Tíminn - 22.02.1958, Page 6

Tíminn - 22.02.1958, Page 6
6 T í MIN N, laugarðagmn 22. fcfrriíar 1958. Ufgefandi: Framsóknarflokkurinn Ritstjórar: Haukur Snorrason, Þórarinn X>órarinsson (áb.) Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu. Símar: 18300, 18301, 18302, 18303, 18304 (rítstjórn og blaðamenn). Auglýsingasími 19523. Afgreiðsliusími 12323. Prentsmiðjan Edda h.f. Endurreisn biskupsstólanna í Skálholti og á Hólum FYRIR Alþingi liggur nú tillaga um að flytja menntaskólann á Laugar- vaá>ni til Skálholts. Bak við þá tillögu mun liggja sú hugs un, að þannig yrði hins gamla Skálholtsskóla bezt minnzt í verki. Frá sögulegu sjónarmiði hefir þessi til- laga vissuilega taLsvert til síns máls. En Skálholt er sögufrægara sem biskupsset- ur en skólasetur og fjárhags lega auðveldara að endur- reisa þar biskupsstólinn en menntaskóla. Það hefir mikið verið rætt um endurreisn Skálholts- staðar að undanförnu og myndarlegar framkvæmdir hafnar í þá átt. En því mið- ur hefir enn ekki verið haf- izt handa um það, sem eitt er þess meignugt að veita Skálholti aftur veg sinn og virðingu. Það er endurreisn bisfeupsstólsins þar. Að visu hefir verið nokk- uð tal um það að flytja vigjslubiskupana að Skál- hoati og Hólum og -láta þá sýndarmennsfcu nægja til að endurvek j a frægð hinna gömlu biskupssetra. Aðal- biskup á eftir sem áður að sitja í Reykjavík. Vissulega yrði Mutur Skálholts og Hóla lítið bættur með slíkum látafátum. EF mönnum er það í raun og veru nokkur 'alvara að auka að nýju veg Skál holts, þá verður það ekki á annan veg sæmilega gert en með endurreisn biskups- stólsins þar. Og ef rnenn vilia efla veg og virðingu kirkjunnar, þá ætti einnig að endurreisa biskupstólinn á Höhim, en leggja niður vígslubisfcupsembættin. í Reyfciavík yrði þá engin þörf fyrir biskup, en kirkju- málaráðunevtið myndi ann ast afgreiðsiu hinna ver- aldlegu mála bar, líkt og það gerir nú. Með endurreisn biskupsstólanna í Skálholti og að Hó’um, væri stefnt að því að biskuoarnir sinntu fyrst og fremst andlegum störfum og andlegri forustu en létn sig hversdagsieg skrifstofust.örf minna varöa. BlskunaTyiir vrðu andleair leiðtoear f stað þess að vera skrifstofustj órar. ÞVf verður ekki neitað, að Mrkiulífi hefir að ýmsu leyti hnignað hér á landi seimrstu áratugina. Því valda vafaiaust ma.rí?ar ástæður og verður kirkíunni siálfri ekki kennt um marvar beirra. En sumf. er bó va.faiitið hennar sök. Ein sök hennar er sú. að hún hefir ekki lagt næga áherzlu á. a.ð kírkian eignað- ist óháða fnrustunienn, sem gæf-u einhuitt sér að hínni andtegu Ipiðsöcrn. Á herðar him eína biskups hefir bætzt stöðugt meira og meira af veraldleg-u snatti og störf um, svo að embættið hefir veitt minna og minna ráö- rúm til að sínna hinni and- legu hlið kirkjustarfseminn- ar. Hætt^r við, að slíkt muni all'taf fyjgja biskupsemb- ætti, sem staðsett er í Reykjavík. Endurreisn gömlu biskups stólanna er liklegasta leið- in til aö tryggja kirkjunni óháða, andlega leiðtoga, sem hafa tíma og ráðrúm til að sinna hinni andlegu for- ustu, sem biskupum ber að hafa. MÖRG rök hníga þann ig að því, að rétt sé og tímabært að endurreisa hina fornu biskupsstóla. Meö því er merkileg söguleg minn ing í heiöri höfð. Þjóðin teng ist aftur nýjum tengslum við forna sögutíma. En jafn framt er þetta þýðingarmik ið og verulegt skref til að tryggja kirkjunni óháða, andlega forustu á komandi tíð. Þjóöin mun á komandi árum kannske eiga meira undir því en nokkuru sinni fyrr að kirkian sé vanda sín um fullkomlega vaxin. En til þess að svo geti orðið, er það ekki þýðingarminnsta skilyrðiö, aö hún eigi óháða forustumenn, sem hafi tíma oar aðstöðu til að sinna hinni andlegu leiðsögu fyrst og fremst, en séu lausir viö daglegan eril og arg skrif- stofumennskunnar. Óþarft er að ræða ýmsa agnúa, sem menn þykjast nú finna á endurreisn bisk- upsstóianna fornu, t. d. að þá veröi enginn aðalbiskup. Slíkt má auöveldlega leysa, t. d. að biskuparnir skipt- ist á um að bera þennan tit- il, líkt og hæstaréttardómar ar skipast nú á um forsætið í hæstarétti. SAGAN og kirkjan eru þeir tveir helgidómar, sem þjóö in þarf að leggja einna bezta rækt við. Sennilega er nú ekki á annan hátt hægt að sýna sögunni öllu meiri rækt arsemi né að trvergia kirkj- unni betur þróttmikla, lif- andi andlega forustu en með endm’reisn fornu biskup- stólanna. ÞaÖ ætti því að vera sam- eiginiegt áhugamál allra þeirra, sem unna sögu, kirkju og kristindómi að vinna aö þeirri skipun, sem hér er minnst á. Alveg sérstaklega ætti þaö þó að vera mál prestastéttarinnar að vinna að framigangi þessa máis. Sá tími á aö koma aftur, að Hólar og Skálholt verði ís- lendingum hið sama og Lundur og Uppsalir eru Sví um og Kantaraborg er Bret- mn. Þá myndi strax koma meiri og glæsilegri svipur á íslenzkt kirkjulif. \ERLENT YFIRLIT. Upplansn í indónesiska ríkinu VertSa stórveldin afskiptalaus, ef til borgarastyrjaldar kemur í Indónesíu? I ÞESS HAFA sczt merki undan- farin missiri, !að indónesíska rikinu yrði ekki haldið sanian, nema með traustri forustu og mikilli stjórn- vizku. Þótt Sukarno forseti sé að ýmS'U leyti mikilliæfur foringi, einkum þó sem áróðursmaður, virðist hann ekki hafa þessa tvo kosti til að bera í nógu ríkum mæii. Þess vegna er nú svo kom- ið, að ekki virðist annað fram- undan í Indónesíu en bióðug borgarastyrjöld eða alger sundr- ung ríkisins. Þrjár meginástæður eru orsakir þess, að þannig er komið í Indó- nesíu. Skal reynt að rifja þær upp hér í sem stytztu máli. FYRSTA ÁSTÆÐAN er sú, að aldrei hefir raunverulega tek- izt að konra á íaggirnar starf- hæfri sljórn, sem gæti iátið nægl- lega til sín taka í hinu víðlenda ríki, seim Indónesía er. Þótt ekki séu liðin noma rétt átta ár síðan Indónesía fékk sjálfstæði sitt endanlega viðurkennt, haífa. marg- ar ríkisstjórnir farið þar með völd og allar þurft að styðjast við meira og minna sundurleita flokka. Af þessu hafir leitt, að alia festu hefir vantað í stjórn ríkisins og livers konar spilling hefii- haft hinn gróðurríkasta jarð- veg. Þetta ástand hefir að sjálf- sögðu stuðlað að þeirri upplausn, ar, sem nú blasir við augum. Ef litið er á landabréfið, sé'st að Indónesía nær til fjölmargra eyja, sem dreifðar eru yífir mjög stórt svæði. Það er ekki lítið verk að koma á fót Stjórnarkerfi fyrir alveg nýtt riki, en hvað þá, þeg- ar nm jafn sundurleitt og dreift ríki er að ræða. SHíkt er vissu- lega útilokað án mjög traustrar forystu. ÖNNUR ástæða til upplausn- arinnar í Indónesíu er sú, að aðalleiðtoga sjálifstæðSsihreyfing- arinnar hefir greint á um, hvaða flokkar skyldu vinna saman. Margir flokkar eru í Indónesíu, en aðadflc'kkarnir eru fjórir. í seinustu þingkosningmn fékk 1 þjóðílokkur Sukarnos mest fylgi, en næst komu tveir flokkar Mú- hameðstrúarmanna, Masjúni og Nahdatul Ulama, og svo kommún- istar. Tiltölulega lítill munur var á fylgi þessara flokka. í hér- aðsstjórnarkosningunum, sem síð- ar hafa farið fraim á Java, unnu kommiúnistar mjög á og tóku fylg- isaukningu sína mest frá Þjóði- flokknum. Þeir virðast nú orðið stærsti flokkurinn á Java. Það hefir jafnan verið stefna Sukarno að hafa helzt aila stærstu flokkana í stjórn. Einkum hefir hann lagt áherzlu á að hafa komm únista með. Þetta hefir mætt and- stöðu Hatta, sem var annar aðal- leiðtogi sjálfstæðishi'eyfingarinnar og varaforseti. Flokkar Muhameðs trúarmanna hafa haft sömu að- stöðu, einkum þá Masju.mif'1'okkur- inn. EFTIR að Sukarno kom lieim úr ferðalagi í Kína, haustið 1956, setti hann sér iþað mark að koma á sterkri stjórn og mynda eins konar þjóðráð allra flokfca og stétta undir foru'S'tu forsetans og gera ríkis- .stjór.nina ag eins konar fram- kvæmdanefnd þjóðráðsins. Margir töldu, að raunverulega stefndi Su- : karno með þessu að því marki að gera forsetann einvaldan, enda fór hann, ekki dult með, að hann íeldi | veslrænt lýðræði ekki hcnta í Indó | nesíu. Iialta, sem áður hafði sag-t 1 af sér sem varaforseti í mólmæla- skyni við S'tjórnarfarið, reis gegn þessari nýju ’skipan, ásamt foringj- um Masjumifloikksins. Einkum töldu þeir það þessu fyrirkomulagi til foráttu, að k'Oinimúnistar væru hafðir með, því að þeir myndu nota þá aðstöðu sína til að brjót ast til valda. Þessi nýja skipan Sukarnos hefir því ekki komizt á enn, nema að nafninu til, og einfcum orðið til Sjafruddin að auka á sundrungu þá, sem fyrir var. iÞRIÐJA ástæðan, sem veldur upplausninni í Indónesíu er svo ó- ánægja þeirra, sem búa annars staðar en á Java, yfir því að hlutur hennar sé gerður aLltoíf mikill á kostnað .annarra landshluta. íbúar Indónesíu eru um 82 mill- jónir, en þar af búa 52 milljónir á Java, sem er ekki nema fimmtándi hlu'ti Indónesíu að ílatarmiá'li. Java framleiðir ekki heldur nema 17% af útflutningsverðmætinu. Þau eru cinkum framleidd á Sumatra, Bor- neo og Celebes. íbúar þessara eyja ■telja sig arðrænda af Javabúum, sem hafi stjórnina alveg í sinum höndum. Af hálfu þeirra hafa því verið uppi vaxandi kröfur um all- víðtæka sjálfstjórn. Þegar Sukarno boðaði hinar nýju tillögur eánar ura hreytta stjórnarhætti í fyrra- vetur, gripu hershö'fðingjar 'á Su- matra og Ivorður-Celebes. til þess náðs að lýsa yifir eins fconar sj álf- stjórn. Hershöfðingjarnir á Norð- ur- og Suður-Sumatra sömdu þá áftur við ríkisstjórnina í Jakarta, en hafa að meslu fengið að fara sínu fram siðan. Hershafðingjarn- ir á Mið-Sumatra og Norður-Ce]e bes hafa hins vegar ekki haft neitt beint samband við stjórnina í Ja- kanta, án þess að hún haifi reynt nokkuð til að bæLa þessa uppreisn niður. Þannig hcfir. Indónesía smám saman verið að leysast upp á siðas'tliðnu ái-i. SUKARNO hefir um nokkurt skeið reynt að draga athygli frá upplausninni heima fyrir með því að gera tilkall til Nýju-G-uineu, sem er undir strjórn Hollendinga. Þegar Sameinuðu þjóðirnar höfn- uðu því á Siðastliðnu hauisti að styðja þetta tilkall Indónéiíu greip Sukarno til ofbeldisráðstafana gegn ýmsum fyrirtækjum Hlol'lend inga í Indónesiu, im. a. dkipafélög- unum. Stjórnin reyndist íhinls veg- ar ekki fær um að táka'við þeim rekstri, er Hollendingar hcifðu meg höndum, og jók þetta enn á upp- lausnina og öngþveitið' í landinu. Við þetta bættist svo, að Sukarno fór sjáilfur úr landi sér til hressing ar og skyldi eftir athafnalitla og lélega ríkisstjórn. Þetta varð til þess, að uppreisn- armenn á Mið-Sumatra áfcváðu að láta til skarar skríða. "Þeir til- kynntu Sukarno, að þeir myndu setja á laggirnar nýja ríki'sstjórn fyrir Indónesíu, ef hann léti ekki núverandi stjórn fara frá völdum og myndaði nýja stjórn, án þátt- tötcu Jeommúnista. Þessu hainaði Sukarno cg hraðaði sér heimieiðis. Uppreisnarmenn stóðu hinis veg ar við hótun sína og hafa nú mynd (Framh. á 8. síðu.) VAÐSrorAN Önnur veröld Ég sagði kunningja mínum norður í Skagafirði frá því í sím- tali í gær, að nú væri ég búinn að taka snjókeðjurnar al' bilnum mínum, enda væru göturnar í Reykjavik alauðar. Það er réitt eins og hérna eða hitt þá heldur, sagði hann. Þið vitið ekki miikið, hvernig lífið er á Norðurlandi á hörðum vetri. Hér eru nú allir vegir Lokaðir, engir bílar á íerð, hvorki á keðjum né án þeirra. Þykk fannbreiða liggur yfir allri byggðinni. Samgöngur eru mjög strjálar og erfiffar. Útivinna ligg- ur niðri, veður hindra sjóferðir og allt atvinnulif er því í molum. Hvernig mundi ykkur þykja að búa við slíkt? Ég viðurkenndi fúslega, að annar heimur væri hér suður við sjóinn. Og þaö með, að allt of sjaldan væri um það hugsað, að veturinn er Norð- lendingum þyngri i skauti en öðrum tandsmönnum. Við þær aðstæður, sem hér er lýst, cm hin blómlegu héruð í Húnavatns- Skag3fjarðar-, Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslum bókstaftega önn- ur veröld en sú, sem fólkið hér sunnanlands þekkir. Og uppsveit- ir Múlasýslna eru það líka. Þeir, sem sunnar búa, geta auðvitað ekki breytt þessu. En þeir eiga samt að vita það og taka með þekkingu og skilningi tilmælum að norðan og austan um meiri til- litssemi af opinberri hálfu við einangruð héruð. Samgöngur eru lífæðin Samgöngurnar eru hér iífæðin. Þegar vegir lokast og flugvellir verða ófærir, leggst .cinangrunin eins og mara yfir byggðirnar. Fiugvéf, sem flytur fólk og póst, er þá kærkominn tengiliður við umheiminn. Innanlandsflugið gegnir þarna miklu hlutverki, sem ekki er ætið metið sem skyldi. í það á ekki að horfa, þótt það kosti nokkurt fé að halda flugvöllumun opnum. Það eru út- gjöld, sem allt þjóðarbúið verð- ur að taka á sig til hagræðis fynr fólkið i þessum landshlutum. Vegir á vetrardegi Snjóþyngslm eru sögð svo raikil, að tifgan'gBtaust sé að tala um r.ð ryðja vegi eins og ástatt er. En það hefir löngum verið skoðun manná fyrir norðan, að minni áiierzla sé Iögð á snjóruðnihg í þéfctbýlustu héruðunum þar' en hér sunnanlands. Það er auðvitað ekki óeðlilagt miðað við mann- fjöldann og aðstöðuna, en hlut- fallið verður að vera réttlátt. Að þessu er vikið í Degi á Akureyri nú í vikunni á þessa Leið: ,,NáttúruöfUn hafa verið nokkuð mislynd um skeið og úthlutað Norðlendingum snjó og fannfergi af miklu örlæti, gagnstætt því, sem er á Suðurlandi. Landsfeðurnir hafa aftur á móti annan liátit á þegar þeir• útdeila fjárma.gni til að hald'a opnum vegum. Þá er hlutfaflilið öfugt, hversu sem viðrar, ,og hefir svo vorið itm langa. tíð. Þ’essu til sönnunar má geta þess, a3 ríkið heldur opirvni leiðinni .frá Reykja- vík og alla leið austur í Vík í Mýrdal. Hér í Eyjafirði telur ríkið sér að- eins skylfc aS halda opn'um tveim- ur vegarköfium, sem til samans eru um eSa innan við 20 km. Það eru vegarspottarnir frá Akureyri Og út á Moldhaugaháls, og í Öðru l'a.gi nokkurra kílómetra kafli yf- ir eylendið framan við kaupstað- inn. Sést af þcssu, hve hlutur Ey- firðinga er gersamlegá fyrir borð borinn í þessu efni. Það er bæði ósk og réttlætiskrafa Eyfirðinga að hið opinbera endurskoði þetta mál og frnni því viðeigandi lausn“. Þannig er á þessi mál litið fyrir norðan. Hvað segja „landsfeður" um þetta efceyti? Látum svo baðstofusþja'ní lokið í dag. — Fínnur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.