Tíminn - 25.04.1959, Síða 3
r í M I N N, laugardaginn 25. apríl 1959.
3
Prinsessur Evrópu virðast hafa á-
huga á horgaraiegum hjónahöndum
Fyrir nokkru skýrðu enskj
blöS frá því furðu lostin, aS.
Astrid Noregsprinsessa hafi
í hyggju að giftast 33 ára
gömlum fráskildum Frakka,|
Johan Martin Ferner. Þau
munu hafa dvalizt um pásk-
ana ásamt Óiafi konungi í
fjaltakofa einum í Síkisdal.
Systir Astrid, Ragnhildur
prinsessa giftist fyrir nokkr-
um árum skipamiðlara ein-
um, svo Norðmenn eru nán-
ast orðnir því vanir að fólk
úr konungsfjölskyldunni gift
ist inn í raðir almennra borg
ara.
Kóngafóik skePingu losfió vegna þessa —
biandast rautt biéð bláu?
En í' Englandi er mönnum enn
í í'ei'.sku minni samband þeirra
Margr. prinsessu og Peters Tovn-
Alexandra Englandsprinsessa.
send, og menn Ivfta þar þrúnum
er þeir heyra að nú hafi enn ein
prinsessan ,,fallið fyrir rauðu
blóði“ eins og það er orðað.
Jazzklúbbur
Hvað segja prinsarnir?
Nú spyrja menn hver annan
hvað ’hinir fjölmörgu prinsar í
Evróp'U segi um að missa þannig
hverja prinsessuna á fætur annari
út úr höndum sér. Prinsessur gift-
ast verzlunarmönnum, lögfræðing-
um, skipamiðlurum, og allt virð-
ist benda til þess að ,,'blátt blóð“
sé sem óðast að blandast rauðu.
Það er tæplega ár síðan Baudoin
Belgíukonungur efndi til mikils
dansleiks, til þess að reyna að
finna þar einhverja prinsessu við
sitt hæfi, en ennþá er stóll drottn
ingar við belgísku hirðina auður.
Vilja prinsarnir
prinsessur?
1 Þegar Baudoin hélt dansleik
sinn, var getið um 16 prinsessur,
sem væru ólofaðar. Nú eru þær
ekki nema 15 eftir, sem þannig er
ástatt um og hver veit nema talan
lækki enn á næstunni. Menn full-
yrða að Baudoin — þrátt fyrir
vetrarfrí sitt með Irene Hollands-
prinsessu — hafi í hyggju að
ganga að eiga Boudbon-Parma
prinsessuna Maríu Therese, og það
er kannske klókt af kóngi að v-elja
sér maka meðan úrvalið er fyrir
hendi! Þegar allt kemur til alls,
eru ógiftar prinsar öllu fleiri en
prinsessurnar, enda þótt þeir séu
ef til viil ekki allir jafn útgengi-
legir og Baudoin. Sem dæmi má
nefna frænda Elisabetar Englands
drottningar, hinn 24 ára gamla
hertoga af Kent, Harald Noregs-
krónprins o.fl.
Hvað um sænsku
prinsessurnar
Hinn 19 ára gamii Grikklands-
I prins, Constantine, hefur gert hos
j ur sínar grænar fyrir sænsiku kon
i ungshirðinni, og verið kynntur
þeim Desirée og Birgittu, Svía-
prinsessum, en þær eru báðar ólof
aðar og um tvítu^t. Á síða.stliðnu
ári heimsótti Desirée grísku kon-
ungshirðina og þá gengu miklar
sögur um samdrátt Constantines
og hennar í Aþenu.
Á hinn bóginn virðist Birgitta
hafa haft áhuga fyrir „rauðu
blóði'", en reynt var að kæfa þann
áhuga hennar á meðan Douglas-
Home málið stóð sem hæst. Nú
er svo sagt að Sahinn af Persíu
líti hana hýru auga, og víst er um
það, að hinn glæsilegi fyrrv. eigin
maðiir Sorayu á eftir að reynast
prinsum Evrópu skæður keppinaut
ur um hylli Birgitt prinsessu.
15 prinsessur eftir
Eins og málin standa nú, hafa
prinsar Evrópu aðeins 15 prinsess
ur á giftingaraldri til þess að
velja úr. Á hinn bóginn er ekki
að vita nema einhverjar þeirra
fari að dæmi hinna norsku stéttar
systra sinna, og giftist inn í borg-
araættir. Það er því ekki að f-urða
að kóngafólk í Evrópu sé felmtri
lostið, og þyki sem prinsessurnar
norsku heldur betur tekið niður
fyrir sig.
Hér sézt þaö atriði úr kvikmyndinni, er Frantz von Werra er handtekinn.
Kvikmynd gerð um von Werra
Hann var eini ÞjéÓverjinn, sem tókst að sfrjúka
úr faRgabúÓBm Brefa í stríöinu
smm::
Birgitta og Desirée, Svíaprinsessur.
Brezka kvikmyndin „AS-
eins einn komst af" endur-
skapar fullkomlega hin ótrú-
legu ævintýri, sem þýzki
orrustuflugmaðurinn Frantz
von Werra ienti í, þegar
hann flýði úr fangelsi Breta.
Hann var eini þýzki hermaður-
irm, sem heppnaðist flóttatilraun
úr íangabúðum Breta í heims-
styrjöldinni. Hann hafði gert
tvær tilraunir til flótta, sem mis-
heppnuðust áöur en honum heppn
aðist að ganga að fullu úr greip-
um B.rela.
„Ljósmynd af mér"
Hardy Kruger, sem leikur von
Merra í kvi.kmyndinná, flýði sjálf
ur 3 sinnum í heimsstyrjöldinni
— en frá Bandaríkjamönnum.
Einnig hann hafði heppnina með
| sér í þriðju atrennit.
Hardy Kruger og von Werra
eru furðulega líkir í útliti, og
l.vikmyndin nær hinum raunveru-
legu atburðm með slíkm ágætum
að furðu sætir.
Þegar Frantz von Werra heppn-
aðist þriðja flóttatilraunin, sneri
hann heim tij Þýzkalands og gifti
sig. — Aðeins hálfu ári seinna —■
í apríl 1941 — fórst hann yfir
Norðursjó í árásarferð til Eng-
lands.
Þrjár flóttatilraunir
j Enski framieiðandinn, Julian
\vintle, skrifaði eftir stríðið til
ekkju von Werra og fékk lánað-
ar ljósmyndir þær, sem til voru
af von Werra. Hins vegar bað
ekkjan um, að það yrði ijósmynd
af sér, sem Hardv Kruger í hlut-
verki Frantz von Werra kíkir á í
kvtkmyndinni!
Þrællinn, sem varð milljónerí
Aðalfundur Jazzklúbbs Reykja-
víkur var haldinn í Framsóknar-
húsinu, laugardaginn 18. apríl og
hófst kl. 2.30 e.h. Gjaldkeri félags-
ins, Árni Egilsson var settur fund
arstjóri í fjarveru formanns, Krist
ir.s Vilhelmssonar Tómas A. Tómas
son ritari skýrði frá starfsemi
klúbhs'i'ns á áranu. Síðan las gjald-
ikeri upp reikninga, og voru þeir
samþykktir. Þá fór fram stjórnar-
k.jör og voru kosin í stjórn: Tómas
A. Tómasson formaður og fram-
kvæmdastjóri, Ragnar Tómasson,
gjaidkeri, Guðbjörg Jónsdóttir rit
ari. Meðstjórnendur: Jón Páll
Bjarnason og Þórarinn Ólafsson.
í varastjórn: Árni Scheving og
Gunnar Morgensen. Endurskoð-
endur: Pálmi Lðrenzson og Hrafn
Pálsson. Einn skemmtifundur mun
verða haldinn áður en þessu starfs
ári lýkur og mun þar m.a. koma i
fram tríó Rristjáns Magnússonar. <
Margrét Englandsprinsessa
Hinn 96 ára gamli Damon
Lee getur horft um öxl yfir
farinn veg, og sagt að líf
hans hafi veriS hreinasta
ævintýri. Hann fæddist á
plantekru í Alabamafylki í
Bandaríkjunum og fyrstu ár
bernsku sinnar vann hann
þar sem þrælt. í dag er hann
hins vegar margfaldur millj-
óneri.
Á meðan þrælastríðið geisaði,
tókst föður Damons að strjúka úr
þrældómi, og ganga í lið með
Norðurríkjamönnum, en drengur-
inn vann áfram ásamt móður sinni
á plantekrunni, og' gekk svo í
nokkur ár — jafnvel eftir að frið-
ur hafði verið saminn.
Gleymska eigandans
Eigandi þeirra mæðgina gleymdi
nefnilega að kunngera þeim að
stríðið væri búið og þau frjáls.
Það var ekki fyrr en nokkrum ár-
um síðar, að herdeild frá Norður
ríkjunum kom til hinnar afskektu
planteki-u og tilkynnti þrælunum
að þeir væru frjálsir og mættu
fara hvert á land sem væri. Damon
tók samt þann kost- að dveljast
áfram hjá húsbónda sínum fyrr-
verandi þar sem hann hafði haft
það betra en almennt gerðist með
þræla. Þess heldur fékk hann nú
af og til nokkra peningaupphæð
fyrir störf sín. Launn voru ekki
há, en nægðu samt tii þess að
hann var ánægður.
Heppnina me3 sér
Damon dvaldist á plantekrunni
þangað til hann hafði með spar-
semi aurað' saman nægilegu fé til
þess <að geta tekið búgarð einn
í nágrenninu á leigu. Hann bjó
þar um hríð en fluttist þá til Birm
ingham i sama fylki og vann þar.
Þar kvnntist hann konu sinni, Lee,
og i félagi keyptu þau litla verzl-
■un, sem með tímanum þróaðist í
að verða stórverzlun. Damon lagði
gróðann af verzluninni í önnur arð
bær fyrirtæki og bankainnstæða
hans óx fr'á ári til árs. Hann var
ákveðinn i því að komast áfram
í lífinu og hafði þess heldur
'heppnina með sér.
Kona Damons var einnig þræll á
sínum tíma. Hún lézt þegar hún
var 85 ára að aldri, en Damon
talar enn um hana eins og hún
væri lifandi. Hjónahand þeirra var
sérlega farsælt. Þau eignuðust 5
syni og í dag á Damon 12 barna-
'bör,n og 11 barna-barnabörn. Þrátt
fyrir auðæfi sin lifir harm af ýtr-
ustu sparsemi og bvr enn í iitlu
húsi, þar sem upphaflega verzlun
ir; var til húsa.Iiann drekkur ekki,
spiiar ekki og eini munaðurinn
sem hann hefur veitt sér um dag-
ana er Cadillac bíll af dýrustu
gerð. „Ég vil gjarnan að fólk beri
virðingu fyrir mér og fjölskyldu
minni“', segir hann. „Fólk kallar
ekk ókvæðisorð á eftir negrum,
sem aka í Cadillae!“
Damon hefur skjTÍngu á reiðum
höndum, varðandi hvernig hann
hefur náð svo háum aldri og auðg
ast sem raun ber vitni. „Ég er
orðmn svo gamall, vegna þess að
ég hata engan. Ég er orðinn rikur
vegna þess að ég hefi alltaf verið
hamingjusamur: Ég er hins vegar
ekki hamingjusamur af þeirri á-
stæðu að ég hefi orðið ríkur. Jafn
vel lífið er ekkert annað en spegil
mynd af hjarta manns!“
„Fólk hrópar ekki ókvaeðisorð á eftir negrum í Cadillacl''