Tíminn - 13.05.1956, Side 4

Tíminn - 13.05.1956, Side 4
. tjf er komin bók eftir Svíann Bengt Danielsson, sem nefnist á ensku Love in the south seas, en Bengt Danielsson er mann- fræðingur og sigldi með Thor Heyerdahl í hinni frægu Kon- Tikí för árið 1947. Bengt er nú þrjátíu og fimm ára að aldri, búsettur í Canberra í Ástralíu. Segir í Newsa eek að hans sé minnzt sem Svíans, er hvarf að nýju til Suðurhafseyja í þann mund, er flekafélagar hans, N.crðmennirnir, héldu heim til að setjast þar að. Ástir í Suð- urhöfum, en svo mætti útleggja nafn bókarinnr*r á íslenzku, er nokkurs konar þjóðfræðileg handbók um harla frjálslegt samfélag á Suðurhafseyjum. Eftir Kon-Tiki ferðina dvaldi Danielsson í ein sjö ár í Suður- höfum og safnaði gögnum í bók sína um innbyggjendur Poly- nesíu. Rannsakar hann þar kenningarnar um það, að eyj- arnar séu „paradís á jörð“, griða staður skattgreiðenda, vizku- brunnur Freudista og útópía framfarasinnaðra menningar- frömuða. Dagar trúboða og sjúkdóma. Það kemur í ljós, að saga þessa paradísarfólks, sem Denielsson dregur þó í efa að hafi búið í þeirri paradís, sem af er látið, sé £Ú sama og annars staðar, að ævintýramenn og trúboðar halda innreið sína snemma á riíyándu öld og fara að róta við fornum liðnaðarháttum eyja- skeggja; fluttu með sér byssur, kytxsj.úkdóma og brennivín. Dansáð í strápilsum: um afbrýði var ekki að ræða. Ekki var stofnað til giftinggj. af ásthrifni, heldur réði efnahagur mestu þar um, svo og fjölskyldu' og ættarbönd. Ætt- og .stjarnfræðmgar. Hinir vinsamlegu og ættstoltu Polynesíumenn voru miklir ætt- fræðingar. Þeir voru einnig glúrnir stjörnufræðingar og sigldu eftir himintunglum. Þeir voru miklir aðdáeridur líkams- fegurðar, söngs og daris. Poly- nesíumenn höfðu. venjulega næg an tíma til.skemmtaná oghvíld- ar og. þeir virtust geta riótið lífs- ins, án þess, ai? .þurfa áð'lifessa sig. á áfengi., Éyjáskeggjáf ‘'köm- ust e.kki.í tæri við k'ynsjúkdóiria fyrr ,en hy.i.tir ,.menn fórú áð menhta þá. Jafnvel þótt fyrri lifnaðarhætt- ir Polynesíumanna hefðu mátt taka'- nokkrum breytingum, verður ekki séðð, hvað þeir hafa grætt við að komast í kynni við hina svokölluðu „vestrænu menningu". Sköpun heimsins. 1 fornri trú norrænni varð jörð til af einum jötni. Sú kenn- ing ér um margt lik kenningum Suðurhafseyjabúa um sköpun heimsins, nema hvað þeir hafa komið kvenkyninu í málið, að líkinduiri vegna þess, að þeir voru þetta blóðheitari en nor- rænir menn. Polynesía er eyja- klasi, þríhyrningsmyndaður.sem íiggur frá Hawaii til Nýja Sjá- lands og siðan til Páskaeyju. Þarna var stéttlægt þjóðfélag ættarhöfðingja og trú manna var sú, að heimurinn hefði ver- ið gérður af líkömum himnaföð- urs og jarðarmóður. Fólkið lifði af fiskveiðum og ávöxtum. Þar voru engir málmar og hjólið var óþekkt Jyrirbæri. Það er svo ann að mái, að ekki verður séð í fljótu..bragði, hvaða erindi trú- boðar hafa átt til eyjanna, né hvað þeír hafi getað kennt þjóð, sem hafði haft spurnir af himna föður og - jarðarmóður. ._ rT7 c v - ~ Frjálsgr ástir. íbuaT eyjanna voru mjög sam virkir í öllu, sem heyrði til öfl- un viðurværis. Og Bengt segir, að þessi sameignarkennd hafi náð tir ástalífsins, en frá byrj- im var litið á það sem frábær- an leik. Börn voru ekki einung- is hyött til ásta; þeim var kennt. Bengt segir svo orðrétt; „Poly- nesíumenn litu á það sem sjálf- sagðan hlút, að hver venjuleg- ur fundur manns og konu leiddi til ásta“, Um afbrýði í sambandi við slíkt var ekki að ræða. Varnir virðast ekki hafa ver- ið þekktar; fóstureyðingar voru tíðar og laungetnum börnum var komjð fyrir einhvers staðar innan viðkomandi ættkvíslar. JNokkúr brögð voru að fjölkvæni. m kw <ii«ii*iijOTr.-rii y.*’ d tn ðf/brxyra, i.tierínbfiyjngnri „Almenn andleg->flatneskja“. Bengt hefúr ýmislegt að segja um eyjaskeggja, sem er til frá- dráttar siðum þessara náttúru- barna í graspilsunum. Hann segir; „Andleg flatneskja var almenn“ og „tilfinningasljó- leiki“.. Barnamorð voru algeng, ef barnanna var ekki æskt vegna „slæms blóðs“, en kenn- ingin um slæma blóðið varð til vegna ættarstoltsins, ■ sem fór ekki ætíð saman við ástaleikiria, eöa þá að börnum var fyrirfar- ið vegna fæðuskorts. Hið eina góða við hið hverfula og grunn- færna geð íbúanna virðist vera, að það er ekki móttækilegt fyr- ir hið andlega álag nútímans, sem kemur fram í ýmsum mynd um og miður heppilegum og sjúklegum í margfrægri „vest- rænni menningu". Að sjálfsögðu er nútímamað- ur Suðurhafseyja allur annar en forfaðir hans; maður nitjándu aldarinnar, sem hafði engar spurnir haft af Evrópumannin- ,.l*að er feil i. .. >■■■ Bengt Danielsson segirýað ný- tízkulegri stjórnarhættir hafi sýnt Pelynesíubúanum fram á það, að ekki veröur horfið aft- ur til fyrri lifnaðarhátta, hvort heldur honum líkar betur eða verr. En hann segir jafnframt, að þótt stjórnarhættir séu orðn- ir nýtizkulegir, skyldi enginn Vesturlandamaður ætla sér að festa ráð sitt við polynesíska heimasætu: „Þessi stúlka hefur enga hugmynd um tíma, fjar- lægðir eða peninga. Hin siðferði lega skylda að baki loforðs er henni tóm latína. Hún mun krefjast þess að sitja á gólfinu. Henni finnst skemmtilegar að hanga fram á afgreiðsluborð Kínverjans, eða reykja sígar- ettu í húsagarði nágrannans en hugsa um kvöldverð eiginmanns síns.“ Bengt Danielsson er giftur franskri konu: Paradísin er enn ónumin. ffamsLmm 1 T í M I N N, sunnudaginn 13. maí 1956. wmmm gsian r r..r; 6 |-a.i gB íjf Þáttur kirkjunnar: AS lifa „ÞÚ JESÚS ERT LÍFIГ, seg- ir þekktur höfundur í einum sálma sinna. Og satt er það, lífið er algjörlega háð þeim tökum, sem mannssálin sjálf tekur það. Hver dagur verð- ur nýtt ævintýri þeim, sem á vakandi hug, hreint hjarta og þróttmikinn vilja til að móta umhverfið til þokka og hagsældar. AÐ LIFA eins og Jónas H. lýsir þvi, svo að hver stund verði „alefling andans og at- höfn þörf“, eða „lífsnautnin frjóa“ er æðsta gjöf himins- ins og gullið til vöxtunar úr hönd leyndardómanna. Einn af göfgustu mönnum norrænna ætta, sem er ný- lega látinn, hefur lýst lífs- skoðun eða lifsnautn sinni á þessa leið: ÉG BEITI lifskrafti mínum daglega til þess: að halda fast við sannleik- ann, að vera skilyrðislaust heið- arlegur í öllu, að ganga um með bros í hug og á vörum, að vera með opin skilning- arvit gagnvart öllu í til- verunni, hinum dásam- lega heimi með sínum dunandi fossum, hvísl- andi skógum, blikandi ströndum, allri sinni mannlegu fegurð, sinni auðugu vináttu, Að samlaga mig umhverfinu ljúflega, að gleðjast yíir að mega vera með frá vöggu til j gráfar, 1 ' að æfa hugann dáglegá við j mikilvæg viðfangsefni, að vera óttalaus, glaðvær og raunsær, opinn fyrir j töfrum tilverunnar, Ijósi j og varma — grimmd og j myrkrum. að sofa, vakna, eta ög j skemmta mér. að sætta mig við veðrið, j hvernig sem það er, þegar j ég er einn á gönguferð- j um, að hlusta á lífsspeki í tón- : um cg Ijóðum hinna miklu meistara. AÐ LEITA í spurn, óttalaust j og heiðarlega efagjarn, j og tileinka mér enga j hugsjón án gagnrýni, að binöast vináttubönidum j og vera heill og tryggur, j að taka hverju sem að j » höndum ber án möglun- j ar, að vinna og tapa méð skma I hugarjaínvægi,- að lifa------------ Þetta er kristilegur- og sannur hugsunarháttúr. R\úk 3. maí 5196. - Áreííus Níelsson. «ftm •Crr'i'1! jjj i Loftleiðir bjóða til íslands fjórtán þýzkum börnum frá Vestur-Berlín í sambandi við opriuri hinnar nýju skrifstofu Loftleiða í Hamborg og í tilefni stóraukinna viðskipta félagsins í Þýzkalandi, ákyað stjórn Loftleiða að bjóða út hingað nokkr- um börnum frá Vestur-Þýzkaiandi. Var þetta tilkynnt borg- arstjórninni og hún beðin að velja börnin í samráði við starfsmenn Loftleiða í Þýzkalandi. Hefir það nú verið gert og er afráðið, að þau komi hingað í tveimur hópum, sjö- í hvorum. Sýndu Systur Maríu sex sinnum í stað þrisvar vegna mikiilar aðs Leikfélag Reykjavíkur kom úr leikför að norðan á fimmtu dagsmorgun. Hafði félagið efnt til sýninga á sjónleiknum Syst ur Maríu á Akureyri um síðustu helgi og voru ráðgerðar 3 sýningar en urðu 6 vegna geysimikillar aðsóknar. Hófust sýningar á laugardagskvöld og var flokknum ákaft íagnað að frumsýningarlokum. Kemur sá fyrri 27. þ. m. og dvelst hér þangað til 10. júní, en hinn síðari 3. júní og fer 17. júní. í fylgd með börnunum verður þýzk kona os mun hún rita greinar um dvöliná. Börnin eru flest rétt innan við fermingaraldur. í fyrri hópnum verða 4 drengir og 3 telp- ur, en í hinum síðari 4 telpur og 3 drengir. Upphaflega var svo ráð fyrir gert, að börnin dveldust aðallega á vegum Gísla Sigurbjörnssonar austur í Hveragerði, meðan þau væru hér, en færu auk þess í nokk- ur ferðalög, en eftir að ýmsir Þýzkalandsvinir hér í bæ fréttu um þetta, tóku að berast frá þeim tilmæli um að mega bjóða börn- unum að dveljast á heimilum hér í Reykjavík og nágrenni þann tíma, sem þau verða hér á landi. Fyrir því hefir stjórn Loftleiða nú ákveðið að gefa þeim, sem vilja, kost á að bjóða börnunum til sín, en ætlast cr þó til, að þau verði öll í sameiginlegum ferða- lögum, sem ráðgerð eru. Er ekki að efa, að margir vinir Þýzka- lands, einkum meðal þýzkumæl- andi fjölskyldna, muni nota þetta tækifæri til að endurgjalda gamla þakkarskuld eða knýta ný vinar- bönd. Þeir sem hug hafa á að bjóða til sín barni eða börnum úr þessum hópum, hafi samband við, skrifstofu Loftleiða hið allra fyrsta. Handavinnusýning Gagn- fræftaskóla Akureyrar Akureýri í gær. — Handavinnu- sýning Gagnfræðaskóla Akureyrar var opin almenningi á Uppstign- ingardag. Var hún mjög vel sólt og vakti hrifningu sýningargesta. Mikill fjöldi eigulegra muna var á sýningunni. I, Þ. Formaður Leikfélags Akureyrar, Guðmundur Gunnarsson, ávarpaði gestina og þakkaði komuna og færði leikendum fagran blómvönd frá Leikfélagi Akureyrar. Á sunnu daginn voru hafðar 2 sýningar og seldust aðgöngumiðar á skammri stund, svo að aukasýning var á- kveðin á mánudagskvöld, en að- sóknin var enn svo mikil, að hafa varð 2 sýningar að auki á þriðju- dag og þá leikið kl. 6,30 og kl. 10 að kvöldi. Fleiri sýningum varð ekki við komið, þar sem flokkurinn gat ekki haft lengri viðdvöl. Góðar móttökur. Norðanblöðin öll ljúka hinu mesta lofsorði á leikrit og með- ferð leikenda og telja að leikför- in hafi heppnazt mjög vel. Eitt blaðanna lýkur umsögn sinni á þessa leið: „Má fullyrða, að með- ferð Leikfélags Reykjavíkur á þess um sjónleik sé hin merkasta og muni verða mörgum leikhúsgest- um minnisstæð. Sviðsetning var og þurrt vor í Ffjótum Fljótum í gær. Sauðburður er um það bil að hefjast, og hefur gengið vel, það sem af er. Undanfarið hefir verið þurrviðrasamt og kalt, en rigning var í nótt og í dag, en er að breyt- ast í slyddu nú síðdegis. Enn er gróðurlítið vegna þurrkanna og kuldanna. Æðarvarpið er að byrja, en menn eru dálítið áhyggjufúllir, vegna þess að vart varð við mink í fyrra. Óttast er\áð hahn kunni að breið ast út og þá er hætta á að æðarvarp ið syngi sitt síðasta fljótlega. S.E. sc-rlega góð og frammistaða leik- aranna hin glæsilegasta;, sem hér hefir sézt um lengri tíma.“ Leikararnir, sem þátt tóku í för inni, róma mjög móttökurnar á Akureyri, undirtektir -áhorfenda og margvíslega íyrirgreiðslu. dqqu Fyrirspurn í dpnska þingino um . ; j-u . íj'6'l'HV í 1 íi handritin Kaupmannahöfn í gær. — Axel Larsen, formaður Kommúnista- flokks Danmerkur bar 'fram fyrir- spurn í þjóðþinginú í gær varð- andi handritin. Larsen beindi fyr- irspurn sinni t;l forsætis- og utan- ríkisráðherra landsins, H. C. Han- sen, þess efnis hvort ríkisstjórnin hyggðist eiga nokkurt frumkvæði að lausn málsins. Ráðherrann mun svara síðar i vikunni. Aðils. Tító lofar Frökkum stuðningi í Alsírmálinu París—London, 11. maí. — Hinni opinberu heimsókn Ttó, einvalds- herra Júgóslavíu í Frakklándi lauk í dag. Hélt Tító heimleiðis í dag frá París. í yfirlýsingu, sem gefin var út um viðræður hans við Moll- et og Pineau sagði m. a., að Tító myndi vinna að því af fremsta megni að leysa hið erfiða vanda- mál Frakka í Alsír. Er þetta skoð- að sem fyrirboði þess, að Tító muni reyna að fá Rússa til að beita sér fyrir því við Egypta, að þcir hætti að senda uppreisnar- mönnum vopn og veita þeim stuðn ing.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.