Tíminn - 09.03.1956, Qupperneq 8

Tíminn - 09.03.1956, Qupperneq 8
8 ir- TIMINX, föstudaginn 9. marz 1956. íslendirigcLþættir I ^yjafJarðar á *i ári ílug starísemi Ungmennasambands 18 félög innan vébanda sambandsins SEXTUGUR: Kristinn Jénsson, vigtarmaSnr Keflavík Kristinn Jónsson, vigtarmaður, j Loftsstöðum, Keflavík, varð sex-; tugur 2. marz sl. Vinir hans og | kunningjar hefðu gjarna’n viljað1 heiðra hann á þessum tímamótum,! en hann kaus heldur að vinna sitt þjóðnýta starf á afmælisdaginn sinn en að hafa veizlufagnað, eins og svo mjög tíðkast nú á íímum. Kristinn Jónsson er úr gamla skólanum, íslendingur í húð og hár, framúrskarandi starfsmaður, samvizkusamur og svo er Kristinn Jónsson orðheldinn, að það, sem hann lofar, jafngildir þinglesnu plaggi. Hann er maður greindur vel og maður farsæll í öllum störf- um. iHann er heilsteyptur sam- vinnumaður og telur málefnum bezt borgið hieð samstarfi og sam- vinnp. Það er rnikill skaði að því, þegar slíkir menn sem Kristinn Jónsson eru hlédraégir. Það er mín ósk til íslenzku þjóð- arinnar, að hún eignist sem flesta þegna með kostum Kristins Jóns- sonar, þá mun henni vel farnast. Svo óska ég Kristni Jónssyni og fjölskyldu hans gæfu og gengis með næsta áfangann. D. 0. DANARMINNING: Valentínus Ólason frá Hellissandi F. 18. okt. 1885 — D. 21. des. 1955 Þótt nokkuð sé nú orðið umliðið frá láti vinar míns Valentínusar Ólasonar, refaskyttu frá Hellis- sandi, langar mig til að stinga nið- ur þenna mínum og minnast hans með nokkrum orðum, enda er mér það bæði ljúft og skylt sakir lang- varandi vináttu hans og tryggðar við mig og heimili mitt. Hann lézt snögglega að heimili sínu á Hellis- sandi þann 21. des. s.l. og kom hið skyndilega fráfall ástvinum hans og ættingjum algjörlega á ó- vart, þrátt fyrir það að hann hafði nokkra undanfarna daga kennt sér nokkurs lasleika. Valentínus var fæddur í Bakka- húsi í Ólafsvík 18. okt. 1885, sonur hjónanna Óla Arngrímssonar út- vegsbónda í Ólafsvík og síðar bónda og vitavarðar á Öndverða- nesi á Snæfellsnesi, og fyrri konu hans Kristínar Finnsdóttur, en þau hjón.voru bæði komin af merkum bændaættum á Snæfellsnesi. En af hinum mörgu börnum Óla lifa nú aðeiny tvö, þau Halldór, búsettur á Alcranesi og Guðmunda, búsett í Keykjavík, en Sigríður Línberg systir þeirra andaðist í Reykjavík 4. sept. s.l. Valentínus ólst upp í Ólafsvík til fimmtán ára aldurs, en fluttist þá með föður sínum og stjúpmóður að Öndverðanesi og var með þeim til ársins 1917, að hann.settist að á Hellissandi og hóf þar sjómennsku er hann stundaði lengi síðan. Sama ár byggði hann sér býli.i útjaðri Hellissands og stofnsetti þar heimili með Katrínu Friðriksdóttur, en býli sitt nefndu þau að Hjarðarhóli og bjuggu þar æ síðan þar til hann andaðist. En Katrín lifir nú ástvin sinn í hárri elli. Valentínus eignaðist eina dóttur barna með Katrínu, en það er Aðalbjörg húsfreyja að Hömr- um í Reykholtsdal. Valentínus var lágur maður á vöxt og ekki mikill að vallarsýn, en hann var eitt hið mesta snar- menni og svo fóthvatur að með hinum mestu ólíkindum var. Hann var lundfastur að eðlisfari og valdi sér fáa vini en örugga, sem reyndust honum hver um sig tryggir félagar meðan báðir höfðu lff. Valentínus var allra manna hjálpfúsastur og sýndi jafnan hverjum manni góðvild og um- burðarlyndi og reyndist samferða- mönnunum þekkur og ráðvandur, og var hanp. um það mörgum sam- Frá fréttaritara Tímans á Dalvík. Eins og fyrr var sagt frá hér í blaðinu var 35. héraðsþing Ung- mennasambands Eyjafjarðar hald- ið að heimavistarskólanum að Húsabakka í Svarfaðardal helgina 25.—26. febrúar sl. Þingið sóttu 38 fulltrúar frá 11 sambandsfélögum. Á sl. ári voru 18 ungmenna-, íþrótta- og bindind- isfélög innan vébanda sambands- ins, með samtals 655 félaga og auk þess allmarga aukafélaga. Öflug starfsemi. Starfsemi sambandsins var all- mikil á sl. ári. Það hafði ráðna íþróttakennara á sínum vegum íil leiðbeininga við íþróttaiðkanir meðal félagsmanna. Þá tók sam- bandið að sér undirbúning fyrir 9. landsmót Ungmennafélags ís- lands, sem haldið var á Akureyri sl. sumar. Einnig kom UMSE upp bílhappdrætti á árinu til fjáröflun- ar, til eflingar starfsemi sinnar, en erfiðar fjárhagsástæður hafa mjög dregið úr hauðsynlegri upp- byggingu þessara menningarstarfa að undanförnu. Ýmsar samþykktir. Þingið gerði margar samþykktir varðandi framtíðarstarfið og efl- ingu þess. Þar á meðal var sam- þykkt að ráða íþróttakennara til sambandsins á þessu ári og ýmsar samþykktir voru gerðar um fyrir- huguð íþróttamót á árinu og þátt- töku í öðrum mótum. Ennfremur voru gerðar samþykktir um skóg- ræktarmál, starfsíþróttir, leiklist, bindindismál, skáklist o. fl. Á þinginu færði Jón Stefánsson á Dalvík UMSE vandað skákborð að gjöf, sem skal verða keppnis- gripur á skákmóti innan Ung- mennasambands Eyjafjarðar. Fyrrverandi stjórn sambandsins lét öll af störfum, en formaður hennar var Valdimar Óskarsson, Dalvík. Hina nýju stjórn skipa: Jóhann Helgason, form., Hreinn Ketilsson ritari, Hjalti Finnsson gjaldkeri, og meðstjórnendur þeir Árni Magnúss'on og Sveinbjörn Halldórsson. Norræna félagið sendir félags- mönnum tvær bækur og ársrit i Norræna félagið sendir meSlimum sínum tvær gjafa- bækur nú í þessum mánuði. Bækur þessar eru: Nordens sangbok, sem út var gefin fyrir nokkrum árum af Norrænu félögunum sameiginlega og skáldsagan Bekánna fárg, sem þýða mætti á íslenzku: Sýndu lit. Saga þessi er eftir sænska rithöfundinn Olle Hedberg. tíðarmönnum sínum til hinnar mestu fyrirmyndar. Hann hafði góða greind, þótt hann gengi um sumt utan við alfara leið, og þá kem ég að því sém mest auðkenndi þennan mæta mann, en það var að hann var hin mesta afburða refaskyíta og stundaði þá atvinnu meðfram aðalstörfum sínum, um nálega fimm áratuga skeið fyrir byggðarlag sitt, og minnist ég í því sambandi að ég átti eitt sinn tal við fyrirsvarsmann Hellissands- búa, er sagði við mig að heppni og vandvirkni Valentínusar við refaveiðar og aflífun annara dýra hefði verið svo mikil, að nær und- antekningarlaust hafi hann dauða hæft skotmark sitt í fyrstu at- rennu. Aðeins einu sinni sagði þessi maður að sér væri kunnugt um, að honum hefði mistekist að skjóta ref, en þá hafi Valentínus| sýnt þann einstæða manndóm aðl leggja á sig nsér tveggja sólar-' hringa stanslausar vökur og erfiði án matar eða drykkjar til að elta hið helsærða dýr, til að stytta því eymdarstundir sínar. Slík fram- koma við helsært dýr er góðra manna eftirmæli. Þeir verða að afsaka oflátungarnir og uppskafn- ingsmennirnir í þjóðfélaginu, þótt ég meti þá ekki mikils þegar ég ber þá saman við þennan látlausa og drenglundaða alþýðumann. Valentínus var lagður til hinztu hvílu í grafreitunum að Ingjalds- hóli, þar sem hann hvílir meðal margra ættingja sinna. Ég geymi í hugskoti mínu dýrmæta minningu um þennan góða mann, og er þess fullviss að vini mínum verði það að trú sinni að himnafaðirinn leiði hann við hönd sér á vegi þroska og fullkomnunar á landinu ókunna. Guð blessi minningu þína Valent- ínus Ólason og hafðu þökk fyrir vegfylgdina á Fróni. Vinur. Nordens sángbok hefir notið mikilla vinsælda á Norðurlönd- um og er nú að verða uppseld. Hún er í handhægu broti, um 300 síður að stærð og fylgja nót- ur öllum söngvunum. í bókinni er fjöldi vinsælla norrænna söngva. Skáldsagan Bekanna fárg er öndvegisrit eins afkastamesta rit- höfundar Svía. Bókin er á sænsku, en með dönskum skýringum. Hér er um útgáfu Norræna félagsins danska að ræða. Bók þessi hefir verið gjafabók félagsins í Dan- mörku. Ársrit að aukl. Meðlimir Norræna félagsins fá nú þessar gjafabækur og auk þess ársrit í stað jólaritsins, Norrænna jóla, sem undanfarin 14 ár hafa verið gefin út á vegum félagsins. Ráðgert er að ársritið gegni hlið- stæðu hlutverki og félagsrit hinna Norrænu félaganpa: að vera tengi- liður milli félagsstjórnarinnar og félagsmanna og þannig einnig deilda víðsvegar um land. Þar verður yfirlit yfir starfsemi fé- lagsins á liðnu ári, helztu fram- tíðarverkefni, upplýsingar um nor- ræn námsskeið og mót í sumar o. fl. Ársritið verður sent til félags- manna í aprílmánuði. Boðið í vist á sænsk- um verknámsskólum Fyrir milligöngu Norrænafélags- ins mun íslenzku æskufólki verða veitt ókeypis skólavist á sænskum verknámsskóla í sumar. Skóli þessi er í Osby. Hér er um að ræða: 1) Sex mánaða garðyrkjunáms- skeið, sem hefst 3. apríl n. k. Dvölin, sem sé kennsla fæði og húsnæði er ókeypis og auk þess greiðir skólinn 50 krónur sænskar á mánuði í vasapeninga. 2) Fimm mánaða verklegt og bóklegt námsskeið, sem hefst 24. apríl, og veitir sömu hlunnindi og áður voru nefnd. Námsskeið þetta er fyrst og fremst ætlað ung- lingum á aldrinum 15—18 ára. 3) Fimm mánaða sumarskóli, sem hefst 24. apríl n. k. Þar eru kenndar bóklegar greinar, en ekki krafist vinnu af nemendum. Dvölin er ókeypis (fæði, húsnæði og Fær Nixon að velja sjálfur Washington, 7. marz. — Frétta- menn spurðu Eisenhower að því í dag, hver verða myndi í framboði með honum sem varaforseti. Kvaðst Eisenhower enn ekki liafa valið sér mann í það embætti. Hins vegar kvaðst hann hafa beðið Nixon að hugleiða, hvað hann hyggðist fyrir í þeim efnum, og segja sér síðan á- kvörðun sína. Var svo að heyra á forsetanum, sem Nixon þyrfti ekki annað en ákveða sig sjálfur í því máli og þá væri allt klappað og klárt. Atvinnuleysisskráning verzlunarfólks Stjórn Verzlunarfélags Reykja- víkur hefur ákveðið að gangast fyrir skráningu atvinnulauss verzl- unarfólks á félagssvæðinu. Skrán- ing fer fram á skrifstofu félagsins Vonarstræti 4, III hæð, og stendur yfir til 15. þ.m. Það eru eindreg- in tilmæli stjórnarinnar, að þeir félagar V. R., sem nú eru atvinnu- lausir, láti skrá sig en samkvæmt kjarasamningi yið atvinnurekendur hafa félagar V. R. forgangsrétt til kennsla) en engir vasapeningar látnir í té. Umsóknir ásamt meðmælum skulu sendar Norræna félaginu í Reykjavík fyrir 20 marz n. k. Skrif stofa félagsins, Hafnarstræti 20, sími 7032, veitir nánari upplýs- ingar. VeíurstötS (Framhald af 7. síðu.) minnka slysahættu því að aldrei er að vita hvar tækin koma niður. Yfirleitt eru tækin ekki notuð aft ur, því að sjaldnast finnast þau og þá oftast gerónýt. Eykur flugöryggi. Hálofta athugunarstöðin á Kefla víkurflugvelli er mikils vérð og styður allt öryggi, sem flug varð- ar. Við þessa stöð vinna sérmennt aðir menn. Störf þeirra einkenn- ast af nákvæmni og vandvirkni. Háloftastöðin er rekin af alþjóða flugmálastofnuninni og bandaríska flotanum. Ameríkubréf (Framhald af 5. síðu.) er mjög skiljanlegt og því meira virði verður viðurkenningin á rétt indum þeirra frá mönnum, sem lifa mitt í vandanum. í sumum fylkjum er svertinginn í meiri- hluta og enginn er enn það krist- inn hér í kirkjunnar landi að hann gefi sig hljóðalaust pólitískt á vald litaðs manns. Þetta er því ekki orðin spurning Urn andúð og" fyrirlitningu heldur ótta, sem tek- ur á sig ýmsar myndir. Það er kannske vont að viðurkenna það, en þessi ótti er skiljanlegur fyrst svo erfiðlega hefir gengið að brúa bilið. Indriði G. Þorsteinsson. SáttmálasjóSur (Framhald af 7. síðu.) ir til náms í vefnaði 300. Unnur Figved til náms við skjalaþýðing- ar 500. Bragi Ásgeirsson til náms við listháskólann 500. Snjólaug Ei- ríksdóttir til náms í ballett 500. Sig. Pétur Þorvaldsson til tónlist- arnáms 500. Björn.Th. Björnsson styrkur til ljósmyndunar á mynd- skreytingum í íslenzku handritun- um 1200. Sverrir Kristjánsson, styrkur til náms í stjórnmálasögu fslands á 19. öld 500. Th. Krist- jánsson, styrkur til útgáfu á end- urminningum 800. Helge V. Told- berg, ferð til íslands 6000. B. B. Lillelund, ferð til íslands 2000. Stúdentaráð Háskólans, styrkur handa íslenzkum stúdentum til þátttöku í sumarnámskeiðum há- skólans 1000. Til vísindaiðkana: Sigurjón Björnsson, styrkur til náms í barnasálarfræði 1000. Ólaf- ía Einarsdóttir, styrkur til fræði- iðkana á íslenzkum annálum 1000. Ólafur Halldórsson, styrkur til að vinna að sögu Ólafs Tryggvasonar og Grettissögu 1000. Aðalgeir Kristjánsson, styrkur til að vinna að bréfum Brynjólfs Péturssonar 500. Kulturhist. Leksikon, styrkur til útgáfu 3000. Samtals danskar kr. 29.700,00. Stúdentar: Björn Markan stud. mag. 100. Björn Löchte Blöndal stud. med. 1000. Jón Þorláksson stud. act. 1000. Ólafur Kj. Ólafsson stud, po- lyt. 500. Guðmundur Jónsspn stud. polyt. 500. Stefán Sigurkarlsson stud. pharm. 500. Þórír Bergsson stud. act. 1000. Eyþór Einarsson stud. mag. 1000. Þorsteinn Þor- steinsson stud. mag. 1000. Eyjólf- ur Kolbeins stud. mag. 500. Hrafn- kell Stefánsson stud. pharm. 1000. Sigrún Jónsdóttir stud. pharm. 500. Áslaug Hafliðadótlir s,tud. pharm. 500. Örn Ævar Markússon stud. pharm. 500. Gunnlaugur Elí- asson stud. mag. 500. Þorkell Jó- hannesson stud. med. 1000. Ragn- ar Halldórsson stud. polyt. 500. Þorvarður Bj. Jónsson stud. polyt. 500. — Alls d. kr. 13000.00. Heildarupphæð 42700,00 dansk- ar krónur. Hjartans þakkir tii allra þeirra mörgu, er veittu okkur hjálp og sýndu okkur hluttekningu við andlát og útför sonar okkar Guðmundar Pálssonar. Páll Guðmundsson, Elísabet Gísladóttir, Hvarfi, Víðidal. Ifrrí'

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.