Tíminn - 29.10.1958, Page 3

Tíminn - 29.10.1958, Page 3
T í MTN N, migvikndaginn 29. október 1958. 3 Margar dýrategundir komast Ðr. Harlow, hinn heims- kunni sálfræðingur við há- skólann í Wisconsin hefir ný- lega gert fiðraun sem vakið hefir mikða athygli meðal sálfræðinga um heim allan. Tilraun þessi var í því fólg- in að hann !bió til „gervimóð- ur" á tálraunastofu sinni fyrir apaunga, sem hann einnig notaði við tilraun þessa. Gervimóðirin var raunar ekki annað en triá- drumbur sem Harlow klæddi með svampgúmmíi, þar utan um setti hann loðinn dúk. Hann setti og gervispena á „móSurina*' tii þess að full- af án föður — er móðurástin óþörf líka? — Tilraunir amerísks sálfræðings með „gervimóður" nægja mjólkurþörf apaung- anna, hitaði drumbinn upp í líkamshita og í stað augna hafði þessi merkilega móðir tvö kattaraugu af reiðhjól- um! 1 Árangurinn varð ,.móðif, mjúk, heit og viðkvæm, með óviðjafnan- lega þolinmæði, móðir, sem hægt var að leita til allan sólarhringinn, j móðir, sem aldrei skammaði barn 13 ára stúlka — fullþroska kona. Eitskir &arnasérfræ@ingar segja: Stúlkur fullþroska 13 ára Þroskinn færist fram um 5 mánuði á hverj- um fíu árum, segja þeir ennfremur, en geta ekkl skýrt hvers vegna Lýsing á enskri ungiings- stúlku í dag; JHún er púðruð, með „permanent'‘-hárlagn- ingu, litaðar varir og lakk á nöglum. Húin á fimm kjóla í skápnum sínum og á veggn um í herberginu hennar hangir mynd af Elvis Pres- ley — hún er þrettán ára. l’enskum bloðum er skólastúlk- unni i dag lýst þannig, og því bætt við, að árið 1938 hefði ung stúlka á sama aldrá litið öðru vísi út, barnaleg lítil stúlka í leikfimis- skóm, bómulfarsokkum og með úfið hár. Nú l'ítur hún hins vegar út eins og fullorðin stúlka. Fulíþroska 113 ára Barnasérfræðir.guiúnn J. M. Tannor við Heilbrigðisstofnun barr.a í Bretlandi segir: — Tíu ára stúika stendur líkamlega og andlega jafnfætis tólf ára stúlku um aldamótin. Ensku stúlkurnar cru nú fullþroska þrettán ára gamlar og eru þá jafnframt færar um að eignast þörn. Kynslóð móð- ur hennar var nákvæmlega einu ári seinni í þroskanum. Svo virð- ist, sem þroskinn færist fram um fimm mánuði á hverjum tíu ár- um. Engin skýring Sérfræðingarnir geta ekki gefið skýringu á því, hvers vegna börn þroskist fyrr nú á tímum en áður. En breytingin í þessa átt hefir verið greinileg í hinum vestræna heimi á síðast liðinni öld. Árið 1850 var þroskaaldur stúlku 17 ár, um aldamótin var hann 16 ár og 1939 var hann kominn niður í 14 ár. Ef til vill hefir nútíma mataræði einhver áhrif á þetta, kívnnske lika loftslagsbreytingar. Og andrúmsloftið, sem þrungið er af kvikmyndum, vikuritum og nú- Framhald á 8. síðu. sitt en beit það í reiði,“ eins og dr. Harlow orðaði það. Er hægt að komast af án móður? Árangur tilrauna dr. Harlow 'hefir vakið þá spurningu hversu nauðsynlegu hlutverki móðirin gegni í lífinu. Er virkilega hægt að láta trjádrumb koma í móður- stað á svo auðveldan hátt? Margar dýrategundir komast af án föður. Hægt er að láta hrogn ýmissa fiskategunda svo og froska, byrja að klekjast, með því að not- ast við allskyns u'tanaðkomandi á- hrif, svo sem að stinga þau með prjóni, ellegar setja þau í sterka saltupplausn. Slíkt hefur að sjálf- sögðu verið öllu erfiðara í heimi spendýranna, en hefur cngu að síður fekizt með tilraunum á kan- ínum. Einn góðan veðurdag kann svo að fara, að hægt verði að kom- ast af án móður líka. En þessi þró- un ér á algjöru byrjunarstigi, og dr. Harlow verður að láta sér lynda að ungar þeir, sem hann notar við tib-aunir sínar, séu fæddir af venju- legum apamæðrum. Móðurástin ekki útbreidd Móðurástin er ekki jafn útbreidd í heimi náttúrunnar eins og margir kunna að halda. Margar lífverur eins og t. d. plönturnar, verða að láta skeika að sköpuðu með af- kvæmi sín hvort þau lifa eða deyja. í dýraríkinu er ostran ágætt dæmi. Hjá ostrunni er ekkert til, sem heitir móðurást. Móðirin gýtur nokkrum milljónum eggja og faðir- inn öðru eins af frjóum, og skipta sér síðan ekkert af því sem gerist. Árangurinn verður því sá, að ostr- urnar verða einhverju öðru dýri að bráð á fyrsta skeiði tilverunnar. Líkurnar fyrir því að ein ung ostra nái því að verða fullorðin, eru a. m. k. milljón á móti einum. Af þessu draga menn þá ályktun, að móðurástin sé nokkurs konar Hjá gervimömmu. aðferð náttúrunnar til þess að halda fjölgun einstaklinga i skefj- um eða öfugt. Sá einstakMngur, sem ekki nýtur móðurástar, á erfið- ara uppdráttar og hefur minni möguleika til þess að lifa, heldur en sá, sem móðurástarinnar nýtur. Ef að þannig er litið á málið, þá er það vafalaust heilladrýgra að fæða nokkra unga og veita þeim umhyggju þar til þeir komast á legg heldur en að fæða milljónir þeirra og hugsa síðan ekkert um framhaldið! . Hvað verður? Margir kunna að velta því fyrir sér hvers vegna í ósköpunum menn láti sér det'ta í hug, að hægt sé að komast af án móður. Tilgangurinn er ekki sá, að reyna að beina þró- uninni í þá átt að móðurástin þverri, heldur er með tilraumim þessum stigið stórt spor í áttina til að leysa spurningu þá, sent mannkynið hefur verið að veíta fyrir sér allt frá upphafi vega, hvað er þetta Mf?, hvaðan kemur það? og hvert fer það?! Tilraunin með apana, sem dr. Harlow gerði, synit ljóslega að ung arnir voru móðurþurfi. Þeir fundu í trjádrumbnum ýmsa þá eigin- leika, sem ein móðir þarf að hafa til að bera, en drumburmn hafði einnig ýmislegt, eða öllu heldur vantaði ýmislegt, sem móðir hefur nóg til að hera af. Ekki hefur verið um það rætt, hver áhrif þetta k.ann að hafa á líf apanna í framtiðinni, en ef um mennsk börn hefði verið að ræða, má vafalaust telja að nokkuð hefði þótt skorta á uppeidi þeirra þegar fram í sóvti! FelustaSurinn Brezk mynd. Aðalhlutverk: Be- linda Lee, Ronald Lewis, Sýning- arstaður: Tjarnarbíó. Belinda vinnur í sælgætisturni, og á hverjum degi kemur til hennar drenghnokki og færir henni eftir- miðdagsteið. Hann keraur ekki bara til'að gera góðverk og snatt- ast, heldur. er hann orðinn bál- skotinn i Belindu þótt ungur sé, og kemur það heim við þær yfir- lýsingar enskra barnasérfræðinga upp á síðkastið, að börn verði með 'hverju úrinu fyrri til að ná þroska þar í landi. En í sælgætis- turninn til Belindu kemur líka annar náungi stundum, sá, sem Ronald Lewis leikur. _og hann er hreinræktaður gangster og ó- þokki. Sá hefir á prjónunum gim- steinastuld, og þarf til þess aö fá lánaöan einkennishúning lög- regl'uþjóns. Þá notar Belinda sér vináttu drengs- ins til að fá hann til að stela einkennisbúningi frá pabba sín- um„ sem er lögregluþjónn, og gengur það allt að óskum. svo og þjófnaðurinn sjálfur. Síðar kom- ast gimsteinarnir i hendur drengs ins unga fyrir tilviljun, faldir inn- an í gömlum grammófóni, og hann neitar að láta þá af hendi við gangsterinn, sem yglir sig þá grimmdarlega og segir: „Ég drep hann“ á áhrifamikinn hátt. Um RONALD LEWIS síðir fer fram eltingaleikur ofar- lega í hálfbyggðum skýjakljúf, sem lýkur með þvi að lögreglan skerst í leikinn og Belinda snýr baki við gangsternum og gengur þjónum réttvísinnar á vald. Yfirleitt búa Engiendingar til ágæt- ar sakamálamyndir, og er þessi með þeim betri. Hún er blessun- arlega laus við amerískan byssu- bófaskap, og sést ekki skamm- hyssa í allri myndinni, hvað þá að heyrist skothvellur. — Myndin er ailan tímann spennandi og skemmtilega inn í hana flétiað hl'utverki drengsins, sem ágaet- lega er leikinn af Miehael Brooke. Næstur honum hvaö leik snertir, finnst mér koma David McCaBum í hlutverki bróður Belindu, en kannske er það bara af því að hann er í verunni svo óþokkaleg- ur í framan, að manni finnst hann eiga svo \el heima í mynd sem þessari. Belinda er fremur þokkaleg i sjón, en varla svo sér- stök, að hún sé ómissandi fyrir Rankfélagið, enda sagði það henni upp fyr:r nokkrum vikum. Ólafur Gaukur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.