Samhjálpin - 01.06.1931, Blaðsíða 1
A S V
Útgefandi: Alþjúðasamhjálp verkalýðsins.
I iTTfNí 19Ri — — -..... V F TT n • A tt n a n
14. Júní.
Alþjóða samúð og pamhjálp
verkalýðsins er ómótmælanlegur
veruleiki. Á þessa leið voru orð
Lenins á heimsófriðar-árunum,
er alþjóðasamtök verkalýðsins
voru lögð í rústir, og margir
vildu sem ákveðnast halda því
fram, að verkalýðurinn væri
fyrst og fremst enskur, þýzkur,
franskur o. s. frv., og alþjóðleg
gæti verkalýðshreyfingin aðeins
verið á friðartimum.
En sagan sannar orð Lenins.
Við hvern stórviðburð verka-
lýðsbaráttunnar fer jafnan sjálf-
krafa samúðarhreyfing um ör-
eigastjett allra landa. Og í hvert
sinn, er stórböl steðjar að öreiga-
Btjett eins lands, rjetta miijónir
öreiga allra landa hjálparhendur
til þeirra fjelaga.
Oteljandi dæmi þessa mætti
nefna, alt frá dögum skommún-
unnar« i París 1871, fram til
ófriðarins og alt fram til síð-
ustu ára. Hin stórkostlega hjálp
í hungursneyðinni í Suður-Rúss-
landi 1921 ogí jarðskjálftunum í
Japan 1923, í enska kolaverk-
fallinu 1926 o. s. frv. Þetta eru
aðeins nokkur dæmi úr sögu
siðustu 10 ára.
Alþjóðasamhjálp verkalýðsins
er beinlínis sprottin upp af rót-
um þessarar viðtæku samúðar-
kendar öreigastjettarinnar og er
sá fjelagsskapur sem starfar á
viðtækustum grundvelli að því
að vekja þessa almennu samúð-
arkend til vitandi þátttöku í
stjettabaráttunni.
Það er því í fyllsta samræmi
við sögu A S V, starf hennar og
tilgang að hún árlega gengst
fyrir því að verkalýðurinn safn-
ist einhvern vissan dag í kröfu-
göngur og samkomur undir kjör-
orðinu:
alþjóða samúð o(/ samhjálp
verkalýðsins.
•Nú er þessi dagur ákveðinn
sunnudaginn 14. júní, og þann
dag munu hundruð þúsunda
verkamanna um heim allan
fylkja sjer með A S V í kröfu-
göngur undir kjörorðiuu A S V
og fyrir kröfum öreigastjettanna:
Samhjálp verkalýðsinsístjetta-
baráttunni!
Alþjóðasamtök hinna kúguðu
stjetta og þjóða!
Með Sovjet-Rússlandi, fram-
herjum alheims öreigalýðsins!
Móti íhaldi og facisrna!
Þennan dag fylkir einnig is-
lenskur verkalýður sjer með
A S V.
Islenskir verkamenn skilja og
meta samhjálparstarfsemi A S V
Það hafa þeir sýnt með þátttök-
unni í söfnunum A S V, nú sið-
ast handa verkfallsmönnum á
Isafirði, og áður í Krossanesdeil-
unni og handa sænsku verkfalls-
mönnunum,
Islenskir verkamenn og verka-
konur! Fylkið ykkur með Is-
landsdeild A S V 14. júní og
styrkið með því alþjóða samúð
og samhjálp verkalýðsstjettar-
innar og styðjið samhjálparstarf-
semi íslandsdeildarinnar hjer á
landi!
TAKIÐ ÞÁTT I'
samhiálpardeginum
14. júní.
KAUPIÐ MERKI DAGSINS
Styrkiö A S V.