Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 4
v_
4 B ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
„Yfirspilaðir af meisturunum" sungu stuðningsmenn United er lið þeirra lagði topplið Newcastle
Rafmagnað
andmmsloft
- á glæsilegu leiksviði Old Traffords
Reuter
Ray Glggs fagnar Gary Pallister, sem kom United á bragðld.
Stemmningin á leikjum í ensku
knattspymunni er oftast óvið-
jafnanleg, og andrúmsloftið
var sannarlega rafmagnað á
Old Trafford í Manchester á
laugardag. Skapti Hallgríms-
son var á meðal um 44 þús-
und áhorfenda þegar Manc-
hester United sigraði Newc-
astle 2:0 og kom þar með í
veg fyrir að „spútniklið“ Ke-
vins Keegans næði afgerandi
forystu í deildinni
Það verður ekki frá enskum
knattspymumönnum tekið að
þeir halda áhorfendum við efnið í
90 mínútur. Hæfileikar margra
þeirra hafa oft verið dregnir í efa,
sagt að þeir séu upp til hópa stórir
og sterkir og þeirra aðal se að
hlaupa hratt og sparka langt, en
það er ekki mikið um rólega kafla
í leikjunum. Og bestu liðin á Eng-
landi geta í það minnsta leikið frá-
bæra knattspymu hvað sem öðm
líður, eins og lið Manchester United
og Newcastle sýndu á Old Trafford
í Manchester á laugardag. Hér var
allt á fullu, nánast frá þtjú til kort-
er í fimm — nema hvað menn fengu
sér auðvitað tesopa í leikhléinu.
Heimamenn sigmðu 2:0 með mörk-
um Garys Pallisters og Keiths Gil-
lespies og sigurinn var mjög svo
sanngjarn; leikmenn United sýndu
að þeir láta.meistaratitilinn ekki svo
glatt af hendi. Newcastle er þó enn
á toppnum og Kevin Keegan, fram-
kvæmdastjóri liðsins, sagði á eftir:
„Þetta verður engin smá keppni um
meistaratitilinn í vetur. Engin smá
keppni! Ekkert eitt lið kemur til
með að stinga af.“ Lið Keegans auk
meistara United, Blackbum, Nott-
ingham Forest og jafnvel Liverpool
gætu öll komið til greina; hafa öll
verið að spila snilldarlega upp á
síðkastið.
Að fara „á völlinn" í Englandi
er alltaf sérstök upplifun og áhang-
endur þeirra tveggja liða sem áttu
í hlut á Old Trafford em taldir með
þeim allra hörðustu. Fólk mætir
snemma að vellinum; fjöldi var
kominn vel fyrir hádegi, þó hiiðin
að áhorfendapöllunum væm ekki
opnuð fyrr en löngu seinna. Menn
voru að næra sig, fjárfesta í marg-
víslegum minjagripum sem boðið
er upp á.
Sama handritlð
„Tjaldið lyftist. Stólar bekkir
borð, til beggja handa, dyr og
gluggi á stafni" segir í kvæði eftir
Davíð. Tjaldið lyftist líka á Old
Trafford og þó sviðsmyndin sé önn-
ur en í kvæðinu er þetta glæsilegt
leikhús, þar sem uppselt er á nán-
ast hverja einustu sýningu — stuðn-
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stuðningsmenn Manchester United mœta ð Old Trafford löngu
áður en sýnlngar hefjast og nota tækifærlð tll að kaupa sér minja-
grlpl. Hér er einn af ungu sölumönnunum, sem hafa komlð upp
sölutjaldl fyrlr utan hinn glæsilega völl.
var mikill strax frá byijun, sótt af
krafti á báða bóga en heimamenn
komu sér vissulega í þægilega stöðu
með því að skora svo snemma.
Ryan Giggs var í byrjunarliði Un-
ited öllum að óvörum; Ferguson
framkvæmdastjóri liðsins hafði sagt
daginn fyrir leik að Giggs yrði ekki
með, en á laugardag kom í ljós að
strákur hafði æft á föstudag og
ekki kennt sér meins. „Ég ætla að
spjalla við Giggs á eftir, og ef hann
telur sig tilbúinn getur vel verið að
hann spili. Hann verður að minnsta
kosti á bekknum," sagði Ferguson
í hádeginu. Giggs var svo á sínum
stað á vinstri kantinum þegar flaut-
að var til leiks og það var eftir
glæsilega sendingu frá honum úr
aukaspymu sem Gary Pallister
skallaði boltann í netið. Newcastle
byijaði reyndar ágætlega og ógnaði
United markinu nokkrum sinnum á
fyrstu mínútunum, en eftir markið
var engin spuming hvort liðið hefði
undirtökin.
„Maður óskar svo sem ekkert sér-
staklega eftir því að lenda í þessari
stöðu; að Ienda 1:0 undir gegn
Manchester United eftir ellefu mín-
útur á Old Trafford!" sagði Kevin
Keegan á eftir. „Þeim fínnst þægi-
legast að vera í svona stöðu; að
andstæðingurinn þurfí að sækja að
þeim, því þá gefst þeim alltaf tæki-
færi á að beita skyndisóknum, sem
þeir eru mjög góðir í.“
Keegan viðurkenndi fúslega að
hans menn hefðu ekki átt mikla
möguleika. „Við vomm eins og
tannlaust tígrisdýr í dag,“ sagði
hann. Markakóngurinn Andy Cole
sem hefur spilað meiddur undan-
famar vikur getur ekki meir í bili
og Keegan segist ætla að hvíla
hann. Paul Kitson, framheijinn sem
Keegan keypti frá Derby fyrir
stuttu er einnig meiddur, þannig
að fremsta víglínan hjá Newcastle
var hálf máttlaus gegn United.
Báðir stjórarnir hrósuðu liðunum
fyrir á hvern hátt þau koma fram,
sækja og leika til sigurs. „Leikurinn
var frábær; glæsileg auglýsing fyr-
ir enska knattspyrnu," sagði Keeg-
an.
Skemmtun
Ferguson og Keegan hafa báðir
peninga og vilja til að stilla upp
góðum knattspyrnuliðum; skemmti-
legum liðum, sem leika til sigurs
hvar sem er og hvenær sem er.
„Við erum vanir því að andstæðing-
ar okkar komi hingað og troði fimm
mönnum á miðsvæðið til að skemma
fyrir okkur og reyna að halda í eitt
stig. Þess vegna er gaman þegar
móthetjamir koma til að reyna að
sigra eins og Newcastle gerði í
dag,“ sagði Ferguson á eftir. Hann
var auðvitað ánægður með sína
menn: „Margt af því sem við gerð-
um í dag var frábært. Seinni hálf-
leikurinn er líklega það besta sem
liðið hefur sýnt í vetur.“
Þegar gengið var út í Manchest-
ermyrkrið á laugardag var enn tals-
vert af fólki fyrir utan völlinn. Fólki
sem beið enn eftir hetjunum sínum.
Þar beið líka Range Roverinn hans
Hughes, og þarna kom hann sjálfur
ásamt konu- sinni, en — því miður
— hann gat ómögulega gefið eigin-
handaráritanir að þessu sinni. Það
hittist nefnilega þannig á að hann
hélt á ungri dóttur sinni í fanginu.
Þó var ekki annað að sjá en fólkið
fyrirgæfí þessum frábæra knatt-
spymumanni það að geta ekki skrif-
að; hann gæti það eflaust næst.
Því þó búið væri að fella tjaldið að
þessu sinni, verður það fljótlega
dregið upp aftur á þessu stórglæsi-
lega leiksviði. Og það verður upp-
selt eins og venjulega.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hann er ánaegöur meö sjálfan slg ungl maöurlnn, þegar hann
horfir f spegil og sér að búiö er aö mðla hann f réttu lltunum —
rauð/hvftum lltum Manchester United.
ingsmenn Manchester United láta
sig ekki vanta, þegar þeirra menn
leika.
Það er það sama með stuðnings-
menn Newcastle — þúsundir fylgja
liðinu í alla leiki á útiveili og engin
breyting varð þar á að þessu sinni.
Og stuðningurinn var ekki dónaleg-
ur; gestirnir yfírgnæfðu heima-
menn, sem þó voru i miklum meiri-
hluta, framan af leiknum en eftir
að meistararnir komust í 1:0 eftir
aðeins ellefu mínútur varð breyting
þar á. Þá tóku þeir rauðu og hvítu
á áhorfendapöllunum vel við sér,
og létu þá svart-hvítu vinsamlega
vita hveijir væru bestir; hveijir
væru meistarar og yrðu það áfram!
Gestimir virtust fljótlega gera sér
grein fyrir því þeirra menn ættu
ekki. mikla möguleika og höfðu
óvenju hljótt um sig.
Búist var við miklu af liðunum
tveimur og ekki að ósekju. Hraðinn