Tíminn - 13.05.1956, Qupperneq 12

Tíminn - 13.05.1956, Qupperneq 12
Skrifstofa Framsóknarflokksins er r í Edduhúsinu, Lindargötu 9A, III. hæð, sími 6066. 40. árg. Raforkuverið, sem rís Sunnudagur 13. maí 1956. íbúð í nýju húsi fyrir 10 kr., ef heppnin er með. Nú líður að því að dregið verði í hinu glæsilega happdrætti Framsóknarmanna. lífskjör o Það er vor í lofti á Vestfjijrð-' i, boðar bætt um Vestfjarða um. Fannir renna í fjölium og StÓí 'kosflegu hagsmunaniáii fólksins hrundið í framkvæmd - Nýtt land- grænir sprotar boða líf og komu; sérfknSfærnafftLS n á m að hefjast í byggðum? seni iengi bafa verið afskiptar nútíma- um og sjávarafurðir bíða útflutn j ings í kauptúnum í vertíðarlok. j — Blaðamaður frá Tímanum var | nýlega á ferð í Vestur-Isaf jarðar-[ sýslu og kynntist því af eigin raun að þar er líka vorhugitr í fólkinu,! enda hafa þar á allra síðustu árum verið stórstígar framfarir í at- vinnuháttum og samgöngumálum. Þar hefir mikið verið gert á fá- um árum og áframlialdandi stór- framkvæmdir á döfinni. Raforkan hefir lengi verið fjar- Iægur draumur í mörgum byggðum Vestfjarða. Nú nálgast sú stund, að óskin rætist. Með virkjun í Mjólkurfossa fá Vestfirðingar stórt orkuver, sem hefir miklu hlutverki að gegna. Stórframkvæmd þessi var undirbúin í fyrra og í sumar verður hafizt handa um sjálfar virkjunarframkvæmdirnar. Þessi stórframkvæmd er mikið hagsmunamál fyrir margar byggð- ir Vestfjarða. Hún hefði ekki kom- izt á, ef fjárhag ríkisins hefði ekki verið vel stjórnað síðustu árin og Eiríkur Þorsteinsson þingmaður Vestur-ísfirðinga hefði ekki beitt sér með dugnaði og hörku fyrir framgangi málsins. — Við skulum nú kynnast því nánar, hvernig um- horfs er á þeim slóðum, þar sem hið mikla raforkuver Vestfjarða er áð rísa. Nýir tíniar við Arnarfjörð. Arnarfjörður hefir til skamms tíma verið með afskekktari byggð- um þessa lands, enda þótt þar séu söguríkar stöðvar. Nú er kominn þangað akvegur frá Dýrafirði yfir Hrafnseyrarheiði. Á síðastliðnu sumri var lagður nýr vegur með- fram ströndinni alla leið inn í botn Borgarfjarðar, þar sem raf- ©rkuverið á að rísa. Var þessi vega framkvæmd ein með hinum mestu á landinu á einu sumri, þar sem hinn nýi vegur er um 17 km. lagur,, breiður og burðarmikill. Við Langanes, sem skerst fram í Arnarfjörð milli Bíldudals og Hrafnseyrar skiptist þessi mikli fjörður í tvær greinar, Suðurfirði og Norðurfirði, eða Dynjandavog og Borgarfjörð. Frá botni Borgar arfjarðar er skammt yfir fjöll til Dýrafjarðar og ísafjarðardjúps. Liggja þar troðnar slóðir löngu genginna kynslóða. Þarna við botn Borgarfjarðar renna Mjólkárnar til sjávar. Kvísl- ast þær í háum fossum ofan af fjallinu og það er þar, sem virkj- unin á að standa. Nýtt landnánv að hefjast. Leiðin meðfram Borgarfirði að norðan inn £ botn liggur um grónar hlíðar, sem snúa móti suðri. Víða er kjarr og beitiland gott. Fjalla- sýn fögur. Yfir hlíðinni eru há hlettafjöll. Upp af botni Borgar- fjarðar liggur dalur með víðáttu^ miklum gróðurlöndum, þar sem hægt er að taka mikið land til ræktunar. Skapast þar nú breyttar aðstæður, þegar þessi afskekkta byggð kemst í akvegasamband og þar rís raforkuver Vestfjarða. Þær hreytingar, sem þá eiga sér stað jaíngilda því að nýtt landnám liefj-, ist. ' Hófsa rerinur eftir dalnum og til sjávar í Borgarfjörð, skammt frá Mjólkánni. Er nú verið að byggja brú á Hófsá og brúargerðin mikið mannvirki út af fyrir sig. Hvergi betri virkjunarmöguleik- ar á Vestfjörðunv. Mjólkurfossar eru vatnsmiklir og vel fallnir til vatnsvirkjunar. Hvergi á Yestf jörðum eru svipað- þægindysn raforkunnar Liósm.: Guðni Lórðarson Mjólkárfossar renna niður fjallshlíðina. Stíflan verður við fossinn lengst fil vinstri og falivatnið síðan ieitt pipum niður hlíðina að orkuverinu. — Fallhæðin er 215 metrar. ir virkjunarmöguleikar, sem við Arnarfjöfð og er líklegt að þar rísi er tímar líða mikií orkuver og stóriðja. Virkjun sú, sem nú er byrjað á notar aðeins lítið af þeim virkjun armöguleikum, er þarna eru fyrir hendi. Á virkjunin þó aS full- ■ nægja allri raforkuþörf Vest- fjarSa frá Patreksfirði norður til Súðavíkur við fsaf jarðardjúp. Mjólkáin fellur í tveimur megin kvíslum fram af fjallinu oían við bæinn Borg. Meðalnesfjall, sem gengur fram í fjörðinn milli Dynj- andivogs og Borgarfjarðar er um 400 metra hátt. Inn á fjallinu eru gróðurlausir melar nýlega komnir undan Glámujökli, sem ekki telst lengur í tölu lifandi jökla. Fannir standa jafnan sumarlangt á þessu víðáttumikla vatnasvæði. Hallinn temprar vatnsrennsliS og miðlar til ánna svo að rennslið er nokkuð jafnt. Þar sem fossarnir koma fram af fjallsbrúnni fæst um 200 metra fallhæð til virkjunár. íbúðarhús og geymsluskálar, sem byggðir voru í fyrrasumar við Mjólkár- fossa standa tiibúnir er sjálfar virkjunarframk'/æmdirnar hefjast* í sumai'. Mynd þessi er frá botni Borgarfjarðar. Bærinn á myndinni er Borg, næsti bær við virkjunina, sem stendur á landi Borgar. Mjólkánni hefir verið veitt í svokallaða Borgarhvolft og er þar gert uppistöðulón til vatnsvirkj- unar. Frá lóninu liggja síðan píp- urnar til orkustöðvarinnar, sem byggð verður ofanjarðar, eins og algengast er með raforkuver hér á landi. Síðar meir er hægt aS auka vatnsmagnið eftir því sem þurfa þykir með því að veita sam an ám, lækjum og lónum upp á fjallinu. I Framkvæmdir undirbúnar í fyrra. Á síðasta sumri var unnið mik- ið að undirbúningi Mjólkárvirkj- unar. Auk vegagerðar, sem áður er sagt frá voru byggðir skálar fyrir verkafólk, sem starfar að fram- kvæmdum við sjálfa virkjunina, og ennfremur geymsluhús. Standa þessar byggingar nú tilbúnar, þeg ar hafizt verður handa í sumar af fullum krafti við sjálfar virkj- unarframkvæmdirnar. í vetur var unnið að teikningum og undirbúningi byggingafram- kvæmda og verkið síðan boðið út. Var óskað eftir tilboðum í bygg- ingu á stöðvarhúsi, stíflu og ufidir stöðum pípuleiðslunnar frá stíflu að stöðvarhúsi. Er kostnaður við þessar fram- kvæmdir áætlaður 10—12 milljóH' ir króna. ÁætlaÖ er að virkjunin geti tekið til starfa á næsta ári, ef engar óvæntar tafir koma fyr- ir. Orkuverið verður 2400 kvv. Frá orkuverinu Iiggja 30 þúsund’ volta háspennulínur um byggðir Vestfjarða og er þegar byrjað a® leggja þær og því verki haldið áfram í sumar. Gamall draumur rætist. Hinar stórvirku framkvæmdir nútímans, sem nú eru að hefjast í Arnarfirði marka tímamót í sögu byggðarinnar og raforkan þaðan á eftir að flytja birtu og yl og aukna velmegun inn á heimili fólks um alla Vestfirði. Þó að draumurinn um beizlun orkunnar þar hafi ekki orðið að veruleika fyrr en nú, stafar það ekki af því að mönnum hafi ekki verið hugs- að til fossaorkunnar í Arnarfirði fyrr. Fyrir mörgum áratugum komu menn auga á hin frábæru skilyrði til rafvirkjunar, sem þar eru til staðar og um 1920 mældu norskir verkfræðingar fyrir virkj- un, þó ekki yrði úr framkvæmdum. Aðstæðu allar og tækni er nú’ breytt, en það sem breytingunni veldur og þyngst er á metunum er það, að þeir menn, sem umboð' liafa fyrir fólkið á löggjafarþingr þjóðarinnar hafa beitt sér fyrir framgangi málsins og fengið það samþykkt. Er sú saga enn eitt dæmið um það, að fólk verður að: treysta á féiagsleg úrræðíi og standa fast saman um þá menn, sem veljast til að vinna góðunr málum lið og duga vel í þeirri baráttu. Þegar vatnsaflið verður farið að knýja gljáfægðar vélar í orku verinu við Mjólkárfossa hefst nýtt landnám í Arnarfirði. Raforka, vegir og brúuð vatnsföll færa íbú- um þessara byggða þá loks þægindi sem of lengi hefir verið beðið eftir og bíða þyrfti lengi eftir enn, ef heiðarlegir umbótamenn hefðu ekki haft áhrif á landsmálin með hag almennings fyrir augum. Raforkan breytir lífskjörum fólksins. Raforkan er eitt af sjálfsögð- ustu nauðsynjum nútímans, sein í mörgu tilliti hefir breytt lífs- venjuni og skapað áður óþekkt þægindi. En raforkaii er meira. Hún er undirstaða framleiðslunn (Framhald á 2. síðu). t-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.