Tíminn - 09.03.1956, Síða 7

Tíminn - 09.03.1956, Síða 7
T í MIN N, f östudaginn 9. marz 1956. Pró/essor Richard Beck’ Fyrstu Með vígslu Þjóðleikhúss íslands 20. apríl 1950 var brotið merkilegt blað í menningarsögu þjóðarinnar. Þá rættist hjartfólginn draumur ýmsra hennar ágætustu manna, en enginn kemur þar þó meir við sögu heldur 'en Indriði Einarsson rithöfundur.er ævilangt barðist ótrauðlega fyrir þeirri hugsjón, að . rísa skyldi frá grunni á íslandi leikhús, sem sæmandi væri þeirri göfugu orðsins list og þókmennta- arfi þjóðarinnar, og yrði henni jafnframt um ókomin ár menning- armusteri, uppspretta yndis, gleggra skilnings á lífinu og auk- innar hugsjónaástar. \ Fyrsta og vinsælasta Ieikrit Ind- ( riða Einarssonar, Nýársnóttin, var ( einnig, honum tii heiðurs, sýnt við opnun og vígslu Þjóðleikhúss- ins. Tómas Guðmundsson skáld minntist hans einnig fagurlega í snjöllu forljóði sínu við vígslu leikhússins: Já, Indriði, hér stígur morgunmild þín minning fram. Hér leiztu skyggnum augum þá sltjaldborg rísa um lands þíns list og snilld, sem löngum þótti draumsýn einni skyld. En þér brann ævilangt sú trú í taugum, að þjóð, sem hafnar heimsins list, er dæmd til hels og þagnar, dæmd frá tign og sæmd. Og víl og beyg- þú lýstir lands þíns fjendur og lýstir hvoru tveggja stríði á hendur. Má þá spyrja: — Hvernig hefir Þjóðleikhús íslands innt af hendi sitt veglega og mikilvæga hlutverk á þeim fimm árum, sem liðin eru frá vígslu þess? Glöggt svar við þeirri spurningu er að finna í af- mælisriti þess, Þjóðleikhúsið fimm ára, sem nýlega kom út, og er bæði gagníróðlegt um starf leik- hússins og vandað að sama skapi, eins og sæmir þeirri merkisstofn- un þjóðarinnar. Hér er, eins og undirtitill rits- ins b.er með sér, í rauninni um að ræða skýrslu um störf Þjóð- íeikhússins á árunum 1950—1955. Hefst ritið með greinagóðri yfir- litsritgerð eftir Guðlaug Rósin- kranz þjóðleikhússtjóra, er þann sess hefir skipað frá upphafi vega þess, og kemst hann meðal annars . þannig að orði um starf leikhúss- ins: „Sýnd hafa verið sígild verk hinna gömlu meistara, nokkur snilldarverk yngri sígildra liöf- unda, eldri þjóðleg íslenzk leikrit, erlend nútímaleikrit, sem mikla athygli hafa vakið vegna boðskap- ar þess, sem í þeim felst, stíl- snilldar, nýstárleika í gerð og upp setningu, eða þá vegna þeirrar skemmtilcgu kímni, sem í þeini felst, ný, íslenzk leikrit, óperur, óperettur, erlendir og innlendir leikdansar og barnaleikrit“. Gefur sú upptalning í skyn, hve fjölþætt starfsemi leikhússins hef- ir verið, og kemur það þó enn bet- ur á daginn, þegar menn kynna < sér hina ítarlegu starfsskrá þess, „Þjóðleikhúsið, starfsmenn þess og verkefni“, sem einnig er prent- uð í ritinu. Leið'ir hún í Ijós, að á umræddu tímabili hefir leiklhis- ið tekið fyrir 64 viðfangsefni, og skiptast þau þannig niður: íslenzk: 16 leikrit og 2 listdans- sýningar; dönsk: 4 leikrit og 2 listdanssýningar; norsk: 2 leikrit; finnsk: 1 leikrit; sænsk: 1 listdans- sýning; ensk: 8 leikrit; frönsk: 5 leikrit og 1 óperetta; þýzk: 4 leik- rit; amerísk: 7 leikrit; rússnesk: 1 æyintýri með músik; hollenzk: 1 leikrit; austurrísk: 1 óperetta; írsk: 1 leikrit; ítölsk: 4 óperur; japönsk: 1 listdanssýning; og ind- versk: 1 listdanssýning. Auk þess hefir leikhúsið haldið hljómleika þrisvar sinnum. Samtals liafa leiksýningar verið 1126 á tímabilinu, en fjöldi sýning- argesta rúmlega 520 þúsund til Vors 1955. Ritið er einnig prýtt fjölda mynda frá hinum margbreyttu sýningum leikhússins, er gefa stór Afmælisrit leikhússins vitnar um stórmerkilegt menningarstarf Veöurstöð á Keflavíkurveili sendir loftbelgi um háloftin Belgirnir flytja sjálfvirk senditækií allt að því 43 km. hæð - merkilegt starf eykur gildi veðurspánna og öryggi flugferða Frá Keflavíkurflugvelli svífa loftbelgir óravegu upp í him- inhyolfið og flytja veSurathugunartæki. Alþjóðaflugmála- stofnunin og bandaríski flugherinn standa hér að þessari starfsemi. Slíkar veðurathuganir eru nú gerðar víða um heim. Þjóðleikhúsið um gleggri hugmynd um fjölþætta menningarstarfsemi þess heldur en þurrar upptalningar, þó fróð- legar séu. Það yrði of langt mál í stuttri blaðagrein, ef telja ætti upp hina mörgu og ágætu leikendur, ís- lenzka og erlenda, sem farið hafa með hlutverk á sviði Þjóðleikhúss- ins á umræddum fimm árum, en vel fer á því að geta þeirra manna, er sæti hafa átt og eiga í þjóð- leikhúsráði, en þeir eru, auk Guð- laugs þjóðleikhússtjóra: Vilhjálm- ur Þ. Gíslason, útvarpsstjóri, íor- maður; Hörður Bjarnason, húsa- meistari ríkisins; Halldór Kiljan Laxness, rithöfundur; Ingimar Guðlaugur Rósinkranz, þjóðléikhússtjóri .Jónsson skólastjóri; og Haraldur jBjörnsson, leikstjóri. I Enginn íslendingur, sem opin hefir augun, fær komið svo í Þjóð- leikhús íslands, að honum verði eigi augljóst, að þar hefir þjóðin „eignazt salarkynni, er bera á sér glæsiblæ og virðuleika og sam- boðin eru hofuðborg sérhverrar menningarþjóðar", eins og þjóð- leikhússtjóri orðaði það réttilega í inngangsorðum að minningarriti jum vígslu leikhússins. Það var ; einnig hið góða hlutskipti okkar hjónanna að sjá í heimför okkar jtil ættjarðarinnar ágætt dæmi ' þeirrar leiklistar, sem Þjóðleikhús ið hefir upp á að bjóða, þar sem var snilldarleg og áhrifamikil sýn- ing Villiandarinnar, eins af önd- vegisverkum norska snillingsins Iicnriks Ibsen. Var sú sýning óræk ur vottur þess, er fram kemur svo eftirminnilega í þessu afmælisriti Þjóðleikhússins, að það hefir þcg- ar innt af hendi mikið og mcrki- legt menningarstarf, sem spáir góðu um framtíð þess. En fram- tíðarhlutverki þess er ágætlega lýst í þessum orðum úr inngangs- ritgerð Guðlaugs Itósinkranz þjóð- leikhússtjóra: „Hver er svo tilgangur leikhúss- ins? Hvernig getum vér bezt þjón- að þeim tilgangi, sem því er ætl- aður? Spurningum sem þessum er ósvarandi svo öllum líki, enda myndi sjálfsagt vera hægt að svara þeim á marga vegu og fer þá eftir hugsunarhætti, menning- arsjónarmiði og lífsviðhorfi þess, sem svarar. Hinn merki ameríski leikrita- höfundur Maxwell Anderson lætur einn af túlkendum stefnu sinnar í einu leikriti segja eitthvað á þessa leið: „Leikhúsið er kirkja lýðræðisins, þar sem hver og einn, scm þess er megnugur að fá áheyr endur, hefir rétt á að tala. Form leiksins er hið lífræna t r ú b o ð s- f o r m. Boðskapur dramans er, að maðurinn sé í raun og veru betri hcldur en hanp álítur sig vera. Verkefni leikhússins er að reyna að fullvissa mennina um þetta og styrkja með því móti siðferðis- þrótt þeirra. Leikhúsið á að sýna baráttuna milli hins góða og illa í mannssálinni, og sýna að hið góða getur sigrað, sýna að andinn um síðir sigrar efnið“. Þetta er kenning, sem í sér felur mikla bjartsýni og von um fegurri og betri heim“. Megi hið unga Þjóðleikhús ís- lands halda áfram að vinna sem glæsilegasta sigra á sviði leiklist- 'arinnar í þeim anda! Um þessar mundir er mikið tal- að um loftbelgi, sem sendir eru ti| veðurathugana á Vesturlöndum, en vindar hrekja austur fyrir járn tjaldið. Er fróðlegt að kynnast því, hv.crs konar starfsemi þetta er. Blaðið hefir aflað sér eftirfar- andi upplýsinga um starfræksluna í Keílavík og þau tæki, sem þar eru notuð. Má ætla, að þessi veður athugunarstarfgemi sé víðast hvar með svipuðum hsetti. „Radip-S,ounde“. Fjölbreytilegar veðurrannsóknir. Veðurathuganir eru gerðar á niarga vegu. Eru þær athuganir ýmist á jöi'ðu niðri, eða byggjast á upplýsingum flugvéla cða ann- arra tækja, sem um loftin fara. Eitt af þessum veðurat- hugunartækjum er nefnt „Radio-Sounde“, en það er sent upp í hálofíin. Á Keflavíkurflugvelli er starfrækt háloftsathug unarstöð og hefir verið þar síðan í síðustu heims styrjöld. Við þessa stöð vinna 12 menn á vöktum 6 íslendingar og 6 Banda ríkjamenn. Þeir senda þessi veðurathugunar- tæki upp í himinhvolfið fjórum sinnum á sólar- hring. senditækið að senda út hitastig, raka og þrýsting. Svona heldur það áfram, upp í órahæð. Á jörðu niðri er síðan sjálfritandi móttöku tæki, sem ritar niður þær upplýs- ingar, sem tækið sendir. Úr þess- um upplýsingum er unnið, og þær sendar til veðurstofa út um allan heim. Loftbelgur ber tækið. Loftbelgur hefur þetta hálofts- tæki upp, og hér er belgurinn fylltur helíum. Oft eyðileggst allt samar. í „fiugtakinu“ ef hvasst er. Feykii' þá vindurinn belgnum og tækinu á símavira eða slær þyí harkalega við jörðu áður en tekst að hækka flugið nóg. En þá fara um 1100 kr. í súginn. Meðalstig- UpperAirStation Skiitió vi'ð inngang 'Seöurathugunar- stöðvarinnar 42700 dönskum krónum úthlutað úr Sáttmálasjóði Stjórn hinnar dönsku deildar sáttmálasjóðs úthlutaði nýlega eftirfarandi styrkjum til eflingar liinu andléga memiingarsam- bandi milli landanna (dansk. kr): Jón Guðbrándsson til náms við landb.háskólanám 600. Steinn Th. Steinsson, landbúnaðarháskóla- nám 600. Jóhannes Þórir Eiríks- son, landb.háskólanám 600. Einar Thorsteinsson, landb.háskólanám 600. Björn Ólafur Pálsson til náms við kennaraháskólann 600. Þórunn Bjarnadóttir, kennarahásk. 400. Jónas Eystemsson 400. Ilákon Magnússon 400. Steingrímur Bern- harðsson 400. Bernharður Hannes- son til náms við iðnskóla 400. Hall dór Hjálmarsson 400. Jón Sveins- son 400. Svanur Ágústsson 300. Þorsteinn Viggósson 300. Kjartan A. Kjartansson 400. Sveinn Thor- valdsson 400. Sigurður Þórarins- son 400. Sigríður Bjarnadóttir til náms í handavinnu 300. Ragnhild- ur Thorarensen 300. Kristgerður Kristinsd. 300. Anna Sigurðardótt- ir 300. Aðalbjörg Karlsdóttir 300. Ásgerður Áskelsdóttir til náms í heilsugæzlu 300. Kristín Jónsdótt- (Framhald á 8. síðu.) Tækið sjálft. Tækið sjálft virðist í fljótu bragði ekki svo margfalt, smákassi á stærð við lítinn kökukassa. Þetta er plastikkassi, mjög* léttur, um 1150 grömm, og inni í honum eru svo inælitækin. Áfast við þennan kassa er smá senditæki, sem send ir út allar þær upplýsingar, sem raunverulega allt snýst um. Það er hitastig, raki og þrýstingur. Þetta litla senditæki gengur fyrir rafhlöðu, og dregur býsna langt, því að meðalhæð tækjanna er um 16—20 km. og allt upp í 43 km. hæð frá jörðu. Af stað. Fyrst er tækið reynt, hvort það sé á allan hátt rétt stillt, og hvort það komi til með að gefa réttar upplýsingar. Ef svo reynist, er það sent af stað og strax byrjar litla hraði belgsins er 350 til 400 m. á mínútu fyrstu 6 kílómetrana, en síðan minnkandi. Þær upplýsingar, sem hér fást, eru síðan færðar inn á veðurkort, og þegar veðurfræð- ingar hafa fengi'ð upplýsingar frá fjöldamorgum háloftsathugunar- stöðvum víðs vegar úti um heim, eru þær mikil hjálp við samningu fiugspá og veðurspá. Yfirgripsmikil kort. Kortín eru afar yfirgripsmikil t. d. ná þau, sem hér eru notuð, norðan frá heimskauti og suður undir miðjarðarbaug, vestan frá Kyrrahafi og austur að járn- tjaldi. Þegar belgurinn spryngur, fellur allt niður með miklum hraða. Sumar veðurstofur senda tækin upp með lítilli fallhlíf til þess að iFramhald á R síðu.i Loftbelgur fluttur út úr veðuiatluigunarstöðinni. Maðurinn heldur á senditækinu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.