Tíminn - 10.05.1957, Síða 8
8
TÍMINN, föstudaginn 10. maí 1957,
Áttræð: Vilborg
húsfreyja <
ar*-* í * »s <iS<i’4«asarw:
Norður á Melrakkasléttu, vestan
Rauðanúps, þar sem ströndin
sveigir inn með Axarfjarðarflóa
austanverðum, stendur bærinn
Grjótnes á sjávarbakkanum reisu-
lega búsaður með víðlendu túni, út
sýni fögru og víðu og kurrandi æð-
armúga um nóttleysur í varpinu
við túnfótinn. Á þessum stað var
í heiminn borin fyrir áttatíu árum
kona sú, er þar hefir stýrt búi síð-
ustu 50 ár og ætíð verður bundin
við þann stað í minningu þeirra,
sem hana þekkja.
Vilborg Sigríður Guðmundsdótt-
ir er fædd 10. maí 1887. Foreldrar
hennar voru Guðmundur Jónsson
bóndi á Grjótnesi og kona hans
Jóhanna Björnsdóttir bónda á
Grjótnesi, Jónssonar bónda í Leir-
höfn Vigfússonar, en kona Björns
bónda á Grjótnesi og amma Vil-
borgar Guðmundsdóttur var Vil-
borg systir sr. Sigurðar á Hallorms
stað Gunnarssonar. Var Gunnar
faðir þeirra sonur Skíða-Gunnars
Þorsteinssonar (d. 1812) prests að
Skinnastað Jónssonar lögréttu-
manns að Einarsstöðum í Reykja-
dal. Er sú ætt — Gunnarsættin —
fjölmenn á Austurlandi og víðar.
Vilborg ólst upp hjá foreldrum
sínum á Grjótnesi, ásamt systkin-
um sínum en þau voru: Jón Frið-
rik, d. 1931; Björn Stefán, bóndi á
Grjótnesi, er andaðist á síðastl.
hausti; Jakobína, ekkja Jóns kaup-
manns Björnssonar í Rvík og Sig-
urður smiður og bóndi á Ásmund-
arstöðum á Sléttu. — Hún naut
menntunar meiri en þá var al-
mennt um bændadætur og var m.
a. í Kvennaskólanum á Laugalandi
veturinn 1895—96 og síðar einn
vetur í Hússtjórnarskóla Hólmfríð-
ar Gísladóttur í Rvík.
Hinn 8. des. 1898 giftist hún
Birni Sigurðssyni bónda í Ærlækj-
arseli í Axarfirði Gunnlaugssonar.
Hafði hann lært húsgagnasmíði í
Reykjavík.
Þau Vilborg og Björn reistu bú
að Ærlækjarseli er var föðurleifð
hans og voru þar til ársins 1906,
er þau fluttu að Grjótnesi, þar sem
þau bjuggu æ síðan. Hófu þau þeg-
ar að reisa tvílyft íbúðarhús úr
timbri og var nokkur hluti þess
smíðaverkstæði Björns, því hann
stundaði jafnan smíðar á vetrum
og tók unga menn til smíðanáms.
Einnig var haldinn skóli á heimil-
inu er fram liðu stundir og börnin
komust á skólaaldur eitt af öðru,
var skóli sveitarinnar þar í mörg
ár, og dvöldu þar unglingar um
lengri og skemmri tíma. Auk þess
var heimilisfólkið oft um 20 manns
Var þá í mörg horn að líta fyrir
húsfreyjuna því auk barnanna, var
ætíð nokkuð af vinnufólki og
smíðalærlingum auk skólabarna á
vetrum. Fundir og samkomur voru
oft að Grjótnesi og þótti unga fólk-
inu í sveitinni gott að fá að halda
þar dansleiki, því húsrúm var þar
meira en víðast hvar annars stað-
ar og viðmót húsráðenda og ríkur
skilningur á félagsþörf og skemmt-
analífi æskunnar gerði sitt til að
auka á vinsældir heimilisins meðal
yngri kýnslóðarinnar.
Vilborg ól manni sínum 11 börn,
sem öll eru á lífi. Þau eru þessi:
Guðmundur verzlunarm. hjá Kaup
félagi N-Þingeyinga á Kópaskeri,
kvæntur Þóreyju Böðvarsdóttur;
Kristín, gift Einari Benediktssyni
bónda í Garði í Núpasveit; Jó-
hanna, gift Valdemar Helgasyni
leikara í Rvík; Guðrún, hjúkrunar-
kona í Bandaríkjunum; Sigurveig,
er jafnan hefir dvalið heima hjá
móður sinni; Sigurður, skrifstofu-
maður í Rvík, kvæntur Halldóru
Friðriksdóttur kennslukonu; Ste-
fán, skrifstofum. í Rvík; Jakobína,
gift Fred. Lange rafmagnsverkfr.
í Bandaríkjunum; Björ'n bóndi á
Grjótnesi, kvæntur Hildu f. Raabe,
þýzkri konu; Gunnlaugur bóndi á
Grjótnesi, kvæntur Jarmilu f. Ra-
kebrandt, þýzkri að ætterni og
Arnþrúður, kennslukona, gift
Karli Guðjónssyni kennara og al-
þingism. í Vestmannaeyjum. Auk
þess tóku þau hjónin sonarson
sinn Björn Guðmundsson á barns-
aldri og dvaldi hann hjá ömnui
sinni fram um tvítugsaldur, hann
er flugstjóri hjá Flugfél. íslands.
Ennfremur ólu þau upp að nokkru
Guðmundsdóttir
Grjótnesi
leyti tvær stúlkur vandalausar.
Eftir lát manns síns árið 1938
hélt Vilborg áfram búskap á Grjót-
nesi með aðstoð barna sinna, ein
dóttir hennar var alltaf heima og
tveir yngstu synirnir. Þá mun
henni hafa þótt heimilið fámennt
á veturna hjá því, sem áður var,
en á sumrin var oft margt gesta,
börnin og barnabörnin og aðrir
ættingjar komu í sumarleyfi og
sumardvöl. Hún safnaði ungunum
undir vængi sína, eins og æðurin
við túnfótinn, og lagði sig þannig
fram um að brúa bilið á milli kyn-
slóðanna og stuðla að kynningu og
góðri frændsemi fjölskyldunnar.
Síðastliðið haust brá Vilborg
búi og flutti til Reykjavíkur og
dvelur nú hjá syni sínum á Hraun-
teig 18.
Þar situr hún nú við arin minn-
inganna, með silfurhár yfir heiðu
enni, og tiginmannlegt yfirbragð
þeirrar konu, sem tvær kynslóðir
eiga skuld að gjalda. S.—n.
AÐ VESTAN ...
(Framhald af 5. síðu).
EKKI ER VERT að ganga
þegjandi fram hjá því, hvernig
opinber afskipti og svokölluð
stjórn á efnahagsmálum þjóðar
innar þyngir hlut þeirra, sem
búa smátt og reyna að bjargast
við sitt. Það er nú orðið viður-
kennt af öllum, að árlega þurfi
að endurgreiða íslenzkri fram-
leiðslu 500 milljónir króna.
Þetta vita þeir stjórnmálaflokk-
ar, sem einkum hafa talið sig
fulltrúa launamanna, engu síð-
ur en aðrir, og viðurkenna það í
verki með því að heimta þetta
fé inn af almenningi til að skila
framleiðslunni því aftur. Þó er
sum framleiðsla skilin eftír, þeg
ar sú endurgreiðsla fer fram. Svo
er um þá framleiðslu, sem bænd
ur nota sjálfir á heimilum sín-
um. Þannig fá bændur ekki á
neyzluvörur heimila sinna þá
endurgreiðslu, sem viðurkennt
er að framleiðslan þurfi. Það er
eftirtektarvert, að eftir því sem
ríkið greiðir meira fyrir neyt-
endur af mjólkurverðinu, minnk
ar mjólkurframleiðsla í þorp-
um. Sömu rök eru um garðyrkju
alla. Enga endurgreiðslu fá
menn fyrir að framleiða hey fyrr
en því er breytt í söluvörur, sem
fluttar eru á markað. Hinsvegar
er fluttur inn fóðurbætir og seld
ur á hálfvirði miðað við almennt
verðlag innfluttra vara. Þetta er
allt til að raska jafnvæginu og
gera þyngri hlut þeirra, sem að
verulegu leyti framleiða fyrir
sjálfa sig og búa að sínu.
ÞAÐ ER ENGIN ein ástæða
sem veldur því, að jarðir fara
úr byggð. Gegn því þarf að vinna
með mörgum ráðum. Það þarf
að temja fólki að leggja nýtt mat
á störfin og meta þau eftir gildi
þeirra meðfram og þykja mest-
ur sóminn að vera þar, sem hætt
an er mest og þörfin brýnust.
Það verður að koma á meiri sam
vinnu í sveitum, svo að verka-
skiptingu verði við komiö meira
en nú. Komið getur til greina að
hafa fólk ráðið til að „leysa af“,
þegar bóndinn eða húsfreyjan
þurfa að víkja sér frá-
Að sjálfsögðu verður fram-
470 börn í barnaskóla
Akraness
Akranesi, 6. maí. — Barnaskóla
Akraness var sagt upp við hátíð-
lega athöfn í kirkjunni föstudag-
inn 3. maí. Nemendur skólans voru
470, er skiptust í 20 deildir. Kenn-
arar voru 13 auk skólastjórans,
Njáls Guðmundssonar.
Burtfararprófi, eða barnaprófi,
luku 68 nemendur. Hæstu einkunn
við barnapróf, og jafnframt hæstu
einkunn við skólann, hlaut Guð-
rún Sveinsdóttir, 9,35. Auk henn-
ar hlutu 6 börn ágætiseinkunn, og
fengu öll bókaverðlaun, er frú
Ingunn Sveinsdóttir gefur þeim
börnum, sem útskrifast frá skólan-
um með ágætiseinkunn, þ. e. 9 og
þar yfir í aðaleinkunn. Hæstu ein-
kunn í íslenzku hlaut Friðrik Þór-
leifsson og fékk bókaverðlaun frá
Rótarýklúbb Akraness. í handa-
vinnu hlulu hæstar einkunnir Hlín
Daníelsdóttir og Ágúst Hjálmars-
son og fengu bókaverðlaun frá
bókaverzlun Andrésar Níelssonar.
í vorskóla innrituðust 88 börn, 7
ára, en alls verða í vorskólanum
340 nemendur, en í maí og septem-
ber ganga í skólann 7, 8, 9 og 10
ára börn, en aðalskólinn hefst svo
1. október.
G. B.
Ný ljóðabók „Geisla-
virk tungl“
Út er komið Ijóðakver eftir Jón-
as E. Svafár, gefið út í fimm
hundruð eintökum, þar af tvö
hundruð tölusett og árituð. Kverið
ber heitið „Geislavirk tungl“, en
ein tvö ljóðanna munu að líkind-
um hafa komið út í fyrri ljóðabók
Jónasar „Það blæðir úr morgun
(sá)rinu“, en þeirrar bókar var get-
ið hér í blaðinu á sínum tíma.
Ljóðagerð Jónasar er hin nýstár-
legasta og margt geislavirkt við
þau. Skal hér birt eitt stutt Ijóð
sem sýnishorn af skáldskap Jónas-
ar, en Ijóðið nefnist „Sjómanna-
dagur“
að fæða englana
með bandaríkin
fyrir augum
og eignast bifreið
í bæjarútgerð
þorskhausar
varðarfélagsins
streyma eftir ægissíðunni
úr alþjóðabankanum.
Bókin er tileinkuð Helgu og
prýdd skemmtilegum myndum eft-
ir höfundinn.
hald á því, sem nú er stefnt að,
að beina meira fjármagni í land-
búnaðinn. Þær eru orðnar marg
ar jarðirnar, sem njóta þess nú
fagurlega hve öruggt Framsókn-
arflokkurinn hefir unnið að því
að efla Byggingarsjóð og Rækt-
unarsjóð Búnaðarbankans, svo
sem öðru því, er helzt réttir hlut
sveitanna. Hinu má ekki gleyma,
að jafnvæginu hefir verið rask-
að og það næst ekki aftur með
því að halda óbreyttu ástandi.
Jafnvægið næst ekki nema með
auknu fjármagni til sveitanna.
Það fjármagn kemur og myndar
jafnvægi ef sveitafólk hlýtur
réttlát verkalaun og leyst er sú
lánsfjárkreppa, sem er fjötur
um fót frumbýlinga og annarra
bænda, a.m.k. meðan fjárfest-
ingarþörfin er eins mikil og nú.
Sennilega verður lengstum á-
stæða til að hafa launahlutfall
starfsstéttanna undir endurskoð
un, og áreiðanlega er ástæða til
að endurskoða þau hlutaskipti
nú og gera þar breytingar á.
FRAMTÍÐ SVEITANNA er
þrotlaust umræðuefni og við-
fangsefni eins og framtíð alls,
sem ódauðlegt er. En málefni
sveitanna eru með sérstökum
hætti í deiglu í dag og því eru
þessir tímar jafnvel venju frem-
ur örlagaríkir fyrir sveitafólkið
og þjóðlífið allt.
H. Kr.
Nýi djúpborinn væntanlegur í júlí,
verður fyrst reyndur í Krisuvík
Flytja þarf inn meí bornum 190 lestir af leir
eía leíju' sem rennt er niftur í borholuna
Ríkið og Reykjavíkurbær hafa nú í sameiningu fest kaup
á mjög dýrum jarðbor, svonefndum djúpbor, sem getur
borað allt að 750 metra djúpar holur, eða miklu dýpri en
þeir jnrðborar, sem áður hafa verið notaðir hér á landi.
Bor þessi er keyptur í Banda-
ríkjunum og mun kosta 8—9 millj.
kr. Er hann væntanlegur hingað
í júlí og mun þá verða settur nið-
ur í Krýsuvík og byrjað að bora.
Það er hins vegar allmikið verk
að koma slíkum stórbor að starfi.
Leir fluttur inn.
Sérstakan leir eða leðju þarf
með þessum bor, og verða fluttar
inn um 19 lestir af slíkri leðju
með bornum, en alls er borinn og
það, sem honum fylgir nú, um
220 lestir að þyngd.
Læra meðferð hans.
Að undanförnu hafa dvalizt í
Ameríku tveir menn við að kynna
sér meðferð borsins og ganga frá
kaupum á honum. Eru það Þor-
björn Karlsson, sem nú er að
ganga frá kaupunum og sendingu
hans hingað og Rögnvaldur Finn-
bogason, sem verður borstjóri.
Við þennan bor eru tengdar
miklar vonir, og verður afarfróð-
legt að vita, hver árangur verður
af slíkum djúpborunum á íslenzk-
um hitasvæðum.
Skákmót U.M.S.E.
Skákmóti UMSE er lokið. Sigur
vegari varð Umf. Skriðuhrepps
með 18 vinninga. Umf. Svarfdæla
og félögin í Öngulstaðahreppi voru
í öðru og þriðja sæti með 1614
vinning. Æskan á Svalbarðsströnd
hlaut IOVz vinning. Umf. Möðru-
vallasóknar 10, Dagsbrún 7 vinn
inga og Umf. Öxndæla 6Í4 vinn-
ing.
Ungmennaf. Skriðuhrepps fékk
því að þessu sinni hið vandaða
skákborð, en Jón Stefánsson gaf
til keppninnar o ger farandgripur.
Skákstjóri var Haraldur Ólafs-
son.
Hraðskákmót sambandsins var
háð að Hótel KEA s.l. sunnudag.
Keppendur voru 36. Sigurvegar-
inn varð Guðmundur Eiðsson, ann
ar Steingrímur Bernharðsson og
þriðji Halldór Helgason.
Maður slasast við
sprengingar
Um fimmleytið í fyrrakvöld
varð það slys inn við Sólheima,
sem er nýtt íbúðahverfi við Há-
logaland, að maður lenti undir
kaðalmottu og laskaðist illa'í baki.
Þarna er verið að sprengja í hús
grunnum og notaður kranabíll við
að hagræða fyrirhleðslum í sprengi
holum. Þegar verið var að flytja
eina kaðalmottuna til, en þær eru
settar ofan á fyrirhleðslur, slitn-
aði hún neðan úr kranakróknum
og féll á manninn með fyrrgreind
um afleiðingum. Maðurinn, sem
fyrir þessu varð, heitir Sveinn
Bæringsson, Suðurlandsbraut 107,
og var hann fluttur í slysavarð-
stofuna.
Minningarsjóður
próf. Jóns Jóhann-
essonar
Stofnaður verður sjóður við há-
skólann íil minningar um prófess-
or Jón Jóhannesson. Tekið verður
við framlögum í sjóðinn í skrif-
stofu háskólans og Bókaverzlun Sig
fúsar Eymundssonar. ^ ......
Erlent vfirlit
(Framhald af 6. síðu).
ekki ýta undir þessa þróun.
Flest bendir til, að Súez-deilan
væri með öllu óleyst enn, ef íhlut
un S. þ. hefði ekki komið við. Sam
einuðu þjóðirnar afstýrðu fyrst,
að deilan leiddi til styrjaldar, —
síðan sáu þær um hreinsun
skurðarins og hafa nú komið á
samkomulagi, sem gert hefur
fært að hefja samninga að nýju.
Þ. Þ.
Þing ÍSÍ haldið á
Akureyri í sumar
AKUREYRI í gær. — Ákveðið
hefur verið að halda þing íþrótta
sambands íslands hér á Akureyri
í sumar, dagana 27.—28. júlí. Þing
þetta er haldið annað hvert ár,
var síðast haldið að Hlégarði í
Mosfellssveit.
í vertí ðarlok
(Framhald af 7. síðu).
Aáargir verfíSarmenn
langt aS komnir
Með byggingu þessara verbúða
hefir verið unnið þarft verk fyrir
sjómennina, sem sækja til fiski-
veiða á vertíð frá Keflavík. Þessi
framkvæmd og hin björtu og rúm-
góðu húsakynni lýsa skoðun ungra
manna á framtíðinni, sem trúa því
enn að íslenzkur sjávarútvegur eigi
framtíð fyrir sér.
Vertiðarmennirnir, s em margir
eru komnir langan veg fyrir annes
eða vfir fjöll og heiðar til að vinna
vertíðarstörfin, kunna líka að meta
þessa bættu aðbúð. Þeir hafa feng-
ið sinn hlut að nokkru úr réttlátri
skiptingu þeirra gæða, senv nútíma
tækni og menning á að geta fært
íbúum þessa lands, ef menn telja
það ómaksins vert að trúa á fram-
tíð landsins og íslenzkra atvinnu-
vega.
Hyggiim bóndi tryggtr
dráttarvél sina
Kaupendur |
Vinsamlegast tilkynnið af- |
greiðslu blaðsins strax, ef van |
skil verða á blaðinu.
TÍMINN I