Tíminn - 29.10.1958, Page 7

Tíminn - 29.10.1958, Page 7
T í M I N N, miSvikudaginn 29. október 1958. II SEXTUGUR I DAG Séra Sigurður Einarsson, Holti Sóra Sigurður Einarsson, prest- ui og skálcl í Holli undir Eyja- fjölium, er sexlugur í dag. Hann er fæddur að Arngeirsstöðum í Fljótshlíð 29. okt. 1898, sonur íijónanna Maríu Jónsdóttur og Einars Sigurð.ssonar', er bjuggu þar og síðar í Móakoti í Garða- hverfi. Séra Sigurður varð stúd- ent 1922 og cand. theol. 1926. Seltur prestur í Flatey á Breiða- firði það ár og þjónaði því brauði í tvö ár. Fór þá utan til fram- haldsnáms í Kaupmannahöfn, kynntr sér þar uppeldis- og kennsiumál, ferðaðist um Norður- iönd og Þýzkaland í því skyni. Hann kom heim árið eftir og var eitt ár eftirlitsmaður með kennslu í œðri skólum. Ilann var frétta- maður ríkisútvarpsins frá árs- býrjun 1931, og annaðist þar er- iendar fréttir nokkur ár. Skipaður fréttflstjóri ríkisútvarpsins 1937 og geg'ndi því starfi til 1941. Átti einnig um tima sæti í útvarps- ráði. Árið 1930 var Sigurður settur kennari við Kennaraskólann, og skipaður fastur kennari þar 1932. Árið 1936 fór hann utan og lagði um tíma stund á framhaldsnám í guðfræði við Kaupmannahafnar- háskóla, sótti síðan um dósents- embætti við guðfræðideild háskól ans' hér og veitt það starf haustið 1937, gegndi því til 1944, er hann sagði því lausu, og varð þá um stund skrifstofustjóri í fræðslu:- málaskrifstofunni. Árið 1946 fékk hann svo veitingu fyrir Holts- prestakalli undir V-Eyjafjöllum. Séjra Sigurður hefir og tekið mikinn þátt í félagsmálum, bæði í Rcykjavik og í prestaköllum þeim, er hann hefir þjónað. Hann var t.d. formaður kaupfélagsins' í Fiatey og um tíma formaður Jafn aðarmannafélags ísiands. Árin 1934—37 var hann landkjörinn þingmaður Alþýðuflokksins. Séra Sigurður hefir einnig verið stórvirkur að ritstörfum. Munu hafa komið út eftir hann tólf bæk- ur frumsamdar, ýmist í lausu eða bundnu máli auk allmargra þýddra bóka og fjölda greina í blöð og tímarit og erinda í útvarp. Bækur séra Sigurðar eru þessar: Áíthagafræði 1930, leiðbeiningar í kennsluæfingum í þessari grein, Hamar og sigð, ljóð 1930, Uppelcli og kristindómsfræðsla 1932, Líð- andi stund, safn ritgerða 1938, Miklir menn 1938, Kristin trú og höfundar hennar 1940, íslenzkir bændahöfðingjar 19.il, Ágúst Heigason, endurminningar 1951, Yndi unaðsstunda, ljóð 1952, Und ir stjörnum og sól, ljóð, 1953, Fyr ir kóngsins mekt, sjónleikur, 1954, Yfir blikandi höf, ljóð, 1957. Þá mun séra Sigurður veva nýbúinn að rita bók um ferð sína til Aust- urlanda á síðasta ári og hefir í smíðum leikrit. Þá eru þýðingar séra Sigurðar miklar og of margar til upptaln ingar Ihér, en þar á meðal eru ýmis öndvegisverk eftir heimsfræga höf unda svo sem Oscar Wiide og Sinclair Lewis. Ótaldar eru tný- margar greinar í blöð og tímarit og útvarpserindi mörg. Séra Sigurður var og er meðal vinsælustu útvapsmanna, enda af burða snjall í máli og hugsun. Timaritsgreinar hans vöktu og mikla athygli oft og einatt, og um stólræðurnar þarf vart að spyrja. Þegar allt er iagt saman er séra Sigurður einn áheyrilegasti kenni maður á landi hér. Athygli mín á séra Sigurði Ein arssyni vaknaði á ungnm aidri einkum er ég las tímaritsgreiiíar hans, t. d. í Iðunni. Hressiiegt orðfæri og skarplegar ntliuganir féllu vcl í geð. Síðar kynhlist ég séra Sigurði sem kennara i Kenn araskólanum, og mér verða kennslustundir hans æ minnistæð ar. Málið lék honum á tungu, þrótt mikið og meitlað. Leiftrandi gáf ur og sterkur persónuleiki gerðu hann að hrífandi kennara. Á síðari árum hefir Sigurður þokað isé innar og ofar á skálda bekk og er nú korninn í hóp höfuð skálda. Sumir segja, að hann sé málsnjallasti maður á landi liér. Kannske er það of mælt, en svo málsnjall er hann, að flestir mundu óska sér þess hluiar og láta sér vel iynda. Svo er mál vaxið, að snjöll ræða heíir ætíð verið mér mest eyrnayndi, og svo mun um marga íslendinga. Ræður, greinar og Jjóð séra Sig- urðar hafa hitað mörgum nota lega í ham. Fyrir það vildi ég þakka honum um leið og ég sendi honum afinæliskveðju. Það er ekki æilun mín að rita um hann grein, enda kemur hér á eftir sá, er miklu betur er til þess fær. AK Einn röskasti kennimaður þjóð- arinnar, séra Sigurður Einarsson í Holti undir Eyjafjöllum, er sex- tugur. Slíkan mann þarf ekki að kynna. Þjóðin þekkir hann. Hann hcfur aldrei farið huldu höfði. Honum hefur löngum verið mikið í hug og legið margt á hjarta. Og í þrjátíu ár hafa menn vilað að hann var í röð málsnjöllustu manna í ræðu og riti. Prestsþjónusta, kennsla í kenn araskóla og háskóla, áralöng starf- semi við ríkisútvarpið, þing- mennska og fjöibreytt ritstörf, hafa kynnt manninn og fest hann al- menningi í huga. llann hefur skrif- að tólf bækur og slcrifað fjölda rit- gerða auk allmikilla þýðinga. Straumar, mánaðarrit um krisl- indóm og trúmál, komu út árin 1927—1931. Þar kynntisf ég fyrst Sigurði Einarssyni. Þar átti hann sálrn, stólræður og ritgerðir. Það leyndi sér ekki að þar fór maður, sem var næmur fyrir andlegum hræringum samtíðarinnar og gat talað og ritað svo að það sncrti rnenn. Enda þótt þroskaferill sr. Sig- urðar Einarssonar sé á margan hátt iærdómsríkur, er það ekki tilæti- unin að rekja hann hér. Hins er vert að minnast, að þeir, sem ná eyrum almennings er þeir ræða um þýðingarmestu mál manns og þjóðar, andleg og veraidieg, eru mikillar þakkar verðir. Hvort sem þeir hrífa menn til fylgis við sig eða þrýsta til andstöðu og við- náms, eru þeir vakningarmenn og alþýðufræðarar. Sigurður Einars- son hefur hvort tveggja gert. Hann er búinn að hita mörgum og vekja. Árið 1930 kom út ijóðabókin Hamar og sigð eftir Sigurð Einars- son. Sú bók sýndi það, að hann var gott Ijóðskáld þegar hann vildi taka á því. Síðan hafa komið út eft- ir hann ijóðabækur 1952, 1953 og 1954. Fyrsta bókin einkenndist af á- róðri, enda segir höfundur: ég kveð um glæpi, skip og skitna krakka og skútukarla, berkla, og menn sem ílakka“ og „bið að ljóð mín beri menjar þess, sem brenndi dýpst og sárast hefir-stungið.“ í seinni bókunum er lalsvert um ljóðræna mýkt og angurblíðu og boðskapinn þó allur karlmannleg- ur. „En ég hef líka mætt á mínum leið um þeim mönnum, er mér fyrnast munu síð, sem mitt í þraut með kjarki og huga heiðum sitt heróp reistu: Að skapa nýja tíð. Og þeim er sál mín bundin bróður- eiðum, ég býð mitt veika iið: Þetta stríð“. Honum svall móður, rann til Irifja íátækt og þjáning, tiúði á ■ nýtt þjóðskipulag og geystist fram 1 af baráttugleði. Nú er það mála sannast að ís- lenzkt þjóðlíf hefir mjög breylzt síðan þetta var. Fátækt og öryggis- leysi er ekki til í sömu mynd og þá og þar af leiðir að ýmis þau yrkisefni, sem brenndu dýpst og stungu sárast á þeim árum heyra nú sögunni til. Hitt er jafnvíst að þjóðlífsbæturnar hafa átt sér stað, vegna þess að menn bundust bróð- ureiðum að skapa nýja tíð. Skáldið hefir svo lært það, að engann veginn er allt fengið með skipulagsbótum. Maðurinn sjálfur skiptir mestu. Það er næsta óvenjulegt, að mað ur, sem er búinn að gegna vegleg- um og eftirsóttum embættum í Reykjavík hverfi þaðan aflur og út á land. Sigurður Einarsson var meðal annars háskólakennari og al- þingismaður. Síðan gerðist hann sveitaprestur austur undir Eyja- fjöllum. Þetta er sérkenniiegur ferill en hann stendur í rökréttu órofa samrbandi við kjarnann í lífskoð un séra Sigurðar. Ilann verður því þjóðræknari sem árin fær.-ist yfjr hann. Þá er íslenzk tunga orðin auðurinn mikli sem ævin gaf hon' um og eitt land er ættjörð hans, veðrum sorfið, vangafölt og vind svalt. Honum verður það ijósara eftir því sem lengra líður hvar hann á rætur og frá hverju hann er vaxinn. Þjóðin, sagan, tungan og landið hrífur hann stöðugt fasta.r til sín. Nú er honum það ljóst að það er „amlóðans nauma sérhljfð, sem dæmir vart þar þeim dómi, sem hvorki drottinn né lífið vill náða“ og — „þeir, sem nenna að lifa og þora að deyja, skapa einir þau verk, sem á jörð eru nokkurs nýt.“ En jafnframt því, sem hann verð ur landi sínu handgengnari þar sem hann finnur rætur sínar og tengsl við það, skilur hann an iu slitahríð íslenzkrar sjálfstæðisbar áttu og menningarbaráttu stend ur nú einmitt þar, sem úr því er skorið hvort við erum rnenn til að nytja þetta land eða ekki. Og hvað er þá eðlilegra en köll un sveitaprestsins hrífi hano. „Og nú er okkur, vinir, afj verja þessa garða undir vorsól þúsund ára og sumar- döggum! Að byggja okkur bæ, að bera á teig og völl, að sækja okkar sæ, rækta sígræn tré um fjðll, þót|. veröld knýi á dyr með liörðum höggum! Framhald á 8. síðu Til umræíiu á Alþingi í fyrradag: Tollskrá - bifreiðaskattur - útflutn- ingur hrossa og iðnlánasjóður Fundir voru í báðum deildum Alþingis í fyrrad. Á dagskrá efri deildar voru tvö mál. í fyrsta lagi frumvarp um toll- skrá o. fl., og var það tekið af dagskrá í öðru lagi frurn- varp um bifreiðaskatt o. fl., til þriðju umræðu. Var það afgreitt til neðri dcildar með 10 samhljóða atkvæðum. Á dagskrá neðri deildar voru tvö mál. Hið fyrra var frumvarp um útflutning hrossa, 3. umræða. Var því vísað samhljóða til efri deildar. Hitt var frv. um iðnlána- sjóð, 1. umr. Máiinu vísað til 2. umr. og fjárhagsnefndar. Eftirtalin ný þingskjöl voru lögð fram. Nefndal'álit um frv. tii laga um heimild fyrir ríkis- stjórnina til að innheimta ýmis gjöld 1959 með viðauka, frá fjár- hagsnefnd. Nefndin mælti með sarnþ. frv. f öðru lagi frv. til laga um bi-eyting á lögum um almanna tryggingar, flutningsmenn Skúli Guðmundsson og Benedikt Grön- dal. Miðar frv. að því, ,að sú breyting verði gerð á takmörkun- arákvæðum tryggingarlaganna, grein, að með þeim. tekjum, sem valdið geta kckkun eða niðurfell- ir.gu lífeyris frá Tryggingarstofn- un ríkisins, skuli ekki telja þann lífeyri, sem menn liafa keypt hjá öðrum tryggingarstofnunum eða sérstökum lífeyrissjóðum.“ Þá er frv. til laga um breyt- ingar á lögum um tekjuskatt og eignaskatt, flutt af Sigurði Ágústs syni, Birni Ólafssyni og Kjartani Jóhannssyni. Fjallar frv. um að „fella niður tekjuskatt sjómanna af þeim tekjum, sem þeir afla yfir þann tíma, semj þeir eru flögskráðir á ís’lenzk fiskiskip á skattárinu.“ A víðavangi Ummæli Emils Mbl.menn liafa verið aff- dunda viff það öðru hvoru nú undan farið, að dorga einstaka setning- ar upp úr ræðu þeirri, er Emil Jónsson flutti við fyrstu um- ræðu fjárlaganna og matbúa þær á Mbl.-vísu. Úr því a'ff Mbl. hefir hafið þennan leik, er rétt að' benda á, að ýinislegt það kom fram í ræðu Emils, sem Mbl. hcf- ir tæplega ástæðu til aö telja sér til tekna. Til dæmis sagöi Emil um stjórnarandstöffuna: „Þegar stjórnarandstaffan, Sjáif stæðisflokkurinn, nú er að deiia á ríkisstjórnina fyrir míverandi þróun mála, fer honum það held- ur illa, því hann hefir átt sinn þátt í því sama og raunar stund- um í mikhi stærri stíl, enda licfir hann engar tillöigur borið fram til úrbóta á neinu sviði og enga tilraun gert í þá átt. Sem sagt ekkert láið í sér heyra ueina neikvæða gagnrýni.“ Á öðrum sað í ræffunni segir Emil: „Annað hefir þessari hæst- virtri ríkisstjórn vel tekizt og það er að viðhalda fullri atvinnu í landinu og bæta verulega at- vinnuástandið víða um land að minnsta kosti. Hefir atvinnuá- standiff sennilega sjaldan eða aldrei verið betra en nú hin síð- ustu misseri." Vel má vera, að þeir Mbl.meiin liafi enga hugmyiid um þessar staðreyndir. Þess hefir aldrei orðið vart ,að það hafi raskað svefnró þeirra, hvort alinenning- ur út um land hefir haft meiri atvinnu effa minni. En seniiilega er fólkið sem atvinnuúnar nýtur, á öðru máli en Mbl. Þaö fólk veit, að úr íhaldsáttinni á það ekkert að þakka. Blóðþrýstingur Ólafs Alþýðublaðið segir svo, út af dýrtíffarskrifum Mbl.: „Auðyitað’ er hverju orði sannara, að kapp- hlaup kaupgjalds og verðlags þarf að stöðva. En vinnustéttirn- ar hljóta að krefjast þess atvinnu öryggis, aðTaunin standi því að eins í stað, að hafffur sé hemill á verðlaginu. Sömuleiðis ciga þær að sjálfsögðu kröfurétt á sínum Iiluta af auknum þjóðar- tekjuni. Vissulega stendur .ekki á verkalýðshreyfingunni að sætta sig við þetta. Þvert á móti. Af- staffa hennar liefir jafnau verið sú, að leggja ríkari áherzlu á kaupinátt launanna en krónu fjöldann. En öðrum aðilum liefir gcngið báglega að ganga til móts við þessa stefnu verkaiýðshrcyf ingarinnar og tryggja henni framgang. Mbl. kannast við suma þeirra. Ýmsir íslending'ar græða á verðbólgunni og dýrtíffinni, en verkalýðshreyfingin er ekki í þeirri sveit. Svo eru til stjóru málamenn, sem telja verðbólg- una áþekkasta blóðrásinni í mannslíkamanum og virðast álíta farsælast, að blóðþrýstingurinn sé sem mestur. Ólafur Thors. er aðalhöfundur þessara læknavís- inda efnahagsmálanna, en verka lýðshreyfingin er ekki slíkrar skoðunar. Hins vegar fer hún ekki varhluta af afleiffinguin þess hugarfars, sem einkennir vísinda niðurstöðu Ólafs Thors“. Er því treystandi? Mbl. þykir nokkuð skorta á nægilega hreinskilni hjá Einil Jónssyni þegar liann segir aff íhaldinu farist illa að deila á rík- isstjórnina fyrir aðgerðir herinar í dýrtíðarinálunum, þvi sjálft hafi það gerzt sekt mn sömu „syndir“ en bara í mikiu stærri stíl. Þessum áburði til afsökunar segir Mbl.: „Á nær þriggja ára valdatima Ólafs Thors, 1953—-1953 jukust, opinberar skuldir eriendis ein unigis um 130 millj. kr.“ Fyrir hverskonar þokulýff er Mbl. skrif að? Gera ritstjórar blaðsins ráð fyrir að lesendur þess stándi á því andlega þroskastigi. að þeir inuni ekki stundinni lengur livað i blaðinu stendur? Hefir ekki Mbl. verið að rausa um það, aff Framhaid á 8. síðu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.