Tíminn - 15.03.1958, Blaðsíða 9

Tíminn - 15.03.1958, Blaðsíða 9
r í M I N N, laugardaginn 15. marz 1958. S s&t ’stmm £clitli lyjnnei'ótad: Súócuinci halda í horfinu en hafði lít- ið að gera. Kvíðin vegna Hinriks blandaðist kvíðanum um það, hvað væri að gerast hinum megin við Eystrasalt. Hútn sá dóttur sína varla nema þegar telpan svaf, og tekjurnar af verzíluninni voru harla litlar. Og einn daginn tók hún skyndiiega ákvörðun. Svo bar við, að ekkjufrú, sem búið hafði í gömlu íbúðinni þeirra Pontusar og Margrétar dö skyndilega. íbúðin var á hæð inni yfir verzluninni. Súsönnu tókst að leigja íbúðina, sem hún hafði búið í, og flutti í gömlu íbúðina á Blasiehólmi. Þetta var gömul og óþægileg ibúð, en Súsanna lét það ekki á sig fá. Mér fannst þetta skynsam- lega gert hjá henni, og ég var viss um, að Súsönnu mundi takast að búa visblega þessar stóru, gömlu stofur. Hún gat ekki spurt Hinrik ráða um þetta, því að þetta varð að gerast þegar í stað. Enginn túni til að skrifa hon um og fá svar. Þegar allfr var uan garð gengið, skrifaði hún Hinrik. Hönum varð hálf- hverft við, taldi fyrst, að þetta hefði verið ráðið af ó- þarflegri skyndingu, en þeg- ar hann hafði athugað þetfrá nokkra daga, fór hann að halkka til að koma aftur heim á æskuheimili sitt. En svo kom árásin á Finn- land. Við vorum felmtri sleg- in eius og atiir aðrir. Aum- ingia Súsönnu leið þó verst. Hún óttaðist um fólk sitt. Henni var nú enn erfiðara að vera ein siíns liðs, og oft sá ég hana með Lillu hjá sér í íbúð- inni. Það var eins og hún vildi e-kki þurfa að skilja litlu stúlk una við sig nokkra stund. Þetta voru erfiðir tímar. Eina huggunin var sú, að Hinrik fékk oriof til að vera heima um jólin. Súsanna sagði mér síðar, að þau hefðu varla- haft tíma til að tala saman þessa daga, svo upp- tekin voru þau við að horfa hvort á annað og njótast. Eg reyndi að láta þau vera í friði. Á þúsundum heimila var ein- mitt þannig ástatt um þessi jól. Heimilisfaðirinn hafði fengið sem snöggvast að korna heim. En æskan sér ætíð þúsund leiðir, og það sannaðist á Súsönnu. Þegar Hinrik var farinn eftir jólaleyfið, fann hún sér f.ró í störfúnum. Hún settist ekki með prjóna sína, eins og Gunilla og Emmy hefðu gert. Hún starfaði ekki í kvenfélögum eins og Birgitta og hún gekk ekki búð úr búð til að kaupa fánýtan varnig eins og Ástríður. Hverja stund sem hún átt.i frjálsa úr búð- inni eða frá að sinna Lillu, notaði hún til þess að fræðast um listir. Rising var enn sem fyrr helzti lærimeistari hennar , en hún. fór nú einnig á fyrirlestra og sótti bóka- söfn og sýningar. Af og til sótti þó að henni dapurleiki, og hún sagði, að þetta væri víst tilgangslaust allt saman, eins og nú væri umhorfs í heiminum, en eitthvað yrði hún að hafa fyrir stafni. Ég var nú orðin svo mikill Framhaldssaga 49 heimagangur í Barrmans- verzluninni,; að mér fannst stundum sem ég væri eftir- gengill Carb þótt ég byggi hvorki yfírí sviksemi hennar né viðskiptahæfileikum. | — Afgreíðslumaðurinn var bróðursonur. Risings. Hann jvar óheimskur en leitaði þó stundum fáðs og trausts hjá mér. 1 Stundum kom Súsanna fær andi hendi með einhver lista- verk, sem hún hafði keypt. Það voru yfirleitt ekki dýr listaverk og aldrei mörg mál- verk í einu. Okkur tókst venju lega að seljá tvær myndir af hverjum þfemur, sem í búðina komu. Súsahna var stundum óþolinmóð : og þótti salan ganga seinti Hún reyndi að efna til smásýninga, en varð brátt að viðurkenna, að það borgaði sig varla. En svo skeði óvænt atvik. Á annarri sýningunni kom engni önnur en Caro sjálf. Þetta hafði okkur sízt af öllu grunað, og við vissum ekki, hvaða erindi hún gat átt hingað. Ékki gat hún hafa ætlað að sjá Hinrik, því að hún hlaut að vita, að hann væri í hernum. Hún gekk um sýningarsal- i inn eins og ;hver annar óvið- j komandi gestur, leit í sýn- ingarskrána og síðan á mál- verkin, sat um stund á stól framan viðj stóra mynd og virtist vera að reyna að ’ mynda sér skoðun á myndinni j Hún viftist 'þg hafa áhuga á' þeim brfytingum, sem1 Súsanna og Hinrik höfðu gei’t1 á sýningarsalnum, en hún reyndi ekki'að ræöa við mig eða Súsönnu. Nokkrir gestir heilsuðu héfmi og hún ræddi við þá. Hún;hvarf og síðast á brott með einhverjum þeirra. Hún var ekki sjálfri sér lík. Súsanna sagði, að hún hefði lagt af. Ég hafði veitt meiri athýgli öðru í fari hennar. Hún var klædd dýrum loðfeldi sem ég hafði aldrei séð hana í fvrr. Mér datt ósjálfrátt í hug hárauði kyrtillinn, sem hún hafði verið í, er við heim- sóttum hana forðum daga. Hún hafði auðsjáanlega látið handfjalla sig í snyrtistofu, en árangurinn var hræðilegur fannst mér. Hún hafði aldrei verið eins Ij ót að núnum dómi Skyldi hún hafa orðið ást- fangin einu sinni enn. á efri árum? Þegar ég hugsa um þetta núna, finnst mér lik- legast, að þetta hafi verið síðasta örvæntingartilraun hennar til þess að vera þátt- takandi í gleði lífsins, kann- ske síðasta örþrifaráð hennar til þess að reyna að ganga í augun á Hinrik. Ég býst við, aö raunsæi hennar hafi beðið hnekki við síðustu atburði. Hún sá þaö eitt, að hún var að missa virðingu han-s og eftirtekt. Nú reyndi hún að bæta það upp með ytri fegrun sem illa fer fólki, sem komið er af æskuskeiði. En sú Caro, sem áöur nut mestrar virð- ingar fyrir skarpskyggni sína og greindð hefði átt að skilja hve þetta var vonlaust. Já, Caro hvarf oröalaust á braut, en hún skildi eftir áhrif, sem ekki vildu þverra strax, einhvern grun í hug- skoti okkar um að ekki væri m 2231 allt með feldum um andlega heilbrigði hennar. 23. Finnsk-rússneski friðar- samningurinn varð Súsönnu og okkur öllum auðvitað léttir Hinrik kom líka heim og dvaldi heima fram á haustið. Viðskiptin fóru að ganga greiðar, fólkið aftur að hugsa um að eignast fagra muni og listaverk. Menn urðu hræddir við verðbólgu og töldu betra áð leggja fé sitt í listaverk en að geyma það í bönkum. Og þar sem álit manna á list er svo misjafnt, var hægt að selja hvað sem var. Hinir gömlu og grónu listverzlanir seldu drjúgum, og Barrmans nafnið hafði enn góðan hljóm Hinrik var hreykinn af Súsönnu og mjög. þakklátur fyrir dugnað hennar á hinum erfiðu tímum. Hún sjálf gladdist af því, en virðing Hinriks á henni vakti henni ekkert stórlæti. Hún varö æ sjálfstæðari og gerði nú hik- laust út um viðskipti á eigin spýtur án þess að leita ráða hjá nokkrum. Hinrik hældi henni, og Rising hrósaði henni. Súsanna ræddi nú um listverzlun eins og sá, sem gerþekkir þau mál. Mér þótti, sem nokkur hætta væri í þessu fólgin, og því var ekki laust við, að ég tæki fyrsta hrakfalli hennar með ánægju. Það var dag nokkurn síðla, að hún kom hlaupandi inn í búðina og augun loguðu af ákafa. — Leiztu í gluggann ? hrópaöi hún. — Hvaða glugga ? Áttu kannske við litla, nýja mál- verkið? Myndina af nöktu kerlingunni með feitu fætur- nar? Þetta er ljót mynd, en mér skilst að hún sé alveg óvenjulega fín og mikil list. — Já, ég á við það mál- verk, sagði hún. Ó, Bricken, ég er svo glöð, að veit varla, hvað ég á að taka mér fyrir hendur. Ég keypti þessa mynd í morgun. — Á þitt eindæmi? — Já, algerlega, og fyrir mjög hátt verð. Það var geysi- lega spennandi að skrifa svona háa ávísun. En nú ætla ég að græða mikið á henni. — Heldurðu, að þú græðir á afskræmi? sagði ég, því að ég vissi, að bæði henni og Hinrik þótti ákaflega gaman, þegar Bricken gamla dæmdi á þennan hátt þær myndir, sem voru mestu listaverkin í þeirra augum. — Já, á þessari mynd. Ég vildi, að Hinrik færi nú að koma, svo að ég gæti sýnt honum myndina og sagt honum frá þessum einstæðu kaupum. Það verður gaman að sjá upplitið á honum. — Það er ekki víst, að honum lítist eins vel á þetta og þér, -sagði ég til þess að stríða henni svolítið. ' Hún hló að mér. — Þessi mynd er eftir Lucas Cranach hinn eldri, sagði hún og. bar nafnið fram líkkast því sem lítil stelpa sýgur brjóstsykur- mola. — Og er það svo stórfeng- legt? Eru myndir hans eftir- sóttar? Ödýrar skemmtíbækur Eftirtaldar bækur eru bæði skemmtilegar og margar fróðlegar, og helmingi ódýrari en hliðstæðar bækur, sem nú eru almennt í bókabúðum. Og þó er gefinn 20% afslóttur, ef pantað er fyrir 200 krónur eða meira. Einn gegn öllum eftir Nóbelsverðlaunaskáldið Ernest Hemingway,...........heftkr. 18,00 Faereyskar þjóðsögur, valið hefur J. Rafnar læknir......................beft kr. 27,00 Hefndin, sjóræningiasaga eftir enska rithöfund- inn Jefferey Farnol.............ib. 50,00 Hofsstaðabræður eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili.....................heft 45,00 ♦íón halti eftir Jónas frá Hrafnagili .. heft 30,00 fslenzkir galdramenn, ib. 40,00, heft 25,00 Hótel Berlín eftir Vicki Baum .. heft 18,00 Hvar ern framliðnir?.............ib. 20,00 •iakob ærlegur eftir Marryat....ib. 30,00 Katrín e. finnsku skáldk. Sally Salminen ib. 50,00 l.andnemarnir i Kanada, Marryat, ib. 30,00 Filla mnsin og slóra músin og fl. sögur fyrir böm eftir Sigurð Ámason..........ib. 12,00 Lyklar himnaríkis e. A. J. Cronin, heft 30,00 Rarnona e. Helen Jackson.........ib. 25,00 Regnboginn, skáldsaga, . . ib. 25,00, heft 18,00 Rósa, skáldsaga fyrir ungar stúlkur eftir Louise M. Alcott.......................heft 15,00 Síðasti hirðinginn, spennandi drengjasaga frá hásléttum Argentínu..............ib. 18,00 Sléttubúar, Indíánasaga eftir Cooper, ib. 28,00 Stikilsherja-Finnur e. Mark Twain, ib. 30,00 Tveir heimar, dulrænar frásagnir e. Guðrúnu frá Berjanesi...................heft 30,00 Yiktoria, ástarsaga frá Suðurríkjum Bandaríkj- anna eftir Heny Bellaman.........ib. 50,00 York liðþjálfi,.................heft 18,00 Hetta allt og himininn líka, stórskemmtileg skáldsaga eftir Rachel Field (aðeins örfá eintök) eftir...........................heft 35,00 Af mörgum þessara bóka em aðeins fáar óseldar. Gerið X fyrir framan bækumar, sem þér viljið eignast, sendið pöntunina strax, og bækurnar verða afgreiddar gegn kröfu í þeirri röð, sem pantanir berast meðan upplag endist. Undirrit....óskar að fá þær bækur, sem merkt er við í auglýsingu þessari sendar gegn póstkröfu. Nafa Heimili mnmmngiiimiuiiiiiDiBSBHniuiuiiiiiiniiiiHMiniiiiMiiuimiiiiiiiinuuiiiiiiimHiumummiiiin Oáýra bókasalan' Box 196, Reykjavfk. -V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.WA'/AV.VAW.VAV.'.WW Hiartans þakkir sendi ég öllum nær og fjær er heiðr- uðu mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum á íiinm- tugsafmæli mínu 6. marz síðast liðinn. Guð blessi ykkur öll. Þorvaldur Jónsson, Núpi, Laxárdal. M65ir oíckar. Andrea Þ. JónsdóHir, Hofsvallagötu 19, lézt að Elli- og hiúkrunarheimilinu Grund 10. þ. m. — Bálfcrin hefir fariS fram. Þökkum af alhug þeim, er veittu henni hjálp og vinsemd í veikindum hennar svo og okkur auðsýnda samúð. Unnur Þorsteinsdóttir, Guðjón V. Þorsteinsson. EOEK ,ri Innilegar þakkir fyrir auSsýnda samúð og vinarhug við andíát cg jarðarför VaSgerðar Jónsdóttur frá Tannastöðum. Klara Hansdóttir, Sigurður Ó. K. Þorbjarnarson, Lúther Garðar Sigurðsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.