Tíminn - 31.03.1957, Side 6

Tíminn - 31.03.1957, Side 6
6 T í M I N N, sunnudaginn 31. marz 1957. Útgefandi: Framsóknarflokkurlnn Ritstjórar: Haukur Snorrason, Þórarinn Þórarinsson (áb). Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 81300, 81301, 81302 (ritstj. og blaðamenn). Auglýsingar 82523, afgreiðsla 2323. Prentsmiðjan Edda hf. „Blómlegt bú“ stjómarandstöðunnar ÖRFÁUM döeum eftir valdatöku núverandi ríkis- stjórnar birti Morgunblaðið forustugrein, sem bar nafn- ið: „Tekur við blómlegu búi.“ Með þessu kvað blaðið upp úr með það, að foringjar Sjálfstæðisflokksins ætluðu ekki að bíða dóms reynslunn ar um ástandið og viðskiln- aðinn. Þeir höfðu hann til- búinn þegar við stjórnar- skiptin. „Atvinnuástandið er betra en nokkru sinni" fyrr“, sagði Mbl.. Þá voru Iiðnir nokkrir dagar siðan sjávarútvegsmálaráðherra í- haldsins hafði lofað síldar- útvegsmönnum stórfelldum uppbótum, án þess að hafa nokkurt fé til reiðu. Áhyggj- unum af því var velt yfir á framtíðina. Um það leyti var líka á almannavitorði, að togara- og vélbátaflotinn var rekinn með stórfelldu tapi og a,lger stöðvun var framundan, nema gripið yrði til sérstakra ráðstafana til styrktar útveginum. Ekki liðu svo nema nokkrar vik- ur frá birtingu „blómagrein- arinnar“. þar til ljóst var, að sú tilfærzla til sj*ávarút- vegsins, sem um var að ræða, mundi þurfa að nema mörg hundruð milljónum króna. Þá var í greininni sérstak- lega rætt um, hve vel væri á vegi stödd húsbygginga- mál landsmanna, enda væru „þúsundir íbúða í smíð- um“. Fleiri framkvæmda- mál taldi blaðið standa með blóma, og lét þess getið und- ír lokin, að þar hefði gætt, „forustu Sjálfstæðismanna“, rétt eins og það væri ein- hverjar fréttir fyrir lesendur Morgunblaðsins. ÞAÐ ER NÚ ljóst, að með skrifum þessum voru for- ingjar Sjálfstæðisflokksins að reyna að búa í haginn fyrir stjórnarandstöðuna. Hér hófst sá leikur, að kenna þeim, sem við tóku, um þá erfiðleika, sem við blöstu þeg ar stjórnarskiptin fóru fram, og séð var, að mundu óum- flýjanlega dynja yfir. Þeim hafði verið skotið á frest með loforðum upp á frarn- tíðina. Þegar svo stjórnar- fjokkarnir gengu að því verki að mæta þessum erfið- leikum, fyrst með verðfest- ingunni, og síðan með lögun- um um útflutningssjóð, hélt Mbl. sínu striki, og kenndi öðrum um. Stjórnin hafði tekið við „blómlegu búi“ í júlílok s. 1. sumar. Um það var fyrir hendi vitnisburður Mbl. frá þeim tíma og það töldu þeir nægja sínu fólki. Mikil má sú trú vera. NÚ ÞARF auðvitað ekki að ræða þessi blómaskrif Mbl.-manna að neinu ráði, svo auðvirðilegt áróðurs- bragð, sem þau eru. Þó má það vera til nokkurs fróð- leiks um þróunina að sjá, hvernig aðrir aðilar telja, að umhorfs hafi verið um þetta leyti, og hvert hafi stefnt. f skýrslu þeirri, er fram- kvæmdastjórn Landsbanka íslands birti í gær segir svo m. a. um þróun peninga- og gjaldeyrismála á árinu 1955 og síðar: „Eins og kunnugt er, juk ust útlán bankanna stór- lega á árinu 1955 og gjald- eyrisaðstaða versnaði mjög. Enda þótt miklar birgðir útflutningsafurða um ára- mótinn 1955—1956 bættu nokkuð úr skák var það ljóst, að óbreytt þróun hlaut brátt að leiða til vandræða í gjaldeyrismál- um, ef ekki kæmi til stór- auknar tekjur í erlendum gjaldeyri eða verulega er- lendar lántökur til ýmissa stórframkvæmda í land- inu . . . “ EKKI er þessi lýsing í samræmi við kenningu Morg unblaðsins um blómlegt bú. Verður fróðlegt að sjá, hvort blaðið treystist til að veita Landsbankanum hæfilega ráðningu fyrir að birta svona umsögn, þvert ofan í um- mæli Mbl. í sumar og æ síð- an. En landsmenn aðrir sem lesa þetta hljóta að minnast þess, að þrátt fyrir þetta út- lit um áramótin 1955—1956, fékkst ekkert erlent lánsfé fyrr en núverandi stjórn kom til skjalanna, og þau stóru verkefni, sem Mbl. státaði af í „blóma“greininni og mörg fleiri, voru strönduð vegna fjármagnsskorts þegar í sumar. „Frelsisstefnan“ og svikin við fjárfestingareftir- litið hafði fyrir alllöngu þurrkað upp innlent lánsfé. ÞAÐ ER SVO kapítuli út af fyrir sig, að með þessa forsögu á bakinu leika for- ingjar íhaldsins nú hlutverk óábyrgra „verkalýðsfor- ingja“; krefjast hærra kaup gjalds og espa til verkfalla. Dómur, sem ekki verður áfrýjað DEILUR hafa lengi stað lð um skaðsemi tóbaksnautn ar, einkum, hvort vindlinga- reykur valdi krabbameini í lungum. Nafnkunnar vísinda stofnanir í Bandaríkjunum, þar á meðal Krabbameins- stofnunin, sem unnið hefur stórvirki að rannsókn sjúk- dómsins, settu á stofn nefnd hæfra vísindamanna til þess að athuga þau gögn, sem fyrir liggja í máli þessu, og meta þau vísindalega. Niður- staðan hefur nú verið birt, og hefur vakið mikla athygli. Hún er, að það er talið sann- að, að vindlingareykingar valdi krabbameini í lungum, enda þótt fleiri orsakir séu Eftir B ermu dafundinn Bafnandi sambúcf Breta og Bandaríkjamanna, mtklum útgjöldum létt af Bretum, heimsvanda- mál kjarnorku og geislunar enn ekki tekiÖ nógu föstum tökum, segir áhrifamikiÖ brezkt bla5 nýtt mál. Hér mun þó gert ráð fyrir að Bretar fái gerðir flug- skeyta, sem áður hafa verið á bannlista vestra, aðilar rhunu bera saman ráð sín um framvindu á þessu sviði flugtækninnar. Gréiðsla fyrir þessa bandarísku aðstoð verður með „láns- og leigu Að loknum Bermudafundinum, sem þeir héldu Macmillan, kjörum.“ Með þessu er reynt að forsætisráðherra Breta og Eisenhower Bandaríkjaforseti,' fyrirbyggja, að þessir bandamenn ásamt helztu aðstoðarmönnum sínum, hafa blöð báðum meg- in Atlantshafs, og raunar víðar, reynt að gera upp árangurínn og horfurnar, einkum að því er varðar samskipti Breta og Bandaríkjamanna og endurreisn þess nána sambands, sem var í milli ríkjanna áður en Súez-ævintýri Breta hófst. En það setti öll tengsl úr skorðum. Meðal blaða, sem hafa ritað hóf- samlega og skynsamlega um þessi mál, er frjálslynda blaðið „Mans- hester Guardian" og þykir Tíman- um hlýða að endursegja lauslega nokkur atriði úr ritstjórnargrein í því blaði, er birtist fyrir fáum dögum. Samtal Breta og Banda- ríkjamanna Helzta viðfangsefni Bermuda- fundarins má kalla endurvakningu hins nána samstarts Breta og Bandaríkjamanna, og það virðist ráðstefnan hal'a leyst af hendi með góðum árangri. Samskipti forsætisráðherrans og forsetans voru einslaklega vinsamldg og einlæg, og báðir ákváðu, að halda áfram að skiptast á skoðunum og halda við sambandi, sem hefði byrjað svo ánægjulega. (Macmill an og Eisenhower eru vinir síðan Macmillan var fulltrúi Breta í aðalstöðvum Eisenhowers í Norö- ur-Afríku á stríðsárunum. New York Times telur að sett verði á laggirnar sérstök samstarfs- nefnd, að tillögu Eisenhowers.) Þetta er verulegur árangur fyrir Macmillan, þegar hann er skoðað ur í Ijósi erfiðleikanna, sem upp risu út af Súez. Ráðherrann mun því hafa kom- ið fram af lægni og festu. Hins- vegar er síður ástæða til að fagna yfir sumum niðurstöðum fundar- ins eins og þær birtast í tilkynn- ingu aðila. Kjarnorkumálin Það mun t. d. valda vonbrigð- um, að ákveðið skuli að halda enn áfram tilraunum með kjarn- orkusprengjur. Margir eru þegar áhyggjuíullir vegna áhrifa þess- ara tilrauna á almennt heilsufar. Það er því miður ekki hægt að taka undir þá skoðun í tilkynning- unni, að ekki muni hljótast tjón af tilraununum af því að þær muni gerðar með gát, því að hér eru mörg óþekkt atriði. Það er að vísu huggun, að leyfa tak- markað alþjóðlegt eftirlit með prófununum, en þó er sleginn sá varnagli, að Sovétríkin leyfi hið sama. er krefst þess skiiyrðislaust, að skipagjöld verði greidd Egyptum en ekki notendasamtökum Súez- skurðar. Það er líka í meira 13g. vaíasamt, hvort aðild Banda- ríkjamanna að hernaðarnefnd Bagdadbandaiagsins hefur noki' eyði báðir stórfé í sama verkefnið og kosti tvöfallt kerfi þegar eitt getur nægt íyrir báða. Þó er hér meira í hú-fi fyrir Breta. Með þessu er e. t. v. létt af þeim þeirri nauðsyn, að koma upp með eigin afia hinu óhemjudýra varnarkerfi gegn kjarnorkuárás, sem á dag skrá hefur verið, og hefur mjög þyngt fyrir fótinn í efnahagsmála þróuninni. Bretar framleiða kjarn orkusprengjur og ýmis önnur kjarnorkuVopn. þar með flugvéiar til að fiytja þau. en nú mun ráð gert, • að -’erulegur hluti af þeim Eisenhower og Macmillan á BermudaráSstefnunni, urt raunveruiegt giidi. Hún mun styrkja tengsl Egypta og Ind- verja, og hún jninnir enn einu sinni á, að hin svo nefnda Eisen hower-áætlun er reist á þeim skiln ingi, að við sé að eiga beina ógn- un um árás af hálfu Rússa, þegar ísk vopn. hættan er mestmegnis undirróður Churchiils, og óbein árás, sem ekki verður mætt með siíkri áætiun. Hér virð ist skorta skilnmg á eðli vandamál anna á þessu svagði. Flugskeyti — sparnaSur fyrir Breta Frá sjónarhóli Breta er raun- hæfasti árangur Bermudafundar ins sá,«*að Bandaríkjamenn láta þá fá fjarstýrð flugskeyti til varn- arkerfis síns. Þetta er að vísu ekki vopnum komi frá Bandaríkjunum. Hér er um verulega stefnubreyt- ingu að ræða hjá Bretum, sem hingað til hafa lagt kapp á að vera sjálfstæðir að þessu leyti og ekki mjög komnir upp á amer Þetta var stefna og þeirri stefnu- fylgja margir íhaldsmenn. Þegar Duncan Sandys landvarnarráð- herra fór tii Washington eftir fail Edens, hélt hann því enn fram, að Bretar yrðu að vera nokuð óháð ir á þesu sviði. Hvernig þessi sam búð verður í einstökum atriðum verður enn ekki séð, en ætla má samt, að þarna verði horfið að veruiegri samræmingu, til stór sparnaoar og létti fyrir Breta. (Framhald á 8. síðu). Á SKOTSPÖNUM Vandamálin við Miðjarðarhaf Þá er ljóst, að ekki er samstaða í milli ríkisstjórnanna í öllum greinum varðandi stefnuna í ná- lægum austurlöndum. Það er t. d. ekki ljóst, hvernig Bandaríkja- menn ætla að snúast við, er Nass- kunnar. Spillt andrúmsloft, af völdum verksmiðjureyks og útblásturs véla, er lika talið valda sjúkdóminum. ÞESSUM dómi verður trauðla áfrýjað. Hann verða menn að búa við. Bandarísku vísindamennirnir hvöttu til stóraukinnar fræðslustarf- semi um þessi efni. Sú ábend ing snertir fleiri þjóðir. Hér er varið allmiklu fé til fræðslustarfs um skaðsemi áfengis. Það er skylt að gera. En jafnframt þyrfti að hefja almennt fræðslustarf um skaðsemi tóbaksnautnar, 1 Ijósi þeirra tíðinda, sem nú eru kunn. Sinfóníuhljómsveit íslands er enn ekki komin á fast- an grundvöll. . . . Samningaumleitanir um fjármál sveit- arinnar hafa staðið yfir. . . . Er helzt í ráði að útvarpið verði burðarásinn, en fé komi líka frá ýmsum öðrum aðilum. m. a. Menningarsjóði, en í ráði er að efla hann fjárhagslega. . . . Almenna bókafélagið er að und- irbúa útgáfu bókar með myndum úr Þjóðminjasafni. . Sama fyrirtæki mun ætla að gefa út fuglahandbók, sem dr. Finnur Guðmundsson sér um.... BeEgíski tog- arinn, sem strandaði í gærmorgun, var með afla á dekki og menn sfóðu í aðgerð að því talið er, allt þar til skipíð tók niðri ... Oswald Knudsen er að gera kvik- myndir af kunnum listamönnum, einkum málurum.... Jón Stefánsson listmálari er nýfarinn til Danmerkur efiir vetrardvöl hér . . . Hann hefir í vetur unnið að því að lagfæra eldri verk og gera við myndir. . . . Hér er kominn spænskur sendikennari ... 90 munu hafa gefið sig fram til spænskunáms frá 12—70 ára. . mun það metaðsókn hjá sendikennara . . . Einn af kunnustu flugstjórum landsins er að flytja af landi burt.... til Mið-Afríku og gerast starfsmaður flugfélags þar ... Er greitt hátt kaup, og aðbúð talin góð, en loftslag erfitt. . . . Mikil þáttaka mun verða héðan í alþjóða- skátamóti á Bretlandi í sumar. . . . Sólfaxi, sem skemmd- ist 1 lendingu hér um daginn, er kominn til Cambridge á Englandi til viðgerðar. .. . SAS-verkstæðið í Kaup- mannahöfn gat ekki tekið vélina vegna anna.... *

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.