Tíminn - 28.02.1957, Qupperneq 4

Tíminn - 28.02.1957, Qupperneq 4
T í MIN N, fimmtudaginn 2g. febrúar 1957. I1 Það var heilmikið fjaðrafok á Kastrup flugvelli. Pólflugsvél SAS hafði fyrir skömmu lagt upp áleiðis til Tókíó; flugvél frá franska flugfélaginu Air France var að lenda með eina stands- perónu um borð: franska tízku- kónginn Dior. Á flugvellinum stóð móttökunefndin reiðubúin með pípuhattinn í liendinni og umhverfis hópaðist heill her- skari af blaðamönnum, ljósmynd urum og áhorfendum; allir þurftu að líta þennan konung kventízkunnar. Flugvélin lenti, nefndin veifaði pípuhöttunum og ljósmyndarar og kvikmyndarar knúðu vélar sínar af fremsta mætti: konungurinn var stiginn tU jarðar. — Eg hefi lengi hlakkað til að koma aftur til Danmerkur, sagði Dior við blaðamenn á flugvellin- um. Eg hefi komið hér áður, en það var fyrir tuttugu árum og þá var ég rétt að byrja í tízkunni. . . Eg var hér í heilar þrjár vikur og fékk því nægan tíma til að kynn- ast borginni og nágrenninu. — Koma yðar hefir ekki vakið jafn mikla athygli þá og nú? spyr blaðamaðurinn. — Nei, áreiðanlega ekki, segir Dior brosandi. Þetta var ákaflega ánægjuleg heimsókn . . . Fólk er farið að safnast saman til að sjá þennan merkilega mann sem Ijós- myndararnir eiga svo annríkt við. Það hafa verið skrifaðar heilar bækur og langar, langar greinar um það hversu feiminn tízkukóng- urinn sé, bæði við allan almenn- ing og þó einkum og sér í lagi við blaðamenn. Samt ber hann sig vel og karlmannlega, segir meira að segja: — Nei, þetta er hreinasta vit- leysa, mér þykir mjög vænt um' blaðamenn og hefi gaman af að tala við þá .... bara ekki of marga í einu. Það var glampandi sólskin og kóngurinn — í svörtum frakka og með fjármálahatt — skyggði hönd fyrir augu og lét ljósmynda sig af mestu þolinmæði. Það er betra veður hér en í París, sagði hann. Þetta er mesta indælis land Tízknkóngur í Kaupmaimaköfn Heimsókn eftir tuttugu ár — vatnsglas á 1400 krónur danskar — Tappatogari eSa frelsi — Ofrjáls kéngur — En kannske bsSur frelsið hans, þegar hann kemur heim á ný Kóngurinn á Kastrup-flugvelli: Betra veður en i París. framleitt nýja tegund af ilmvatni — Diorissimo. Blaðamennirnir virtu fyrir sér — með hæfilegri lotningu — stærstu flöskuna af þessu ilmvatni, stóra og gullbúna, enda kostar hún 1400 kr. danskar. Það vill til, að ilmvatnið fæst einn ig í minni ílátum, sem betur henta smælingjunum í henni veröld. Dior kvaðst hafa komið í nokkr- ar danskar verksmiðjur í sam- bandi við þessa ilmvatnsgerð; þær væru betri en nokkrar aðrar, sem hann hefði séð, sagði hann. Það gerðist ekki einu sinni betra í Ameríku. Og síðan rigndi gui!- hömrunum um Norðurlönd og menningu þeirra. Blaðamennirnir fengu einnig sinn skammt -— af guilhömrum en engar upplýsingar um væntanlegar tízkunýjungar. TAPPATOGARALÍNA OG FRELSI. — Tappatogaralína, sagði Dior iteinhissa, þegar hann var spurð- ur um síðustu tízku sína. Hann hafði aldrei nefnt tappatogara á nafn og Skildi sízt hvað fólk væri að fara með svoleiðis snakk. Nei, hin nýja lína hans var lína frjáls- ræðis; hatturinn má vera aftur í hnakka og nýju kjólarnir hans eiga að vera víðir eða þröngir, itúttir eða síðir eftir því sem liver vill. Frelsi er hið eina sanna slag- urð. Og herópið er: Lifi.frelsið — og Dior, sem hefir komið þessu illu svona haganlega fyrir. Þegar blaðamannasamkomunni lauk tóku við nýjar veizlur; Kon- ungurinn þurfti að hitta smá- kónga tízkunnar í Danaveldi, hann þurfti að tala við þennan, heilsa hinum og láta kynna !sig fyrir þessum. Hann laumaðist til að júpa glas af dönskum bjór rnilli atriðá, hafði ekkert ráðrúm til að njóta kampavínsins með gestum sínum. Þannig líður tími hans í ferðinni, hann fær aldrei um frjálst höfuð strokið þótt slagorð hans sé nú frelsi — en ekki tappa- togari . . . En kannske bíður frels- ið hans þegar hann kemur aftur heim til Parísar og getur farið að hugsa upp ný tízkutilbrigði, hvort sem það verður nú frelsi eða ó- frelsi, tappatogari eða tappinn sjálfur. Drómi - nýtt sótthreinsunarefni, sem gefst vel, framleitt á Selfossi Frá fréttaritara Tímans á Selfossi. Diorissimo Dior kom __ við sjötta mann til Danmerkur. í för með honum voru meðal annars hægri hönd hans Mme Zenecker, sem hefir starfað í tízkuhúsi hans frá fyrstu tíð og forstjórinn fyrir ilmvatnagerð Di- ors, Serge Heftler-Louiche, farinn að grána í vöngum og brosti breitt. Allur hópurinn ók til Hotel d’ Angleterre þar sem kóngurinn á að búa meðan á dvöl hans í Kaup- mannahöfn stendur. Því miður var ekki hægt að fá honum þjóðhöfð- ingjaíbúð hótelsins, hún var frá- tekin handa japönskum prinsi, sem væntanlegur var frá Tokyo og tízkukóngurinn fékk aðeins hið næstbezta. Og nú tóku við veizlur og skemmtiferðir, öllum tíma Di- ors í Kaupmannahöfn var ráðstaf- að fyrirfram nema hvað hann hafði áskilið sér nokkurra klukku- stunda frí til að Líta í fornsölur, hann safnar nefnilega listmunum. Það kom greinilega fram á fundi þeim, sem Dior átti með blaða- mönnum, að frægðin er honum til nokkurrar byrði. Hann reynir aldrei til þess að gera sjálfan sig að miðpunkti en þolir allt, sem verður yfir hann að ganga með góðlátlegu brosi. Þessi hlédrægni bans kemur amerísku kvenfólki til að faðma hann og kyssa í hrifn- ingu sinni þegar þær hafa verið Við Dior-sýningu. Og hann lítur alltaf út eins og hann búizt við hinu versta.... Það kom upp úr kafinu að orsökin til heimsóknar Diors var sú að ilmvatnssérfræð- ingurinn Heftler Louiche hafði Á Selfossi hefir verið hafin framleiðsla á nýju sótthreins- unarefni. Það er lögur, sem apótekið framleiðir undir nafn- inu Drómi. Drómi er ætlaður til sótthreins- unar í heimahúsum, á sjúkrahús- um, í iðnaði við matvælafram- leiðslu, og annars staðar, þar sem mikils hreinlætis er þörf. Rannsóknir virðast hafa leitt í ljós, að lögur þessi er ákjósan- legt sótthreinsunarefni, nokkur grömm af honum nægja í lítra af vatni til að fá nægilega sterkan sótthreinsunarlög, og slíkur lög- ur er algjörlega skaðlaus og einn- ig lyktarlaus og litlaus og svíður ekkert undan honum. íslendingar í veizíu hjá brezka utan- ríkisráðuneytinu The Times í London skýrir frá því, að fjórum íslendingum, sem eru í Englandi í boði brezka utan- rfkisráðuheytisins, hafi verið hald ið samsæti í London 21. febrúar síðastliðinn. Samkvæmið sátu auk íslendinganna fjögurra, sendiherra íslands í London, fulltrúar íslend ingafélagsins á staðnum, brezkir þingmenn og fulltrúar ýmissa sam taka, þar á meðal brezku verka- lýðsfélaganna. íslendingarnir eru Gunnar G. Schram, Helgi Tryggva- son, Óskar Hallgrímsson og Stefán Gunnlaugsson. I Mjólkurbú Flóamanna hefir not- 'að Drómann í rúrpt ár og notar nú ekki annan sótthreinsunarlög. Hráefnin eru flutt inn frá Banda ríkjunum, þar sem sams konar i sótthreinsunarefni og Drómi hafa 1 náð miklum vinsældum og mik- I illi útbreiðslu. j Svipuð sótthreinsunarefni hafa I ekki verið framleidd hér áður j heldur hafa þau verið flutt inn . fullunnin, en með Drómanum má 1 spara gjaldeyri og auk þess er hann seldur miklum mun ódýrari en sambærileg útlend sótthreins- unarefni. Þessi iðnaður hér á Selfossi hef- ir fært töluverða atvinnu og er þess að vænta, að sú þróun haldi áfram. Á. G. Verður Anna Borg kjör in form. Fél. danskra leikara? Kosning á formanni Félags danskra leikara stendur fyrir dyr- um. Hefir verið rætt um það í dönskum blöðum hver muni hljóta kosningu sem formaður. Þrír leik- arar hafa einkum verið nefndir sem væntanlegir formenn, Per Buckhoj, Thyge Thygesen og Anna Borg. í þessu sambandi hef- ir því verið haldið fram að Anna Ungversku knattspyrnumennirnir: Puskas vill leika með Real Madrid á Spáni VÍNARBORG, sunnudag. — Níu af kunnustu knattspyrnumönnum ungverska liðsins Honved hafa nú endanlega ákveðið að snúa ekki heim aftur til Ungverjalantís. Fararstjóri liðsins, Emil Oeserreicher, ræddi við leikmennina í dag, sem eru staddir í Vínarborg, til að fá hið alvarlega mál útkljáð. Ilinir níu leikmenn eru Ferenc Puskas, Joszef Grosics, Sandor Kocsis, Karoly Sandor, Ferenc Szuska, Mihail Langtos, Garam Voelgyi, Szolnok og Szabo. Leikmennirnir voru allir á einu máli með það að snúa ekki heim aftur, og eru ákveðnir í því að fá að leika með vestur-evrópskum eða suður-amerískum liðum. Nán ustu skyldmenni þessara manna eru nú annað hvort í Austurríki eða Ítalíu. ÁTTA LEIKMENN f PARÍS. Átta leikmenn Honveds-liðsins eru nú staddir í París, en þeir eru nýkomnir þangað frá Caracas í Venezuela. Það eru Joszef Bozsis, Rakosi, Dudas, Banyai, Kotasz, Budai, Fargo Doeroecik og þjálf ari liðsins Jenoe Kalmar. Af þess um leikmönnum hafa þrír ákveðið að fara heim, þeir Rakosi, Dudas og Banyai, þar sem fjölskyldur þeirra eru enn í Ungverjalandi. Þá má -fastlega reikna með, að þingmaðurinn Bozsis snúi heim aftur. Hinir hafa cnnþá ekki tek ið neina ákvörðun. MEGA EKKI LEIKA MEÐ ERLENDUM LIÐUM FVRIR ÁRAMÓT. Samkvæmt ákvörðun Alþjóða- knattspyrnusambandsins, FIFA, mega ungversku knattspyrnu- mennirnir ekki leika með erlend- um liðum fyrir áramót. Honved lék síðasta „opinbera“ leik sinn gegn spánska liðinu Bilbao í Evrópukeppninni (þess má geta, að Bilbao sló Honved út, en síðan hefir enska liðið Manch Utd. sleg ið Bilbao út), hinn 20. desember. Eftir þann leik kom tilkynning frá ungverska knattspyrnusam- bandinu um það, að liðið hefði verið leyst upp, og það leikbann, sem þá var sett .á ungversku leik- mennina, rennur út 20. desember í ár. Eftir þanh tíma geta þeir að eigin vild ákveðið með hvaða lið- um þeir leika. PUSKAS TIL SPÁNAR. Þeir leikmenn, sem hafa ákveðið að fara ekki heim, eru þegar komn ir í sambönd við fræg knattspyrnu lið. Aðeins einn þeirra, Szoltan Czibor, hefir þegar undirritað samning. Hann er nú þjálfari og leikmaður hjá ítalska liðinu Roma. Markmaðurinn Joszef Grosics, sem oft hefir verið hnepptur í fangelsi í heimalandi sínu, hefir helzt hug é því að leika með brazilíska liðinu Flamengo og hinn markmaður liðsins mun einn ig fara til Suður-Ameríku. Aðalstjarna liðsins, fyrirlið- inn Puskas, hefir helzt í huga að ieika með spánska llðinu Real Madrid, sem sigraði í Evrópukeppninni í fvrra. Ef ekki verður af samningnum milli hans og Spánverja, mun hann ieika með Milan-liðinu Inter. Langtos og Szolnok eru í samn ingum við þýzk lið, og hinn frá- Ferene Puskas bæri ieikmaður Koscic mun leika með Milan. Sandor mun fylgja í fótspor Puskasar og leika með Real Madrid. Kurt Nielsen ame- rískur meistari í tennis Á sunnudáginn várð Dáninn Kurt Nielsen sigurvegari í einliöa leik á jaméríska meistaramötinu í tennis. Sigraði hann Bandaríkja manninn Herb Flem í úrslitaleik með 4:6, 6:1, 6:4 og 6:4. Lék Dan- inn mjög vel og var mun betri en Flem, þótt hann tapaði fyrsta settinu. Íþróttaíélag M. A. minnist 20 ára afmælis Frá fréttaritara Tímans á Akureyri. Síðastiiðinn laugardag minntist Iþróttafél. Menntaskólans á Akur- eyri 20 ára afmælis félagsins. — Áður en félagið var stofnað hafði bæði verið glímufélag og knatt- spyrnufélag starfandi í skólanum, en síðan breytt í alhliða íþrótta- félag. Félagið hefir lagt stund á fjölmargar greinar íþrótta og átt íslandsmeistara i mörgum. Fyrsti formaður félagsins var Jóhann G. Möller, Siglufirði. Við afmælishátíðahöldin var Hermanni Stefánssyni þökkuð slarfsemi hans í þágu félagsins frá því hann hóf kennslustörf. Vil- hjálmur Einarsson flutti ávarp, en á námsárum sínum var hann for- maður íþróUaíélagsins. Afhent var gjóf fra iþróUabandalag'i Akur eyrar í minningarsjóð Þorsteins Halldórssonar, nema í memita- skólanum. Borg hafi verið í félaginu frá stofnun þess og þá til að stuðla að kosningu hennar. Hins vegar er þess getið, að félagið hafi haldið hátíðlegt fimmtíu ára afmæli sitt fyrir einum tveimur árum og á það bent, að einhvers staðar beri ekki saman í útreikningunum. Þá fór fram verðlaunaafhend- ing fyrir knattspyrnu og skíða- göngu. Síðan flutti skólameistari, Þórarinn Björnsson, ræðu, þar sem hann þakkaði félagsmönnum óeigingjarnt starf og jafnframt ágæta samvinnu. Á eftir var stig- inn dans í hátíðasal skólans.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.