Tíminn - 06.03.1957, Qupperneq 2
T í M I N N, miSvikudaginn 6. marz ISCT,
2
Listkynning
(Frarnh. af 1. «íðu.)
ur.p, og frumkvæði átti hann
sjalfur. Minningin um þennan
n-.erkilega mann lifir í huga
þeirra, er sáu hann, og flestir
sau hann þá í eina skiptið á
ævinni.
Listkynning sú, sem nú er tek
in upp, verður felld inn í skóla-
starfið og ætlunin er, að hún nái
itil sem allra flestra skóla. Til
þess að skipuleggja starfið og
'háfa framkvæmd á hendi í sam-
ráði við skólastjóra hefur verið
fenginn Þorsteinn Hannesson
óperusöngvari, og stýrði hann
þessari kennslustund í Gagnfræða
skóla Austurbæjar í gær.
Kennslusfundin
En kenni var þannig hagað, að
eftir að skólastjórinn Sveinbjörn
Sigurjónsson magister, hafði kynnt
gestma, ílutti menntamálaráð-
herra ávarp, þá fiutti skólastjór-
inn erindi um Halldór Laxness
og skáldskap hans, þá voru flutt
lög við Ijóð eftir Laxness og söng
.Kristinu Hallsson óp.erusöngvari
við undirleik Frizt Weisshappel,
og að lokum las Halldór Laxness
kafla úr „Brekkukotsannál“ og
hlaut hinar ágætustu undirtektir.
f upphafi máls ávarpaði hann nem
endur og gesti nokkrum orðum, og
lýsti ánægju yfir því nýmæli, sem
hér væri hafið.
í öðrum skólum
Þorsteinn Hannesson skýrði
blaðamönnum frá því, að næsta
fimmtudag myndi Gunnar Gunn-
■arsson skáld koma í Menntaskól-
ann hér og lesa úr verkum sínum
og fram færi jafnframt kynning
í svipuðu formi og hér var gerð.
Þá myndi Árni Thorsteinsson tón
skáld koma í Melaskólann og dr.
Páll ísólfsson tónskáld í Sjómanna
skólann og fleira væri í undir-
búningi. Ætlunin væri að sem
■allra flestir skólar gætu notið
slíkra kennslustunda.
Ávarp menntamálaráðherra
í ávarpi því, er menntamálaráð-
herra flutti nemendum í gær, við
upphaf þessa starfs ,sagði hann
m. a.:
„Nú í dag er verið að hefja nýtt
starf í íslenzkum skólum. Það er
einlæg ósk mín og von, að það
verði til góðs. í skólunum er unnið
mikið og merkilegt starf. Um það
toil íimmta hvert mannsbarn á land
inu situr á skólabekk. Þjóðin ver
árlega milli 80 og 90 milljónum
• til skólastarfsins.
Eins og skólarnir eru nú skipu-
lagðir, er hlutverk þeirra fyrst og
fremst að fræða, að búa nemend
urna undir lifsbaráttuna, enda eru
iframleiffisluhættir vélaaldarinnar
svo margbrotnir, að án menntun-
ar, bæði almennrar menntunar og
sérmenntunar, verður ekki komizt.
En hlutverk skólanna er meira
<og á að vera meira. Við viljum
vera frjálsir menn, af því að við
trúum því, að frelsið sé skilyrði
farsældar og frainfara. En frels-
inu fylgir ábyrgð. í því felst ekki
einvöröungu réttur til þess að
gera það, sem hugurinn girnist.
Því fylgir einnig skylda til þess
að gera það, sem heill samféiags
ins krefst. Frelsið verður því að-
eins til farsældar, að menn séu
andlega sjálfstæðir, kunni að
tnynda sér eigin skoðun, en reyn-
ist ekki leiksoppar hinnar full-
komnu áróðurstækni nútímans.
Þetta verður ekki af sjálfu sér.
Menn verða að læra að vera frjáls
ir, "skilja þá ábyrgð, sem því er
samí'ara. Hér hafa skólarnir mikil
vægu hlutverki að gegna.
En merkasta verkefni þeirra er
þó að stuðla að því, að nemendurn
ír verði hamingjusamir menn. í
því skyni er ekki nóg að búa nem
endurna vel undir starfið, sem
þeir hyggjast gegna, heldur, verð
ur einnig að búa þá undir tóm-
stundirnar, sem bíða þeirra. Tóm-
stundirnar mega ekki verða undir
rót lífsleiða, þær eiga að vera
uppspretta Hfshamingju. Fátt er
líklegra til þess að stuðla að því
að svo megi verða en það, að
ungu fólki lærist að hagnýta nokk
urn hluta tómstunda sinna til þess
að kynnast list þjóðar sinnar. Það
er til þess að hvetja til slíks, sem
Bátalón í Hafnarfirði hefir smíðað
200 báta, hinn síðasti er Snætindur
Bátasmíðastöðin Bátalón í Hafnarfirði, sem áður hét Báta-
smíðastöð Breiðfirðinga, hleypti nýlega af stokkunum 200.
bátnum, sem stöðin smíðar. Hefir stöðin nú starfað í tíu ár.
Þessi bátur vár happdrættisbátur DAS og nefnist Snætindur,
og var dregið um hann í fyrradag.
Báturinn var til sýnis við Aust-
urstræti um helgina og varð mörg-
um starsýnt á þennan fríða farkost.
■ -***<=••'
HeiSurssamsæti
(Framh. af 1. síðu).
lacius, ráðuneytisstjóri, og til-
kynnti, að forseti íslands hefði að
tillögu orðunefndar sæmt Pál stór
riddarakrossi og afhenti hana.
Þá tók Steingrímur Steinþórs-
son, búnaðarmálastjóri til máls og
minntist heiðursgestanna en sneri
einnig máli sínu til prófessors
Bondorffs, sem var gestur í veizl
unni, þakkaði heimsókn hans og
ágæta fyrirlestra.
Að lokum tók heiðursgesturinn.
Páll Zóhóníasson til máls og þakk
aði heiður sér veittan og minntist
ýmissa atriða frá starfi sínu og
manna er hann taldi sig eiga sér-
staka þakkarskuld að gjalda, en
þó fyrst og fremst íslenzkri bænda
stétt í heild.
Sungið var yfir borðum og var
þetta gleðskapur ágætur. Loks var
dansað fram eftir nóttu.
Einir á trillum
(Framh. af 1. síðu).
kvöldi spilltist veður, setti að með
norðanátt og hríð að nýju. 'CJrðu
þeir samferða að mestu út á móts
við Dranga, en þaðan hélt Kjartan
einn áfram áleiðis heim í Eeykjar-
fjörð.
Versnaði veðrið enn og stækk-
aði sjó, og kom svo, að hann sá
sér ekki fært annað en snúa aftur,
enda orðið dimmt af nóttu. Náði
hann að Dröngum og lenti þar
heilu og höldnu. Þar situr hann í
dag, því að veður er nú illt á ný,
og er ekki að vita hvenær honum
gefur heim með vörur þær, sem
heimilið vantar. GPV.
menntamálaráðuneytið hefur efrxt
til þeirrar listkynningar í skólum,
sem nú hefst, Og ég vona, að gefist
Bátar þeir, sem stöðin hefir smíð-
að, eru flest nótabátar og trillubát-
ar, en sex þilfarsbátar eru þó einn
ig í þeim hópi. Stjórn stöðvarinn-
ar skipa nú Þorbergur Ólafsson,
Jóhannes Gíslason, Einar Sturlu-
son, Sigmundur Bjarnason og
Magnús Bjarnason.
Kröfugöngur í ísrael
(Framh. af 1. síðu).
fundum í dag með fulltrúum
ýmsra helztu ríkja, er hlut eiga
að málum þar eystra. Undirbýr
hann skýrslu til allsherjarþings
ins um hversu málum sé nú hátt
að. Fundur mun ekki koma sam
an fyrr en á föstudag. Talið er
að Hamarskjöld óski þess að þing
ið veiti S. þ. sérstakt formlegt
umboð til að taka að sér stjórn
Gaza-svæðisins. Ástæðan sé sú,
að formlega séu vopnahlésskilmál-
arnir frá 1948 í gildi, en sam-
kvæmt þeim er Gaza-svæðið talið
löglegt egypzt yfirráðasvæði.
Hammarskjöld hefir ekki enn
skipað neinn til að taka að sér
æðstu stjórn á Gaza-svæðinu eins
og gert er rað fyrir að verði skv.
hinni nýju skipan. Það mun því
sennilega dragast um sinn að S. þ.
taki við fullri stjórn á svæðinu.
Óstaðfestar fregnir segja, að ind
verskar hersveitir frá S. þ. verði
við gæzlu í Mið'-Gaza, ‘-•^nskar
og colombiskar að norc, en
norskar syðst.
Dulles sagði við’ blaðamenn í
dag, að Eisenhower ’nefði í bréfi
sínu ekki gefið neinar ótvíræðar
tryggingar til handa ísrael, að-
eins látið í ljós von og ósk um að
takast mætti að tryggja öryggi
og farsæld ríkisins og myndu
Bandaríkin stvöja að því að svo
yrði.
Sýning á íillöguupp-
drátíum ibíiðarhúsa
Helgafell opsiar békamarkaS
í Lzstamaimaskálamim í dag
Efnt ti! happdrættis: Lokavinningar eru þrjátíu
en vinnendur fá Brekkukotsannál
í dag opnar bókaútgáfan Helgafell stóran bókamarkað í
Listamannaskálanum. Jafnframt verða seldar bækur frá
bókaútgáfu Guðmundar Gamalíelssonar, Menningar og
fræðslusambandi alþýðu og útgáfu Víkingsprents. í tilefni
þessa ræddu blaðamenn við Ragnar Jónsson 1 gær og skýrði
! hann frá ýmsu varðandi bækurnar. Einnig verða til sýnis hin-
ar kunnu ljósprentanir, sem gerðar eru af listaverkum
þekktra íslenzkra málara, að þessu sinni eftir Ásgrím Jóns-
son og Þorvald Skúlason og getur fólk gert pantanir sínar á
myndunum þarna á staðnum.
Þrír fjórðu hlutar beirra bólca,
sem þarna eru á markaði eru
Helgafellsbækur. Alls eru titlar
bókanna rúmlega fimm hundruð
að tölu og sumar bækurnar eru í
örfáum eintökum. Búizt er við að
einir hundrað íitlar bætist við,
þegar tekur að rýmast á borðun-
um. Allar bækur utan tíu af hundr
aði eru ekki m í bókaverzlunum.
Happdrætti.
Efnt hefir verið til happdrættis
í sambandi við bókamarkaðinn og
er því þannig háttað, að hver sá,
er kaupir fyrir hundrað krónur,
fær afhentan happdrættismiða, en
dregið er að kvöldi hvers söludags.
Vinningur er hundrað krónur og
má búast við mörgum vinningum,
þar sem þriðji hver miði er vinn-
ingur. Keiknað er með að markað-
urinn verði opinn næstu viku og
síðasta daginn verða sérstaklega
dregnir út þrjátíu af vinnings-
miðunum og fá hinir þrjátíu hand-
hafar vinningsmiðanna afhenta
nýjustu bók Kiljans, Brekkukots-
annál, en reiknað er með að hún
komi út þann dag sem markaður-
inn lokar.
Lítil upplög.
Ragnar sagði, að hann hefði sér-
stakt <borð fyrir þær bækur, sem
hann áliti góðar gjafir handa ungl-
ingum, en þar eru þjóðsögur og
ýmislegur bjóðlegur fróðleikur
annar. Þá verða seld nokkur ein-
tök af Islandskorti því, sem gert
var á sínum tíma um bústaði land-
námsmanna og fylgdi útgáfu Land-
námu. Milli tuttugu og þrjátíu bæk
ur eru þarna í sáralitlu upplagi,
svo er um ritsafn Þorgils gjall-
anda og Sveitasögur Einars Kvar-
ans.
Kaffenni [ Svarf-
aðardal
Dalvík í gærkveldi. — Hér bæt-
ir sífellt á snjó. S. 1. föstudag, er
nýlokið var að ryðja snjó af vegi
hér fram í dalinn og eins til Ak-
ureyrar, brast á stórhríð og fyllti
allar slóðir svo að miklu verra
var yfirferðar en áður og ófært
hestum að kalla. Ýtur brutust þó
fram í dal í gær og í slóð þeirra
gátu dráttarvélar farið, og draga
þær sleða með mjólkinni á. Færð-
in til Akureyrar er einnig mjög
erfið. Fjórir trukkbílar lögðu af
stað kl. 6 í morgun og voru í all-
an dag að brjótast þennan spöl,
komu til Akureyrar í kvöld. PJ
Þingkosningar
á írlandi
Dublin, 5. marz. — Almennar
þingkosningar fara fram í írlandi
í dag. Fyrstu úrslit verða ekki
kunn fyrr en síðdegis á morgun
og endanleg úrslit ekki fyrr en
eftir nokkra daga. Það eru 282
frambjóðendur við þessar kosn-
ingar, sem keppa um 186 þing-
sæti. Flokkur fráfarandi forsætis-
ráðherra Costellos, hafði 46 þing-
sæti á síðasta þingi og myndaði
meirihluta ásamt nokkrum smærri
flokkum. Stjórnarandstöðuflokk-
urinn Fianna Fail undir forustu
hins aldna leiðtoga Remon De Val-
era hafði þá 67 þingmenn. Bæti
hann nú við sig 7 þingsætum fær
hann hreinan meirihluta á þingi
og mun mynda stjórn. Til þess
eru taldar nokkrar líkur.
Fréttir frá landsbyggöinni
Erfiíar samgöngur
Frá fréttaritara Títnans í
Óiafsfirði í gær.
Hér í Ólafsfirði hefur verið hríð
arveður alla síðastliðna viku og
mikil snjókoma. Samgöngur eru
orðnar mjög erfiöar um sveitina
vegna ófærðar. Undanfarið hafa
bændur flutt mjólkina á hestum
og sleðum. B.S.
Landsgangan
Ólafsfirði í gær.
Á sunnudaginn hófst Lands-
gangan hér í Ólafsfirði í sólskini
og björtu veðri. Fimmtíu manns
luku keppni. Síðan hefur ekki ver
ið gengið hér vegna veðurs, en í
gær og dag hefur verið norðan-
hríð og mikil snjókoma en samt
að niestu snjólaust.
sókn og kenndi skák þar um helg
ina og tefldi loks fjöltefli við fé-
lagsmenn. Var teflt á 22 borðum
og vann Freysteinn 20 skákir en
gerði tvö jafntefli. Þeir, sem jafn
tefli gerðu við Freystein voru
bræðurnir Grétar og Reynir Unn
steinssynir. ÞS
Sau$bur$ur um jólaleyti
í SvarfaSardal
Dalvík í gær. — Það bar til á
Bæringsstöðum í Svarfaðardal á
jóladag, að grá ær hyrnd tók
lambsótt og bar hvítu hrútlambi
vænu. Er þetta óvanalegt, og þótti
mönnum kynlegt, að ærin skyldi
vera grá. Er sem vetrarburður
tíðkist einkum hjá hinu gráa fjár
kyni. Þá báru og tvær ær í jan-
úar að Syðra-Hvarfi í Skíðadal, en
ekki er kunnugt um lit þeirra. PJ
svo vel, að hún verði fastur liður
í skólastarfinu. Markmið þessarar
listkyningar er að byggja brú
milli þess tvenns, sem þjóðin á
verðmætast: æskunnar og'listar-i
innar. Æskumaðurinn verður ekki
eins. farsæíl á fullorðinsárum og'
hann gæti orðið, ef hann kynnist
ekki list þjóðar sinnar og lærir aö
meta hana og elska. Og listin nær
ekki þeim þroska, sem hún getur
náð, ef hún býr ekki við áhuga
æskunnar, ef hún nýtur ekki skiln
ings hennar, þeirra, sem eru ung-
lingar í dag, en verða kjarni þjóð
arinnar á morgun. . . “ Æ
A morgun verður opnuð í Boga
salnum í Þjóðminjasafninu sýn-1
ing á tillöguuppdráltum að fyrir
huguoum íbúðarhúsum Reykja- j
víkurbæjar við Elliðavog og verða |
uppdrættirnir til sýnis næstu daga j
frá kl. 14—22. Sýning þessi er ár-
angur af verðlaunasamkeppni, er
bærinn efndi til um uppdrætti
þessa. Fyrstu og öniiur verðiaun
í samkeppni þessari hlutu þeir!
saman Sigurjón Steinsson, Guði-.
mundur Kr. Kristinsson og Gunn
laugur Halldórsson. Þriðju verð-
laun lilutu Kjartan Sveinsson og
Aðalsteinn Richter.
Kaldbakur landar
Ólafsfirði í gær.
f gær landaði togarinn Kald-
bakur 168 smálestum af fiski.
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar og Fisk
þurrkunarstöð Magnúsar Gamal-
ielssonar tóku fiskinn til vinnslu.
Fjöltefii og taflkennsla
í Hverageríi
Ilveragerði Tgær.
Taflfélag Hveragerðis fékk góða
heimsókn um síðustu helgi. Kom
Freysteinn Þorbergsson í heim-
Moka af iörð fyrir fé sitt
Veagmótum í gær. — Fannferg
ið er alltaf hið sama og oft hríðar
veður. Fé er víðast alveg á gjöf
og hefir verið svo lengi. Það má
til tíðinda telja, að tveir bændur
á syðslu bæjum í Staðarsveit,
Kristján á Mel oð Guðjón á Gaul
hafa mokað snjó af jörð til þess
að fé þeirra hafi náð í grös, þegar
\reður hefir verið svo gott að hægt
hefir verið að hleypa út. Mun það
fátítt núorðið, að bændur hafi
sótt svo hart til beitar fé sínu,
en það var algent áður fyrr. KB