Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR1. NÓVEMBER 1994 B 9 HANDKNATTLEIKUR A-riðiH: Svíþjóð Sviss Frakkland Noregur '2m B-riðill: ísland Spánn Danmörk ítc Italía 2.-5. |KI. 18.30: Svíþjóð-Noregur Hafnarfjörbur Kaplakriki 2. nóvember 1994 Kl. 18.30: Svlss-Frakkland 4. nóvember 1994 |ki, 18.30: Danmörk-Ílalía I Kl. 20.30: tsland-Spánn ~ —ú Kópavogur .........-- Vígsluleikur UBK-húss, 3. nóvember 1994______ Kl. 20.30: Ísland-Danmörk Reykjavík -=7 Laugardalshöll 2. nóvember 1994 , I Kl. 18.30: Spánn-PanmörÍT |ki. 20.30: ísland-ítalla 3. nóvember 1994 Kl.16.30: Spánn-Ítalía 4 Kl. 18.30: Svíþjóð-Frakkland [~Kl7~20.30: Noregur Sviss 4. nóvember 1994 Úrslit, leikið um sæti i Laugardalshöll 5. nóvember 1994 7.- 8. sæti Ki. 18.30: Frakkland-NoregöiT Kl. 20.30: Svíþjóð-Sviss KI.13.M: 5.- 6. sæti Kl. 16.00 3.- 4. sæti Kl. 18.00: 2. sæti Fimm úrEM úrvalsliðinu FIMM af þeim leikmönnum sem voru valdir í úrvalslið Evrópu, eftir EM í Portúgal, leika á Reykjavíkurmótinu. Svíarnir Thomas Svensson, Eric Hajas, Magnús Andersson og Pierre Thorsson og Daninn Jan Eiberg- Jörgensen. Spánverjar urðu í fimmta sæti í EM, með því að leggja Frakka að velli 28:25. Erik Hajas varð næst marka- hæsti leikmaður EM, með 40 mörk, en markahæstur var Rúss- inn Wasilij Kudinow skoraði mest, 50 mörk. Norðmenn fá ráðgjöf NORÐMENN hafa á undanförn- um árum leitað í smiðju Svía og voru þeir með sænskan landsliðs- þjálfara. Nú hafa þeir leitað í smiðju Dana og fengið Leif Mik- kelsen, fyrrum landsliðsþjálfara Dana, í herbúðir sínar. Leif er klókur þjálfari, sem er ákveðinn og fastur fyrir og hefur sálfræði- leg tök á þeim liðum sem hann hefur stjórnað. Svíar ætla sér ÓL-gull Bengt Johansson, þjálfari Svia, kemur með sitt sterkasta lið hingað til lands — ákveðinn að fagna sigri og um leið að vinna hylli íslenskra handknattleiks- unnenda fryir HM. Johansson hefur verið sigursæll þjálfari — fagnað heims- og Evrópumeist- aratitli. „Það eina sem við eigum eftir að fá, er Ólympíugullið." Svíar geta náð því á ÓL í Atlanta 1996. Tap og sigur gegn Rússum Svíar léku tvo upphitunarleiki fyrir Reykjavíkurmótið gegn Rússum um helgina — töpuðu fyrri leiknum, 13:20, í Stokk- hólmi. Magnús Anderson, Per Carlén, Magnús Wislander, Thomas Svensson og Staffan Olson léku ekki leikinn. Svíar lögðu Rússa að velli, 22:19, í Malmö, í seinni leiknum og lék Staffan Olsen þá með — og mun- aði mikið um hann. Rússar voru ekki með sitt sterkasta lið í Sví- þjóð. Norðmenn hituðu upp gegn Egyptum — unnu 28:19. Magnús Wislander, lelkstjómandl sœnska liðsins, stjórnaði sænska ilóinu frábærlega í úrslltaleik EM gegn Rússum f Port- úgal, sem Svíar unnu 34:21. á Evrópumeistaramótinu í Portúgal — töpuðu þar 23:24 fyrir Króatíu. Danir eru með sænska þjálfarann Ulf Schefvert, sem hefur verið að gera góða hluti og komið aga í leik þeirra. Danir hafa alltaf leikið skemmtilegan handknattleik og verið með mjög léttleikandi leikmenn, en það sem hefur vantað er styrkur og úthald. Sterkasti leikmaður liðsins er Jan E. Jörgensen, vinstrihandar- skytta, sem leikur með þýska liðinu Flensburg-Handewitt." ítalir óþekkt stærð „ítalir hafa aldrei verið hátt skrif- aðir í handknattleik og ég veit lítið um ítalska liðið. Með því koma tveir leikmenn frá Júgóslavíu — leikmenn sem ég hef aldrei séð leika,“ sagði Jóhann Ingi Gunnarsson. Alþjóðlega Reykjavíkurmótið hefst á morgun með fjórum leikjum. íslenska liðið leikur fyrst gegn Ítalíu, en annars má sjá leikdaga á kortinu hér fyrir neðan. Alþjóða Reykjavíkurmótið hefst í Reykja- vík, Hafnarfirði og á Akureyri á morgun EVRÓPUMEISTARAR Svía koma með alla sína sterkustu leik- menn á alþjóðlega Reykjavíkurmótið, sem hefst á morgun. Mót- ið er það sterkasta hér á landi síðan Flugleiðamótið fór fram 1988, með þátttöku Tékka, Svisslendinga, Spánverja og Sovét- manna. „Það er Ijóst að íslendingar og Danir koma til með að berjast um fyrsta sætið í B-riðlinum, Sviar ættu að vara öryggir sigurvegarar í A-riðlinum,“ sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrrum landsliðsþjálfari. Islendingar leika í riðli með Dönum, ítölum og Spánveijum, í hinum riðlinum leika Svíar, Svisslendingar, Norðmenn og Frakkar. „Þetta er sterkt mót og handknattleiksunnend- ur eru hugraðir í að sjá landsleiki, þannig að það getur orðið góð skemmtun á mótinu. Þetta mót er góður undirbúningur fyrir heims- meistarakeppnina sem fer fram hér á næsta ári. Menn sjá þá hvernig skipulagning mótsins gengur og hvað þarf að lagfæra og gera betur þegar að heimsmeistarakeppninni kemur,“ sagði Jóhann Ingi, sem spá- ir í spilin og segir sitt álit á landslið- um, sem taka þátt í Reykjavíkurmót- inu. Svíar öflugir „Svíar koma með alla sína bestu leikmenn, þannig að áhorfendum er boðið upp á veislu. Svíar eiga frá- bært landslið, sem er eitt af tveimur sterkustu landsliðum heims ásamt landsliði Rússlands. Leikmenn sænska liðsins, sem eru nokkuð við aldur, hafa náð frábærum árangri á undanfömum árum — heimsmeistar- ar 1990 í Tékkóslóvakíu, fengu silfur á Ólympíuleikunum í Barcelona 1992 og urðu Evrópumeistarar í Portúgal í sumar. Svíar leika fábæran vamar- leik og þeir eiga tvo af bestu mark- vörðum heims, sem geta lokað mark- inu þegar þeir eru í essinu sínu, eins og Thomas Svensson gerði gegn Rússum í úrslitaleik EM. Leikmenn sænska liðsins eru líkamlega og and- lega mjög sterkir — sjálfstraust leik- mannanna er í góðu lagi, enda geta þeir vel staðið undir því að vera ánægðir með sig. Magnús Wislander, sem hefur verið við stýrið hjá meist- araliði Kiel, er frábær leikstjómandi. Svíar eru með sterkan línumann, sem vinstrihandarmaðurinn Per Carlén er. Þá eru homamenn þeirra Ola Lindgren og Magnús Andersson geysilega öflugir og Staffan „Faxi“ Ölsson er óstöðvandi, þegar hann kemst á ferðina — skytta góð og mjög öflugur vamarmaður. Svíar eru þekktir fyrir mjög vel útfærð hrað- aupphlaup og þeir leika agaðan sókn- arleik, sem er erfítt að eiga við.“ Frakkar misjafnlr „Frakkar koma hingað með lið sem er skipað reyndum og ungum leikmönnum. Það gætir áhrifa frá Júgóslavíu í leik þeirra — þeir hafa yfir góðri tækni að ráða. Kunnastir þeirra eru skyttumar Philippe Gard- ent og Thierry Perreux, ásamt Jack- son Richardson, sem hefur verið ís- lendingum erfiður, eins og í heims- meistarakeppninni í Tékkóslóvakíu, þar sem hann stal knettinum hvað eftir annað frá íslensku leikmönnun- um, þegar hann lék í stöðu indíána. Richardson er mjög klókur að ná knettinum frá mótheijum án þess að brjóta á þeim. Frakkar leika vörn sína framarlega, eða 3-2-1, og eru fljótir fram í hraðaupphlaup þegar þeir ná knettinum." Thomas Svensson, markvörð- urinn snjalll, fagnar Evrópu- meistaratltlinum í Portúgal. Svisslendingar eru ekkl skemmtilegir „Svisslendingar bjóða ekki upp á mjög skemmtilegan handknattleik. Þeir hanga lengi á knettinum og reyna að svæfa andstæðingana. Þeir eru með góða skyttu sem Marc Baumgartner er, leikmaður með Lemgo. Vöm Svisslendinga er sterk og það verður fróðlegt að sjá hvem- ig þeira leika eftir þjálfaraskipti, sem var hjá þeim fyrir stuttu. Svisslend- ingar létu sænska þjálfara sinn fara. Urs Miihletaler, þekktasti þjálfarinn í Sviss, tók við liðinu, en hann hafði þjálfað 21árs lið Svisslendinga.“ Bakslag hjá Norðmönnum „Norðmenn áttu geysilega sterkt lið fyrir tveimur ámm, sem var skip- að lykilmönnum sem léku með þýsk- um liðum, eins og Rune Erland, sem nú er hættur með norska liðinu. Norðmenn unnu B-keppnina í Aust- urríki 1992, síðan kom bakslag hjá þeim í heimsmeistarakeppninni í Sví- þjóð 1993. Úthald Norðmanna hefur verið lélegt og landslið þeirra brot- hætt — hefur ekki þolað mótlæti. Það em kynslóðaskipti hjá Norð- mönnum og þeir spurningamerki." Spánverjar I tilraunaferð „Spánveijar koma ekki með sitt sterkasta lið til íslands, heldur hefur þjálfari þeirra José Diaz ákveðið að nota ferðina hingað sem tilraunaferð — gefa yngri leikmönnum sínum tækifæri. Spánveijar hafa alltaf mik- inn metnað og þeir leika hraðan handknattleik. Spánveijar em með líkamlega sterka leikmenn, enda leggja þeir mikið upp úr lyftinga- þjálfun. Það hefur lengi loðað við Spánveija, að þeir em ekki nægilega hugmyndaríkir í leik sínum og vilja margir kenna því um að þeir séu ekki með nægilega góða þjálfara hjá félagsliðunum á Spáni.“ Danir á uppleið „Danskur handknattleikur er á mikilli uppleið eftir öldudal. 21 árs landslið Dana gerði góða hluti í heimsmeistarakeppninni í Egypta- landi, þar sem það náði öðru sæti og þá náði danska liðið fjórða sæti Svíar koma með alla sína sterk- ustu menn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.