Tíminn - 19.06.1958, Side 6

Tíminn - 19.06.1958, Side 6
6 T í M I N N, fimmtudaginn 19.' jú6í'-Tt96fc Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINn Ritstjóri: Þórarinn Þórarlnsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Llndargöta Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (ritstjórn og blaðamenn) Auglýsingasíml 19 523. Afgreiðslan 12331 Prentsmiðjan Edda bf. Mikilvægur ávinningur í SAMBANDI viö þær um ræður um efnahagsmálin, er enn standa yfir, þykir rétt aS birta hér stuttan ko fla úr síðari ræðu Eysteins Jóns- sonar fjármálaráðherra í eldhúsumræðunum, en hún var ekki birt í Tímanum. Þessi kafli er svohljóðandi: „ÞAÐ hefir verið rætt tals- vert um það undanfarið, hvort ráðstafanir ríkisstj. í efnáhagsmálunum muni reynast gagnlegar til fram búðar. Meö þessu eiga menn vafalaust við, hvort takast muni með þessum ráðstöfun um að skapa jafnvægi í þjóð arbúskapnum og stöðva verð lag, þegar verðhækkunará- hrif þessara nýj u ráðstafana eru komin fram. Um þetta er vitanlega ó- mögulegt að fullyrða nokkuð. Tekjuöflunin getur reynst of knöpp og er meira að segja hætta á því, þar sem byggt er á mjög djarflegri innflutn ingsáætlun, og þessi hætta á halla í uppbótarkerfinu er ævinlega fyrir hendi og hún er einmitt mjög alvarlegur gaili-á fyrirkomulaginu. Enn frernur ber enn að leggja á herziu á að engin leið getur leitt til varanlegs jafnvægis í þjóðarbúskapnum og kom- ið 4 veg fyrir nýjar og nýj- ar veltur, nema hætt verði að nota vísitöluna á sama hátt og verið hefir. Þróunin í þessum málum á næstunni veltur því mjög á hvernig stéttasamtökin í landinu halda á kaupgjalds- málunum á næstunni. Verð ur skrúfan notuð áfram eða ekki. Veröi hún notuð á- fram, eru nýjar veltur óhjá- kvæmilegar framundan. ÞÁ MUNDI ef til vi'll ein- hver segja: Var þá'ekki bezt að aðhafast ekki neitt og láta öngþveitið koma, sem orðið hefði, ef ekkert hefði verið gert? Er þá nokkurt verulegt gagn að þessum efnahagsráðstöfunum? Svarið við þessum spurn- ingum er augljóst: í fyrsta lagi tryggja þess ar ráðstafanir öfluga fram- leiðslustarfsemi um næstu framtíð, og það er út af fyr- ir sig ekki neitt smámál. En það, sem gefur þessum nýju ráðstöfunum í efna- hagsmálunum þó mest gildi og Veldur þvf, að þær eru ailfc annars eðlis en það, sem stagíáð hefir verið í upp- bótarkerfið á síðari árum, er sú staðreynd, að nú hefir verið stigið stórt skref í átt ina til samræmis á verölag- inu, og stigið í raun og veru hálfa leið út úr uppbótar- kerfinu með hinu nýja yfir- færslugjaldi, sem gengur út og inn í kerfinu. Þetta forð ar frá gifurlegu tjóni, sem annars vofði yfir og varnar því að ýmsar þýðingarmikl- ar greínar í þjóðarbúskapn um halda áfram að dragast saman og jafnvel leggjast niður. Hvað sem framtíðin ber í skauti sínu, og þótt menn kjósj yfir sig nýjar veltur á verðbólguhjólinu, þá verð ur þetta skref til samræmis í þjóðarbúskapnum ekki stig ið til baka. Þess vegna hafa þessar ráðstafanir verulegt gildi til frambúðar, hvernig sem fer að öðru leyti. Þess vegna er þetta mál þess vert að leggja mikið á sig fyrir það og þess vert að taka á sig óþægindi og rógburð til þess að koma því í lög. ÞETTA MUNU allir viður- kenna inn á sér a. m. k. þeir, sem ekki eru haldnir glóru lausu ofstæki. Og þessi þátt ur er svo mikilvægur í mál- inu og á þessu er svo ríkur skilningur með þj óöinni, þrátt fyrir allt moldviðrið, að þegar leit út fyrir það um daginn, að stjórnin yrðj að fara frá án þess að koma efnahagsmálafrv. fram, varð megin þorri manna mjög á- hyggjufullur út af því, og það ekkert síður andstæðing ar ríkisstjórnarinnar en hin ir. Menn fundu, að það var stórfelldur skaði skeður, ef málið næði ekki fram að ganga, jafnvel þeir, sem hafa látið sér sæma og munu því miður láta sér sæma á næstunni, að spilla fyrir þvi í framkvæmd. En einmitt þetta er að verða háskalegur löstur í fari margra, að þeir berjast á móti því, sem þeir raun- inni eru með, ef þeir halda að með því geti þeir unnið sér vinsældir hjá einhverj- um þeim, sem nauðsynlegar ráðstafanir kunna áð valda erfiðieikum hjá í bili. Þessi óheilindi hafa ef til vill aldrei komið betur fram en í sambandi við þetta mál, ekki aðeins á þingi, heldur líka utan þings. Ef þjóðin verðlaunar slík óheilindi og snýst ekki gegn þeim, mun það koma illa í koll.“ ÞAÐ, sem fjármálaráð- herra segir hér um meginat- riði nýju efnahagslaganna, er í fullu samræmi við vitnlfjsburð hagfræðinganna Jónasar Haralz og Jóhannes ar Nordals. Þeir hafa báðir sagt, að merkilegt spor sé stigið i rétta átt me'ð því að jafna mismuninn, sem bú ið var að koma á milli ein- stakra útflutningsgreina, og með því að jafna verðlagið milli hinna einstöku inn- flutningsvara, sem var orð ið hættulega ójafnt og ýtti undir óeðlilega mikla gjald eyriseyðslui. Þessvegna vannst mikið á með hinni nýju lagasetningu og hún mun alltaf verða til mik- illa bóta að þessu leyti, þótlt öfgamenn kunni aö •geta spillt framkvæmd henn ar að öðru leyti. Frá starfsemi Sameinuðu þjóðanna: Akstur bifreiða milli landa í Evrópu hefur verið stórlega auðveldaður 250 millj. barna hafa engan aðgang að skólamenntun. - Samræming á kjötmati í Evrópu. - Framlag til baráttunnar gegn krabba- og hjartameinum. Frá upplýsingaskrifstofu S.Þ. vera 'gott útlit fyrir að þetta tak- í Kaupmannahöfn. ist. Ýmsar ráðstafanir, sem gerðar hafa verið í þeim tilgangi að auð- velda mönnum að ferðast milli landa í bifreiðum sínum hafa ný- lega verið samþykktar fyrir til- stuðlan Efnahagsnefndar Samein- uðu þjóðanna fyrir Evrónu (ECE). Á þetta við bæði einkabifreiðar og langferðavagna, sem notaðir eru til skemmtiferðalaga. Samkomulagið um einfaldari formsatriði við landa mærin var gert á fundi, sem hald- inn var með tollstjórum eða full- trúum þeirra frá 22 þjóðum í Evrópu. Fundurinn var haldinn í Genf dagana 16.—23. maí. Var þetta í rauninni franxhaldsfundur umferðarmálanefndar ECE, sem kvatt hafði til skrafs og ráða- gerða sérfræðinganefnd í tolla- og umferðarmálum í þeim til- gangi, að reyna að draga úr skrif finnsku og skjalaskyldu í sam- bandi við bifreiðaakstur milli lainda í Evrópu og vörufMninga á akvegum. Átta þjöðir afnema tollskjalaskyldu. Hin síðari árin hafa margar Evrópuþjóðir dregið mjög úr kröf urn símim til bifreiðaeigenda, er koma erlendis frá með vagna sína í tímabundnar heimsóknir. Áður fyrr var krafizt margs konar toll skírteina, fjártrygginga og auk þess var eftirlit með erlendum bif- reiðum all strangt víðast hvar. En nú þegar hafa átta Evrópuþjóðir afnumið þessi formsatriði með öllu og það er lítil sem engin fyrir- höfn að aka bifreið yfir landamæri fjölda Evrópulanda í dag. Þær átt’a þjóðir, sem ekki lengur krefj ast toHskírteina af erlendum bif- reiðaeigendum eru: Austurríki, Belgía, Danmörk, Iíolland, Luxem borg, Svissland, Svíþjóð og Vest- u-Þýzkaland. Aðrar þjóðir í Evrópu hafa tilkynnt, ag þær séu í þann veginn, eða muni í fram- tíðinni a'fnema tolls'kírteinaskyM- una. En aðrar þjóðir hafa tekið upp einfalt og umstangslítið eftir- lit með erlendum bifreiðum, sem koma inn fyrir landamæri þeh-ra. Þannig hafa Frakkar þann ein- falda sið, að líma miða á forrúðu erlendra bíla um lleið og þeir koma til landsins. í Júgóslavíu fá menn afhent einfalt' skilríki, sem ekki kostar neitt og engra fjártrygg- iniga er krafizt. Hve lengi má aka vögnum erlendis? Það er nokkuð breytilegt frá einu landi til annars hve erlendum bifreiðaeigendum er leyft' að nota bíla sína lengi án þess að greiða af þaim skatta og skyldur, og sem borgurum í viðkomandi landi er gert að greiða af sínum faratækj um. Lengstur er tíminn í Dan- mörku, Beneluxlöndunum, Sviss- landi og Svíþjóð, þar sem leyft er að hafa bifreiðar á erlendum númerum í eitt ár. í Frakklandi er tíminn sex mánuðir og í Þýzka landi eru engin ákveðinn tíma- takmörk sett ennþá. Einfaldari vöruflutningar á landi. Það, senx að framan segir á ein- göngu við urn eLnkabifreiðar og al- menningsvagna á skemmtiferðum eins og áður er sagt. En ECE nefnd in vinnur nú að því að eirjnig verði gert auðveldara en nú er að aka kaupvögnum milli landa. Þykir Árið 1949 var gerð bráðabirgða milliiíkjasamþykkt á vegum Efna- hagsnefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu um vöruflutninga með bifreiðum milli landa. Með þessari samþykkt var gert mikið einfaldara en áður hafði verið fyr- ir menn að senda vörur með bif- reiðum landa á milli. Nú var t.d. ekki krafizt tollsköðunar við hver landamæri, þar sem vagninn kom aðeins þegar komið var til ákvörð unarlandsins. Nú þykir hafa feng izt svo góð reynsla fyrir kostum og göllum þessarar samþykktar, að tímabært sé að semja nýja til fram búðar. Hefir ECE í 'hyggju, að gera uppkast að' slíkri miliiríkjasam- þykkt, sem mun ekki eingöngu fjalla um vörúflutninga milli landa eftir þjóðveigU'm heMur og með flug vélum, á fljótum og ö'ðrunx vatna- vegum. Gert er ráð fyrir að samþykktin verði tilbúin til undirskriftar þeg- ar á þessu ári. 250 milljón börn hafa engan skóla. Þann 7.—16. júlí í sumar verður haldin ráðstefna í Genf að t'il- hlutan Menntunar- vísinda- og menningarstofnunar Sameinuðu Þjóðanna (UNESCO) og Alþjóða kennslumálaskrifstofunnar. Gert er ráð fyrir að fulltrúar frá 90 löndunx sæki ráðstefnuna. Ráðstefnunni hefir verið valið það aðalverkefni að ræða um alþýðuskóla í heiminum al mennt, en þó einkum um aiþýðu- skóla í sveitahéruöum. Rannsókn- ir hafa sýnt, að alþýðuskólarnir eru oft einustu menntastofnanirn ar, sem almenningur hefir aðgang að og það veltur því á miklu, að vel sé á haldið um kennsluna. Ými'3' örrnur verkéfní l'i^gjá'fýrir ráðstefnunni. Það er t'. d. áætlað, að í dag séu í hsiminum 250 millj ónir barna, sem ekki eigá aðgang að neinunx skóla og sem 'ekkí' er útlit fyrir að fái nokkurra skóla- menntun í lífi sínu. ^ Nýjar reglur um kjötnlat í Evrópulöndum. Landbúnaðarnefnd Evrpóu 'héitá samtök, sem vinna í náinni sam- vinnu vig Matvæla: og laixdbúnað arstofnun Sameinuðu Þjóðanna (FAO) í Rónxaborg. í tjefnd. þess- ari eiga sæti fulltrúar frá.fneiia en 20 Evrópulöndum. Nú hófir FAO farið þess 'á' leit við ffássa nefnd, að hún annist rannsólcri á því, hvernig sé háttað aneðfetð og mati kjöts í Evrópulöndum yfir- leitt. Að raixnsókninni lokinni er ætlazt til þess að nefndin geri til lögur um hvernig megi bæta.með ferg kjöts og mat á því svö að vel megi við una. Tillögur um nauðsyn þess að samræma reglur í Evrópulöfidunx xim meðferð og mat á kjöti komu fyrsf fram á ráðstefnu: dýralækna, serii haldin var í Lissabon í Portú gal fyrir skömmu. . Á þessum fundi var s.amþykkt að gera lágmarkskröfur um' rneð ferð kiöts og nxat á því. Var fcekið fram hvað menn teldu helzL-á'bóta vant og hvag bæta þyrftLi Samþykktir L i s sab o n r áðlst e f unnar verða lagðar til grundvallar rannsóknunx og nýrri regluger.ð í þessum efnum. Góðar gjafir til baráttunnar gegu krabba- og hjartameinum. Á tíu ára afmælisþingi Alþjóðar heilbrigðismáiasl'pfnunar Samein-; uðu þjóðanna, sem haldin var, íyr ir skömmu í Minneapolis og þar sem fulltrúar frá 88 þjóðum voru mættir, tilkynnti fúlltrúi Banda- ríkjanna, að Eiseúhower /fprseti hefði ákveðið að Bandaríki'n gæfu 500,000 dollara, sem skyldi verða vxsir að alþjóðasjóði og senx 'verja skyldi til bará'ttunriár gegn skaéð- ustu sjúkdómum mannk’ynhsiris, krabba og hjartatneinum. Fulltrúi Bandarikjanna á þing inu og sá sem las upp tilkynning una var bróðir forsetans, Dr. Milt on S. Eisenhower. ‘BAÐSTOMN SVEINBJÖRN JÓNSSON á Snorra- stöðum, Hnappadalssýslu, sendir þennan þátt dagsettan 11. júní sl. VÍÐA Á Islandi eru merkir, frægir og fagrir staðir, sem fólk fýsir að sjá og skoða. — En þegar ferðazt er um sveitir landsins, er mjög áríðandi að ferðafólkið fari varlega, sérstaklega með eld, svo ekki hljótist skemmdir é. Ég vil strax taka fram að allir eða lang- samlega flestir viija ferðast svo um að ekkert óþægilegt hljótist af. Ég hefi oft tekið eftir, að þar sem ferðafótk tjaldar, gengur það vel um, og þegar það skilur við tjaldstæði, hreinsar það vel allt rusl burt. Er það ánægjuleg- ur menningarvottur. — Þó getur komið fyrir að óhöpp hendi, sér- staklega af eldi, ef ekki er I strangrar varúðar gætt. — UM SÍÐUSTU helgi kom hópur fólks frá Reykjavík vestur í Kolbeins- staðahrepp, aðallega til að skoða hellana í Gullborgarhrauni og að ganga á Eldborg, eftir þvi sem mér faefir verið tjáð. — En svo óheppilega vil'di til, að þegar fólk- ið var að skoða hellana, kviknaði í þurrum mosa þar rétt hjá. Er hætt við að hér hafi vindlinga- reykingar átt sök á. Vitanlega var eldurinn slökktur, eða fólkið hélt að því hefði tekizt það. En annaðhvort" hefir ‘ leynzt þar neisti eftir í mosanum, eða að annars staðar héfir fallið vind- lingsbútur, sem kveikt tíéffr í mosanum, þvi morguninn eftir sást þarna reykur og : var farið að hyggja að. Var þá orginn jll- útbreiddur eldur í mosanum þarna í kring. Um nóttíria. var lygnt veður, svo eiduririn; get’ur hafa verið falinu í mosariúm, en magnazt og breiðzt ' út með morgninum þegar hvessti; Guð- mundur á Heggstöðum,, sem var fylgdarmaður fólksins, . heldur helzt að þetta'hafi orðið svQiia. —- Eftir því sem fólk á næstil bæj- um hefir tjáð mér, varð það ckki vart við nokkra manriáferð þáf ria um, frá þvi fyrrnefndur íöliká- hópur fór þar, og til þegs að eld- urinn fór að breiðast út morgun- inn eftir. MENN AF næstu bæjum fóru tii að hefta útbreiðslu eldsins. Voru það alls 8 röskir manri, og tókst þeim á löngum tíma ’að komast fyrir eldinn, svo 'hann-tírefddist ekki út meira en orðið. var. Var þá brunninn mosi á býsna stóru svæði. En hefði verið örlitlu síðar að þessu komið, hefði eldurinn komizt í lyng og kjarr, sem er þar nærri, og liefði þá slökkvi- starfið orðið hálfu erfiðara ' og stórtjón getað hlotizt áf. En' sem betur fór heppnaðist að'slökkva þennan eld. Ekkert óhapp ;vildi til, er hópurinn gekk á JEldborg. En þar er meiri hætta/ ef kvlkn- 'ÍFramhald á 8. áíðu)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.