Tíminn - 26.03.1959, Blaðsíða 8
8
TÍMINN, fimmtudagfnn 36. marz 1959.
Leiksýning
í Kópavogi
(Framhald af 6. síðu)
Sérstaklega var leikur Auðar
skemmtilegur, fjörmikill og áhrifa
ríkur, enda gefur það hlutverk
meiri tækifæri en hlutverk Gullnu
Lindar. Auður sýndi skemmtilega
hið kínverska afbrigði af heimskri
meinfýsinni og hrokafullri konu.
Framsögn hennar var einnig góð.
Þar er auðsjáanlega góð leikkona
á ferð.
Leikur og gervi kínversku hers-
höfðingjanna Árna Kárasonar og
Einars Guðmundssonar vakti ó-
skipta kátínu, enda voru þær mann
gerðir skemmtilega stílfærðar —
t.d. göngulagið. Leikur Einars var
kómiskur vel, þótt hershöfðingja-
braginn vantaði á framsögnina. —
Sigurður Grétar Guðmundsson
lék garðyrkjumanninn, betlarann
og skáldið, eiginmann Mæru Lind-
ar, þann er síðar varð keisari. Leik
ur hans var traustur en tilþrif
ekki mikil, og framsögn hans var
ekki nógu góð, en það á við leik-
sýninguna sem heild.
Ágústa Guðmundsdóttir lék fagra
prinsessu Ríkisins í vestri, drykk-
fellda og lausláta. Leikur hennar
var bráðskemmtilegur, framsögn
allgóð, hreyfingar fagrar og til-
þrifamiklar. Af öðrum hlutyerkum
má sérstaklega nefna Loft Ámunda
son sem lék böðul. Gervi hans og
láíibragð var stórkostlegt og til-
þrif í starfi fagmannleg. Margir
fleiri leikendur koma þar fram og
leika þjóna, biðla, þernur, her-
menn, leiksviðsfólk o.fl. Eru það
Gestur Gíslason, sem lék þjón og
landamæravörð mjög vel, Valur
Haraldsson, Hugrún Gunnarsdótt-
ir, Pétur Hreinsson, Steinunn
Maríusdóttir, Líney Bentsdóttir,
Huld Jónsdóttir, Kristín Harðar-
dóttir, Hildur Jóhannesdóttir og
Margrét Guðmundsdóttir. Ljósa-
melstari var Sigurðui- Hjartarson,
lelksviðsstjóri GuðmunduI• Guð-
mundsson.
Þessi leiksýning er góður sigur
fyrir Leikfélag Kópavogs og ætti
hann að verða félaginu lyftistöng
til næstu verkefna. Og sýningin öli
er svo skemmtileg og sérstæð að
óhætt er að hvetja fólk til þess
að sjá hana.
—AK
Þýzku brynningartækin
eru komin. Pantanir óskast
sóttar sem allra fyrst. Ör-
fáum tækjum óráðstafað.
Þetta eru ódýrustu brynn-
ingatækin á markaðnum.
Fimmtugur: GuSbjarni Þorvaldsson
skipaafgreiðsltunaSur
Guðbjarni Þorvaldsson, af-
greiðslumaður Skipaútgerðar ríkis
ins á ísafirði, átti fimmitugsafmæli
23. þ. m.
Hann er fæddur að Efstabóli í
Önundarfirði 23. marz 1909, sonur
hjónanna Þorvaldar Þorvaldsson
ar og Kristínar Halldórsdóttur, er
þar bjuggu. Áttu þau hjón átta
börn, fimm stúlkur og þrjá pilta.
Guðbjarni ólst upp með foreldr-
um sínum að Efstabóli og síðar ac.
Kroppsstöðum í sömu sveit. Eins
og flest ungmenni á þeim tíma
tók hann snemma þátt í hinum
daglegu störfum við búskapinn
og á árunum um og eftir 1931
stundaði hann sjómennsku í nokk
ur ár. Hann var við nám í Laugar
vatnsskóla í tvo vetur og lauk það
an prófi vorið 1933.
í ársbyrjun 1934 fór Guðbjarni
til Akureyrar til að nema þar
mjólkuriðnað hjá Mjólkursamlagi
KÉA og að námi loknu vann hann
þar einnig um blma. Á árinu 1937
var liann svo ráðinn forstöðumað-
ur Mjólkurstöðvai' Kaupfélags ís-
firðinga, og það starf hafði hann
svo á hendi óslitið þar til í ágúst-
mánuði 1956, eða nærfellt í tvo
áratugi. Frá ‘1. sept. 1956 hefir
hann svo verið af'greiðslumaður
Skipaútgerðar ríkisins á ísafirði,
og frá sama tíma umboðsmaður
Dvalarheimilis aldraðra sjómanna.
Guðbjarni Þorvaldsson hefir
jafnan látið margs konar félags-
mál til sin taka. Hann ann hugsjón
samvinnustefnunnar og hefir allt-
af verið einlægur talsmaður henn-
ar. í þjóðmálum fylgir hann Fram-
sóknarflokknum, og er bæði árvak
ur og skeleggur baráttumaður.
Hann er einn af stofnendum Fram
sóknarfélags ísfirðinga og hefir
átt sæti í stjórn félagsins frá stofn
un þess. Á Akureyrarárum sínum
var hann og einn af stofnendum
Félags ungra Framsóknarmanna
þar í bæ. Síðan Guðbjarni flutti
til ísafjarðar hefir hann verið
einn af allra virkustu félagsmönn-
um í Skíðafélagi ísafjarðar og átt
sæti í stjórn þess félags í 15 eða
16 ár, fyrst sem gjaldkeri félags-
ins og síðustu 11 árin hefir hann
verið formaður þess. Mjög mikið
starf hefir því eðlilega mætt á
ARNI GIESTSSON
UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN
Hverfisgötu 50. Sími 17148.
honum í sambandi við rekstvu’
skíða'skólans og aðra starfsemi fé-
lagsins.
Guðbjarni er mikill áhugamað-
ur um skák og hefir árum saman
átt sæti í stjórn Taflfélags ísa-
fjarðar, og tekið þátt í kappmót-
um, er féiagið hefir staðið að,
enda mjög liðtækur skákmaður.
Síðustu árin hefir Guðbjarni átt
sæti í Yfirskattanefnd ísafjarðar-
sýslu og ísafjarðarkaupstaðar.
Guðbjarni er maður ágætlega
greindur og starfhæfur, og er því
vel séð fyrir hverju því máli, er
hann tekur að sér að annast.
' Árið 1938 giftist hann Elínu
Árnadóttur frá Þverá í Svárfaðar-
dal, hinni ágætustu konu, og hafa
þau eignazt þrjú börn, tvo pilta
og eina stúlku.
J. Á. J.
KVIKMYNDIR
Framhald af 3. síðu.
Kóngurinn og ég
konungur kveður hana eiga að
búa með syni sínum í kvennabúr-
inu hjá konum hans og börnum
þeirra. Konungi berast fréttir um
að Englendingar álíti hann siðleys
ingja og viilimiann og sárnar hon-
um mjög. Von er á senclihcrra
Breta til Síam og skipar konung-
ur Önnu að undirbúa veizlu fyrir
hann og skal þar allt vera á vest-
ræna vísu. Veizlan fer hið bezta
fram, en að henni lokinni ákveð-
ur Anna að yfirgefa landið og
haida aftur heim til Englands. Þá
kemur lafði Thing, 1. eiginkona
konungs til hennar og grátbiður
hana að vera kyrra, þvi að nú
þarfnist þau aðstoðar hennar frem
ur en nokkru sinni fyrr, þar eð
konungur hafi fengið hjartaslag og
liggi á dánarbeði.
Anna lætur tilleiðast að ganga
á fund konungs, þar sem hann
liggur umkringclur konum sínum,
börnum og prestum. Þar fær hann
völdin í hendur syni sínum, sem
Anna hefir kennt, og er ljóst, að
ungi prinsinn mun verða mildari
konungur en faðir hans var vegna
áhrifa frá kennslunni, sem hann
hefir hlotið. Þvínæst gefur kon-
ungurinn, sem orðinn er kær vin-
Verzlunarfólk og unglingar,
sem hyggja á verzlunarnám
Samviruiuskólinn Bifröst byrjar nýja verzlunarfræðslu í vor, ætlaða
deildarstjórum og afgreiðslufólki sölubúða. Kennt verður í 3 vornámskeið-
um á 2 árum, auk bréfaskólanáms.
Þeir. sem nám stunda, eiga að vera á samningi hjá viðurkenndu
verzlunarfyrirtæki.
Hér gefst nýtt tækifæri til undirbúnings verzlunarstörfum.
Fyrsta námskeiðið verður um miðjan maí í vor. Nánari upplýsingar í
Samvinnaskólanum Bifröst eða fræðsludeild SÍS.
SAMVINNUSKÓLINN BIFRÖST.
Ef ég væri 21 árs
(Framhald af 5. síðu)
ekki hægt að flokka eftir neinum
reglum. Það eru engir 2. flokks
borgarar né 2. flokks verkamenn.
Handverksmaðurinn stendur
jafnfætis dómaranum og framlag
vörubílstjórans til frjálsrar, styrkr
ar þjóðar, er eins ómissandi og
framlag framkvæmdastjórans.
Einstein skrifaði einu sinni, að
ef hann ætti að byrja aftur frá
grunni, myndi hann gerast rör-
lagningamaður. Hversu niargir okk
ar væru ekki betur settir, jafnvel
þótt við værum ekki eins hæfi-
leikum búnir og Einstein, ef við
stæðumst hina hégómlegu freist-
ingu að taka hvíta flibba starfið
í stað þess að fylgja okkar innri
hvöt og vinna hörðúm höndum af
öllum líkamsþrótti okkar. Það er
ólýsanleg fullnæging fólgin í því
að byggja, gera við og framleiða
með eigin höndum ....
Hversu margir væru ekki ham-
ingjusamari, þegar þeir kæmu
heim að kvöldi dags með óhrein-
ir.di undir nöglunum í staðinn fyr
ir ‘blelfelettui' á höndunum og
þreyttir en ekki taugaveiklaðir.
Það væri alveg sama í hvaða
starf ég réðist 21 árs gamall, ég
myndi aldrei álíta að það væri mitt
síðasta. Eg myndi ekki hika við
að leggja gjörva hönd á margt í
leit að fullnægju og þótt ég vissi,
hve. erfitt það er, myndi ég takast á
hendur erfiðari viðfangsefni, en
ég væri viss um að geta leyst, enn
fremur myndi ég vinna fyrir mér
meiri og betri menn.
Ýmsa hluti má kaupa of dýru
verði. Eg myndi ekki slá af sann-
færingu rninni vegna vegtyllna, né
fórna sjálfsvirðingu minni til að
þóknast húsbónda mínum. Þá er
betra að vera reltinn fyrir rétt-
iátan málstað, en fórna skoðunum
sínum á altari ranglætisins . . .,
Samvizkan er brotgjörn. Hún
deyr auðveldlega, en sársaukinn
varir svo lengi sem lifir. Þú þarft
að lifa með sjálfum þér og sýndar-
mennskan er óþægilegur lífsföru-
nautur ....
Eg myndi leggja stund á íþróttir
til viðhalds heilsu minni og al-
mennri vellíðan. Enda þótt ég væri
óvanur íþróttum og þátttaka mín
því meira af vilja en mætti, er ég
þess fullviss, að það er bæði heil-
brigðara og vænlegra til fullnæg-
ingar að taka þátt i leiknum af tak
markaðri getu, en horfa á afburða-
manninn leika listir sínar . . .
Að lokum þetta: Lifðu heiðar-
legu, óttalausu og glaðværu Iífi,
og gleymdu því ekki, að þegar allt
kemur til ails, eru það ekki árin í
lífi þínu, heldur lífsmagnið í ár-
unum, scm skiptir mestu máli.
Stytt og lauslega endursagt úr
Coronet.
ur Önnu þrátt fyrir alla miskllð,
rólegur upp öndina.
Parísarstúlkan
meiin, „w.** cjl.U staddir þar ásamt
lagskonum sínum, svo gaman af
hnyttnum tilsvörum blómasölu-
stúlkunnar á staönum, að þeir
ákveða að gera hlutafélag um að
„hjálpa" henni. Síðan koma þeir
lienni fyrir í stórri íbúð, og ganga
hver öðrum vasklegar fram í að
kenna henni mannasiði, en reyna
hver fyrir sig jafnframt að koma
sér í mjúkinn hjá henni. Þeir láta
hana koma fram í revíu, en þar
verður hún ástfangin af alræmd-
um kvennabósa, sem þó yíirgefur
hana eftir að hún hefir verið ást-
kona hans' um hríð.
Veltur á ýmsu
Síðar u- .o blomasulustúlkan
fyrrverandi í tæri við rússneskan
prins, en einnig það ástarævintýri
fer í hundana. Um skeið veltur á
ýmsu. Hún hittir listmalara og á
von á barni. Síðar gengur á veizlu
höldum og glasaglaum en lýkur
öllu með skelfingu, sjálfsmorð-
lis'tmálarans og stórhneyksli.
Til móts við unnustann
Enn ... ... um svið. Vio erum
aftur á Orly flugvelli. Konan hefir
lokið við að sýna dótlur sinni svip
myndir úr lífi sínu, en dóttirin
vill sjálf ráða sínu lifi og heldur
til móts við unnustann í Dakar.
TakíS örlög yðar í slgiit
bendur
(FrkmhaV af 5. «ífíu)
um 53 milJj. króna reiknað á ná-
kvæmlega sama hátt og tölur ein-
staklinganna. Væri Sambandið fé-
lag, sem hefði gróða að takmarki,
eins og einkafélögin, mundu eignir
þess vera mikiu meiri. Svo er ekki,
og tekjuafgangi hefur verið skilað
til kaupfélaga og þaðan til néyt-
enda í stað þess að breyta honuni
í eignir. Það nemur tugum millj-
óna.
Til samanburðar við þetta má
benda á, að 29 ríkustu einstakling-
arnii' á landinu áttu 250 milljónir,
eða tæplega fimm sinnum meira en
Sambandið, sem er eign 30.000 fé-
lagsmanna i 56 kaupfélögum.
Ef lagðar eru saman eignir fjög
urra ríkustu manna landsins, senl
áður var getið, eiga þeir samtals
um 55 milljónir króna, eða nökkru
meira en Sambandið. Þetta eru
allt óvenjulegir athafnamenn, sem
hafa komið viða við í 'Starfsemi
sinni. Væru reitur þeirra lagðar
saman í eitt fyrirtæki, til saman-
burðar við Sambandið, mundi unnt
að skipta því í allmargar deildir:
Tryggvi Ófeigsson og Einar Sig-
urðsson eiga mikla togaraútgerð,
en það á Sambandið ekki. Báðir
eiga þeir frystihús, þar á meðal tvö
hin stærstu í landinu, hús Júpiters
óg Marz á Kirkjusandi í Reykja-
yík og . Hraðfrystistöðina í Vest-
mannaeyjum. Allir eiga þeir mikl
ar húseignir víða um land, þar á
meðal stórhýsi í miðbænum í
Reykjavik t. d. Reykjavíkurapótek
Schevings, Þeir eiga smásöluverzl
anir. Einar og Tryggvi eru stærstu
aðilar í Jöklum h. f., sem eiga kaup
skip, og allir eiga þeir myndai’lega
í Eimskip. Eggert Kristjánsson á
eitt mesta innflutnings- og heild-
sölufyrirtæki landsins og hinir
eiga í Miðsöðinni h. f., sem er
stór heildsala. Eggert á iðnað: kex-
verksmiðjurnar Frón og Esju og
mi'kið í matvæianiðursuðunni Mata
h. f. Einar á prentsmiðju og Eggert
er stór hluthafi í Steindórsprenti.
Þeir eiga í dagblaðinu Vísi, og
Stuðlum h. f. (sem er peninga-
legur bakhjaii Almenna bókafélags
ins) og svo eru ótaldir fjölmargir
hlutir í öðrum fyrirtækjum.
Er þetta ekki bærilegur hringur,
sem fjórir menn ráða yfir? Ekki
þuría þeir að mæta á árlegum að-
alfundi fulltrúa 30.000 lands-
manna. Ekki gefa þeir út prentað
ar skýrslúr um starfsemi sína.
Samt er aldrei minnzt á þessa
menn, þegar verið er að básúna
staerð og veldi Sambandsins, sem
á að vera að sliga þjóðfélagið.
900 smésöluverzlanir eru
í Reykjavík en lítill áhugi
kaupmanna fyrir verzlun á
Bakkafirði og Salfhólmavík
Þessu til viðbótar er forvitnilegt
að kynna sér dreifingu smásölu-
verzlana i Iandinu.
Kaupfélögin verzla allt í kríng
um landið og sumstaðar eru þau
með einu verzlunina í plássinu, að
allega í fámennum byggðpm eða
þorpum. Nú vaknar sú spurning,
hversvegna kaupmenn verzla ekki
á þessurn stöðum.
í Reykjavík einni eru hátt á
níunda hundrað smásöluverzlanir,
en þess sjást ekki merki, aS eig
endur þeirra hafi áhuga á verzlun
armálum í Salthólmavík eða á
Bakkafirði. Þetta sýnir glögglega
þá staðreynd, að einstaklingar
flytja fjármagn sitt til í verzlun-
inni, og hrúgast þangað, sem þeir
telja ‘hagnaðarvon mesta. Það er
lögmál fjármagnsins.
Kaupféiögm eru hins vegar bund
in átthagaböndum. Þau eru stofn-
uð af fólkinu’í hverju 'by.ggðarlagi
til að þjóna því, ogþeim er stjórn
að af þessu sama fólki. Þau.flýja
ekki heimabyggð sina, hvað sem á
dynur.
Það er þessi staðreynd, sem hefir
skapað samvinnufélögunum traust
alþjóðar og þetta traust hefir gert
þeim kleift að lyfta Grettistökunjr
samvinnivhreyfingumii og þá 1114
I leið þjóðinni allri til ómetanlegi
gagns og blessunar.
I (Helzta heimildarrit. fslenzkt
1 samvinnustarf).