Tíminn - 10.03.1956, Side 6
6
T í MIN N, laugardaginn 10. marz 1956,,
K~-
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Ritstjórar: Haukur Snorrason
Þórarinn Þórarinsson (áb.).
Skrifstofur i Edduhúsi vi3 Lindargötu.
Símar: 81300, 81301, 81302 (ritstj. og blaðamenn),
auglýsingar 82523, afgreiðsla 2323.
Prentsmiðjan Edda h.f.
[ Islenzk stefna
f /7JÖLMENNASTI stjórn-
F málaflokkur landsins
' iefir birt sín úrræði í efnahags-
nálum. Það á að greiða meira
liður af ríkisfé, segir Morgun
olaðið, og birtar eru tölur því
til staðfestingar að unnt sé að
stöðva framrás dýrtíðarflóðs-
ins með slíkri stíflugerð. Töl-
urnar munu sjálfar rétt skráð-
ar, en í raun og veru koma
þær hvergi nærri hinu raun-
verulega vandamáli. Dýrtíðin
og orsakir hennar standa eftir
sem áður, þótt meira verði
greitt niður með rikisfé. En
það er háskaleg blekking, ef
menn fara að trúa því, að dýr-
tíðarvandamálið sé í rauninni
framkvæmdaatriði í hendi rík-
isstjórnar, og erfiðleika at-
vinnulífsins megi rekja til.mis-
jafns örlætis stjórnmálaflokka.
Málið stendur miklu dýpri rót-
um. Vandamál efnahagslifsins
verða ekki leyst af ríkisstjórn
og Aiþingi utan og ofan við
þjóðina sjálfa, viðhorf hennar
og gerðir. Dýrtíðarmálið er úr-
tausnarefni þjóðfélagsins í
heild. Niðurgreiðslutillögur
Sjálfstæðisflokksins eru því
engin lausn. Þær eru í raun
og veru mjög varasöm blekk-
ing, enda þótt kalla megi að
þær séu tjald til einnar nætur
eða svo.
ENGINN SKYLDI heldur
ætla, að framtíðarúrlausnar sé
að vænta úr herbúðum Sjálf-
stæðisflokksins. Það hefðu ver-
ið mikil tíðindi, ef tillögur um
heilbrigðan þjóðarbúskap hefðu
komið úr þeirri átt. Það er
mesti misskilningur ef menn
ætla, að forkólfum Sjálfstæðis-
flokksins líki illa núverandi
ástand í efnahagsmálum. Þeir,
sem raunverulega standa undir
rekstri þess fyrirtækis, sem
nefnt er Sjálfstæðisflokkur,
eru engu óánægðari en fulltrú-
árnir, sem nýlega komu heim
af flokksþinginu í Moskvu. Þró-
un efnahagsmálanna er vatn á
myllu beggja. Efnahagsleg upp-
lausn greiðir veg kommúnist-
ískra áróðursmanna og eflir
hag nokkurra braskara. Deilur
þeirra um, hvorum sé að kenna.
er marklaust skraf. Þótt þeir
berjist á dálkum blaðanna og
á mannfundum og viðhafi ljótt
orðbragð, er samvinna dágóð á
öðrum sviðum. Forsætisráð
herrann lýsti því og nýlega
yfir í útvarpi, að kommúnistar
mundu helzt vilja vinna með
sér, og var upphrópunin sanni
nær. Bjargráðatillögur Sjálf-
stæðismanna mundu verða
helzta uppistaða nýrra „nýsköp-
unar“-samninga.
EN ÚRLAUSNAR í efna-
hagsvandræðum þjóðarinnar
er annars staðar að leita. Hún
er í fangi stéttanna, vinnandi
fólks um allar byggðir landsins.
Grundvöllur hennar er sam-
vinna vinnandi manna um rétt-
láta arðskiptingu og heilbrigða
félagsmálaþróun. Leiðin til
þess að koma þeirri skipan á
liggur um aukið samstarf lý'ð-
ræðissinnaðra umbótamanna,
hvar í flokki sem þeir hafa
staðið.
Sameining þessara krafta er
hið stóra mál íslenzkra stjórn-
mála í dag.
Áhrifamestu öflin í þróun
dýrtíðarmálanna eru og hafa
verið braskarar Sjálfstæðis-
flokksins og kreddumenn
kommúnismans. En þriðja
aflið er til í þjóðfélaginu, og
getur ráðið, ef menn þekkja
mátt þess og gildi. Það er sam-
fylking lýðræðissinnaðra um-
bótamanna undir forustu Franv-
sóknarflokksins.
FLOKKSÞINGIÐ, sem nú er
háð, markar þessa stefnu. Sú
stefna er bundin framtíðinni,
varanlegum umbótum, en ekki
niðurgreiðslupólitík og henti-
stefnu Sjálfstæðismanna né
sérvizku Moskvutrúar. Hún er
íslenzk stefna, bundin sjálf-
stæði þjóðarinnar, sögu bennar
og menningu.
Listin fyrir þjáðka
GTÍMINN HEFIR ný-
-*■ lega vakið máls á
mauðsyn þess, að stefnt sé að
stofnun listaskóla ríkisins. Slík
stofnun er eðlilegt framhald af
starfsemi þjóðleikhúss, sinfón-
iuhljómsveitar og listasafns rík-
isins. í dag eiga listirnar skjól
í einkaskólum. Þær lúta því
lögmáli, sem Emerson kenndi,
að það, sem framsýnan ung-
ling dreymir um í dag, en þor-
ir varla að nefna vegna hefð-
bundinna skoðana, verður fyrr
en varir baráttumál hópa eða
flokka, og síðan, er fylling tím-
ans er komin, raunveruleiki.
Þannig er þróunin í lýðræðis-
pjóðfélagi. Nýjar hugmyndir
skjóta óhindrað upp kollinum,
hvað sem líður ríkjandi skoð-
jn, og breiðast út á meðal
fólksins, ef þær eiga í sér vaxt-
arbroddinn, unz þær sigra.
ílugmyndin um listaskóla rík-
isins er þessarar ættar. Hún er
akki framkvæmdamól dagsins í
dag heldur málefni morgun-
dagsins.
HÉR í BLAÐINU var líka
:nýlega minnt á nauðsyn þess,
að fleiri en íbúar höfuðborgar-
jnnar fengju að sjá verk helztu
listamanna þjóðarinnar. Hér er
nú haldin mikil sýning á mál-
verkum Ásgríms Jónssonar.
Þúsundir Reykvíkinga —- og
hokkur hundruð ferðamenn —
hafa sótt sýninguna, en fólkið
úti um land verður að láta sér
nægja að lesa frásagnir og
skoða myndir i blöðum. Það er
eðlilegt, að Reykvíkingar séu
fjölmennastir 'á. sýningunni, og
það er sjálfsagt, að þegar ríkið
efnir til slíkra sýninga, séu þær
haldnar í listasafni þess sjálfs.
En það er ekki jafu sjálf-
sagt að málinu sé þar með
lokið. Ríkið hefir jafnframt
þeirri skyldu að gegna, að
veita öllu landsfólkinu sem
bezt tækifæri til þess að njóta
góðrar listar og kynnast verk-
um beztu listamanna þjóðar-
innar.
Útvarpið flytur sönglist og
leiklist, þjóðleikhúsið hefir
gert myndarlega, að efna til
leikferða út um land. En hlut-
ur myndlistarinnar er eftir.
Hún á ekkert útvarp og getur
ekki gert út sýningarflokk.
Hún er hin hljóðláta list. Hún
kallar á augu áhorfandans. Ekk
ert annað dugar.
RÍKIÐ ÞARF að búa þann-
ig að listasafni sínu, að unnt sé
að senda meiriháttar listsýn-
ingar út á land og veita sem
flestu fólki tækifæri til þess
að kynnast menningarstarfi á-
gætra listamanna. Eðlilegt
framhald af sýningunni í lista-
safninu er listsýning í öllum
fjórðungum á þessum vetri.
Berlín — eyjan á landamerkjum
austurs og vesturs
í Vestur-Berlín bóa 2,2 milij. manna,
en austan við tjaldið 1,2 miHjjónir -
Hvergi á Vesturlöndum er lífið eins
undarlegt og þar
Eftirfarandi grein er rituð af
einum blaðamanni norska blaðs-
ins Aftenposten og fjallar um
það einstæða ástand, sem skapast
hefir í Berlín eftir stríðið.
— f HVERT skipti, sem hinn
óbreytti ferðamaður kemur til
Berlínarborgar, verður hann agn-
dofa yfir hinu sérstæða andrúms-
lofti, sem alltaf ríkir þar. Hér
mætast hin gleðisnauða léttúð og
hin vonlausa eftirvænting. Þegar
borgarar í Vestur-Berlín ganga eft-
ir Kurfiirstendam, þar sem bjart
er eins og um dag af hinum marg-
litu neonljósum og geta keypt
allt milli himins og jarðar, ganga
Austur-Berlínarbúar verzlun úr
verzlun til að reyna að finna brýn-
ustu nauðsynjar, sem erfitt er að
fá. Berlínarbúar hafa lifað á átt-
unda ár í þessari einkennilegu
borg, sem hefir verið klofin í tvo
hluta. Landamæri eru í öllum átt-
um og erfitt er um öll ferðalög.
Þeir, sem koma af og til til Ber
línar að virða fyrir sér og rita
um hið óeðlilega ástand, hættir
gjarnan til að gleyma því, að
Berlín er austasti útvörður hins
vestræna heims, og að það gæti
haft mjög örlagaríkar afleiðingar
og haft mikil áhrif á jafnvægið á
milli austurs og vesturs, ef Ber-
línarbúar myndu svíkja okkur eða
ef við myndum svíkja þá.
VESTUR-Þ J ÓÐVERJAR hafa
jafnvel hinar furðulegustu hug-
myndir um Berlín og líf hinna 3,4
millj. manna, sem þar búa. Þeir
hafa haft svo mikið að gera við að
byggja upp sína eigin efnalegu
velferð, að lítið hefir verið hugsað
um Berlín eða íbúa hennar. Við,
sem horfum til Berlínar úr fjar-
lægð, tölum um „klofna borg“ eins
og það væri ósköp hversdagslegur
hlutur, án þess að gera okkur
grein fyrir því, hve daglegt líf hins
venjulega Berlínarbúa hlýtur að
vera mikið taugastríð og erfitt að
umbera.
margs konar vandræði, sem kunn-
ugt er, kommúnistar eiga það til
að setja alls kyns nýjar umferða-
reglur og trufla umferðina og allar
eðlilegar samgöngur bæði á þjóð-
brautum á láði og í lofti.
í AUGUM Berlínarbúa er allt
slíkt dægurþras aðeins einn hluti
hins venjulega, daglega lífs, sem
alltaf getur komið fyrir. Stærsta
umferðaæð milli austurs- og vest-
urhlutans liggur í gegnum Brand-
enburgarhliðið. Margir ókunnugir
spyrja, hvort þar sé raunverulega
op á járntjaldinu, þar sem fólk
geti farið inn og út, án þess að
eiga það á hættu að vera tekið
höndum og varpað í fangelsi.
Jú, borgarar í báðum borgar-
hlutum geta farið ferða sinna þar
í gegn. Að vísu er það ekki hættu-
laust með öllu, þar sem það kem-
ur ekki ósjaldan fyrir, að menn
og konur hverfa í Austur-Berlín,
en það er nú einu sinni það al-
gengt, að Vestur-Berlínarbúar
skoða slíka atburði sem hluta
hins hversdagslega lífs. Við
Brandenborgarhliðið hljómar svo
greinilega liinn dramatíski undir-
tónn allrar tilveru þessarar frægu
borgar eins og hún er í dag.
f VESTURHLUTA borgarinnar
iðar lífið af starfi og uppbyggingu
við hlið sigurminnismerkis keisar-
anna gömlu. Stöðugur straumur
af nýjum bifreiðum bruna um ný-
steypt strætin. Mikið er Byggt og
stórhýsin rísa fleiri og fleiri upp
af rústunum.
Engu er líkara en allt sé lam-
að í austurhluta borgarinnar. Rúst
irnar standa óhreyfðar, gráar og
ömurlegar eins og fyrir ellefu ár-
um síðan. Af og til aka gamlar og
lélegar bifreiðar eftir götunum og
setja örlítið líf í þessa ömurlegu
mynd. Þarna er aðeins skref á
milli tveggja heima, sem virðast
vera í órafjarlægð hvor frá öðr*
um. j
Berlínarbúar nema staðar eins
og sjálfkrafa við toll- og lögreglu-
afgreiðslu við vesturhlið Branden-
borgarhliðsins, þar sem spurt' er
um ólöglegan varning og vegabréf
og hið sama gerist hjá „alþýðu-
lögreglunni“ og kven-tollþjónun-
um við austurhliðina. Öllum er
hleypt í gegn, sem ekki hafa með
varning, peninga eða annað, sem
bannað er að flytja á milli beggja
hlutanna, en yfirvöld bæði austur-
og vesturhlutans eru sammála um
að koma í veg fyrir að slíkt eigi
sér stað.
KOMMÚNISTAR vilja ekki
leyfa Austur-Berlínarbúum að
verzla í Vestur-Berlín, þar sem
vöruskortur er mikill í austurhlut-
anum. Yfirvöld vesturhlutans
vilja hins vegar halda hinu hag-
stæða gengi marksins þar, en því
gæti verið spillt, ef leyft væri að
kaupa ritvélar, ljósmyndavélar og
útvörp í stórum stíl í austurhlut-
anum og flytja það til Vestur-
Berlínar, þar sem verð myndi þá
lækka á sömu vörum þar og gengi
marksins færi hrakandi gagnvart
austur-þýzka markinu, sem er mun
verðminna.
Vestur-Berlínarbúi, sem kemst í
gegnurn alla skriffinnskuna og eft-
irlitið til Austur-Berlínar, finnst
1 hann vera eins og óvelkominn
Jgestur í ókunnu landi, frekar en
j hann sé með löndum sínum í einu
:og sama landi. Hann verður til
| dæmis að greiða farmiða sinn með
! austur-marki, en ef hann ætlar að
fá sér kaffibolla eða mat á veit-
ingahúsi, er óskað eftir vestur-
mörkum. Ef hann er kominn í við-
skiptaerindum, má hann hvorki
greiða með austur- eða vestur-
mörkum, heldur með ávísunum
frá stjórninni. Þungar refsingar
liggja við, ef ekki er fullkomlega
farið eftir öllum þessum flóknu
lagafyrirmælum. '
-” "t
ÞÓ AÐ ÍBÚUM Vestur-Berlínar
sé að mestu leyti frjálst að fara
til austurhlutans, er þó ferðafrelsi
þeirra þar mjög takmarkað. Bif-
reiðar frá vesturhlutanum geta
fengið að fara yfir landamærin,
en aftur á móti er mjög fáum
bifreiðum íbúa Austur-Berlínar
leyft að fara til Vestur-Berlínar.
Rússar standa skiljanlega fyrir
öllum slíkum takmörkunum. Að-
(Framhald á 8. sfðu.)
RÚSSNESKAR herflugvélar
hafa gát á allri flugumferð. Vestur
veldunum er aðeins leyft að fljúga
um mjög afmarkaða hluta loftleið-
arinnar. Mjög oft verða af
BERLÍN ER bókstaflega um-
kringd af rússneskum hermönnum.
Hún er einangruð eyja á landa-
mærum austurs og vesturs. Þessi
landamæri skilja 1,2 millj. manna
í Austur-Berlín frá 2,2 millj.,
manna í vesturhlutanum. í norðri,
vestri og suðri frá Vestur-Berlín
liggur 25 mílna breitt svæði, sem
stjórnað er af Rússum, en á papp-
írnum er kallað, að því sé stjórn-
að af kommúnistískum yfirvöldum
í Austur-Þýzkalandi. Berlínarbúar
geta ekkert ferðazt, nema rekast
á þessa rússneslcu hermenn með
rauðu stjörnuna.
Ferð til Vestur-Þýzkalands í
gegnum yfirráðasvæði kommún-
ista er mikil lífsreynsla. Umferð-
in er háð allskyns flóknum regl-
um og takmörkunum. Það er að-
eins leyft að fara um lítinn hluta
veganna og sérhver einkabíll,
vörubifreiðar og stórar fólksflutn-
ingabifreiðar eru margsinnis
grandskoðaðar á leiðinni. Það
sama gildir um járnbrautarlestir.
Til þess þarf fé, sem nú er
hvergi ákvarðað, og þó umfram
allt skilning á gildi slíks stárfs
fyrir menningarlíf þjóðarinnar.
Listaskóli ríkisins í Reykjavík
er takmark, sem nú er e. t. v.
ekki nálægt, en þó í augsýn.
Skipulegar listsýningar úti um
byggðir landsins, er fram-
kvæmdamál í dag.
Mynd þessi er tekin í Berlín 2. ágúst 1914. Mikill mannfjöldi hafSi þá
safnazt saman við minnismerki Bismarcks til að heyra oplnberar tilkynn-
ingar, sem voru lesnar þar upp, en daginn áöur höfðu Þjóðverjar sagt
Rússum strið á hendur.