Tíminn - 21.08.1959, Síða 10

Tíminn - 21.08.1959, Síða 10
10 T í M I N N, fiistudapinn 21. ágiist 1959, L A w Ð LANDSLEIKURINN i kvolcl Engin breyting vitanleg á ísl. liðinu Sambugur og sigurvil ji í norska liðinu Hvernig Danir jöfnuðu... .... Ríltarður Jónsson var sá sem ég gætti. Ég vissi írá reynslu minni í Reykjavík, a'ö liann varð að stöðva, þegar hann einu sinni var kominn á rás. Ég náði knettinum með mér og ég kom auga á Tornniy Troelsen og sendi til hans. Og svo skeði það — og guði sé lof. Ég lief aldrei fyrr lent í öðrum eins taugaspenningi, sem í þess- um leik. Við höfðum rétt á að jafna en mínúturnar liðu. Og við litum af og til örvæntingaraugum til klukkunnar yfir áhorfendapöllunum. Það er Erik Jensen, sem þannig lýsir aðdragandanum að markinu, sem Danir skoruðu er níu mínútur voru til leiksloka. .. . . og svo fékk ég knöttinn, heldur Tommy Troelsen áfram frásögninni. — Ég var langt frá því að vera frír, þar eð íslenzki framvörðurinn (Garðar Árnason) var við hlið mína, en mér lánaðist að verja knöttinn með likama mínum og ég komst framlijá íslendingnum. Og ég koni auga á Enoksen, þar sem liann var við það að hlaupa sig frían frá mótherja sínum, og ég spyrnti, — já — og það lilýtur að liafa verið góð sending. Sending sem Enoksen gat tekið með sér á ferðinni. .... Sendingin gat ekki verið betri, sagði Enoksen — þegar Tonuny var komin framhjá íslendingnum, vissi ég hvað liann myndi gera við knöttinn og hvernig hann myndi senda hann til mín. Og það er eimitt þetta sem ég vil að þið takið eftir. Tækifæri eyðileggjast alltof oft fyrir það að leikmennirnir þekkja ekki hvern annan til hlítar, og geta því ekki ályktað livað samherji ætlar sér með knöttinn. Ég þaut á eftir knettinum, var hrint, en lánaðist þó að skjóta, en markmaðurinn gat stungið fæti við knett- inum. Knötturinn hrökk aftur til mín, og ég var staðinn upp aftur, en annar íslendingur sótti að mér. Ja, ég gat rekið vinstri fótinn fram og knötturinn valt í netið. En það má segja að það hafi verið einskær heppni að mér lánaðist að skora úr hinni erfiðu aðstöðu.... (Ekstrabladet — Lausl. þýtt.) ----------------------------------—-----------------------— í kvöid kl. 6 heyr ísland sinn 25. landsleik í knatt- spyrnu. Leikurinn fer fram á Ullevalleikveliinum í Osló og mætir íslenska landsliðið þar hinu umdeilda norska lands- liði, sem gerð voru nokkur skil hér á íþróttasíðunni í gær. Eftir hina frábæru frammi- stö(Su íslenzka J/andsliðsins móti Dönúm á þriðjudaginn var, er ekki að efa að íslenzka liðiru er almennt spáð sigri. Er það mjög eðlijegt, því Danir eru virtir knatt spyrnumenn og danska lanusliðið hefur um árabil verið í flokki sterkustu áhugamannaliða í heim- inum, meðal annars náð þriðja sæti í knattspyrnukeppni Olymp- íuleikanna. Árangur íslenzka landsliðsins hefur í sumar verið betri, en hinir tojartsýnustu hafa þorað að vona. — En höfum það í huga að lið ckkar er ungt . — Og spennan i leiknum við Dani hefur áreiðan- lega tekið mjög á hinar óreyndu taugar margra landsliðsmanna okkar, sem eru ungir að árum og. sumir hverjir ekki búnir að ná fullum líkamlegum þroska. Það hefur tekið okkur langan tíma að byggja þetta landslið upp. Og áreiðanlega verða flestir þeirra, sem nú skipa landsliðs- ílokk okkar, menn framtíðarinn- •ar, — sem /eiga eftir að bera hróður lands vors um hinn víða heim knattspyrnunnar, á kom- andi árum. Leikir novska landsliðsins í ár liafa vakið norsku knattspyrnu- forystuna upn af vondum draumi. Forystan, sem og allir knatt- spyrnuunnendur þar í landi hafa orðið að horfast í augu vio það, að róttækra breytinga vær! þörf '■ landsliði þeirra. Þar í landi sem annars st.aðar eru menn ekki á sama máli, er ráða þarf fram úr slíku vandamáli, og því margar og ólíkar skoðanir komið fnam vm hvaða leiðir skuli farnar. En einnig þar er vandanum komið á kerðar fárra valinkunnra n.anna, sem vegna áhuga síns og vissu um að knattspyrnan sé fögur og þroskandi íþrótt hafa gefið sig í hið vandasama starf. Með hliðsjón af þeim tímamót- um sem eru að myndast hvað vorska knattspyrnu snertir, hef- ur norska landsliðsnefndin geng- ið frá vali sínu. Og sjaldan eða r.idrei hefur val norska landsliðs- ins vakið jafn miklar og grimm- Fyrir leikinn komust Danirnir að þeirri staðreynd, að Helgi Daníels- son getur stokkið hátt í loft upp. ar deilur og þetla val landsliðs- hefndarinnar. Almenningur, svo og þeir sem í blöðin skrifa, virð- ast vera þrumulostnir yfir sumum þeim breytingum, sem nefndin hefur gert á liðinu. Og niðurstað- rn verður því sú, að flestir telja að landsliðsnefndin hafi gengið of langt í gjörðum sínum, og að val hennar sé um of tilraunakennt. Við hér heima getum myndað okkur nokkra skoðun á liðinu, er við höfum til hliðsjónar orð þess manns, sem við þekk.ium bezt meðal norskra knattspyrnumanna, fyrirliða norska landsliðsins Thor björns Svenssens. Fáir knatt- spyrnumenn, sem leikið hafa hér á landi með erlendum liðum hafa náð jafn einlægum vinsældum, sem þessi norski knattspyrnumað- ur, sem í kvöld leikur sinn 85. landsleik fyrir Noreg. Reynsla hans er því ótvíræð og þar sem við vitum að liann er orðvar mað- ur, þá er óhætt að ganga út frá því sem vísu, að sannleikann sé að finna í áliti lians á vali nefnd- arinnar. Thorbjörn telur að valið hafi tekizt vel. Hann segir að hinir ellefu útvöldu séu tvímælalaust þeir beztu af þeim tuttugu sem valdir vor í landsliðsflokkinn. Hinn reyndi fyrirliði gerir sér Ijóst, að hann ‘fer mleð óreynt lið út á völlinn í kvöld, — en hann veit einnig að liðið er skip- að beztu knattspyrnumönnum Nor- egs í dag. Norska landsliðið sem mætir íslandi í kvöld er fyrst og íremst skipað ungum og friskum mönnum. Nefndin hefur í vali sínu gert sér far um að velja menn gædda hinni réttu skap- gerð og keppnislund. Menn með líkan skilning á framkvæœd ár- angursríkrar knattspyrnu og ekki hvað sízt menn sem ráða yfir ó- bifanlegurr) viljakrafti og metn- aði á gildi landsleikja. Hver staða í norska landsliðinu sem ísland mætir í kvöld er því vel skipuð. Markmaðurinn Asbjörn Hansen, er okkur enn í fersku minni frá því í sumar. Frammistaða hans sann- aði okkur enn á ný (hann lék hér einnig í landsleiknum 1957) að hin ir 39 landsleikir, sem hann hafði •þá leikið höfðu :sett mark kunn- áltumannsins og meistarans á allar gerðir hans, enda af mörgum tal- inn i flokki fremstu markvarða í heiminum. Harald Hennum er okk- ur einnig minnisstæður frá í sum- ar. Álit dönsku pressunnar var fyr- ir skömmu, að Ilennum væri bezti miðherji Norðurlanda, en landar hans settu við það itpphrópunar- merki. Af því má ef til vill draga þá ályktun að þar sé ástæðuna að finna fyrir því að Hennum er nú •settur í útherjastöðu. Enginn ef- ast um gildi hans fyrir liðið enda með 35 landsleiki að baki sér. Ef „sóknar-tríóið“ er eitthvað líkt úthcrjunum Hennum og Björn Borgen, þá er ekki að efa að fram- lína liðsins er mjög sterk, með flýti og snjalla knattleikni sem höfuð kosti. Björn Borgen er okkur einn- ig minnisstæður frá því í sumar. Hann á 15 leiki að baki sér. Fyrir- liðann Thorbjörn Svenssen þekkj- um við öll. Við skulum ekki láta deilur um val norska landsliðsins blekkja okk ur og villa okkur sýn hvað styrk- leika liðsins snertir. Gagnrýni er •góð og hefur oft fullan rétt á sér, en við þurfum ekki að leita langt yfir skammt til þess að komast að raun um að hún getur farið út í öfgar. Höfum orð Thorbjörns Svenssen í huga. Landsliðið er skipað ellefu beztu mönnum Noregs. Að vísu er liðið, 'óreynt og því ekki að vita. hvört;Tiíðið,,nær strax .saman. Það verðuF'íandsieikurinn að bera um. iIsreiÉra"“Tándsliðið er einnig ungt og óreynt lið. Auk þess sem þeir eru að koma frá hinum erf- iðasta hildarleik sem islenzátt knatt spyrnulið nokkru sinni hefur lent í. Það er gefið mál að liðin imunu ekki leijia'þennan leik með þeirri von að -,goður árangur færi þeim RómarEorð að sigurlaunum. En aft ur á ntóli mun norska landsliðið hafa fúJlÍm ‘hug á ,að sanna gildi sitt og.hver maður að festa sess sinn i! hiriu nýskipaða landsliði. Enginn; þiá'rf heldur að efast um það að;ísitenzka liðið hafi ekki hug á að sanna það fyrir íslendingum sem öðium, að knattspyrnan hér á íslandi er langt frá því að vera frumstæð. Þeir munu og keppa að því að sanna að hinn góði árang- (Framháld á 11. síðu) FRÁ LEIKNUM VIÐ DANI Tommy Troelsen tekst a3 komast framhjá GarSari Árnasyni og gefa knött- inn fram til Enoksen. Til allrar hamlngju, seglr danskurinn, er ekki ástæða tll aS hafa þessa mynd stærri. í 81 mínútu — þar til Enoksen lánaSist aS skora mark Danmerkur — var hún sögulegur viöburSur. — Á myndinni sést danski landsliSsmarkmaSurinn Per Funch Jensen gera tilraun til aS verja skot Svelns Teltssonar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.