Tíminn - 19.05.1957, Side 12
Veðrið í dag:
Austan og norðaustan gola,
1 skýjað
Hitinn kl. 18:
Reykjavík 6 stig, Akureyri 3,
London 13, Kaupmannahöfn 17,
París 20, New orlc 15.
Sunnudagur 19. maí 1957.
JT
Tekjnr UtflutningssjéSs fyrsta árs-
fjérðunginn svipaðar og báizt var við
Samkvæmt yfirliti, sem blaðinu hefir borizt frá stjórn út-
flutningssjóðs yfir tekjur og gjöld hans fyrsta ársfjórðung
Jtessa árs, frá 1. janúar til 15. maí hafa tekjur hans numið
um 111 miilj. kr., eða tæpum fjórðungi áætlaðra árstekna
hans og eru því nokkurn veginn eins miklar og búizt var við.
Tekjur af innflutningsgjöldum
liafa numið ‘33,9 millj. kr., yfirfærslu
gjald 35 millj. kr. og skattur af inn-
fluttum bifreiðum, ferðagjáldeyri o.
f'I. 4,9 millj. kr. í Framieiðslusjóði
voru 7,5 millj.
Gjöld sjóðsins á þessu tímabili hafa
verið: Vegna framleiðslu 1957 62,2
anillj. kr. og vegna framleiðslu 1956,
j’firtaka bátagjaldeyriskerfisins 48 0
jniilj. kr. þar af keypt B-leyfi 28,7
znillj. kr. og verðbætur á síld 19,6
jniilj. kr.
Eins og sést á þessu yfirliti eru
innflutningsgjöldin langstærsti tekju
stofn Útfiutningssjóðs, en innflutn-
ingurinn er misjafniega mikiff eftir
árstíðum. Þannig hefir innflutningur
inn fvrstu fjóra mánuði hvers hinna
þriggja síðustu ára numið um fjórð-
ungi heildarinnflutningsins á ári, en
það þýðir að innfiutningurinn síðari
hluta ársins, maí-des. er allmildu
meiri að jafnaði. Segja má því, að
tekjur Útflutningssjóðs til 15. maí
lxafi verið nokkurn veginn eins og
búizt var við, þegar til hans var stofn
að um s. 1. áramót.
Akurnesingar og Akureyring
ar leika í ísiandsmótinu í dag
Annar leikur íslandsmótsins verður leikinn í dag og leika
J)á Akureyringar og Akurnesingar. Leikurinn hefst kl. 16.00.
Æfingum er haldið áfram af fullum krafti hjá báðum aðilum. Leikarar leggja mikla áherziu á knattspyrnuna
eins og sjá má á myndinni, Munu þer ætla að reyna að hefna ófaranna frá síðustu keppni. Þrátt fyrir mikla leynd
yfir æfingum þessum hefir tekizt að ná nokkrum myndum. Þarna skorar Einar Pálsson glæsilegt mark, sem
Valdimar Helgasyni tókst ekki að verja.
Iþróttarevýan mikla 1957:
Leikarar og blaðamenn keppa í fjöl-
mörgum greinum auk skemmtiatriða
Fjölmenni mikið var á fþrótta-
vellinum á föstudagskvöldið, þegar
liðin frá Hafnarfirði og Akureyri
áttust við, og var leikurinn fjörug-
«r og tvísýnn. Nú koma Akurnes-
ingar til síns fyrsta leiks í mótinu
og verður fróðlegt að sjá, hvort
þeim tekst eins vel upp og á sunnu
daginn var, er þeir sigruðu Reykja
víkurúrvalið. Þótt of snemmt sé að
upá nokkru um úrslit, þá eru allar
75 falla í Alsír
París, 18. maí. — 70 uppreisn-
armenn voru felldir í Alsír síðasta
sólarhringinn í bardaga við franska
Jhermenn. í viðureigninni féllu 5
líkur til, að baráttan í mótinu verði
jöfn og hörð, jafnt um efsta sætið
sem að forðast að lenda í hinu
neðsta.
Næsti leikur verður síðan á
mánudag og verður það leikur KR
og Vals í Reykjavíkurmótinu. Verð
ur Valur að sigra til þess að halda
möguleikum í mótinu.
Nýtt heimsmet í 220
yards baksundi
London-NTB, 17. maí. Hollenzki
sundmeistarinn De Nohs setti í dag
nýtt heimsmet í 220 -yards bak-
Frakkar. Ástandið virðist fara sí-1 sundi. De Nohs synti vegalengdina
versnandi í landinu. 1 á 2,38,5 á sundmóti í Blackpool.
Myndlistarsýning Karls Kvarans
Karl Kvaran opnaði vatnslita- og kiippmyndasýningu í myndlistarsalnum
við Hverfisgötu 8 fyrir nokkrum dögum. Aðsókn hefir verið heidur dræm,
og er þó um athyglisverðar myndir að ræða. Hins vegar hafa nokkrar
tnyndir selst. Sýningin verður opin fram á miðvikudag. Tólf listiðnaðar-
menn eiga einnig myndir og gripi til sýningar í salnum, svo sem keramik,
silfursmíð, vefnað o. fl. (Ljósm.: Andrés Kolbeinsson).
Reiptog milli leikkvenna og bla'Óamanna —
Haraldur Björnsson, Rurik Haraldsson, Karl
Isfeld og Thorolf Smith keppa í lyftingum
— Stærsta sviðsetning á Islandi til þessa
Blaðinu hefir nú tekizt að afla nýjustu upplýsinga um
íþróttarevýuna miklu, sem fram fer á Melavellinum næsta
sunnudag. Eins og blaðið hefir áður skýrt frá, er hér um stór-
kostlega skemmtun að ræða og hinn merkasta viðburð í bæjar-
lífinu. Dagskrá íþróttarevýunnar 1957 verður sem hér segir:
Dagskrá:
Kl. 2,30 lagt af stað frá Þjóðleik-
húsinu. Lúðrasveitin Svanur leikur
fyrir göngunni.
Kl. 3. íþróttarevýan 1957 hefst.
Brynjólfur Jóhannesson flytur
setningarræðu.
Kl. 3,15 Fimleikasýning.
Kl. 3,25 Negralög. Jón Sigur-
björnsson syngur. Lúðrasveitin
Svanur leikur undir.
Kl. 3,30 Pokahlaup kvenna. —
Tvær fjögurra kvenna sveitir frá
leikurum og blaðamönnum. Ræsir
Arndís Björnsdóttir. Tímaverðir
Edda Kvaran og Loftur Guðmunds
son.
Kl. 3,40 Gamanvísur.
Kl. 3,45 Knattspyrna. Dómari
Guðmundur Jónsson úr KR. Línu-
verðir Kristinn Hallsson úr Val og
Guðjón Einarsson úr Víking.
Lið blaðamanna (talið frá mark
manni: Guðni Guðmundsson, Jón
Helgason, Gísli J. Ástþórsson, Þor-
björn Guðmundsson, Gunnar G.
Schram, Björgvin Guðmundsson,
Vignir Guðmundsson, Hallur Sím-
onarson, Sverrir Þórðarson fyrir-
liði. Atli Steinarsson, Guðni Þórð
| arson. — Varamenn Páll Beck,
| Heimir Hannesson, Sigurjón Jó-
hannson, Auðunn Guðmundsson og
Þorsteinn Thorarensen.
Lið leikara (talið frá markmanni)
Valdimar Helgason, Vaiur Gísla-
son, fyrirliði á velli, Þorsteinn Ö.
Stephensen, Einar Ingi Sigurðsson,
Ævar Kvaran, Rúrík Haraldsson,
Helgi Skúiason, Bessi Bjarnason,
Einar Pálsson, Steindór Hjörleifs-
son, Guðmundur Pálsson.
Varamenn: Ólafur Jónsson Bene
dikt Árnason, Birgir Brynjólfsson
Jóhann Pálsson.
Kl. 4.00 Gamanvísur. Steinunn
Bjarnadóttir syngur gamanvísur og
Róbert Arnfinnsson ieikur undir á
harmóníku.
Kl. 4,10 Lyftingar. Haraldur
Björnsson, Rúrík Haraldsson, Karl
I ísfeld, Thorolf Smith.
Kl. 4,15 Knattspyrna. Síðari hálf
leikur.
Kl. 4,30 Söngur. Kristinn Halls-
son syngur og stjórnar fjöldasöng.
Kl. 4,50 Reiptog milli leikkvenna
og blaðamanna. Stjórnandi Lárus
Salómonsson. Ræsir Henrik Otto-
son.
Lið leikkvenna: Emilía Borg,
Þóra Borg, Emilía Jónasdóttir,
Ingibjörg Steinsdóttir, Nína Sveins
dóttir, Inga Þórðardóttir, Áróra
Halldórsdóttir, (Hildur Kaknan).
Lið blaðamanna: Bjarni Guð-
Framh. á 2. síðu.
Þrír drengir sinntu löggæzlustörfum
með góðum árangri um síðustu helgi
Fyi ii atbeina þeirra hafði lögreglan upp á drukkn-
um ökumanni' sem haf <5i valditS árekstri
Um helgina sem leið gerðist
það hér í bænum, að þrír dreng-
ir, tveir þrettán ára og einn
fjórtán ára, komu í veg fyrir að
ölvaður bifreiðarstjóri slyppi
undan réttvísinni, eftir að hafa
valdið árekstri, farið frá bifreið
sinni og komizt undan í leigubif-
reið. Er hér um óvenjulegan at-
burð að ræða og saga drengjanna
í málinu til fyrirmyndar.
Ekið úr afmæli vinar síns
Forsaga málsins er sú, að á
laugardagskvöldið var bílstjórinn
í afmælisveizlu hjá vini sínum.
Kom liann þangað í bifreið sinni,
en gerðist mjög ölvaður, þegar
leið á kvöldið. Varð honum það
á, þegar hann fór úr veizlunni,
að taka bifreið sína og aka lienni.
Mun liann hafa minnzt lítUs úr
því ferðalagi, en sýnt er að hann
hefir farið hægt og gætilega, þótt
það dygði ekki sem skyldi.
Maðurinn ók um Suðurgötu,
en þar mætti hann bifreið og var
þá þannig komið fyrir honum, að
hann var öfugu megin á götunni.
Báðar bifreiðarnar voru stöðvað-
ar, þegar um tveir metrar voru á
miUi. Sá ölvaði ók síðan af stað
aftur, en þegar hann sveigði út á
götuna, ók hann lítillega utan í
hina bifreiðina. Hann hélt áfram
eins og ekkert hefði ískorizt og
ók niður Vonarstræti. Hjá Iðnó
skildi hann bifreiðina eftir og
náði sér í leigubifreið og ók á
brott.
Þrír menn voru í bifreiðinni,
sem ekið var á. Tveir þeirra
hlupu niður á Iögreglustöð, en
einn fór inn í Herkastalann og
hringdi þaðan í lögregluna. Tím-
inn sem í þetta fór hefði nægt
hinum ölvaða til undankomu, ef
drengirnir þrír hefðu ekki kotnið
til sögunnar. Þeir urðu vitni að
atburðinum í Suðurgötunni og
eltu bílinn niður Vonarstræti.
Því næst fylgdust þeir með því
hvaða leigubifreið maðurinn tók
og gátu gefið lögfeglunni upplýs-
ingar, sem leiddu til handtöku
mannsins snemma nætur. Daginn
eftir voru þeir beðnir að stað-
festa hvaða maður hefði verið í
bifreiðinni. Bentu tveir þeirra
þegar á manninn, þar sem hann
stóð í hópi sjö bifreiðastjóra, en
þriðji drengurinn benti ekki á
neinn, þar sem hann sagðist ekki
hafa séð manninn það greinilega,
að hann gæti með fullri vissu
munað hvernig hann leit út. Allt
ber þetta vitni um óvenjulega
framtakssemi drengjanna og þakk
arverða og jafnframt sést á því
síðasta, að þeir hafa farið að öllu
með gætni og ekki sagt meira
en þeir gátu staðið við og sam-
vizkan hauð þeitn.