Tíminn - 17.06.1953, Blaðsíða 29

Tíminn - 17.06.1953, Blaðsíða 29
mm_________________________ meiri og meiri áhrif í viðskipta- lífinu og stuðla hægt en örugg- lega að breyttum þjóðfélags- háttum. En einn meginkostur st^fhurfnaf eí iá, aþ* hún er ekki til órð'in sem éin állsherj ár úr- lausn í höfði eins manns, sem heldur sig hafa leyst öll mann- leg vandamál með því að ætla sér að steypa öll mannleg samfé- lög í sömu fyrirfram ákveðnu mótin, heldur grundvallast það á réttlátum og heilbrigðum starfsreglum, sem samvinunfé- lögin fara eftir og eru þess eðl- is, að framkvæmd þeirra hlýtur smátt og smátt að hafa bætandi áhrif á þeim sviðum þjóðfé- lagsins, sem hún nær til, og loks á ália þjöðfélagsbyggingúna með áframhaldandi framsókn samvinnustarfsins inn á öll svið viðskipta- og efnahagsmála. Annars minna þessi atriði á hinn ágæta kafla Anders Örne um „Umsköpun mannfélagsins“ i bók hans „Cooperative Ideals and Problems". Þar bendir hann á, að flestir, ef ekki allir um- bóta- og draumsæismenn hafi látið sig dreyma um nýtt og betra þjóðskipulag. Svo var um Fourier, Owen, King, Vefarana, Marx og urmul annara hug- sjóna- og draumsæismanna, sem vildu fara ýmsar leiðir til þess að ná hinu setta marki: betra þjóðfélagi. En aðeins fáir þeirra voru á réttri ieið. Örne bendir réttilega á, að það eitt að gera byltingu, breyta lögum og s'tjörnarskrá, drepa keisara og gera kaupmenn að ör- eigum, en upphefja byltinga- menn til valda, segja svo að nú höfum við nýtt og betra þjóðfé- lag, Sé mesta blekking og geti ekki falið í sér varanlega betra og auðugra líf fyrir fólkið nema því aðeins, að þess sé jafnan gætt, að við þessar breytingar stöðvist hvorki framleiðsluhjól- ið né heldur dragi úr ferð sinni, því af slíku mundi leiða lélegri kjör fólksins. „Öll sagan sannar“, segir Örne, „að samdráttur framleiðslunn- ar kemur. fyrst og fremst niður TÍHIHN -------------t-—---------------- á fjöldanum. „Ef við hugsum málið til enda, þá hljótum við að komast að þeirri niðurstöðu, að þeir nýju ; félágshættir, sem upp eru tekn- ir' í þvi augnamiði, að fjöídmn njóta betra lífs en á sér stað í dag, þurfa að samanstanda af bæði bœttu skipulagi og full- nœgjandi hreyfiafli við fram- leiðsluna í stað hagnaðarvonar- innar, sem er hreyfiafl skipulags nútímans . . . „Samvinnuhreyfingin vinnur vitandi vits að því að bæta skipulag, dreifingu og fram- leiðslu vara. Og á hinn bóginn miðar hún að því að setja þjón- ustu við neyzluþörf mannsins sem hreyfiafl efnahagslífsins í stað hagnaðarvonarinnar. Ár- angur samvinnustarfsins vottar greinilega farsæld þessarar að- ferðar“.13) Aukin framleiðsla — þjón- ustu, en ekkí gróða- sjónarmið. Örne bendir hér á þá mikils- verðu staðreynd, sem aldrei verður of oft endurtekin (Gide lét rétt aðeins skína í hana) að undirstaða breytinga á þjóð- skipulaginu, sem ættu að leiða til betra og auðugra lífs fyrir fólkið, þyrfti að vera bœtt fram- leiðsluskipulag, sem mundi leiða af sér meiri framleiðslu, þ. e. fleiri föt, húsgögn og fæðuteg- undir o. s. frv. (hin materialist- iska hlið hugsjóna) og upprœt- ingu gróðasjónarmiðsins í efna- hagslífinu, þ. e. bætt vörudreif- ing með því að láta neytenda- sjónarmiðanna gæta í verzlun og viðskiptum. Hver sú tilraun, sem gerð verður til þess að breyta þjóðskipulaginu, getur ekki leitt til betra og auðugra lífs fyrir fólkið nema því að- eins, að hún geri þetta tvennt: 1. bæti framleiðsluskipulagið og þar með framleiðsluafköstin, 2. uppræti gróðasjónarmiðin í verzlun og viðskiptum og bæti vörudreifinguna. ls) Órne Cooperative Ideals and Prob- lema. Þetta verður aldrei nógsam- lega undirstrikað. Það er athyglisvert, að sam- vinnustarfsemin byrjar einmitt á þessum tveimur þýðingar- mestu undirstöðuatriðum betra þjóðskipulags. Innan rlkjandi skipulags tekur hún þegar tíl höndunum við uppbyggingu htiis nýja og bœtta þjóðskipulags. Qjg. gegn ríkjandi þjóðskipulagi notr ar hún aðeins þess eigin voprl: samkeppni og frelsi. Þjóðskipulag samvinnu- * manna. Þjóðskipulag samvinnumanna, sem segja má að sé lýðrœðis- skipulagið með blönduðu hag- kerfi, þar sem samvinunrekstur- inn er mest áberandí, kemst því. ekki á nema því aðeins, að sam- vinnumenn hafi í frjálsri sam- keppni sýht, að þeirra skipuiag sé betra en núverandi skipulag. Að þessu leyti er samvinnu- hugsjónin sérstök. Allar aðrát þjóðfélagshugsjónir beita fyrír sig pólitísku valdi við að um- breyta þjóðskipulaginu. Sam- vinnuhugsjónin beiti yfirlettt aðeins fyrir sig vopnum núver- andi skipulags: frjálsri sam- keppni. Sé samvinnuskipulagið betra en skipulag keppinaut- anna, hlýtur þaö að sigra, sé það lakara, hlýtur það að tapa. Sam- vinnustarfið um heim allan sið- ustu 100 ár sannar stöðugt bet- ur og betur kosti samvinnú- skipúlagsins. Samvinnufélögin leggja hægt en örugglega inn á fleiri svið, ná stöðugt fleiri fé- lagsmönnum meðal fleiri þjóða og vöruveltan er alltaf að aukast. Þetta gefur fyrirheit um, að samvinnuskipulagið sé það skipulag, sem koma muni, syo framarlega sem félögin fá að starfa frjáls og óháð og á jafn- réttisgrundvelli við önnur rekstursform eða kerfi. Af þessu mætti álykta, að jafn- vel þótt þeir kennimenn kæmu aldrei fram, sem tækju skipu- lega saman efni samvinnu- starfsins og hugsjónarinnar og flokki það og móti sem þjóðíé-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.