Tíminn - 12.09.1957, Blaðsíða 9

Tíminn - 12.09.1957, Blaðsíða 9
T’í MIN N, fimmtudaginn 12. september 1957, 9 ■:*****$ MARTHA OSTENSO RÍKIR sumar í RAUÐÁRDAL 126 óþolinmæði í röddinni. Sol- veig kannaðist við hann. Þetta var Hug'h Allen, piltur úr borginni sem var í skólan- um meö Karsten. Komdu ég þekki allt mitt heimafólk hér um slóðir. Sjáðu — þarna bíður ein eftir okkur niður í strætinu. Solveig gróf nöglunum inn í lófana til þessa að bæla nið ur ópið, sem komið var fram á varir hennar. — Ég veit ekki heyrði hún Karsten segja þreytulega. — Mér líður eitthvað svo undar- lega allt í einu. Það er alveg eins . . . . ég veit það annars ekki. Það er betra fyrir þig að fara einsamall, Hugh. Ég ætla aftur heim. Solveig þrýsti höndunum að veggnum, kippti svo upp um sig pilsunum og hljóp brott eins hratt og hún komst. Þegar hún kom aftur inn í herbergið sitt kastaði hún sér á rúmið og kjökraði: Ó, Alec, Alec, flýttu þér heim aftur til mín. Hið raunverulega ævin týri var hans — hennar að- eins aumkunarverður leikara skapur, sem hún hafði aldrei ætlast til að yrði neitt annað. Hefði hún á þessari stundu vitað, að áður en næsta haust kæmi, hefði hún fengið þær fréttir, að skonnortan Cass- andra hefði farizt á sunnan verðu Kyrrahafi, er skipið var á heimleið, þá má vera að hjarta hennar hefði brostið í þrákelknislegri trúfesti henn ar en læknast að nýju og hún notið þeirrar ástar, sem lífið kynni að hafa boðið henni að nýju. En á því ári, sem leið, unz henni barst vitneskjan, kristallaðist áköf ástríða henn ar í kyrrláta biðlund, sem ekkert fékk bugað, Ást hennar dvínaði heldur aldrei , þau 10 ár, sem hún varð að bíða, unz skipbrotsmönnum af Cassandra var bjargaö af eyðieyju á Kyrrahafi og fluttir til heimastranda. XIII. KAFLI. Um þetta leyti varð Olina Wing tuttugu og eins árs. í tvo mánuði samfleytt, eða frá því að hún útskrifaðist úr skólanum í Moorhead, hafði Olina leitt hugann að því hversu alvarlegt það væri að verða tuttugu og eins. En þetta kvöld árið 1898, er hún varð skyndilega fullveðja, hafði alveg sérstaka þýðingu fyrir hana, þar sem samtal hins tigna gests úti á verönd Winghússins snerist einkum um fórnarlund kvenna. Gest ur þessi var þingmaður og átti sæti sitt í Washington einkum að þakka pólitísku gengi George Grossman, og hafði boðið George og Mag dis til kvöldverðar í borginni. Seinna höfðu þau öll þrjú far ið út á búgarðinn, svo að þing maðurinn hefði tækifæri til að heilsa upp á „ágætustu ungu konu sýslunnar". Magd- ali hafði ljómað þegar hún heyrði hrósyrðin, og George Grossman hafði tekið undir þau með hjartanlegum hvatn ingarorðum. Svo virtist sem þingmaður- inn hefði nýverið lesið blaða- grein eftir ungfrú Kate Shal- een, þar sem svo virtist sem hún væri sammála „þessum grjótkasts konum í London“. Hvað ætlaði að verða um þénnan heim? Kate Shaleen. Oliira, sem sat nærri dyrunum hafði roðnað og litið snöggt til móð ur sinnar. Henni til undrun- ar brosti Magdali og sagði við þingmanninn: — Þaö kemur sú tíð, vinur minn, að þú hlærð ekki að atkvæðum kvenna. Olina dótt ir mín hefur lært til kennara. Reynist hún fær um að kenna smáfólkinu, verður hún allt eins fær um að hafa áhrif á hverjir fari með ríkisvaldið. Við erum ekki hellisbúar leng ur. Og að tveimur árum liðn um höldum við inn í tuttug- ustu öldina. Herra guð, það verður öld kvenfólksins. Tuttugasta öldin. Orðin hljómuðu fyrir eyrum Olinu, og henni hafði orðið litið yfir herbergið til föður síns, sem sat dálítið sér, eins og hún. Allt í einu virtist hann vera gamall og einmana með stóru hendurnar á stólbríkunum. Hún vissi að hann langaði til að fá sér í pípu inni í litlu setustofunni í gamla stein- húsinu, sem virtist aldrei hafa tilheyrt honum eftir að það var endurbyggt. Vegna augnatillits Magdis, breytti George Grossman um efni og fór að tala um friðar skilmálann við Spánvera. „Jú, sagði þingmaðurinn í trúnaðartón. „Það er enginn vafi á því að samningarnir veröa undirritaðir. Og við munum fá Puerto Rico og Fil ipseyjar. „Viljum við fá þær“, sagði Ivar hæglátlega. Þingmaðurinn virtist verða undrandi og dró vindil upp úr vasa sínum til að reyna að leyna því. „Eg er viss um að þið karl- mennirnir viljið fara út á ver öndina til að reykja,“ sagði Magdali með kurteisi, sem huldi alveg andúð hennar á tóbaksreykingum í setustof- unni. Hún stóð upp brosandi. Magdali var fimmtíu og fimm ára, en hún sýndist samt ár- um yngri en Ivar, sem var fimmtíu og þriggja. Olina hafði með gleði notað tæki- færið og flúið upp á loft og látið móður sinni og Magdis eftir að ræða um hvort ó- hætt væri gefa Ivar litla Gossman appelsínusafa. Mag dis hafði ekki einungis hafði ekki einungis blómstr- að öll þau tíu ár, sem hún hún hafði verið gift, heldur, eins og Solveig sagði, borið á- vöxt á hverjum lim, þar sem hún átti fjögur börn, tvo drengi og tvær stúlkur. Mað- ur hennar, sem Karsten kall aði „kartöflubaróninn“, var einn af ríkustu mönnum í dalnum. Magdali gat óskað sjálfri sér til hamingju með uppeldið og leiðsögnina á elztu dótturinni. Hún hafði einnig séð á eftir Karsten syni sínum inn í farsælt hjóna band með Edna Cole fyrir fjórum árum. Og þótt hún hefði nokkrar áhyggjur af því að Edna skyldi ekki enn hafa fætt barnabarn hennar, hafði hún ástæðu til að gleðj ast yfir velgengni Karstens sem lögfræðings í Minneapol is. Það hafði munað m jóu með þau Karsten og Rose Shaleen. Þessar hugsanir flugu í gegnum huga Ölinu meðan hún sat og greiddi sítt, ljóst háriö fyrir framan náttborðs- spegilinn í svefnherberginu, sem þær Solveig bjuggu enn- þá saman í. Vesalings Karst- en. Og vesalings Rose, sem hafði komið heim frá vinnu sinni við stúlknaheimili Kate Shaleens þetta sumar — og nokrum vikum síðar og allt í einu verið orðin kona Giedon Gaffley, unga gjaldkerans í bankanum í Wing. Olina hafði grátið svo mikið út af Karsten og Rose, þegar hún var ellefu ára, að hún minnt ist þess ekki að hafa grátið annað eins þar til David Shal een hafði farið til Chicago að nema höggmyndalist árið 1893, en þá var hún. sextán ára og hann tveimur árum eldri. Það var Kate frænka hans, sem hafði gert honum mögulegt að fara, og hann hafði aðeins komið í skyndi heimsóknir síðan. Það var fyr ir tveimur árum, eða áður en hann fór til Parísar fyrir námsverðlaun, sem hann hafði unnið í Chicago. En hann hafði skrifað henni svo yndisleg þréf um líf sitt í Montmartre, líf sem veitti dýrmæta reynslu, sól- skinshliðar þess voru óvenju bjartar vegna vitneskjunnar um ósigrana sem alltaf gátu verið á næstu grösum. Lista- maðurinn ungi, vinur hans, sem fundist hafði hengdur í hálsbindi sínu í kafaldsbyl, — en David hefði aldrei orðið svo hörmulegum atburðum að bráð. Hann var David Shal- een og hann mundi brátt hverfa til ættjarðarinnar, þar sem hann yrði gæfuríkur myndhöggvari og hann myndi kvænast Olinu Wing, hvað sem mamma hennar segði um Shaleenættina. Olina sveiflaði hárinu yfir öxlina á sér og gerði úr því langa fléttu. Brátt væri von á Sólveigu heim. Hún var í heimsókn hjá Árna niðri í bæ, — svo vítt sem vitað var. Árni hafði einnig uppfyllt von ir móður sinnar. Hann vann í banka með frænda sínum Roald hafði nýlega kvænzt Sesselju Brill, fegurðardls frá St. Cloud. Þó ungur væri að árum sá hann glæsta framabraut á stjórnmálasvið inu framundan, og mamma hans gladdist af metnaðar- girni hans. Undir handleiðslu Grossmans fetaði hann þá slóð sem einn góðan veður- dag mundi enda í Washing- ton. Á einn hátt eða annan, — og þrátt fyrir hættulegt tafl mundi Wing-fjölskyldan :: ♦♦ | 1 2 :: :: :: :: ♦♦ :: ♦♦ ♦♦ ♦♦ ♦♦ :: :: Fyígist með tímanum Þægilegast er kaupa Bláu Gillette Blötiin í málmhylkjunum. Engar pappírsumbuÖir og allíaf tilbúin til notkunar. Sama verÖ. Aíeins kr. 17.00 pr. stk. Til aS ná sem beztum árangri, |: þá notið einnig nýjustu Gillette rakvélina. Vél No. 60 kostar aðeins kr. 41.00. Bláu Gillette Blöðin Globus h.f., Hverfisgötu 50, sími 17148. niiiiiiiiiisHiiiiiiiiiiiimiiiiiiuiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiumiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiumimimmiiiiiiiiiimmiiiiiu | Opnum í dag | i ! = fimmtudaginn 12. september kl. 4 nýja blómabúð í = £2 — i- Lækjargötu 2 undir nafninu = d3iómiÍ SIMI 24338 | Höfum á boðstólum afskorin blóm, og fjölbreytt úrval | af pottaplöntum. Tökum einnig að okkur blómaskreyt- | ingar. BLOMABUÐIN d^lómiÉ Aðalheiður Knudsen, Margrét Hinriksdóttir, Ragna Jónsdóttir. Lækjargötu 2. — Sími 24338. E E g lllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllillllllilllllllllllllllll PILTAK, ef þi8 eigið gtúlknna, þá á ég hringana. f p' l'/ .■y'\ vV*

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.