Tíminn - 23.06.1959, Blaðsíða 2
TÍMINN, þriðjudaginn 23. júní 1959.
Megi Gúðs orð og andi vera okkur
daglegt ljós á daglegri för“
Kosningafundurinn í gærkvöldi
Víð blskupsvígs'lu á sunnu-
clag. íljutti séra Bjarni Jóns-
son æviágrip herra Sigur-
bjarnar Einarssonar biskups
eftir hann sjálfan. Hefir
biskup veitt Tímanum góð-
fúslegt levfi til að birta ræð
una og fer hún hér á eftir:
Þegar .ég lít um öxl á þessum
ímamótuniVleitar hugur minn
stöðrfet ’a vif þeirra minninga, sem
ég á fyrlsfar. En að baki þeim rninn
ingum, ér- •annað, sem minni mitt
nær ekkí-til) en er þó helgur dóm.
ar í huga" mér. Eg hugsa um móð.
ar mína óg minnist orða sálms-
ins: DrcfttiSn er athvarf mitt frá
æsku, yið þig hefi ég stuðzt frá
móðurlífi, frá móðurskauti hefir
pú vérfe skjól mitt (Sálm. 71).
Engin iriýnd er til af móður minni,
en ég ýá nokkur bréf, sem hún
skrifaðr foður mínum tvítug að
.aldri,: :og ; þau bera vitni um hug-
arfár henriar og sálarlíf. Eg á líka
litla b'ók, sem hún hafði jafnan
við höfðalag sitt og handlék síðast
jarðneskra muna. Það er bókin:
.Daglegt Ijós á daglegri för“. Sú
óók minnir mig á mitt helgasta
þakkarefni, bænina, sem móðir
:.nín bað fyrir mér frá því fyrsta
að hún vissi um tilveru mína, og
riún kvaddi okkur með, drengina
sína, þegar hún varð að skiljast
irá okkur vegna þeirra áverka,
sem hún hlaut við að bjarga okkur
úr lífsvoða. Nú er ég vígður á
afmælisdegi hennar.
Afi minn vafði mig í gæruskinn
vetraipiaginn, sem hún var jarð.
sung’ö,1;þg reiddi mig sveitina á
■anda 5 þess að veita mér skjól
undir súðinni hjá sér og ömmu
.ninni næstu árin. Móðurforeldrar
mínir áttu 13 börn og mörg þeirra
voru þá enn í ómegð heima. En
oau áttu nóg ástríki aflögu handa
:mér. Hjá afa og ömmu fór ég ekki
á mis við neitt, sem barni er dýr.
nætast, þótt þau væru mjög svo
árbirg að þessa heims efnum. Eg
skynja ennþá rómblæ ömmu minn
ar, þegar ég fel .mig Guði að
morgfti eða icvöldi með þeim orð
um, sem hún kenndi mér. Og
aldrei; hefi ég komið í það must.
ari, seip rúmaði meira af heilagri
tiátign og gæzku Guðs en fjósbað-
stofan í Háu-Kotey, þegar afi
minn las lesturinn.
Faðir minn dvaldist á næsta
bæ og til hans fluttist ég 8 ára
gamall. Samfélag okkar næstu ár_
in var óvenju náið o,g mér varan.
iega dýrmætt. Eg minnist helgra
stunda, þegar ég sat á rúmstokkm
um hjá honum við lítið ljós, sem
bar birtu um víða heima, eða þeg-
ar við vorum úti að störfum sam-
$n og sögur voru sagðar, ljóð flutt
og helg fræði yfir höfð. Faðir
minn \Tar og er vakandi áhuga-
uaður, einlægur og trúr sonur
kirkjnmrar. Hann vakti mér
.menntaþrá og kom mér af stað
út á námsbrautina. O-ft sat ég við
rilið hans í meðhjálparasætinu í
Langholtskirkju og fann djúpt
icrgmál í huga mér af orðum
.hans, . er hann flutti bænina:
.Ðrottinn, ég er kominn í þitt
neilaga hús til að lofa þig og á.
kalla.
Lífið á marga hljóma. Mestu
varðar, hvernig fyrsti tónninn er
otilltur. Þetta, sem ég hefi hér að
vikið, er' grundvöllur trúarlífs
:níns og trúarafstöðu. Kirkjan
varð mér þegar í bernsku stór og
heilagur veruleiki. Eg er alinn upp
við gam&lgxóna alþýðuguðrækni
og hafðí' ótvíræð kynni af áhrifum
..lennar, þeim styrk og liuga-rfars.
:ækt, sem hún veitti. Þessi
úernskumótún reyndlst ster’kari
bðrum áhrifum, sem síðar létói til
3Íh taka o,g stefndu hug mínum
:il annarra átta, og mér eij ljóst,
ið þau réðu úrslitum um lífsstefnu
og ævistarf, þótt ég megi og muna
og'-þakka annað fleirá ómetanlegt,
sem góði'r.menn lögðu til þess.
Eg lærði undir skóra hjá Helga
Lárussyni á Kirkjubæjarklaustri,
og hjá fermingarföður mínum,
Æviágrip biskups, flutt í Dómkirkjunni
vií vígslu hans
séra Birni O. Björnssyni, þá i Ás,
um, og minnist beggja þessara j
ljúfu mannkostamanna með djúpri,
virðingu og þökk.
Ekki hefði mér verið unnt að
þreyta menntaskóianám til lykta,
ef ég hefði ekki notið að móður.
systur minnar, Júlíti Sigurbergs-
dóttur, bg vina hennar, hjónanna
Kristínar Sigurðardóttur og Helga
Helgasonar, verzlunarstjóra. Vetr-
artíma dvaldist ég í húsi hjónanna
Margrétar Þorvarðardóttur og Júlí.
usar kaupmanns Árnasonar. Meðai
vinnu starfsbróður míns, séra
Jakobs Jónssonar, og örvandi af.
.stöðu safnaðarfólksins.
Lengstur áfangi á liðnum ævi.
ferli mínum er tengdur Háskólan-
um. Guðfræðin hefir frá fyrstu
kynnum mínum af henni verið mér
freistandi og gjöfult hugðarefni.
Löngum hafa unnendur og iðkend
ur vísindalegrar guðfræði talað
um pulchritudo theologiae, fegurð
guðlegra fræða, og tek ég undir
það. Guðfræðin fjallar um æðstu
viðfangsefni mannsandans, og
Biskupshjónin, Magnea Þorkelsdóttir og Sigurbjörn Einarsson.
annarrar blessunar, sem ég naut á
því göfuga heimiii voru kynni mín
við séra Sigurð - Pálsson, þá guð.
fræðistúdent. Leiðir okkar lágu aft
-ur saman að Mosfeili í Grímsnesi,
en þar las ég undir stúderitspróf
hjá séra Guðmundi prófasti Ein.
arssyni, stórbrotnum öðlingi. Á
einverustund uppi á Mosfelli eitt
síðsumarkvöld varð mér ljóst, ,að
bernskudraumur minn um það að
ger-ast prestur, átti að rætast.
Til náms míns erlendis studdi
mig tengdafaðir minn, Þofkell
Ma-gnússon, af fremur rýr-úm efn.
um sínum, en því meiri drengskap.
Þau 4 ár, sem ég dvaldist að námi
við háskólann í Uppsölum, veittu
mér útsýn, sem ég bý að alla tíð.
Það voru mikil umskipti að fara
beint frá háskólanámi til prests:
þjónustu á Skógaströnd. En þau
voru mér holl. Eg vildi ekki hafa
farið á mis við þá reynslu, sem
mér öðlaðist þar, né þá vináttu,1
■sem ég naut af hálfu safnaðanna.
Þá tóku við starfsárin í Hall-j
grímssókn, skammur tími, en frjór,
minnisstæður og þroskandi sakir
fjölþættra starfa, alúðlegrar sam.
margir mestu atgjörvismenn í for
tíð og nútíð hafa helgað henni gáf
ur sínar og orku. Sú aðstaða sem
ég hefi haft til þess -að stunda og
kenna guðfræði, er mér mikið
þakkarefni, og é.g horfi með sökn-
uði xim öxl til þess starfs, sem ég
nú hverf frá.
í þessum vitnisburði mínum,
sem hér er fiuttur samkvæmt gam
alli hefð, vik ég -aðeins að fáein.
um stórum og nákomnum þakkar.
efnum. Hinu sleppi ég, sem er til.
tækt í skráðum heimildum, og
margt á ég einn með Guði mínum.
Eg minntist móður minnar fyrst
í þessu máli. Konu mína, Magneu
Þorkelsdóttur, nefni ég síðast. Við
kynntumst á fermingaraldri og
höfum átt hvort annað -síðan, þótt
við yrðum ekki heitbundin fyrr
en tvítugó Nú hefir hún bundizt
eijn nýjum vanda sakir sameigin.
legra örlaga okkar. En hún hefir
jafnan reynzt mér því meiri gæfa,
sem meira lá við.
Megi Guðs orð og andi vera okk
ur daglegt ljós á daglegri för.
Vegsamað sé hans heilaga nafn.
Kjördæmabyltíngarmeim í Siglufirði
voga ekki að verja mál sitt
Aíeins einn framboðsfundur, ekki útvarpaÖ
Á fundi, sem frambjóðsnd
ur á Sigiufirði héidu meS sér
í dag, krafSist Jón Kjartans
son, frambjóðandi Framsókn
arflokksins, þess að haldnir
yrðu tveir framboðsfundir á
Siglufirði og þeim útvarpað
um talstöðina þar, vegna
þess að kosið er um svo mik
ilvægt mál sem kjördæma-
málið. Frambjóðendur Sjálf
stæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins þverneituðu þess
ari kröfu Jóns, en frambjóð
andi Alþýðubandalágsins
lýsti fylgi við hana.
Þá krafðist Jón þess að ræðu.
tírrrii jflokkanna yrði a. m. k. einn
klukkutími, og fylgdi frambjóð.
andi Alþýðubandalagsins honum
að málum, en frambjóðendur Sjálf
stæðisflökksins og Alþýðuflokks.
ins töldu yfrið nóg að tala 45 mín.
Endir á þessu máli varð sá að
samþykkt var að halda framboðs-
fund á Siglufii-ði á fimmtudags.
kvöld, og verður ræðutími 50 mín.
Þess má geta að lokum að fyrir
kosningar 1953 kröfðust Sjálfstæð
ismenn þess aö haldnir yrðu tveir
framboðsfundir og fengu því fram
gengt. Eru hetjurnar hræddar nú?
Sjálfsagt yrði þeim erfitt að
verja kjördæmabyltinguna fyrir
Siglfirðingum. .
(Framhald af 1. síðu)
talað um að „útvaína“ konunún
ismann í slíkum flokki. En eng
um bland.ast nú hugur um, að
þetta misíófet. Vatnið raun af
úfvötnunarstampinum, og inni
haldið er saltari og beiskari
Moskvukommúnismi en nokkru
sinni fyrr. Það ætti enguin að
dylj.isí lengur, að það er ekki
hægt að byggja umbótasinnað
an og frjálslyndan vinstri flokk
ufan um konunúnistakjarna.
Efling Framsóknarflokksins.
Það er því lýðum ljóst, sagði
Eysteinn Jónsson, að eina ráðið
sem fyrir hendi er, til þess að
mynda sterkan umbótaflokk
vinstri manna, eina ráðið til þe-ss
að vinstri menn geti notað það
afl, sem þeir ráða yfir til pólitískra
áhrifa er að efla Framsóknar-
flökkinn, Þúsundir þess fólks, sem
ekki geta treyst Alþýðuflokknum
eða Alþýðubandalaginu til íhaids
andstöðunnar verða þvi að fylkja
.sér um Framsóknarflokkinn og
gerá hann að höfuðv-ígi þeirra
manna, sém vilja vinna gegn í-
haldinu.
Byggðastefna—f lokkasfefna.
En aðallega ræddi Eysteinn
Jónsson þó um kjördæmamálið. —
I þxí máli er um það barizt, sagði
hann, hvort hyrningarsteinar þjóð
skipulagsins eiga að fá að standa.
Hvort héruðin, byggðir og bæir
eiga að fá að kjósa áfram fulltrúa
sína á þin-g og setja -svip sinn á
þjóðþingið, eða hvört afhenda á
flokksstjórnum þetta vald með
'öllu. Framsóknarflokkurinn fylgir
byggðastefnunni, héraðakjördæm
in haldi sér en þingmönnum verði
fjölgað í þéttbýlinu. Enginn mað
ur, enginn mannfundur, hvorki í
dreifðum byggðum eða þéttbýlinu
hefir óskað eftir þeirri breytingu,
sem nú á að skella á. Þetta er upp
fundið af flokksstjórnum þriggja
flokka, sem vilja hrif.sa til sín
það vald, sem þjóðfélagið hefir
ætlað fólkinu í byggðum og bæj
um landsins til þessa. Um þetta
er barizt í þessum kosningu:n og
þær eru í raun og veru þjóðarat
kvæði um þetta mál samkvæmt
stjórnarskránni.
En nú bregður svo kynlega
við, að þríflokkarnir grátbiðja
cig særa fólk um .að kjósa ekki
urn þetta mál, heldur um öll önn
ur þjóðmál fremur. í þessu felst
’sektarjáíniug þeirra, þeir vita,
a'5 þeir eru áð setja á skipan,
sem fólkið vUl ekfci.
Tilgangur þessara flokka er að
losna með þessari breytingu undan
áhrifum og aðhaldi sérfulltrúa
by-ggðanna á þingi, fulltrúanna,
isem gæta þess, að alhliða uppbygg
ing fari fram og jafnvægi haldist
og gæta réttar héraða sinna. í
þess stað eiga að koma fulltrúar
flokkanna einna. En hvaða trygg
ingu hefir fólk fyrir því, að ílokk
arnir sinni málum héraðanna, þeg
ar þeir eru lausir við aðhald hér
aðavaldsins og búið er að ta-ka út
úr þeim beislið og gera þá óháða?
Frjáls skoöanamyndun.
Menn hafa spurt mig, sagði
Eysteinn Jónsson, hvers vegna
ég sé að berjast gegn þessari
breytingu, sem þegar sé búið að
samþykkja af þrem flokkum og
þar með útkljá í raun og veru.
En ég neita því, að þetta mál sé
úlkljáð, ég neita því, að svo illa
sé komið fyrir þjóðinni, að frjáls
skoðanamyndun um .svo mikils
vert mál, sem til hennar er skotið,
geti ekki átt sér stað.- Eg neita
því, að flokkavaldið -sé svo alls
ráðandi yfir mönnum að þeir foeygi
sig og kjósi með flokkum gegn
sannfæringu sinni um góðan mál
stað. Og ég er sannfærður um, að
fái frjáls skoðanamyndun að njóta
sín, þá mun þessari árás á sjálf
stæði byggða og bæja verða
hrundið.
Það er auðséð, að í þetta sinn
mun fjöldi inanna skipa sér um
Framsóknarflokkinn til þess að
hrinda þcssari árás. Reykvíking.
ar munu gera það ekki síður en
aðrir, og þeir ínunu áreiðanlega
lcggja til a. m. k. einn þingmann
til þess að stöðva kjördæmabylt.
inguna.
Eg vil lýsa því yfir á þessum
fundi, sagði Eysteinn Jónsson að
lokuin, að fái Framsóknarflokkur.
inn stöðvunarvald í þessu máli
vegna fjölda þess fólks, sem kýs
hann að þessu sinni til þessa hlut
verks, þá mun hann ekki telja
sér hcimilit að mynda stjórn, er
vinni að lausn almennra þjóðmála
heilt kjörtímabil, lieldur telja það
skyldu sína að hraða endurskoðun
stjórnarskrárinnar ailrar, þar sem
hlutur þéttbýlisins í kjördæma.
skipuninni verði leiðréttur án
þess að bæja. og héraðakjördæm
in verði lögð niður.
Geysifiölmenmir
framKoðsfundur
á Blönduósi
Síðasti framboðsfundur í A.
llúnavatussýslu var haldinn á
Blönduósi á sunnudaginn, og.
varð liann geysifjölmennur. Mun
hafa sótt hann á fimmta hundr.
að manns aðallega úr sýslunni en
einnig úr nágramiahéruðum. Það
vakti mikla athygli, að ekki var
annað svnt, en Framsóknarflokk.
urinn væri í hreinum meírihluta
á fundi þessum, svo miklar og
gó*iar undirtcktir fékk frainbjóð
andi flokksins, Björn Pálssou.
Var þetta svo áberandi, að Jón
Pálmason hafði orð á því, að
B-rni væri tekíð svinað því, sem
þetta væri á flnkksþingi Fram.
sóknarmanna. Kom Jiarna einnig
fram hin sterka andstaða gegn
kiördnemabvltinfruiini. Friálsar
úmræður voru ekki en umferð.
irnar fimm, og tóku nokkrir
menn t<l máls, aðrir en fram.
bjóðemlur í tíma þeirra.
SIvs
Um kl. 19 í fyrrakvöld varif
umferðarslys á Vesturgötu. Maður
á reiðhjóli, Garðar Óskar Péturs
son. -Barmahlíð 15, varð fyrir foif
reið og fótforotnaði. Hann var
fluttur á islysavarðstofuna. Garð
ar er verksljóri í Héðni og þekkt
ur fvrir störf sin í- þágu skáta
hreyfingárinnar.
Kosningaskrifstofar Framsóknar-
flokksins í Reykjavík og nágrenni
AÐALSKRIFSTOFUR í REYKJAVÍK:
EDDUHÚSIÐ: Fyrir utankjörstaðakosningar. Símar
14327 — 16066 — 18306 — 19613.
FRAMSÓKNARHÚSIÐ. Fyrir Reykjavík. Sími 19285 —
15564 - 12942 _ 24914 — 18589.
KÓPAVOGUR, Álfhólsvegi 11, sími 15904.
HAFNARFJÖRÐUR, skátaskálanum við Strandgötu.
Sími 50192.
AKRANES, Skólabraut 19, slmi 160.
SELFOS5, Austurvegi 21.
KEFLAVÍK, Framnesvegi 12, sími 864.
‘ - . Klippið heuuan miða úr blaðinu og gevmið.
HVERAGERÐI. BreiðumÖrk 26, opin kl. 8—10 síðd.