Tíminn - 12.09.1957, Page 7

Tíminn - 12.09.1957, Page 7
TÍMINN, fimmtudaginn 12. september 1957. 11 ð lifa hlutina sjálfur, það er ekki 11 Samíal vitS Júlíönu Sveinsdóttur listmálara, sem ná vinnur að uppsetningu yfiríitssýningar i Lista- safni ríkisins — Máfverkin mt'n og tepp- in segja a!lt, sem ég hef aS segja, sjálf hef ég engu við að faæta, segir listakonan, er hún íeiðir mig um sali Þjóð- minjasafnsins, þar sem unn- ið er að því að undirbúa stóra yfirlitssýningu á verk- um hennar. Júlíana Sveinsdóttir listmálari heíir tím langan aldur dvalið fjarrí arttjörð sinni, en er nú stödd hér á laadi í boði Menntamálaráðs, sem stendur fyrir sýningunni. Mestsa bluta ævi sinnar hefir hún átt heima í Danmörku og tekið ástfóstrl við beykilunda og græna skóg* binna friðsælu sveita þar í landf, nwrgar myndir hennar sýna yndisblíða náttúru og þá töfrandi rósemi, sera einkennir danskt landsJag. En þrátt fyrir það hefir Júlíana aldrei gleymt uppruna sinum, meiri hluti myndanna sýn- ir snækrýnda fjallstinda og litfágr- ar heiðar heimalandsins; hvítir jöklar, himinblá fjöll og grænir dalir hafa alltaf vakað fyrir hug- skotssjénam hennar og heimtað líf á léreftinu. Þó dylst manni ekki að eiim þáttur í náttúru íslands hefir framar öðrum orkað á list- málarann og orðið henni því hug- leiknara sem lengra leið á ævina. Það ee svarrandi brimið undir björgum Vestmannaeyja. Nátfúran og andlegt líf Fólksfns — Ég[ er eirimitt fædd og upp- alin í Vestmannaeyjum, segir Júlíana, ég ólít að hin hrikalega náttúra hljóti að móta andlegt lif fólksins. Hún örvar til dáða, vekur ólgu í brjósti manns, neyðir mann til aS velja eða hafna. Kannske var það brimið í Vestmannaeyjum, sem kom þessu af stað í mér, þessu sem seiana varð til þess að ég fór að mála. — Ekkl hefir margt orðið til að örva tinga stúlku á þessum tíma til að fást við listir? Listaíaman brosir og hristir höf- uðið. — Ég vissi ekki hvað list var. Það vissi enginn hvað list var á þeim tímum. En ég var send til Reykjavfkur í Kvennaskólann og þar var teiknun ein námsgreinin. Þar teilaiaði ég mynd í fyrsta sinn. Mér þétti strax gaman að teikna og þegar ég hafði loklð námi í Kvermaakólanum, afréð ég að sigla til Kaupmannahafnar og freista þess að komast á Kunstakademíið. Það var árið Í909. Inntökuprófið var a£ar strangt. Það voru gerðar miklu strangari kröfur til manna í gamla daga, skal ég segja yöur. Það tök mig 3 ár að búa mig undir prófið. Ég var tekin í skólann og vann þar tindir leiðsögn Rostrup- Boiesen, sem þá var einna mest. virtur af dönskum kennurum í mál aralist. Ég stundaði námið af kappi næstu ár, ennþá hafði ég ekki hug- mynd úm hvað listin var í raun og veru, en ég hafði lært eitt af pabba mínum, sem reyndist mér drjúgt vegarnesti, það var að vanda sig við allt, sem maður gerði. Á þessum árum lærði ég undirstöSkiatriði málaralistar, lagði grundvöllinn að listferli mínum. Eg íauk námi 1916. Það var oft erfitt á stríðsárunum, þegar pen- ingasendingar voru stopular að heiman. — Hvaö tók við að loknu námi? — Þá fór ég að mála fyrir al- vöru. Ég kenndi teiknun til að hafa ofan af fyrir mér. Og jafn- framt byrjaði ég að veía. Ég átti vefstól og liafði ætlað mér að fram- fleyta mér ó því að selja vefnað. Mig grunaði ekki þá að vefnaður- inn æfctl eftir að verða svo mikill þáttur í listsköpun minni. Nú orð- ið legg ég jafnmikla stund á hvort tveggja, málaralistina og vefnað- inn. Listasíefnur, skólar Ég spvr Júlíönu, hvort hún telji sig hafa mótazt af einhverri sór- stakri listastefnu, skóla eða mól- ara. Hún hristir höfuðið ákveðið. -— Nei, ég hef aldrei eetað féllt mig við neina einstaka stefnu, seg- ir hún, ég hef tekið flest frá sjálfri mér. Maður verður að li'fa hlut- ina sjálfur, það er ekki hægt að skapa eftir forskrift. Sjáið þessa mynd af Eiríksjökli, ég dvaldi nær sumarlangt á Húsafelli og gekk daglega klukkustundar gang þang- að sem sér til jökulsins. Ég gerði ótal teikningar og tilraunir, en ég var aldrei ánægð. Ég velti fyrir mér hverju smáatriði, hugsaði í sí- fellu um myndina. Ég var heldltr ekki ánægð með birtuna. Þangað til loksins einn dag, þegar ég stóð og horfði til jökulsins, þá rann allt upp fyrir mér, skýrt og ákveðið. Þá tók það mig aðeins tvær klukku stundir að mála sjálfa myndina. Við göngum um salina, þar sem málverkunum er raðað saman í deildir eftir aldri. Ég staldra sér- staklega við mynd af Skarði á Landi, sem er einkennandi fyrir visst tímabil í listferli Júlíönu. Hlýir litir, sem styðja hver annan, stefna allir að því sama. Engar sterkar andstæður, sem berjast um myndflötinn og vekja ofsa og óróa. Fjöllin, bæjarhúsin, túnið, fólkið og húsdýrin myndar allt órofa heild í .kyrrlátu samræmi hvað við annað. Júlíana Sveinsdóttir túlkar á sinn hljóðláta hátt skyldleika mannsins við náttúruna. Þessi hóg va:ri samruni hlutanna kemur jafn- vel í Ijós í þeim málverkum, þar sem listakonan sýnir okkur ofsa- fengið brimið undir hömrunum í 'áttíhögium hannar. Höfuðskepnurn- ar beyja ekki tryllingslegt einvígi, heldur fallast í faðma fj'rir hugar- sjónum iistmálarans. Spjail um abstraktlist — Hver er afstaða yðar til yngri nútímamálara, þeirra, sem mála abstrakt? Ég bar spurninguna upp með hálfum huga, því að ég hafði ekki komið auga á neitt í málverk- um frúarinnar, sem gæfi til kynna að hún Iegði lykkju á leið sína til að kryfja nútímasteínur í mynd- list. Enda fór sem mig grunaði, að Júlíana Sveinsdóttir bandar frá sér hendinni. — Þessi abstraktlist hefir aldrei skírskotað til mín, segir hún. Ég get ekki fellt mig við hana, mér finnst hún ósönn og alltað því ljót. Afskræming á tilverunni. Ég sá einu sinni yfirlitssýningu á verk- um Picasso. Ég skoðaði fyrstu , myndirnar af áhuga og áfergju. | Unz kom að stefnumörkunum í list I hans. Þá fékk ég fljótlega nóg. | Afskræmt og skritmskælt fólk. ! Þetta á ekkert skylt við list. Það ; er ekki einu sinni samræmi í lita- | samsetningunni. I Ilún lagfærir á sér hattinn og I snýr sér frá mér, heldur áfram göngunni. Hún kímir örlítið, er j hún hefir lokið ræðunni um ab- ! straktlistina, eins og hún byggi '< yfir einhverju leyndarmáli, enda kom það á daginn að hún var ekki öll þar sem hún var séð. Á hættulegum slóðum Við erum brátt stödd í sal þeim, , er hýsir flest yngri verka hennar, | hún beudir mér á tvær stillebens- ! myndir, aðra frá árinu 1943, hin er aðeins tveggja ára gömul. Mótív beggja myndanna eru afar svipuð: vasi og krukka á borði. En munur- ! inn á vinnubrögðum og afstöðu j listamannsins til formsins er aug- \ Ijós. Á eldri myndinni nýtur form- , ið sín að fullu, blæbrigði ljóss og | skugga eru vandlega unnin, útlínur sterkar og ákveðnar. Það virðist Listakonan vi3 eitt vefteppið á sýningunni: Ég er mótfallin abstraktiist. ekkert vaka fyrir listamanninum annað en sýna okkur fyrirmyndirn ar eins svipaðar því og við mund- um sjá þær með eigin augum. — En allt önnur sjónarmið ráða gerð yngri myndarinnar. Þar virðist formið orðið aukaatriði, en litirnir stíga fram hreinir og skírir. Útlín- urnar eru nær horfnar, engin áherzla lögð á teikninguna. Lib fletirnir sjálfir eru aðalatriðið, það sem áður var gul kanna með hanka nálgast nú að vera aðeins gulur flötur í myndinni. Myndin er orðin einfaldari og sterkari, lit- gleðin dýpri. Það er augljóst, að stíllinn hefir þróazt í ákveðna átt, ef til vill hættulega nálægt þeim myndlistarstefnum, sem frúin virð- ist hafa hálfgerða skömm á. Þetta er þó aðeins óljós grunur blaðasnápsins þangað til listakon- an leiðir hann inn í stærsta sal- inn, þar sem myndlistarvefnaður- inn skreytir veggi. Þá er ekki lengur um að villast, hér hefir abstraktlistin fundið leynigöng að hjarta Júlíönu Sveinsdóttur, hvort sem hún vill viðurkenna það eða ekki. Hér eru veggklæði og gólfteppi, fagurlega ofin, munztrin frumleg og skemmtileg. Áherzla lögð á samræmi lita og forms, hrynjandi frjáls og óþvinguð, en þó bundin ströngustu reglum listarinnar. Listakonan hefir litað alla þræð- ina sjálf með jurtalitum. Þessi vefnaður hennar er listræn nýjung sem áreiðanlega á eftir að heilla hvern, sem ann fögrum hlutum. Að mínu viti er vefnaðurinn merk- asti hluti sýningarinnar. — Það er mesta púl. að vefa þetta, segir Júlíana, stundum þeg- ar ég held að ég sé búin með teppi, kem ég auga á eitthvað, sem betur mætti fara eða dettur í hug að reyna nýjan lit. Þá er ekki um annað að ræða en rekja allt upp aftur og byrja á nýjan leik. Þann- ig getur það gengið mörgum sinn- um. Ég leyfi mér að láta uppi það álit, að sumt af vefnaði frúarinn- ar finnist mér það sem ég hef séð nýtízkulegast í list. Hvort hún sé virkilega eins svarinn óvinur abstraktlistar og hún vill vera láta? — Það er ekki til neins að spyrja mig hvernig þetta verður til, svarar hún og brosir góðlátlega Ég veit það ekki sjálf. Það vakn- ar eitthvert form í huga mér, ég þreifa mig áfram með það og að lokum tekur það á sig fasta mynd. En ég er í rauninni aldrei búin með neitt, það er alltaf eitthvað, sem er eftir. Enda væri ekki gam- an að lifa, ef hægt væri að ljúka við mynd fyrir fullt og allt. Dúkarnir fögru Júlíana Sveinsdóttir er sönn og einlæg listakona, sem sífellt leitast við að ná meiri þroska í list sinni. Hún er sjálfstæð og persónuleg í sköpun sinni, er tortryggin gagn- vart nýjuin bólum, sem oft reyn- ast ekki nema dægurflugur. Hún er orðin fullmótaður listamaður, þegar þær stefnur koma fram, sem nú bera hæst. Hugur hennar er á verði gagnvart þeim, þær samrýmast ekki þeim sjónarmið- um, er hún hafði haft að leiðar ljósi. Menntun hennar og listrænt uppeldi mælir á móti þeim. En sál listamannsins er næm kvika, sem ekki hlýðir boðum skynsem- innar. Þær myndir, sem Júlíana neitaði að gefa líf á léreftinu hafa leitað útrásar á annan hátt, fært sig yfir á annað svið, þar sem listakonan var ekki eins brynjuð gömlum í-eglum. Þær stefnur, sem ekki fundu náð fyrir augltii Júlíönu í málaralistinni, hefir hún gætt lífi og sál í ofnum dúkum. Júlíana Sveinsdóttir segist hafa byrjað að vefa til þess eins að hafa ofan í sig og á, svo að hún gæti sinnt því, er hún taldi helg- ustu köllun sína, málaralistinni. En það mundi ekki koma mér á óvart að er tímar líða fram muni málverk hennar einmitt hljóta frægð fyrir þá sök að þau eru mál- uð af sömu konu og gerði dúkana fögru. sem brátt verða til sýnis í Þjóðminjasafninu. jlj. Breiar gera tilraunír með að írysta togarafisk í heilu lagi um borð LONDON — NTB, 10. sept. — Tilkynnt var í dag, að brezkur togari hefði farið fyrir nokkru ! í mjög velheppnaða reynsluferð ! til fiskimiðanna við fsland, við Noreg og víða í N-Atlantshafi. í ferð þessari voru gerðar tilraun ir með að frysta fiskinn í heilu lagi um borð, og gaf það mjög góðan árangur. Tilraunir þessar, sem reyndust mjög dýrar, leiddu það í Ijós, að það er tæknilega mögulegt að frysta fiskinn í heilu lagi um borð í sérstaklega byggð- um togurum í öllum veðrum. — Frystinguna sjálfa getur áhöfn venjulegs togara framkvæmt. a A víöavangi „UtarthéraSsmenn" á Blönduósi Það hefir farið hastarlega í taugar aðalritstjóra Morgunblaðs ins, að fregnir úr Húnaþingi um helgina hermdu, að sumarhátíð Framsóknarmanna í Húnaveri hefðu reynst mun fjölmennari samkoma en fundur sá, er Sjálf- stæðismenn efndu til á Blöndu- ósi, Sakar hann Framsóknar- menn um „hrekkvísi“ í stakstein um sínum í fyrradag, en útskýrir mannfjöldann með því að segja, að samkomugestir hafi einkum verið „utanhéraðsmenn". Þykja þetta broslegar aðfarir í Húna- vatnssýslu, einkum þó, er menu lásu það í sjálfu Morgunblaðinu sama daginn, í grein frá frétta- ritara, að aðkomufólk hafi verið mikill liluti gesta á sjálfri Sjálf- stæðissamkomunni. Morgunbi að- ið segir að 80 gestir liafi vcr- ið fluttir þangað alla leið úr Dalasýslu! Það, sem lielzt hann varast vann, varð þó að koma yf- ir hann. Utanliéraðsliðið var verulegur hluti hátíðagesta á sjálfri íhaldssamkomunni! Ræktunarstörf á Akureyri í palladómum um alþingis- menn á síðasta kjörtímabiii, er Jónasi Rafnar á Akureyri líkt við stofublóm, sem þarfnist 20 gráðu Iiita, en veslist upp í næð ingi. Síðan liann missti kjördæm ið, Iiafa flokksmenn reynt að verja blómið áföllum. Gripu t. d. til þess ráðs, að gefa því út- Iendan áburð í fyrra, er þeir sömdu við kommúnista í bæjar- stjórn um skipti á bitlingum. Jóuas fékk sæti í Laxárvirkjuuar stjórn, en kommúnistar nýtt emb ætti á bæjarskrifstofunni, sem skattþegnarnir borga. Síðau þetta var, liafa kommúnistar og íhaldsmenn haft enn nánari sam- skipti í bæjarmáluin Akureyrar. þótt ekki sé frá því skýrt í Mbl. En fyrir þessi ræktunarstörf mun íhaldsforustan telja blómið sitt blóðrauða fært um að stand ast válynd veður á ný. Morgun-. blaðið í gær vottar Iiins vegar að þetta er oftrú og bjartsýni. Jóu asi varð herfilega á í messunni á íhaldsfuudi í Húsavík. Úr vetrardvala í Húsavík Samkvæmt frásögn Mbl. kora það mjög glöggt fram í orð- um Rafnars, að hann er fyrrvcr- andi en ckki núverandi alþingis- niaður; virðist hann ekki hafa gáð að sér eða munað eftir því í svipinn að Sjálfstæðisflokkur- inn er um þessar mundir í gerfi „verkaIýðsflokks“ og stendur í harðri „baráttu“ fyrir launþega. Þetta var allt öðru vísi þegar Jónas sat á þingi, og þar er Iianu enn í huganum. En samkvæmt,. frétt Mbl. fordæmdi liann liarð- Iega misnotkun á verkalýðsfé- lögunum og kvað það „naumasb þekkjast í nálægum löndum“, að verkalýðsfélöguin væri „beitt pólitískt gegn stjórnum land- anna“. Það er sem sagt engu líkara en stofublómið hafi ena verið í vetrardvala er farmanna- verkfallið stóð yfir. Og þó í enu dýpri svefni þegar Morgunblaðið heimtaði að menn kysu gegn vísi- tölubindingu, svo ekki sé uú nefnd ræðan, sem Bjarni Bene- diktsson fékk Jóhanni Sigurðs- syni til að lesa upp á Dagsbrúuar fundi. Sem sagt: Það er ljótt at- hæfi að reyna að beita launþega samtökunum gegn stjórn lands- ins. Segir Jónas Rafnar á fundi f Húsavík. Það er sitt hvað gæfa og gjörvileiki. Gustur staðreyndanna Væntanlega er það annað tveggja, æska eða fáfræði, ett ekki annað verra, sem veldur því að Rafnar valdi aðeins dæmi úr verkalýðsmálasögu konunúnista til að upplýsa mál sitt. Þótfc Iiann Iiafi alveg sleppt að geta um síðustu dæmin um pólitískf brölt í verkalýðsfélögum, liefði verið nauðsynlegt að minna á samtökin sem gerð voru í verka- Iýðsfélögunum fyrir stríð og beint var gegn stjórn landsins og þó einkum gegn Alþýðu- (Framhald á 8. tlðu.)

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.