnu tímabili. Þá væri óvíst hvað Ragnar Margeirsson ætlaði að gera. „Það er spenn- andi verkefni fram undan og ég hlakka til að starfa með Kef!víkingum,“ sagði Ingi Björn. Crystal Palace missti áhugann ALAN Smith, framkvæmdastjóri enska úrvals- deildarliðsins Crystal Palace, tilkynnti KR-ingum í gær að þar sem staða Palace hefði lagast eftir síðustu leiki væri hann hættur við að gera Rúnari Kristinssyni tilboð. Benedikt Jónsson, varaformað- ur knattspyrnudeildar KR, sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að óskað hefði verið eftir afdráttar- lausu svari frá Palace. Þar sem það væri komið væri ekkert því til fyrirstöðu að fulltrúar KR og sænska félagsins Örgryte ræddu saman, en eins og greint hefur verið frá er Rúnar spenntur fyrir tilboði Svíanna. Hins vegar vildi hann bíða með að ræða nánar við þá þar til svar bærist frá Palace, sem hafði sagt að Rúnar og Guðni Bergsson ættu von á tilboði. Besti leikur Eyjólfs í ár EYJÓLFUR Svenisson og samheijar f Besiktas gerðu 1:1 jafntefli við Antalyaspor í tyrknesku deildinni í fyrradag. Eyjólfur átti góðan leik, sagði reyndar við Morgunblaðið að þetta hefði verið einn af bestu ef ekki besti leikurinn lijá sér á tímabil- inu. Hann sagði að um einstefnu hefði verið að ræða hjá Besiktas, nánast skotæfingu, en heima- menn hefðu skorað úr eina skoti sínu. „Við óðum í færum, áttum skot í slá og stöng og svo varði markvörður þeirra mjög vel, meðai annars einu sinni einn gegn þremur,“ sagði Eyjólfur. Besiktas, sem er enn eitt efst í tyrknesku deildinni, mætir Auxerre á fímmtudag í seinni leík liðanna í UEFA- keppninni, en iiðin gerðu 2:2 jafntefli í Istanbul fyrir hálfum mánuði. „Við vorum klaufar að missa fyrri leikinn niður í jafntefli eftir að hafa náð tveggja marka forystu en markmiðið er að reyna að bæta fyrir það,“ sagði Eyjólfur, sem fer með liði sínu til Fi-akklands í dag. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: Morgunblaðið B - Íþróttir (01.11.1994)
https://timarit.is/issue/126827

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

Morgunblaðið B - Íþróttir (01.11.1994)

Aðgerðir: