Tíminn - 12.09.1956, Qupperneq 1
12 síður
i
Fylgizt með tímanum og lesið
TÍMANN. Áskriftarsímar 2323 og
81300. Tíminn flytur mest og fjöl-
breyttast almennt lesefni.
40. árgangur
Reykjavík, miðvikudaginn 12. september 1956.
Þrælasala 1 Arabaríkjum, bls. 4.
Alþingismenn og eySing refa, bls. 5
Kommúnistar - Habsborgarar bl. 6
Tillögur S. Þ. um landhelgina bls. 7
Neðanmálssaga: Flugfreyjan, bls. 9
205. blað.
.Ástandið Súez er
tS3 BH
jog aivarse:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda, Blönduósi:
sagíi Mollet forsætisrá^herra Frakka í gær.
Algcr eining á fundi hans og Edens um gagn-
rá^stafanir. Eden skýrsr frá {leim í hrezka
þinginu í dag
Löndonf 11. sept. — Forsætis- og utanríkisráðherra Bret-
lands og Frakklanc.a hafa setið á fundum í g'ær og dag um
Súez-málið og rætt hvaða ráða skuli nú gripið til, þegar
fullvíst er, að Nasser fellst ekki á tillögur Lundúnaráðstefn-
unnar um alþjóðíega stjórn á Súez-skurði. Mollet forsætis-
ráðherra Frakka sagði í dag, er hann kóm af þriggja og
hálfrar stundar fundi ráðherranna, að ástandið við Súez
váeri nú mjög alvarlegt. Alger eining hefði ríkt á fundi ráð-
herranna um þær ráðstafanir, sem nú yrði gripið til gegn
Nasser og aðeins væri eftir að ræða við bandalagsþjóðir um
einstök atriði í þessu sambandi.
Mollet kvaðst ekki vilja skýra I væru, þar eð eðlilegt væri, að Ed-
frá hverjar þessar ráðstafanir! (Framhald á 2 s.ðu)
lr
verðlags- og
Slátruii byrjiið á
Sauðárkróki
Frá 'réttaritara Tímans
á Sauðárkróki.
Haustslátrun er nú byrjuð í slát
urhúsi Kaupfélags Skagfirðinga á
Sauðárkróki. Dilkar virðast vera
með bezta móti. Gert er ráð íyrir
að slátra um 1150 Jilkum á dag.
en enn er ekki íarið að slátra fullri
tclu. Töluvert af :fé er komið vil
byggða, en göngur hefjast um
næstu helgi. illátrunin hófst i.iðast
liðinn laugardag. G. ö.
! Spomað verði viS fwí að bjggi-
! legar jarðir fari í eyði
Samþ. tillaga um að lán og styrkir hækki
ogað aukin verði lágmarksstærð Sánds á
Blönduósi í gær.
Nefndir störfuðu í morgun, en fundir hófust eftir há-
degi á aðalfundi Stéttarsambands bænda á Blönduósi. Hófst
fundur klukkan 1,30 e. h. og voru þá tekin fyrir nefndaráiit
og afgreiddar ýmsar tillögur. Að síðustu voru verðlags og
afurðasölumálin tekin fyrir og stcðu umræður um þau fram
eftir kvöldi.
I lögleg ákvæði, er tryggi árlegt
I' ramsögumaður Mlsherjarnefnd- • framlag úr ríkissjóði til jafns við
t. _ framlag ræktunarsambandsins til
ar var Bjarni Halldórsson. Sam-
þykkt var ályktun um stofnlán og
rekstrarlán landbúnaðarins, þar
sem skorað var á ríkisstjórn og al-
þingi að sjá um að bændum verði
veitt rekstrarlán til sex mánaða,
hliðstæð útgerðarlánum. Einnig
var samþykkt að bústofnslánadeild
Búnaðarbanka íslands yrði gert
kleift að sinna hlutverki sínu; að
starfsfé veðdeildar Búnaðarbank-
ans yrði stóraukið og að stjórn
Stéttarsambandsins láti athuga
hvað hægt er að gera til þess að
sparifé verði geymt í sparisjóðum
og innlánsdeildum kaupfélaga
heima í héruðum.
fyrningarsjóða, eða helming and-
virðis endurnýjunar véla.
Grænmetisverzlun landbúnaoarins.
Framsögumenn framleiðslunefnd
ar voru Garðar á Rifkelsstöðum og
Eggert Ólafsson. Samþykkt var á-
lyktun þess efnis, að aðalfundur
lýsti ánægju yfir stofnun Grænmet
isverzlunar landbúnaðarins og tel-
ur alþingi hafa mætt óskum fyrri
aðalfund sambandsins í aðalatrið-
um. Taldi fundurinn að þetta
myndi bæta aðstöðu framleiðenda
og gera garðræktina að öruggari
i búgrein.
Á námskeiði Rafmagnsdeildar SÍS fengu margir rafvi kjar cg sölumenn tækifæri til aS kynnast sf eigin
reynd, hinum fiókna útbúnaði nýtízku heimilistaakja. Á myndinni eru þeir önnum lcafnlr við athuganir sí.nar.
. (Ljósm.: Sv. Sæm.). !
..... i
Fræðslustarfsemi Sambands ísl. Samvinnufélaga:
Um 40 rafvirkjar og sökmenn sóttu
e B e
Nýlega er lokið námskeiði, sem Rafmagnsdeild Sambands
íslenzkra samvinnufélaga efndi til fyrir rafvirkja og sölu-
menn, er fást við viðgerðir og sölu heimilistækja. Rafmagns-
verkstæði SÍS sá um námskeiðið, en forstjóri rafmagnsverk-
stæðisins, Haraldur Jónasson rafvirkjameistari, og Jónas
Guðlaugsson verkstjóri í rafvéladeild verkstæðisins eru ný-
komnir frá Sviss, þar sem þeir sóttu námskeið í viðgerðum
og meðferð heimilistækja, er haldið var á vegum Westing-
house fyrirtækisins.
Námskeiðið x Sviss Var haldið
fyrir rafvirkja frá öþum Evrópu-
löndunum og auk þess voru þar
nokkrir frá Alsír í Afríku. Sviss
var valið til þess að halda öám-
skeiðið, vegna þess hve miðsvæðis
það liggur í álfunni og til þess að
gera mönnum, sem jafnast fyrir
með ferðakostnað 0. fl.
Námskeiðið var haldið í kjallara
Sambandshússins óg hófst finnntu
daginn 6. sept. og lauk með sam-
eiginlegum kvöldverði í Naustinu
á sunnudagskvöld. Alls sóttu :uám-
skeiðið um fjörutíu rafvirkjar og
Rússar vesta Indónesíu
efnahagsaðstoð til
langs tíma
Moskvu, 11. sept. — Sokarno for
seti Indónesíu er staddur í Moskvu
þessa dagana og í dag var gefin
út sameiginleg yfii-lýsing af hon-
um og Sovétleiðtogum, þar sem
lýst er yfir, að friðsamleg lausn
verði að finnast á Súez-deilunni
á þeim grundvelli, að fullt tillit
sé tekið til sjálfstæðis Egypta.
CFramlvdd á 2. síðu).
Fimm manns
slasast vestra
Það slys varð í fyrrakvöld á
Arnarfjai-öarvegimim fyrir innan
Hrafnseyri, að tveir bílar rákust
á. Annar var jeppi og í honum
pi'estshjónin frá Hrafnseyri, séra
Kári Valsson og kona lians. Auk
þeirra tvær stúlkur og sonur
bóndans á Hrafnseyri, sem ók
jeppanum. Hitt var vörubíll og
mun bílstjórann og farþega, sem
með lionum var ekki hafa sakað.
Prestsfrúin slasaðist mest.
Hlaut slæmt höfuðhögg og brotna
linéskel. Hún var flutt á sjúkra-
húsið á ísafirði. Séra Kári hlaut
einnig lxöfuðhögg og bilstjórinn
og stúlkurnar meiddust talsvert.
Fölkið var allt flutt til læknis,
sem gerði að mejðslum þess og
prestsfrúin síðar á sjúkrahúsið á
ísafirði, eius og fyrr er sagt.
Nýbýlamálið.
Þá var samþykkt tillaga frá alls-
herjarnefnd um að beina þeim til-
mælum til landnámsstjóra og I
nefndar þeirrar, sem nú starfar við |
endurskoðun nýbýlalaga, að húnj
taki til rækilegrar athugunar, hvað j
hægt sé að gera til að stuðla að
endurbyggingu eyðijarða og sporna !
við því að byggilegar jarðir fari í
eyði. Ennfremur taldi fundurinn j
að nauðsyn bæri til að breyta ný-!
býlalögunum þannig, að lán og!
styrkir hækkuðu og aukin yrði lág,
marksstærð ræktaðs lands á
hverju nýbýli. Þessi ályktun alls-
herjai'nefndar var samþykkt sam-
hljóða.
Húsbyggingarmál.
Framsögumaður fjárhagsnefndar
var Bjai'ni Sigurðsson. Reikningar
og fjáx-hagsáætlun sambandsins var
samþykkt samhljóða. Þá var sam-
þykkt tillaga frá fjárhagsnefnd um
að Stéttarsambandið stæði að bygg
ingu húss Búnaðarfélagsins að ein
um þriðja hluta. Einnig var sam-
þykkt tillaga um kaup á stóru bún
aðarbókasafni, sem hefir að geyma
fi’æðibækur um landbúnað og ýms
önnur rit varðandi hið sama.
Húsagerðarsamþykktir í sveitum. \
Þá skoraði fundurinn á alþingi'
að breyta lögum um jarðræktar-'
og húsagerðarsamþykktir í sveit-'
um, þannig að tekin verði upp í
Verðlagsmálin.
Á síðdegisfundi var tekið fyrir
álit verðlagsnefndar. Frainsögu-
maður var Erlendur Árnason, Skíð
bakka. Urðu miklar umræður um
þau mál og nefndarálitið og stóðu
umræður fram eftir kvöldi, enda
er hér um eitt aðalmál fundarins
að ræða.
Steingrímur Síeinþórsson, fyrr-
verandi landbúnaðarráðherra, á-
varpaði fundinn og þakkaði boð á
hann. Þórður Þórðarson, prófessor
við háskólann í Norður-Dakóta,
sem er gestur fundarins, flutti hon
um kveöjur og árnaðaróskir ríkis-
stjórans í Norður-Dakóta, en fund-
arstjóri þakkaði og bað prófessor-
inn fyrir kveðjur til íslenzkra
bænda vestra. — Andrés.
Breíar fá ekki bæki-
stöðvar í ísrael
London, 11. sept. — Talsmaður
brezku stjórnarinnar mótmælti ein
dregið í dag þeim flugufregnum,
sem hann kvað hafa verið dreift út
af Egyptum, að samkomulag hefði
náðst milli stjórnar ísraels og
Bretlands um bækistöðvar og aðra
aðstöðu fyrir brezka herinn í ísra-
el. Ekkert slíkt samkomulag hefði
verið gert né auk heldur komið til
mála að slík aðstaða fengist.
HéraSsmót Framsóknarmanna
i Rangárvallasýslu
Framsóknarfélögin í Rangárvallasýslu halda héraðsmól
sitt n. k. laugardagskvöld og hefst það kl. 8,30.
Meðal dagskrárliða verða ræður, einsöngur og gaman
vísnasöngur. Verður nánar sagt frá dagskránni síðar í blað
inu.