Tíminn - 07.02.1958, Blaðsíða 12
VeSrið í dag:
Norð-austan kaldi,
skýjað.
víðast létt
lurt**
Hitinn ki. 18.
Reykjavík -5 Akureyri -12 Kaup
xnannahöfn -7 Sto'kkhólmur -10.
Föstudagur 7. febrúar 1958.
Leikmenn Manchester United. Efri röð talið frá vinstri: Colman, vVneian, ... _ ...
Fremri röð: Berry, Byrne, fyrirliði, Viollet, Taylor og Pegg. Litla myndin: Doherty. Af þekktari mönnum liðs-
ins, sem vantar á myndina, má nefna Gregg, Blanchflower, Foulkes og Charlton.
Sjö enskir knattspyrnumenn og átta
blaðamenn fórust í flugslysi í gær
Ensk flugvél fórst í flugtaki í Munchen, og fór-
ust meí henni 22 menn. — Metial farþega
von?. leikmenn kunnasta knattspyrnufélags
Eitglands
NTB—Munchen, 6. febrúar. — Hryllilegt flugslys varS
í dag við flugvöllinn í Munchen, er brezk farþegaflugvél :crá
flugfélaginu BEA fórst, og með henni 24 menn. Með vélinni
var knattspvrnuflokkur Manchester United, sem var bezta
knattspyrnulið Englands. í vélinni voru alls 44 menn.
Plugvéilin var á leið til Eng-
lands frá Belgracl, þar sem Manc
hester United hafði leikið við
sterkasta lið Júgóslava. Endaði
Ká leikur meg jafntefli, og sfcyJdi
féilagið nú taka þátt í undanúr-
slitakeppni um Evrópumeistaratit
ilinn. í vélinni voru 'einnig 11
brezkir íþróttafréttaritarar. Snjó
qnugga var á flugveliinum, er flug
vélin hótf sig til flugs. í fyrstu
atrennu hætti (flugstjórinn við
ftugtak, en í annarri hóf vólin sig
é loft. Er hún var komin í ium
áO metra hæð frá jörðu, hrapaði
hún, og er það sögn sjónarvotta,
að hún hafi þá rekizt á nokfcur
fré, rutt uim tveggja hæða húsi.
Brotnaði þá stél véiarinnar af,
cg gaus upp eldur í brot þess.
Eviknaði út frá þessu í nokfcrum
íbúðarhúsum. Ekki kviknaði í
fremri hluta vélarinnar. Sunium
þeirra, sem ekki létust þegar í
^tað, tökst að skreiðast frá eldin
um, þótf særðir væru. Flestir
þeirra, sem af komust eru alvar
íeg.a særðir, öitfáir hafa sloppið við
meiri hiáttar meiðsli. Áður en vél
in gerði seinni tilraunina til flug
taks ,ranníSökuðu vélvirkjar vél
i'na, því að flugmenn þóttust finna
að ekki væri einleikið, hve erfitt
vélin átti með að komast á lof-t.
Sjö af leikmönnum Manch.
Utd. fórust í slysinu, og þar á
meðal eru þekktustu menn liðs
ins Roger Byrne, fyrirliði, sem
leikið hefir yfir 30 landsleiki í
enska landsliðinu og Tonnny
Taylor, miðherji enska landsliðs
ins. Aðrir knattspyrnumenn, sem
létust, voru Eddie Colman, Dav-
id Pegg, Billy lViietan, Ocoff
Bent og Mark Jones. Þá fórust
og ritari félagsins, þjálfarinn
Curry, og Satinoff, einn úr fram
kvæmdastjórn þess. Meðal
þeirra, sem liafa vcrið lagðir á
sjúkrahús særðir er framkvæmda
stjórinn Matt Busby, sem fyrrum
var skozkur landsliðsmaður. Á
sama sjúkrahúsi og hann liggja
einnig John Berry, Denis Violet
og Albert Scanlon.
Meðal blaðamanna, sem fórust
var hinn kunni markmaður enska
landsliðsins um árabil, Frank
Swift. Þá var júgóslavneski sendi
herrann í London meðal farþega
og fórst hann.
. - :'i - i ' i"':7?:í"rMjL;
Keppni í Eyrópublkaniuin.
Mancli. Utd- var að korna frá
Júgóslafíu, þegar slysið vildi til.
Liðið hefir f vö undanfarin ár tekið
þátt í Evrópubikarkeppninni sem
enskir meistarar. í fyrra koinst
liðið í undanúrslit, en tapaði þá
fyrir sigurvegurunum, Real Mad
rid. Liðið hafði einnig staðið sig
mjög vel nú í þessari útsiátíar
keppni milli beztu liða Evrópu.
Júgóslafnesku meistararnir, Rauða
stjarnan voru mótherjar Mancli.
Utd. í þessari umferð. Manch. sigr
aði þá í keppni á lieiinaveili ný
lega með 3-1, og í leiknum í fyrra-
dag í Belgrad varð jafntefli 3-3,
Fjölmenn skemmtun stuðningsmanna
B-listans í Köpavogi
Framsóknarfélag Kópavogs hélt
iskemmtun fyrir starfsfólk og
istuðningsmenn B-listans í Kópa-
vogi s.l. miðvikiidagskvöld. Hófst
skemmtunin kl. 8,30 e.h. með sam
eiginlegri kaffidrykkju.
Ólafur Sverrisson, form. Eram-
isóknarfélagís Kópavogs, setti
iskemmtunina og stjórnaði hcnni
af miklum skörungsskap.
Jón Sbaftason, bæjarfulltrúi
Framsóknarmanna í Kópavogi
flutti ræðu við góðar undirtektir
samkomugesta.
Auk þess skemmli Karl Guð-
mundsson leikari og kvikmynd var
sýnd.
Loks var dansað af miklu fjöri
fram eftir nóttu.
Matt Busby
framkvæmdastjóri Manch. Utd.
þannig að Mancliester liafði unn
ið sér áframhaldandi rétt í keppn
inni. Hlant liðið frábæra dóma í
Júgóslalín. í háifleik stóð 3-0 fyr
ir Manshester, en í síðari liálficik
sóttu Slafarnir sig og tókst að
jafna á síðustu mínútunni.
Knattspyrnuliðið.
Manch. Utd. hefir verið hezta
knattspyrnulið Er.glands undan-
farin ár, og jafnvel allt frá lokurn
síðustu styrjaldar. 1948 vann liðið
bikarkeppnina, 1952 deildakeppn
ina, eftir að hafa verig í öðru sæti
í henni, í þrjú ár í röð. Fram-
kvæmdastjóri' liðsins Matt Busby
fór þá að gera róttækar breytmg
ar á liði sinu, og leikmennirnir
urðu sífellt yn-gri. — Var hent gam
an að þessu í Engiandi cg liðið
kallað ..Busby Babies“, cg annað
slíkt. En þetta bar rikulegan a-
vöxt. Þegar hinir ungu leikmenn
hpfðu öffilast leikreynslu urðu þeir
næistium ósigrandi í heimalandi
sínu, cg síðustu tvö árin hafa þeir
unnið ensku deiidakeppnina. Auk
þess komst liðið í fyrravor í úr-
slit í bikarkeppninni. en tapaði
fyrir Atson Villa, eftir að mark
maðurinn Wood hafði slasast, er
nokkrar mínútur voru af leik.
10 landsliðsmenn.
Á síðustu árum hafa leikmenn
frá Manch. Utd. myndað uppi-
stöðu enska landsliðsins í knatt
spyrnu. E-kki færri en 10 leikmenn
sem lentu í s'lysinu hafa leikið í
enska cg írska landsliðinu. Þrír
þeirra, Byrne, fyrirliði Manch.
Utd- á leikvelli, Taylor, og Ed-
wards, sem er yngsti maður, sem
nokkru sinni hefir leikið í enska
iandsliðinu, en hann var valinn í
það fyrir tveimur árum, þá 17 ára,
hafa leikið flesta landsleiki Eng
lands undanfarin ár. Auk þess
< Framh. a 2 tíðuj
Trá umræSum á Alþingi í gær:
>jálfstæðismenn óánægðir með þann
hátt á afgreiðslu efnahagsmála,
sem þeir sjáifir tóku upp
Forsstisráífherra telur æskilegt atJ ný visnu-
brögð verði tekin upp í því efni, þegar á-
kvaríJanir hafa verih teknar í samráSi vi(J
stéttarfélögin
Störf Alþingis og lausn efna-
hagsvandamála urðu lítilsliáttar
rædd á Alþingi í gær í sambandi
við frumvarpið um samkomudag
reglulegs Alþingis á þessu ári.
Hermann Jónasson hafði stutta
framsögu um málið, en afgreiðsla
þess og efni er nánast orðin
reglubundin afgreiðsla á Alþingi
og venjulega án sérstakra um-
ræðna.
Sjálfstæðismönnum hefir hins
vegar þótt sem ekki mætti leng-
ur dragast að þeir tækju að
marki þátt í umræðum hins ný-
byrjaða framhaldsþings og fundu
sér því tækifæri til að varpa
fram ásökunum í garð ríkisstjórn
arinnar. Tók Bjarni Benedikts-
son fyrstur þeirra til máls á eft-
ir forsætisráðherra. Kvartaði
Bjarni undan því að stuttur tími
gæfist á Alþingi til afgreiðslu á
stórniálum, en þingið væri oft
aðgerðalítið meðan bið stæði.
Hermann Jónasson, forsætis-
ráðlicrra tók næstur til máls og
sagði, að Bjarni liefði réttilega
tekið það fram, að afgreiðslu
stórmála, svo sem efnaliagsmál-
anna liefði oft verið liraðað um
of á Alþingi. Sagðist ráðherra
telja, að æskilegt væri að á
þessu yrði breyting. Forsætisráð-
herra sagði, að þannig liefði öll
undangeugin ár verið urn af-
greiðslu efnahagsmálanna og
stundum verið að því fundið.
Þannig liefði þetta til dæmis ver
ið árið 1946, þegar ríkið tók í
fyrsta sinn ábyrgð á sjávarút-
veginum. Þá hefði löggjöf um
þetta verið hespuð af í gegnuin
þingið, án þess að menn vissu
gjörla liversu víðtækar þær
skuldbindingar voru, sem verið
vai- að undirgangast.
Varðandi afgreiðslu efnaliags-
málanna lagði forsætisráðherra
álierzlu á að þau mál yrðu leyst
í samráði við stéttasamtökin og’
í samræmi við rannsókn sérfræð-
inga, sem unnið hefðu að þeini
málum síðan í haust. Stæðu von-
ir til að þeim athugunum lyki
og tillögur lægju fyrir um næstu
mánaðamót og myndi þá koma
til kasta Alþingis varðanái lausn
efnahagsmálanna.
Sem dæmi um það, hvað lausn
efnahagsmálaiina hafa oflast ver-
ið seint á ferðiuni, gat forsætis*
ráðherra þess, að í tíð fyrrver-
andi stjórna hefði þeim máluin
stundum ekki verið ráððð til
lykta fyrr en komið var langt
fram á vetur og eitt sinn hefði
þiugmaður, sem fylgist vel með
þingmálum, Bernharð Stefáns-
son, verið kominn heim í jóla-
frí, er hann frétti um ráðstaf-
anirnar í útvarpi.
Af Sjálfstæðismönnum tóku til
máls auk Bjarna Jóhana Haf-
stein, prófessor Björn og Ingólf-
ur Jónsson, sem liélt að átt hefði
verið við sig, er forsætisráðlierra
nefndi í ræðu þingmanB, er
fylgdist vel með málum! Aðal-
lega var þó Ingólfur óánægður
við Skúla Guðmundsson, sem
sagði skemmtilega sögu frá
liraðri afgreiðslu efnahagsmáia
sjávaiútvegsmála í stjórnartíð
Sjálfstæðismanna.
Þá hefði eitt siim staðið svo á,
sem fyrr, að úrlausn efnahags-
mála liefði verið á seinni skipun-
um á Alþingi og þurft hefði að
afgreiða þau mál í skyndi. Þá
liefði Ingólfur verið austur á
Hellu og hifreið verið send éftir
honum austur, en beðið með af-
greiðslu á Alþingi fram eftir
nóttu, þar til Ingólfur kóm í
þingsalinn og þar með fóngínn
incirihlutinn, sem ekki var tal-
inn nógu öruggur án hans'.
Geta má þess, að í þessu sám-
bandi varð síðan til kveðsiííipui',
sem ekki skal birtur hér ÁÍS sinni.
Hin nýju húsakynni bæjarstjóraar
Reykjavíkur eru hin vistlegustB
i.! ■ ■■' í ■
Hin nýju húsakynni bæjarstjórnar Reykjavíkur eru ú 5.
og 6. hæð í Skúlatúni 2. Auk bæjarstjórnarsalar, er nær í
gegnum tvær hæðir, eru á 5. hæð fundarherbergi, skáfl; fata-
geymslur o. fl„ en á 6. hæð eru sæti fyrir 37 áheyrehdur
og 8 blaðamenn, blaðamannaherbergi, fatageymslur ©.' fl.
Frá bæjarstjórnarsalnum er
m-jcig víðsýnt cg hið fegursta út-
sýni til Esju, Afcrafjalls og yfir
sundin.
Austur og suðurveggur bæjar
stjórnarsalar eru klæddir með
tefckþiiljum, en vesturveggur msð
,,iravertin“-lfÍGguim, sem er kalk
steinstegund, líkt og marmari.
Húsigögh em úr tekki, áklæði
og glugigatj'öl'd oífin úr ísll'enz'ku
úl'larbandi. Ei'karparikett á gólifi.
Hljóðeinangrunarplötum hefir
verið komig fyrir á nöbkrum hluta
lofts í salnum, sem er að öðru leyti
múrliúðaður og olíumálaður. Tvö
fált gler er í gluggum.
„Ruboleum“— gólfdúkiur, með
koiikþynnum undir, er á áheyrenda
pöllum og sæti klædd með ,.plasit“-
dúk-
Auk venjulegra rafmagnspera,
er salurinn lýstur upp með sér-
stakri gerð ljósapera, með inn-
byggðum speglum, er bcina ijósi
vel á borð bæjarful'Ltrúa.
Auk venjulegrar miðstöðvarhit
unar, er salurinn hitaður upp með
heitu lofti frá loftræsikerfinu.
Skemmtisamkoníá
BorgfirðingaféíagS"
insíkvöíd
Borgfirðingafélagið efnir til
skemmtisamkomu í Góðtemplara-
liúsinu í kvöld og verður þar
margt til skemmtunar. Er þessi
skemmtun meðal annars haldin
til að kyima starfsemi félagsins,
sem stendur með mikluin blóma.
Heldur félagið mánaðarlega spila
kvöld, sem eru fjölsóttar sani-
koinur og vinsælar, en auk þess
aðrar skeinmtisainkomur öðru
ilVOl'U.
Á skeiiimtisainkomunni í
kvöld, verða sýndir þættir úr
Borgarfjarðarkvikniynd félags-
ins. Ennfreimu' verður til
skenimtunai' stuttur leikþáttur,
söngur og dans. Er ekki að efa
að þessi samkonia félagsins verð-
ur íjölsótt.