Tíminn - 21.09.1957, Page 8

Tíminn - 21.09.1957, Page 8
8 TÍMINN, laugardaginn 21. september 1957. Seldi Reykvíkingum í soðið á mölinni framan við Edinborg SpjallaS vitS kjónin Guírúnu Árnadóttur og Ólaf Grímsson, sem eiga gullbrúðkaup í dag Ég ber að dyrum á Höfðaborg 58 og vingjarnleg gömul kona kem ur til dyra, býður mér til stofu þegar ég hef borið upp erindi mitt og kallar á mann sinn sem nú er orðinn blindur en hress og ferðafær þrátt fyrir háan aldur. Þetta eru hjónin Guðrún Árna- dóttir og Ólafur Grímsson fyrrum fisksali en þau eiga gullbrúðkaup í dag. — Ég er fæddur að Nýjabæ í Garðahverfi en fluttist til Reykja- víkur árs gamall og ólst upp hjá móðurbróður mínum því foreldr- ar mínir voru fátæk, segir Ólafur er hann hefur komið sér fyrir. — Og náttúrlega byrjað að stunda sjóinn barnungur eins og allir Reykvíkingar í gamla daga? — Ég var 11 ára þegar ég fór að róa á opnum bátum í Ólafsvík, segir Ólafur. Þar var ég í 3 ár. Svo fór ég aftur suður, geröist vinnumaður í Hákonarbæ og reri til fiskjar og lagði grásleppunet. Seinna fór ég á skútu, það var Valdimar frá Engey. Húsbóndi minn hirti hlutinn eins og þá var siður, sjálfur fékk ég fast kaup 50 krónur á ári og fern föt. Þá var stundað hálfdrætti, húsbóndi minn fékk annan hvern fisk sem ég dró, en útgerðin hinn. Við komumst stundum í hann krapp- ann á slcútunum. Einu sinni kentr aði undir okkur í Eyrarbakka- bugtinni, þá misstum við tvo menn út og sá þriðji rotaðist á dekki, skipstjóri og stýrimaður urðu báð- ir ófærir af meiðslum, öll gólf spfe'ngdust upp og við komumst ekki til lands vegna óveðurs. Þá vorum við heila viku matarlausir að velkjast á sjónum. í annað sinn var ég hætt kominn þegar kola- barkur slitnaði upp í höfninni með tvo menn innanborðs í ofsaveðri og ekki var ráðið við neitt. Þá tókum við Sigurjón Pétursson og Ólafur meistari ásamt nolckrum öðrum jullu í slippnum og rerum út á eftir þeim. Barkurinn strand- aði skömmu síðar en okkur tókst að bjarga mönnunum rétt áður en hann liðaðist sundur og sökk. Ég var 6 ár á skútunum, svo fór ég á togara. 'Var það Jón forseti? — Nei, það var áður en Jón forseti kom til sögunnar. Þetta var lítill togari, Kútt, sem Einar Þor- gilsson kaupmaður í Hafnarfirði átti. Ég var bara á honum eitt sumar því að hann strandaði um haustið og þá hætti ég á sjónum, fór í land og setti á stofn fisksölu með Steingrími í Fiskhöllinni. Þá var Fiskhöllin ekki risin, við verzl uðum á mölinni fyrir framan Edin- Grein Páls , borg, þar var sjávarbakkinn þá. Við reistum borð yfir tvo búkka og þar gat fólkið gengið að fisk- inum og valið. Á hverjum morgni kl. 5—6 rerum við út í bátana og to.garana á höfninni og keyptum af þeim fisk, bæði útlendum og innlendum. Þetta draslaðist svona áfram en oftast áttum við nógan fisk handa fólkinu. Seinna flutt- um við okkur og byggðum skúr opinn í annan endann. Seinna þeg ar Steingrímur keypti FiskhöHina vann ég hjá honum, ég var líka um tíma með handkerru á Óðins- torgi. Nú er ég búinn að vera blindur í 10 ár, og hef haft hægt um mig. Ég man ekki eftir neinu merkilegu sem hefir gerst um ævina, við erum svo sem búin að lifa lengi og sjá margt og alltaf verið heldur róleg í tíðinni og ég held að við hefðum ekkert á móti því að lifa saman í önnur 50 ár. Eiginkonan brosir samsinnandi. Hún hristir höfuðið hæverkslega þegar ég spyr hana um uppvöxt hennar og ævi: _Ég hef ekki frá neinu að segja. Ég er fædd í Búð- arhrauni í Hafnarfirði og alin þar upp til 15 ára aldurs. Þá fór ég sem vinnukona á Stóruvatnsleysu og var þar í 7 ár. Ég fékk 20 kr. í kaup yfir árið, það þætti ekki mikið núna en þá var hægt að kaupa þó nokkuð fyrir þá peninga. Svo fór ég til Reykjavíkur og þar byrjuðum við búskap 1907, þá mátti enginn gifta sig né hefja búskap nema hann ætti vissa fjár upphæð, 300 krónur minnir mig í reiðu fé. Það var til að fyrirbyggja að fólk færi á sveitina. Við kom umst vel af og komum sjö börn-j um á legg. Það er margt breytt! frá því í gamla daga, þá fengu! krakkarnir að fara í berjaheiðij inn að Grænuborg og fengu nesti og nýja skó til fararinnar. Og þá, kostaði pundið af sykrinum 25 aura. — Og brennivínspelinn 60 aura, segir Ólafur og hlær við. Það er! margt breytt frá því í gamla daga, • lífskjörin eru ólíkt betri nú en þó, vildi ég ekki skipta við æskuna nú á dögum. Þetta var nú einu sinni, manns ævi og þar við situr. | Hjónin kveðja mig hlýlega og innilega. Þetta er óbrotið alþýðu- fólk sem unnið hefir hörðum hönd um fyrir sér og sínum, oft barizt örvæntingarfullri baráttu við ó- blíð kjör og ill örlög en samt sem áður lagt fullan skerf til þeirra framfara sem orðið hafa í þjóðfé- laginu og kynslóð nútímans hef- ir fengið í arf. Þessi gömlu hjón hafa lifað sólarupprás í íslenzku þjóðlífi. — J. (Framhald af 5. stBu). alhug, fæst aldrei viðunandi árangur. SuSureyrarhreppur 18 byggðar jarðir voru í hreppnum 1920, en nú eru þær 7. Meðaltúnið var 2,3 ha. en er nú 3,4, það gaf af sér 77 hesta, en nú fást af því 269 og er eng- inn vafi, að þá er með taða af túnum eyðijarða, sem nytjaðar eru frá byggðu jörðunum. Á meðaljörð var heyjað 77+ 77=154 heyhestar en er nú 269+49=318 hestar. Meðalbú- ið var 2,3 nautgripir, 56 kind- ur og 1,4 hross en er nú 4,1 nautgripir, 76 kindur og 1,4 hross. Stækkun meðalbúsins og aukning heyjanna sem aflað er á meðaljörð hefir haldist í hend ur og er það vel. Túnstæði eru slæm á sumum jörðum hrepps- ins, og hafa verið með orsök til þess að þær l'ögðust í eyði. Á jörðunum, sem enn eru í byggð, má þó alls staðar stækka túnin, þótt misjafnt sé, svo vaxtarmöguleiki búanna er alls staðar fyrir hendi. Fimm af þessum jörðum, sem í byggð eru, hafa minni tún en 5 ha., og það stærsta er 5,5 ha. Er það tún sjálfs prestsetursins, það var 5,3 ha. fyrir 35 árum og er nú 5,5, en imun ekki eiga að tak ast sem sýnishorn af þeim vaxt- arhraða eða vaxtarþroska, sem prestarnir óska að eigi sér stað bæði í hinni lifandi og dauðu náttúru. Búskapur í V-ísafjarðarsýslu er að nokkru sérstæður. Þar er öllum skepnum gefið mikið vot- hey eða yfir sýsluna sem heild nálægt 51% af heyfóðrinu 1955 -—56, enda sýslan þá í jaðri hins svokallaða óþurrkasvæðis. Þar eru skepnur yfirleitt vel fóðraðar og menn hafa þar nægt fóður handa fénaði. Þó fóðra fáir með þa’ð fyrir augum að fá margt af óm tvílembt, enda fjárstofninn heldur ófrjór og ekki auðvélt með fóðririu einu að fá fjölda af ánum tví- lem'bt. Umgengni er hvergi jafn betri en þar. Þar fer enginn, er að utan lcemur, inn á skítugum skónum, heldur tekur þá ætíð af sér í anddyri eða sérstökum stað, sem til þess er gerður, og mætti sá siður verða almennur annars staðar í sveitum lands- ins enda stingur hann víða upp kollinum nú orðið, sem betur fer. Natni er áberandi, sérstaklega við allan heyskap, enda héldust hér við hærurnar frá söguöld, þótt þær legðust niður almennt, og frá Vestfjörðum breiddust þær aftur út um aðrar byggðir lands- ins og nú þekkja þær allir undir nafninu yfirbreiðslur, enda þótt hinar réttu hærur séu aðeins not- aðar á Vestfjörðum og sérstaklega í Vestur-ísafjarðarsýslu og við Djúp. Auðkúluhreppur verzlar mest á Þingeyri, nú síðan vegur kom yfir Auðkúluheiði, en áður sóttu þeir yfir Arnarfjörð og verzluðu á Bíldudal og nokkrir gera það enn. Þingeyrarhreppur og Mýrahrepp ur verzla á Þingeyri. Þó verzluðu Ingjaldsbændur á Flateyri og fluttu að sér og frá á sjó yfir Ön- undarfjörð, en líklegt tel ég að í framtíðinni muni verzlun þeirra flytjast til Þingeyrar, þar sem þeir eru búnir að fá veg til sín þaðan og geta flutt vörur til sín á bilum Þegar nýræktinni 1956 er bætt Sigurfinnur Pálsson á Ljósku. Myndin er tekin að ioknum kappreiðunum, en Sigurfinnur var knapi og ber Ljóska hann vel, þótt þungur sé. Gammar og góðhestar á kappreiðum Hornfirðinga á Stapasandi í Nesjum Höfn, HornafirSi, 9. sept. Hestamannafélag Hornfirðinga efndi nýlega til kappreiða á Stapasandi í Nesjum. Þátttaka var ágæt og var keppt í eftir- töldum greinum: 23,9 en hann kom ekki fram í úr- 300 m. hlaup (16 hestar). | slitum. 31. Ljóska Valþórs Sigfinss. 24,4 Að lokum fór fram góðhesta- 1. Ljóska Valþórs Sigfinnss. 24.4 sýning og tóku þátt í henni 21 2. Lingur Ingimars Bjarnas. 25.0 hross. Komu þar fram margir fall 3. Freyja Ragnars Arasonar 25.1 egir gæðingar, og að dómi gam- alla hestamanna eru hornfirzku 250 m. sprettur (folahlaup). gæðingarnir ekki ennþá úr sög- 1. Léttfeti Sigurðar Vilhjálms. 20.4 unni. 2. Eva Þorstein Sigurjónss. 20.9 j Veður var mjög gott og áhorf- 3. Blesa Stefáns Sigurðss. 21.0 endur margir. Mótið fór í alla staði mjög vel fram. Bezta tíma í undanrás hafði Ljóska Valþórs Sigfinnssonar 23,5 og Stígandi Guðjóns Bjarnasonar Borgarnes (Framhald af 7. síðu). uðina júní og júlí. Erlent verzlun- arfélag tók þá Skallagrímsdal á leigu, en ekki varð úr framkvæmd- um þar, en 10 árum áður hafði skozkur kaupmaður reist fyrstu bygginguna í Borgarnesi, skúr, þar sem hann sauð niður lax úr Borgarfjarðaránum. Hann lét setja gufuvél í teinæring og hafði í för- um við laxaflutningana. Laxaskúr- inn var síðar fluttur upp í héraðið og þá var ekkert hús í Borgarnesi, þar til 1877 að Akra-Jón reisti þar myndarlegt íbúðarhús, sem stend- ur enn. Voru Norðmenn viðriðnir þær byggingar og munu hafa lagt fé til framkvæmdanna. Þremur ár- um síðar, eða 1880 eru sex íbúar heimilisfastir í Borgarnesi. Þannig er þá í stuttu máli sag- an um það hvernig byggð varð til í Borgarnesi. Síðan liefir fram vinda tímans orðið til þess að þar hefir risið einskonar höfuð- borg fyrir Borgarf jörð og Mýrar. Borgarnes er einn af þeim kaup- stöðum landsins, þar sem náið samband er milli fólksins og landsins sjálfs og sögunnar í Iiér- aði Egils og Snorra. Þess vegna hafa Borgfirðingar og Mýramenn byggt „höfuðborg“ sína á Iand- námsjörð þeirra Borgarfeðga. —gþ. við túnin, verður meðaltún í hreppunum sem hér segir: Auðkúluhreppur 6,8 Þingeyrarhreppur 6,9 Mýrahreppur 7,7 Mosvallahreppur 8,4 Flateyrarhreppur 6,1 Suðureyrarhreppur 3,4 Meðaltún sýslunnar 7,2 -Aðalsteinn. Yeglegar gjafir tií bæedaskóians að Hóium í tilefni af 75 ára afmæli Hóla- skóla s. 1. vor færðu margir nem- endahópar og aðrir velunnarar skólanum stórgjafir. Páll Zóphóníasson og kona hans, frú Guðrún Hannesdóttir, færðu skólanum málverk frá Axarfirði, svarfdælskir Hólamenn málverk frá Svarfaðadal, nemendur burt- skráðir 1937 ákváðu að gefa vand- aða slaghörpu og margar fleiri gjafir bárust skólanum. Þá komu saman til fundar á há- tíðinni, er haldin var á Hólum 14. júlí s. 1., Hólamenn þeir, er þar voru staddir þennan dag og höfðu veriö á Búnaðarskólanum undir skólastjórn Steingríms Steinþórs- sonar, búnaðarmálastjóra. Ákveðið var á fundi þessum að gefa skól- anum málverk af þeim skólastjóra- hjónum, Steingrími og konu hans, frú Theódóru Sigurðardóttur. Var Örlygi Sigurðssyni, listmál- ara, falið að vinna verkið, sem hann hefir nú senn lokið við, enda hugmyndin a'ð listaverkin verði af- hent skólanum við skólasetningu í haust. Ef framkvæmdaneínd þessa máls hefir ekki tekizt að hafa sam- band við alla þá Hólamenn, er hér eiga hlut að máli, þá væri æski- legt að viðkomandi hefði tal af eða skrifaði einhverjum nefndar- manna, en þeir eru eftirtaldir: Gústav Sigvaldason, Haukur Jör- undsson, Haukur Jósefsson, Sig- steinn Pálsson og Eðvald Malm- quist. =llllll!lllllllllllllll|[|llllllliIlllllllllillilliillillll!llllllllllllllllilllllllllllliil!lllllllllllllillll[lilllHIIIIIIIIIIIilllIIIII!llllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllIllllllllHlillllllllllllllllllillillll!llillllIlllillllllllllil!l!llllll!IMI!illlllIIilillilllllll!lllllllllllllllllillllllllllllllillllilllllillillllllllllllllllilillillllll€ Haustmót meistaraflokks í dag kfl. 5 keppa VÍKINGUR—ÞRÓTTUR MÚTANEFNDIH /4 ^llII!!III!III!lIIIIIIIIIIIIIIIII!IIIIIIIIIIIIIilll!!ll!ll!lllilllllllIl!!illIIIIIIIIIIIIIIII!l!IIIIil!III!II!IIII!!!lll!II!lllII!II!III!llll!IIIlinilIIIIIUII!IIIIIIIIIl!!l!!lim!IIIIIllIIIllIIIIIIIIlllllIIIIIliIlI!ilIIIIIiIIIIIlllllliI!llIIlillIIIIIIIlllIIIIIIIIIIIlllIIIIlIllllllllllllIlllillllIin!IIin!IIIIIlllllXI!lIU!llllIIIIIIIIIIIIIIIIIIllllIIIllU^

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.