Tíminn - 06.03.1957, Blaðsíða 12

Tíminn - 06.03.1957, Blaðsíða 12
VfcBurútlit Allhvass norðan eða norðaustaa. Léttskýjað. .........—^ Hiti kl. 18: Reykjavík -5 stig, Akureyri -6 Dala tangi -4, Nautabú í Skagafirði-8, Miðvikudagur 6. marz 1957. Fisks51úmá!in til umræöu á Alþ’ngi í gær: ætt ski á afurðasöluimi - einkaleyfi til útflutnings Gísii Guðmundsson geröi grein fyrir Mnu rýja stjórnarfrumvarpi um sölu ©g ólfíistning sjávarafurSa viS aðra málsins umræi Áfurðasölumálin voru til umræðu á Alþingi í gær og flutti Gísli Guðmundsson þar framsöguræðu í neðri deild og gerði grein fyrir áliti meirihluta sjávarútvegsnefndar, sem leggur til að hið nýja frumvarp ríkisstjórnarinnar um sölu og út- flutning' sjávarafurða og fleira, verði samþykkt. Ghli Guðmundsson gerði ýtar- lega grein fyrir áliti meirihlutá nefndarinnar, en málið hafði verið rætt á mörgum fundum nefndar- innar og leitað álits ýmissa aðila, sem annast sölu afurða úr landi og annarra, sem málið varðar, svo sem Alþýðusambands íslands. Skiptar skoftanir á frumvarpinu Eins og vænta mátti vildu stofn anir, svo sem SÍF og Söluinið- stöð liraðfrystihúsanna eða stjórn ir þessara fyrirtækja hafa núver- andi ástand óbreytt, en stjórn SÍS lagði til að skipulaginu yrði breytt þannig, að minnsta kosti hefðu tveir aðilar rétt til útflutn ings á öllum sjávarafurðum. En Alþýðusamband fslands lagði til að frumvarpið yrði samþykkt. Margs konar skipulag gildir í ræðu, sem Gísli Guðmundsson flutti um málið á þingfundi í gær, rakti hann fyrst í stórum dráttum ákvæði þau, er nú gilda um sölu og útflutning vara síðan 1940. Sam kvæmt þeim hefir ríkisstjórnin mikið vald til að hlutast til um skipun þessara mála og hefir þann ig til dæmis veitt einum aðila, það er SÍF, einkarétt til útflutnings á saltfiski, en aðrir þættir útflutn ingsins svo sem skreið, fiskimjöl og lýsi eru í höndum margra að- ila. Mikil gagnrýni á saltíisksöiu SÍF Framsögumaður benti á að ekki væri óalgengt að komið hefði fram í blöðum, á fundum og jafnvei á sjálfu Alþingi gagnrýni á þetta fyrirkomulag með saltfisksöluna hjá SÍF. Hefði þeirrar gagnrýni ekki eins gætt varðandi aðrar greinar útflutningsins og mætti þó heita að eins konar einkasölukerfi væri varðandi útflutning á síld í höndum síldarútvegsnefndar. Gísli Guðmundsson sagði, að í hinu nýja írumvarpi rikisstjórnar- innar væri á ýmsan hátt nánar kveðið á um meðferð þess valds, sem ríkisstjórninni hefir verið gef- ið varðandi útflutninginn. Enginn fær einkarétt til útflutnings Framsögumaður lagði áherzlu á að samkvæmt hinu nýja skipulagi, sem gert er ráð fyrir í lögunum, er engum aðila gefið einkaleyfi til útflutnings, en um það atriði seg- ir í athugasemdum við frumvarpið. Þetta skipulag mun því tryggja sterkari stjórn afurðasölumál- anna í heild, eyða þeirri skaðlegu Stofnunum gegn frumvarpinu og kaflar eru prentaðir úr í nefndar áliti minnihlutans (Sjálfstæðis- manna). Sumir halda því fram, að í frumvarpinu sé engin breyt ing fólgin og ekkert nýtt sé í iög- unum. Aðrir mæla gegn frum- varpinu ineð þeim rökum, að það feli i sér óheppilega breytingu á núgildandi skipulagi. Er Ijóst, að þessar fuliyrðingar í nefndaráliti Sjálfstæðismanna í frumvarpinu fá ekki staðizt samtímis. Gísli Guðmundsson sagði, að full komlega eðlilegt væri að rikis- stjórnin léti endurskoða þessa lög- gjöf og lauk hann máli sínu með því að segja, að meirihluti nefnd- arinnar gæti ekki séð að í um- ræddum umsögnum um frumvarp- ið fælust nein rök, sem mælíu gegn samþykkt þess. Þess vegna hefði meirihluti þingnefndarinnar, sem málið hafði til meðferðar, eða allir nema tveir Sjálfstæðismenn,1 mælt með því að frumvarpið verði samþykkt Snjóbílar í stöðugum flutningum á ] Snæfellsnesi, olíuskortur fyrir dyrum Þá hafa heimilin ekkert lengur til eldunar og upphitunar, og ýturnar vantar eldsneyti Frá fréttaritara Tímans á Vegamótum í gær. Fannkyngin er enn hin sama, og samgönguleysið veldur miklum erfiðleikum. Útibú kaupfélagsins á Vegamótum hefir þó reynt að bæta úr þörfum bænda eftir megni með hjálp tveggja snjóbíla, sem þar hafa verið í förum síðustu vikuna, Eru þar á ferð Páll í Fornahvammi og Guðmundur Jónasson, í þessum flutningum hafa bílarn ir flutt í þrjá hreppa 45 lestir af fóðurbæti og matvöru og um 20 lestir af gasolíu og kolum, þess utan hefir snjóbíll farið póstferð frá Borgarnesi til Stykkishólms. Hafa þessir flutningar gengið vel, enda ötulir menn að verki og oft haft langan og strangan vinnudag. Rutt upp í skarð. Ráðizt var í það að ryðja snjó af veginum frá Stykkishólmi upp Tveir menn frá S,- Afríku á ferð hér Um þessar mundir eru staddir hér tveir menn frá Suður-Afríku. Pétur Ottesen gerði grein fyrirÞeir heita mr. Grim og mr. Eng- skoðunum minnihlutans og mæltiela sem er listmálari og semur aðallega gegn frumvarpinu á þeim | auk þess sönglög. forsendum, að með því væri verið að taka vald í útflutningsmálunum úr höndum framleiðenda sjálfra og vitnaði til fyrrnefndra umsagna. Sigurður Ágústsson sagði einnig nokkur orð, en Lúðvík Jósefsson, sjávarútvegsmálaráðherra, tók til tortryggni, sem fyrr er á minnzt,, máls og andmælti skoðunum Sjálf- og tryggja, að misnotkun geti stæðismanna í málinu, sem hann ekki att ser stað af hendi em-1 taldi haldlítil rök stakra útflytjenda. Samkvæmt i ___________________ þessu fyrirkomulagi fær enginn I ~ útflytjandi einkarétt á útfiutn-! í VAnihonn ingi neinnar vörutegundar en L/lCglU 1 VOriiIldpp hverjum sem vill gefst kostur á að sýna hæfni sína og möguleika þá, sem fyrir hendi eru. Að sjálfsögðu munu núverandi sölustofnanir halda áfram starf- semi sinni, en með þessu verður sköpuð samkeppni milli þeirra og annarra aðila, sem við útflutning drætti SIBS I gær var dregið í 3. flolcki vöruhappdrættis SÍBS. Dregið var um 250 vinninga að fjárhæð 400. 000 krónur. Hæstu vinningarnir komu á eftirtalin númer: 100.000 vilja fást um sem beztan árangur. i kr. vinningur kom á nr. 12191, I frumvarpinu er meðal annars gert ráð fyrir því að skipuð verði þriggja manna útflutningsnefnd til þess að hafa á hendi forgöngu um markaðsleit og tilraunir til sölu á sjávarafurðum. Framsögumaður benti á, að lítið samræmi væri í rökum þeim sem komið hafa fram frá ýmsum 50.000 kr. á nr. 3. Báðir miðarnir eru seldir í Reykjavík. 10.000 kr vinningar komu á eftirtalin núm- er: 2194, 3935, 5831, 29046, 36516, 49267, 64550. 5000 kr. vinningar komu á þessi númer: 2432, 13534, 22145, 28083, 29394, 30181, 33101, 44738, 46257, 60653, 62240. (Birt án ábyrgðar.) Öskiidagsfagíiaðor á Akoreyri Menn þessir eru hér á vegum hjúkrunarkvennasamtakanna. Sýn- ing á verkum Engela verður í húsakynnum K. F. U. M. nú um helgina. Verður opnuð á laugar- dag og stendur til mánudags- kvölds. Þeir félagar hafa víða farið og heimsótt sjúkrahús í mörgum löndum. Þeir starfa gjarnan með trúflokkum þar sem þeir koma. Ef veður leyfir munu þeir skreppa til Akureyrar n. k. fimmtudag. Þeir Grim og Engela munu dveljast hér á landi fram í næstu viku. Helgafellssveit að fjallinu, og lagðl Björn Hildibrandsson vegaverk* stjóri fram ýtur til verksins. Gekk þetta fljótt, og þegar upp á fjallið kom reyndist vegurinn í skarðinu snjólaust allt suður að Fossum, en þar sunnan í skarðinu er fannferg* ið mest, og er þá ófært bílum 6—« 8 km. leið niður að Vegamótum, Bíll kom í gær frá Stykkishólmi með 4 lestir af fóðurbæti, og komst með það upp að Fossum, en þaðaq flutti snjóbíll það að Vegamótum. Að loknu því dagsverki fór hanra með fullfermi af vörum að syðsta bæ í Miklaholtshreppi, Skóganesi, og sýnir þetta, að vel var haldiS áfram. v Aðalfundur Framsóknarfélags Akraness Framsóknarfélag Akraness heldur aðalfund sinn í bæjar- þingsalnum Kirkjubraut 8 á sunnudaginn kemur, 10. þ. m. og hefst hann kl. 1,30. Á dag- skrá er inntaka nýrra félaga, venjuleg aðalfundarstörf og önn ur mál. Karl Kristjánsson, al- þingismaður, mun mæta á fund- inum og flytja erindi um stjórn málaviðhorfið og síðan verða umræður. Þess er vænzt, að fé- lagar fjölmenni stundvíslega á fundinn. ^ ^ T—« '.(i --- Flutningar fyrir dyrum. Nú liggur fyrir að flytja með þessum hætti frá Stykkishólmi næstu daga allmikið af vörum, m. a. 30 lestir af gasolíu og kolum, ef olía er þá nokkur til í Hólminum en takist þetta ekki er dautt í öll* um eldavélum hér í sveitunum eft ir nokkra daga, og ýtur hafa þá ekki heldur eldsneyti lengur til að draga nauðsynlegustu björg í bú. Ráðgert er að reyna nú að hefja mjólkurflutninga héðan til Borgar* ness á stórum sleða, sem ýta dreg* ur. KB. Sýning á málverkum og listmunum Sigurður Benediktsson heldur sýningu í Sjálfstæðishúsinu milll kl. 2 og 7 eftir íslenzka málara og auk þess nobkra listmuni. Upp* boðið fer fram í Sjálfstæðishús* inu kl. 5 á fimmtudag. Afmælismót ÍR hefst í kvöld í kvöld hefst fyrsta afmælismót ÍR í tilefni af 50 ára afmæli fé* lagsins. Verður þá fimleikasýn* ing og körfuknattleikskeppni að Hálogalandi. Mótið hefst kl. 8,30. í körfuknattleiknum keppir kvennaiið ÍR við KR, en karlalið félagsins leikur við íslandsmeist- arana, IFK. Á miðnætti s. I. bættist Ghana í tölu fullvalda og sjálfstæðra ríkja Accra, 5. marz. — í kvöld á miðnætti lýkur yfirráðum Breta yfir nýlendunni Gullströndin á vesturströnd Afríku, og semtímis hefst tilvera nýs sjálfstæðs ríkis, Ghana. Stærð landsins er 230 þús. ferkm. íbúafjöldi er 5 millj. Hið nýja ríki verður í brezka samveldinu. þingið samþykkti kröfu um fullt sjálfstæði og Bretar féllust á hana. í dag er öskudagur og þá halda börnin á Akur- eyri sína sérkennilegu hátíö, kiæðast skraut- legum búningum, setja upp grímur og „slá köttinn úr tunnunni". Fara síðan syngjandi um bæinn og þiggja góðgerðir í verzlunum. Þessar myndir eru frá öskudeginum á Akur- eyri í fyrra. Ghana hlýtur fullt sjálfstæði 56 árum eftir að Bretar náðu alger- um yfirráðum þar árið 1901. Ríkið nær yfir Ashanti-héraðið og land- svæði þar norður af. Ashanti-hér- aðið varð brezkt skattland 1846. Ör þróun eftir stríðið. Kröfumar um sjálfstæði urðu mjög háværar eftir stríðið og ný- lendan eignaðist öruggan foringja, þar sem var Kwame Nkrumah. 1951 vann flokkur hans mikinn kosningasigur. 1953 fékk landið sjálfstjórn og Nkrumah varð for- sætisráðherra. Enn sigraði flokk- ur hans í nýjum kosningum og Mesti kakaóframleiðandi. Hið nýja ríki framleiðir meira kakaó en nokkurt annað ríki í heimi. í ræðu, sem forsætisráðherr ann hélt í kvöld, kvað hann Ghana mundi halda áfram að vera í hrezka samveldinu og taka þátt í viðreisnarstarfi samveldislandanna til stuðnings ríkjum, er skammt eru á veg komin efnahagslega. Hann kvað stjórn sína myndu stuðla að erlendri fjárfestingu í landinu, en þó gæta þess að stjórn landsins yrði í engu háð erlendu valdboði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.