Tíminn - 24.12.1954, Side 10

Tíminn - 24.12.1954, Side 10
10 JÓLABLAÐ TÍMANS 1954 LÉTT HJAL Á HRAÐRI FERÐ Eftir Ingólf Davíðsson Brunum yfir Borgarfjarðarhérað. Skógarteigar, engi, ár, aldinn Baulutindur hár. Við Gljúfurá er glæfrabugða á vegi. Brúarhlykkir tolla í tízku, trúlega meir af þrjózku en nízku. Fornihvammur, Holtavörðuheiði. Hallar norður, horfa við Húnaflóa breiðu svið. Tröllalkirkja sumarþoku sveipuð. Strandafjöllin yzt við úthafsstrend- ur, innar dalabyggð og fríðar lend- ur. Andar köldu eftir Hrútafirði. Rétt hjá ægi rása þar Reykjaskóla- gemlingar. Tröllasmíði virðast Vatnsdalshólar. Eru í þingi engi breið, einkar frítt á þeirri leið. Skeiðum yfir Skagafjarðarhérað. Nú erum viö í Norðurárdal, niðar á í grýttum sal. Er að lokum upp á heiði snúið. Glæfrabraut um Giljár- reit, gljúfrin djúp til hægri leit. Drottins fingur drangar yfir Hrauni. Skriðu Þorláks skríða tré, skarta enn þótt gömul sé. Akur- eyri heillabærinn hlýi. Harla víða húsum þar hlífa vænir trjálundar. — Langferðabíllinn fer á tölti út Svalbarðsströndina. Æskustöðvar Bólu-Hjálmars blasa við beggja megin fjarðarins: Hallland, Dálks- staðir og Dagverðareyri koma þar mjög við sögu. Og út á firðinum gerði Hjálmar fyrsta vísuhelming- inn sem varðveitzt hefur eftir hann. (Sbr. æfisögu Hjálmars). Mætti um þau efni segja: yið Eyjafjörð ég átti fyrstu sporin Á Eyjafirði orti fyrsta stefið I Eyjafirði fegurst grær á vorin við Eyjafjörðinn var mér lífið gefið. Hörðu taki hreif mig lífsins straum- ur, horfinn margur ljúfur æsku- draumur. Ennþá falla vötn til Eyja- fjarðar þótt örlög hrektu mig i kot- ið Skagaf j arðar. — Utar með firðinum versnar vegurinn. Bíllinn líkist víxluðum húðaklár og snarstanz við túnið í Laufási. Ekki vannst timi til að skoða gamla bæinn, en fagurt þótti okkur þarna og síðskeggjaður karl kvað vísu séra Björns Halldórsson- ar við raust: „Laufás minn er listabær lukkumaður sá honum nær manni allt á móti hlær mest á vorin þegar grær“. Reynitrén í Laufási hafa lengi verið fræg. Þau standa við stafn kirkjunnar og eru meðal elztu gróðursettra trjáa á landinu. Séra Þormar mældi trén, að tilmælum mínum árið 1949 og segir svo í bréfi: „Trén eru tvö og standa á leiðum séra Gunnars Hallgríms- sonar og séra Gunars Gunnarsson- ar, þ.e. afa og föður Tryggva Gunn- arssonar. Tréð á leiði G. Gunnars- sonar greinist í tvær álíka stórar greinar. Þriðja og stærsta greinin brotnaði fyrir 12 árum. Hæð trésins er 9,40 m. Þetta tré mun vera gróð- ursett árið 1853 eða 1854. Syðra tréð á leiði G. Hallgrímssonar gróð- ursetti Tryggvi Gunnarsson 1849. Standa nú eftir tvær greinar, álika stórar og á hinu trénu. Aðalstofn- inn féll í ofsa krapveðri að kvöldi 30. janúar 1947. Mældist hann yfir II metra. Trén eru nú á fallanda fæti, tekin að fúna og hallast. Ennþá eldri eru trén í Skriðu og Fornhaga í Hörgárdal. Þau eru gróðursett á árunum 1820—1830. Hin hæstu eru nú 10—11 m. há. Þarna eru elztu trjágarðar á ís- landi“. — Brátt er komið yfir Vaðlaheiði. Bárðardalur býður oss bæði Hriflu og Goðafoss. Dreymir flesta Detti- foss að skoða; í feikna gljúfri fer- legan, fossakónginn öflugann. Goðafoss ég áður undrast hafði, sem friðleiksbarn í faðmi móður finnst mér hann hjá vöxnum bróð- í Breiðdal skoðaði ég elzta trjá- garðinn þar í sveit — í Höskulds- staðaseli. Árið 1914 fékk Björn Eiríksson reynifræ í bréfi frá Ein- ari Helgasyni. Fræin týndust nema tvö, en upp af þeim eru vaxnar vænar hríslur. Tólf voru fengnar til viðbótar frá Hallormsstað fáum árum síðar. Nú eru hríslurnar um og yfir 5 metra háar. Að Ásunnar- stöðum er næstelzti garðurinn, gerður um 1930. Hefur þar oft ver- ið blómskrúð mikið. Tré vaxa einn- ig að Ósi og víðar i Breiðdal og ösp vex á tveim stöðum í landi Jórvík- ur. Hefur ösp sjálfsagt vaxið víða um landið á landnámstíð. En sauð- fé er mjög sólgið í hana. í Hafsdal, inn af Álftafirði mun vera mesti skógur á Austfjörðum. í hlíðunum næst bæjum sjást að- eins einstaka hríslur á stangli, nag- aðar af sauðfé og dvergvaxnar. En þegar fjær dregur bæ og beitar- húsum fara að sjást birkirunnar hér og hvar og loks tekur við sam- felldur skógur, einkum norðan ár. Skógurinn er víða stórvaxinn og blómlegur langt upp eftir hlíðum og niður að á. Nokkrar skógartorf- ur sjást enn sunnar ár, en víðast er bert og blásið land þeim megin, enda snjóléttara þar. Mörg hrika- leg og krókótt gil kljúfa dalhliðarn- ar. Lækir bera aur og skriður fram úr hamragiljunum vor og haust og mynda stórar urðarbungur á lág- lendinu, m.a. heim að túni á Hofi. Hofsskógur mun vera 4—6 m hár að jafnaði og þekur allstórt svæði allt inn að fossi einum í Hofsá. Talsvert sést af ungum hríslum í uppvexti. Blágresi og hrútaber lita skógsvörðin og þar er sterkur reyr- ilmur úr grasi. Bóndinn kvað skóg- inn rífa ullina af fénu og vandræði væru að leita kinda í honum. En skjólsamt er þar og gott beitiland. Ég var þarna á ferð í stormi og rigningu. Þaðþaut og hvein í skóg- arliminu, en logn var undir hrísl- unum og þar var féð á beit í næði og leitaði allt í skóginn undan veör- inu. Grunnt er hér á grjóti. Mundi landið eflaust blása upp ef skóg- urinn væri eyddur. Hinir fjármörgu myndarbændur á þessum slóðum ættu að syngja björkinni lof og fara vel með hana. Sumir bændur telja féð ganga harðara að lyngi og kvistlendi en áður, síðan farið var að gefa síldarmjöl með vetrarbeit- inni. Um Tröllatjörn við Geithellnaár- brú hafa spunnizt þjóðsögur. Tjörn- in er líka einkennileg og liggur í draugalegu gili, sem áin einhvern- tíma hefur brotið í bergið. „Stein- runnin mannshöfiið" koma víða fram í bergbrúnunum cg virðast horfa á vegfarendur, og sumstaðar er engu líkara en bergrisar séu að stíga út úr hömrunum. Dökkir og ljósir blettir koma fram í tjörninni á einkennilegan hátt. Veldur því bæði gróður á botninum og bjarg- skuggarnir. (Dökkur síkjamar og nykra). Geithellnaá rann fyrrum gegnum tjörnina og fallegan stein- boga. Þá var silungaveiði i tjörn- inni. Þegar áin breytti um farveg, hvarf veiðin og kenndu menn það tröllvættum. Eða kannske hefur einhver gamansamur náungi búið til söguna. Menn voru glettnir í gamla daga engu síður en nú. — Reykjavík dregur fólkið að sér eins og segull, segði einn óðalsbóndinn. Fyrst fara ungu stúlkurnar og ég get ekki láð ungum piltum þó að þeir eiri illa heima kvenmanns- lausir. Ef einhver veikist alvarlega, væri eins gott að rista strax fram úr honum, því að hver er til að hjúkra? Myndarleg heimasæta héðan úr sveit varð efstr í sínum bekk í Reykjavík s.l. vor, en svo réð hún sig til að stoppa sokka fyr- ir Reykvíkinga. Til þess þurfti hún varla að taka hátt próf bætti hann við í hálfkæring, en hló þó við. TIMINN óskar öllum lesendum sínum íeÍiL .J ec^rci jolci ■iiiimiiitiiiimiMiiiiiiiiiiiiniiiMiiiiiiiiiiiiiMMiiniiiiiiiHiiiiuiiiiMiiiiiii mmimmmmmmiMiiitHmmmimiimmmiiimmiimma ur. Laufás viff Eyjafjörff. Trén eru gróffursett um miffja 19. öld,

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.