Tíminn - 28.02.1957, Side 9
TÍMINN, fimmtudagmn .28. febrúar 1957.
84
T — Nei, sagði hún.
T Hún gaf sér nægan tíma til
að fara úr og þegar hún kom
út úr baðherberginu var hún
í slopp. Hún lagðist upp í rúm
íð og hann hneppti frá henni
sloppnum; hún lá róleg með-
an hann svalaði forvitni sinni
en forvitni sjálfrar hennar
beindist aðeins að því hvað
hann myndi gera.
Fyrst eftir góða stund krafð
ist hún hans alls og þrýsti
honum að sér án þess að taka
minnsta tillit til hans hvort
hann væri tilbúinn eða ekki.
Og í síðustu lotu var það hún
sem tók við stjórninni.
— Þetta hélt ég, sagði
hann þegar þau lágu kyrr á
nýjan leik.
i — Nú, svo þér hélduð það,
sagði hún; hún var dásam-
lega þreytt. Hvað hélduð þér?
Eruð þér með fleiri kenning?
ar?
— Auðvitað, sagði hann.
Margir karlmenn. Margir.
Hann hló.
T' ■— Og þetta finnst yður
skemmtilegt?
— Finnst yður það kannski
ekki? Margir karlmenn en
samt aðeins tveir.
— Aðeins tveir, Það er rétt
sagði hún. Og verða ekki
fleiri. Þér eruð ekki kvæntir?
— Nei, sagði hann.
■— Það gleður mig, sagði
hún. Ég held þér yrðuð ekki
hentugur eiginmaður. Hafið
þér annars gaman af að tala?
Ég meina; er hætta á að þér
ræðið þetta við kunningja yð
ar?
— Ég hefði að vísu gaman af
því, en meðal þeirra karl-
manna sem ég þekki er eng
Inn sem kynni að meta það.
Raunverulegan sigur vann ég
I lyftunni; sigurinn í rúm-
inu er aðeins aukaatriði. Og
sigurinn á ég að þakka . . .
ja, við getum kallað það ör-
uggari gáfur en almennt ger
ist. Fæstum karlmönnum sem
ég þekki dytti yfirleitt í
hug að nefna yður í sömu and
ránni og lystisemdir holdsins.
En ég gekk lengra en svo. Ég
Vissi að þér voru móttækileg-
ar. Nei, góða mín, þér þurfið
hvorki að óttast slúðursögur
eða hneykslismál.
— Þakk. Ég trúi yður vafn
Ingalaust og er yður mjög
þakklát.
— Fyrir verknaðinn sjálfan
eða fyrir að það veröur ekkert
hneyksli.
— Fyrir verknaðinn eins og
þér orðið það. Ég reifst við
manninn minn. En nú get ég
farið til hans án þess að það
sitji í mér nokkur þykkja og
þá finnst honum ég vera góð
og blíð eiginkona.
— Og það verðið þér áreið
anlega í framtíðinni, ekki
gatt?
— Jú, sennilega.
•— En þér hefðuð auðveld
lega getað eitrað líf hans hefði
ég ekki komið til skjalanna —
ég og þér auðvitað.
— Eigið þér ástmey?
— Jú, að vísu, þó ég myndi
ekki taka svo til orða. En það
er til kona sem ég sef hjá.
— Ég skal ekki vera að
spyrja yður að þvi hver hún
sé; en er hún greind?
— Á sinn hátt er hún það,
en ekki eins og þér eða ég.
— Segið þér henni að þér
hafið verið með mér? Eða með
öðrum?
— Ég hef aldrei lofað
henni neinu og þesS vegna
hnýsist hún heldur ekki eftir
neinu. Ef maður lofar ein-
hverju, til dæmis tryggð, hef
ur maður þar með undirritað
samning; en ef maður geng-
ur ekki að neinum samning
um móðgast heldur enginn
við mann.
— Ég held að við tvö ætt
um samt að gera samning.
— Hvers konar samning
— Um að þetta yrði fyrsta
og síöasta skiptið; þetta má
ekki koma fyrir oftar, sagði
Edith.
— En það er samningur
eins og aðrir samningar og
ég var að segja, . . ef við sam
þykktum hann og færum svo
saman í rúmið þrátt fyrir allt
yrðuð þér mér reiðar. Ekki
sjálfri yður fyrst og fremst,
heldur mér. Látum okkur
nægja að bíða og sjá hvað
framtíðin ber í skauti sínu.
— Allt i lagi, en við skul
um að minnsta kosti reyna til
þess að hittast ekki aftur,
sagði hún. Mér þætti eigin
lega gott að vita af því að
einn karlmaður hefði einu
sinni sannfært mig um að all
ir karlmenn séu ekki eins.
— Það er kannski ekki svo
slæmt sjónarmið. Allir karl-
menn eru ólíkir og allar konur
eru ólíkar eftir því með hvaða
karlmönnum þær eru. Eftir
að þér hafið komizt á snoðir
um þetta með því að vera
með mér ætti ég að leiðrétta
þaö sem ég sagði áðan. Þér
þurfið ekki að sofa hjá mörg
um mönnum. Nú vitið þér að
þeir eru allir ólíkir.
— Og þér álítið að allar kon
ur séu ólikar?
— Hvort þær eru.
— Nú verðið þér að fara,
sagði hún.
— Hvað ætlið þér að gera?
— Fara í bað og svo að
sofa.
— En þér vaknið aftur,
sagði hann. Kannski klukkan
eitt eða tvö í nótt. Og þá vilj
ið þér ekki hringja til mín.
Símastúlkurnar hlusía alltaf
þegar ekki er annað að gera.
— Ég læsi ekki.
— Hvað haldið þér að þér
sofið lengi?
— Það hef ég ekki hug-
mynd um, sagði hún.
— Ég kem aftur eftir mið-
nætti. Ef þér vakið þá verð
ég hér. Ef þér sofið skal ég
ekki vekja yður.
Síðan fór hann. Klukkan
eitt opnaði hann dyr hennar
aftur en það leyndi sér ekki
á djúpum andardrættinum að
hún vildi telja honum trú um
| að hún svæfi. Hann lokaði
jhurðinni hljóðlega á eftir sér
og sneri aftur til herbergis
síns.
Þau gerðu enga tilraun til
þess að hittast aftur eftir að
hún var komin heim á
búgarðinn. Aðeins ein mann-
ivera fann að breyting hafði
orðið á Edith og það var Joby.
Edith var orðin umhyggju-
söm, móðurleg. Hann skildi
þetta ekki; hann varð tor-
trygginn því að á þessu var
jengin skýring og honum geðj
aðist ekki að breytingunni.
Hann hændist að Ann meira
en nokkru sinhi áður, og þau
tengsl hélduSit. allt þetta sum
ar og alla ævi þeirra.
Það hefði engan vt^ýinn ver
ið athyglisvert að heilt ár
hefði liðið án þess að Ed-
ith og Lloyd Williams svo mik
ið sem sæust’"á götu. Willams
bjó í Collieryville, námubæ
sem lá mílu vegar frá North
Frederick, en á þeim var grein
ilegur munur sem stafaði
bæði af mismunandi efnahag
og þjóðfélagsaðstöðu; annars
vegar billjarðstofa námu-
manna og hins- vegar Gibbs-
ville klúbburinn; fátækt ann
ars vegar og fjögurra manna
þjónustulið hjá fjögurra
manna fjölskyldu hins vegar;
Fimmtudagsklúbburinn og ól-
seigir kjúklingar sem fram-
reiddir voru á samkomum
ensk-lútersku kirkjunnar.
Joe Chapin og Lloyd Williams
heilsuðust vinsamlega er þeir
hittust á göngum dómhúss-
ins og þess utan voru þeir
flokksfélagar. En Joe vann
fyrir atvinnurekendur og
Williams fyrir verkalýðsfélög
in og hann var aðeins repú-
blikani vegna þess að það
hefði verið vita þýðingarlaust
að fylgja öðrum flokki í Lant
enengo. Eftir tveggja ára
tíma hefði Edith ekki getað
munað hvaða dag þau Will-
iams hittust í Filadelfíu; og
eftir þrjú ár vissi hún ekki
lengur hversu oft þau hefðu
talazt við — hún þekkti hann
eins og hún þekkti lögreglu-
þjóninn í Gibbsville, réttar-
þjóninn í dómsal nr. 3, tann-
lækni sem þó var ekki tann-
læknir sjálfrar hennar og
fjöldann allan af öðru fólki
sem hún þekkti aðeins vegna
starfs þess. En eftir þenn-
an dag í Fíladelfíu fannst
henni að hún hitti Williams
I oftar en áður. Hún hugsaði
sér, og það var mjög skiljan
legt í sjálfu sér ,að þetta staf
aði af því að hún veitti hon
um meiri athygli nú en áður
— en samt var hér um eitt
hvað annað og meira að ræða.
Það sem hún vissi ekki var að
hann gerði vissar ráðstafanir
og sá til þess að vera alls
staðar nærstaddur.
Næsti fundur þeirra gerði
hana órólega. Það var í
Swedish Haven; hún sá hann,
hann sá hana og tók ofan og
sagði:
Jónas B. SigurSsson
(Framhald af 8. síðu)
öllu, vakað yfir hverri hans hreyf
ingu úti sem inni, eins og sannur
verndarengill. Hann eignaðist
mannvænleg börn og fósturbörn,
sem öll komu, sum langan veg, tii
að fylgja honum síðasta áfangann.
Hann fékk mestan hluta ævinnar
að vinna að hugðarefnum sínum
við allgóðar ástæður. Og er kom-
ið var á leiðarenda í þessum jarð-
lífs áfanga, var hann á heimili
■=ínu í örmum eiginkonu og sonar.
Oetur drvgri gæfumann?
Kynslóðir koma og kynslóðir
fara. Enginn stöðvar tímans þunga
nið. Ég hefi persónulega kynnzt
þremur fulltíða ættliðum Jónasar
og séð hinn fjórða skjóta frjóöng-
um: föður hans, honum sjáifum,
börnum hans, og séð svipmótið
sama á ungum barnabörnunum.
Það, sem mér finnst mjög ein-
kenna þessa ætt er hin mikla sam
staða, hin mikla umliyggja, sem
hver ber fyrir öðrum, sonur eða
dóttir, fyrir öldruðum foreldrum,
afi fyrir barnabörnum, s.vstkini
hvert fyrir öðru. Þetta er góð kyn-
fyigja, henni fylgir margt fleira
gott. Og áreiðanlega gengur hún
ekki til moldar með Jónasi, held-
ur þroskast með niðjum hans um
ókominn tíma.
Ég þakka þér, Jónas, fyrir hönd
sveitarinnar okkar traustan stuðn-
ing um tugi ára. Ég vil einnig
levfa mér að bera fram þakkir frá
fósturjörðinni í víðustu merkingu
þess orð, jörðinni þinni, landi okk
ar og þjóð. Þótt þú létir þjóðmál
lítið til þín taka opinberlega, veit
ég, að þú varst öruggur styrktar-
maður hins íslenzka málstaðar og
hinnar vinstri stefnu. Að endingu
þakka ég bér hjartanlega fyrir alla
samfylgdina, fyrir allt, sem þú
hefir verið mér og mínu heimili.
En sérstaklega þakka ég þér fyrir
dæturnar mínar báðar, sem alizt
hafa upp á heimili þínu og syrgja
þig nú með miklum trega. Já,
þökk fyrir allt.
Eftir trú vorri ertu nú kominn
heim til föðurhúsa. Ég óska og
trúi, að þér þyki þar gott að vera
ekki síður en á heimilinu þínu
kæra, sem þú ert nýfarinn frá. Ég
trúi einnig, að þú sért þar tíður
gestur.
Þessi kveðjuorð eru nokkuð
sundurlaus, vinur minn. Það hefir
oft viljað koma móða á augun með
an ég var að festa hugsanir mínar
á þessi blöð, svo þráðurinn vildi
slitna. Enginn veit til fulls hvað
átt hefir fyrr en misst hefir. En
ég veit að þú fyrirgefur mér þetta,
eins og margt annað á langri sam-
leið.
Að síðustu vil ég segja þessi orð
fyrir þína hönd til ástvina þinna,
vina og annarra, sem kvöddu þig
síðast á Álftamýri: „Ég þakka ykk
ur innilega fyrir allt, sem þið haf-
ið fyrir mig gert, verið glaðir, guð
fylgi ykkur hverjum og einum til
síns innis, því heima er bezt að
vera“.
Ragnar Guðmundsson
bóndi á Hrafnabjörgum.
%
Ræða Gísla 1
Guðmundssonar j
(Framhald af 7. síðu). v
ar í vor. Það er fyrirsláttur einn.
Enginn kærir sig um kosningar á
fyrsta ári kjörtímabils. Sjálfstæðis-
menn hafa flutt ýms mál á þessu
þingi. Ég skal nefna eitt, frv. um
Fiskveiðasjóð íslands. Fyrir tveim
árum, þegar Ólafur Thors var
sjávarútvegsmálaráðherra, var
samþykkt árlegt ríkisframlag ttl
Fiskveiðasjóðs, 2 millj. kr. Það
þótti sómasamlegt þá. Nú flytja
Sjálfstæðismenn frv. um að hækka
þessar 2 millj. upp í 10 millj. á
ári! Svona eykst örlætið við þá9
að hverfa úr stjórn yfir í stjórnar
andstöðu.
Tvö sfórmál í höfn
Ég mun nú ljúka máli mínu. Ég
hefi getið þingmála á víð og dreif.
Tveimur erfiðustu og íímafrekustu
málum þingsins má heita Jokið,
ráðstöfununum til tryggingar
áframhaldandi rekstri útflutnings-
framleiðslunnar og fjárlögunum,
þó þannig, að endanleg atkvæða-
greiðsla um fjárlögin við síðustu
umræðu fer ekki fram fyrr en í
þessari viku. — Ríkisstiórnin
og meirihlutinn hefir þar með stað-
izt sína fyrstu raun. Það hefir tek-
izt undir forystu hennar að af-
greiða þessi mál málanna, þótt
eitthvað kunni að vera skiptar
skoðanir um einstök atriði í því
sambandi eins og önnur mál. Átök-
in — og vinnan — í sambandi við
þessi mál hafa að miklu leyti farið
fram án þess að mikið hafi á þvf
borið opinberlega. En það er óhætt
að segja, að þar hefir mikið starf
verið af hendi leyst og þá sér í lagi
af fulltrúum okkar í ríkisstjórn og
fulltrúum okkar í fjárveitinga-
nefnd þingsins. Vera má, að meiri
tíðindi berist af þinginu, þau cr
frásöguverð þykja, þann líma, sem
eftir er af því. En ef það meirt
hlutasamstarf helzt til frambúðar,
sem til var stofnað s. 1. sumar,
ætla ég, að eitt helzta kjörorð þess
þurfi að vera að stuðla að því, á
grundvelli jafnvægis í byggð lands-
ins, að þjóðinni takist að hagnýta
sem bezt starfskrafta sína og að
vinna sér inn gjaldeyri til nauð-
synlegra viðskipta við aðrar þjóðir.
(Á fundinum var, í annarri
framsöguræðu, sagt frá fjárlögui*
um og meðferð þeirra).
Robinson selur. ... i
(Framhald af 6. sfðu)
einstaks manns eigu í heiminum.
Nú er tilkynnt í New York, aO
hann hafi selt meginhluta safn»
síns til listaverkasala í New York.
Fyrirtæki þetta vildi ekki í dag
gefa nákvæmlega upp hvert kaup-
verðið væri, en sagði að 58 máÞ
verk og ein bronssteypa hefði lcost-
að 3 milljónir dala. Meðal mál-
verka Robinsons voru fræg verk
eftir Cezanne, Picasso, Renoir,
Toulouse-Lautrec og mar?a flciri.
Norrænt kennaraj)ing verður ha!áí3
í Helsinki á næsta sumri j
UmræcSuefni þar veríur: Ný viðhorf í skóla-*
málum, bæcSi á bók og í framkvæmd
KAUPMANNAHÖFN: í ágúst n.
k. verður haldið norrænt kennara-
þing, hið 17. í röðinni, og að þessu
sinni í Helsinki. Þessi þing eiga
sér langa sögu og eru hin merk-
ustu. Fyrsta þingið með þessu
nafni var haldið árið 1870.
Síðasta skólamótið af þessu tagi
var haldið í Osló árið 1953. Þá var
umræðuefnið skólinn og þjóðfélag-
ið. Nú hefir verið valið annað að-
almál til að ræða um: Endurnýj-
un skólanna í ljósi nýrra viðhorfa
á bók og í framkvæmd. Innan
þessa ramma rúmast auðvitatí
mörg mál, en sundurgreind dág-
skrá hefir ekki verið birt enn sena
komið er.
Helsinkifundurinn á að stands*
dagana 6.—8. ágúst. Síðasti fún'd-
ur af þessu tagi í Finnlandi var ár-
ið 1925. Ætlað er að a. m. k. 400
kennarar víðs vegar af Norður-
löndum sæki þennan fund.
>-V\ IV.V.V,
'.V.1
i ■■■■■.
v.v.w.v.v.v.w
í
^ Þakka innilega heimsóknirí skeyti og góSar gjafir Ij«
á fimmtugsafmæli mínu, 25. þessa mánaðar.
.■ "■_____________^______
I; Stefán Ólafsson,
I; Áshól.
AV.V.V.W.V.’.V.W.V.V.V.V.V.V.W.VW.VV.W.’AVIrt