Tíminn - 20.09.1959, Qupperneq 12
Allhvass eða hvass sunnan og suð-
vestan, skúrir.
Reykjavík 10 st., annars staðar á landT
inu 9—15 st.
Sunmulagurinn 20. sept. 1959.
iFlokksstarfiö í bænum
Kosningaskrifstofa B-listans er í Framsóknarhúsinu
í II. hæð og er opin frá ki. 9,30—18,30 alla virka daga.
Áríðandi er aS stuðningsmenn listans athipgi eftirfar-
? | andi:
V 1. Hvort þeir séu á kjörskrá.
2. Tilkynni ef þeir verða fjarverandi á kjördag, eða
aðrir sem þeir þekkja.
3. Gefi upplýsingar um fólk er dvelur erlendis, t.d.
námsfólk.
4. Hafi samband við skrifstofuna varðandi starf á
kjördag.
Sími: Vegna kjörskrár 12942
_ _ Annarra uppl. 19285
T _ _ _ 15564
B-LISTINN
Miðstjórnarfundur
hefst klukkan 2 e. h. í dag í Framsóknarhúsinu.
KLUBBFUNDUR FRAM-
SÓKNARMANNA
Klúbbfundir Framsóknar-
manna í Reykjavík hefjast
á mánudaginn kemur, og
verða í Framsóknarhúsinu
uppi kl. 8,30. Fundir þessir
hafa undanfarna vetur verið
mjög vinsælir og oft fjölsótt-
ir og þar rædd ýmis mál.
Nú er fyrir hendi betra og
stærra húsnæði en áður, og
því er ástæða til að hvetja
Framsóknarmenn til að
sækja fundina.
Þúsundir á ferð
Á Reykjavikurflugvelli sitja aiokkrir menn í fimmtán fermetra
herbergiskytru og stjórna alþjóðlegri flugumferð um norðanvert
Atlantshaf. Blaðið átti erindi í flugturninn einn daginn og hitti þá
Valdimar Ólafsson, vaktstjóra að máli. Sagði hann, að oft væru fleiri
þúsund manns á flugi í einu á umsjónarsvæði þeirra, en svæðið nær
austur á 1. gráðu vesturbreiddar og vestur að austurströnd Græn-
lands. Takmörk umsjónarsvæðisins að norðan er heimskautsbaugur-
inn en 61. gráða að sunnan, nema á kafla, þegar kemur austur undir
Grænland; þar nær svæðið suður á 59. gráðu, unz þvi lýkur. A þessu
sést, að ísland er orðinn veigamikill aðili í flugmálum, þótt sleppt
sé sjálfri flugvélaútgerð landsmanna. Nú er verið að reisa nýjan
flugtútn á Reykjavíkurflugvelli, og mátti það vart seinna vera,
þar sem vinnuskilyrðin í gamla turninum eru hvergi nærri full-
nægjandi, miðað við þá þjónustu sem þar er veitt „gestum og
gangandi1' landa í milli, þótt á hinn bóginn flugturninn sé búinn
góðum tækjum og ekkert sé út á öryggið að setja. Myndin hér að of
an er úr útsýnisrangaia turnsins og sér þar ekki út nema á þrjá
vegu. Myndin við hliðina er af uppgöngunni í turninn. Hún er
kannski ekki sem árennilegust, en þetta stendur allt tii bóta, þeg
ar nýi turninn kemur.
Krustjoff heim-
sækir Hollywood
NTB—New York 19. sept.
Krustjoff forsætisráðherra
Sovétríkjanna flaug í gær frá
New York til Hollywood. Til-
lögum hanc um afvopnun. er
hann flutti á Allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna á föstu-
dagskvöld hefur verið tekið
með varúð á Vesturlöndum.
Herter utanríkisráðherra Banda
ríkjanna sagði að sér virtist, að
Krustjoff hefði aðeins endurtekig
fyrri tillögur Rússa um afvopnun.
Krustjoff hefði ekki haft orð um
það, hvernig eftirlit með afvopn
unni yrði framkvæmt, en afvopn
unafmálin hefðu ætíg strandað á
samkomulagi um nægjanlega öfl
ugt og tryggt eftirlit. Herter sagði,
að ekki mundi standa á Bandaríkj
unum til að afvopnast, ef tryggt
væri um alþjóðlegt eftirlit.
Selwin Lloyd utanríkisráðherra
Breta, sagði, að tillögur Krustjoffs
væru í aðalatriðum hinar sömu og
hann hefði flutt á Allsherjarþing
inu á fimmutdag. Bretar vildu
framkvæma afvopnun í þremur á-
föngum eins og Rússar. Eyðilegg
ingu allra kjarna- og eldflaugna
vopna og niðurskurð á almennum
vopnum og fækkun herafla í al
gjört lágmark.
Ræðir við filmstjörnur
Krustjoff flaug til Hollywood í
dag og mun ræða þar við ýmsar
kunnar kvikmyndastjörnur svo
sem Frank Sinatra og Marlyn
Monroe.
hreinsunar
Engin skýring fæst enn á út-
svarsfríðindum Ólafs Thors, Gunn
ars Thoroddsen og Bjarna Bene
diktssonar og fleiri gæðinga
ihaldsmeirihlutans í Reykjavik.
Menn eru jafnnær eftir kattar
þvott niðurjöfnunarnefndar. Eng
inn veit, hvaða „sérástæður" hún
hefur tekið til greina, og bæjar
stjórnaríhaldið neitar að beina
þeim tilmælum til nefndarinnar,
að hún skýri frá, hvaða sérástæð
ur til útsvarsivilnunar hún met
ur gildar.
Nefndin ber því við, að hún
megi lögum samkvæmt ekki gefa
upplýsingar um framtöl einstakra
manna. Látum svo vera. En ein
leið er þó til fyrir hina hátt-
settu forkólfa Sjálfstæðisflokks-
ins til að hreinsa sig af áburði.
Hún er sú, að þeir mælist sjálf
ir til þéss við nefndina að hún
gefí uppjýsingar um framtöl
þeirra og þær reglur er hún hef
ur farið eftir við álagningu út-
svarsins í þeim sérstöku tilfell-
um. Þar með er nefndin leyst frá
þagnarskyldu laganna og sakf
bomingar-ttreinsast ef efni standa
til.
'Útsvarsjjréiðendur í Reykjavík
spyrja: Hvenær koma þessi til-
mæli frá Ólafi Gunnari og
Bjarna?: Vilja þeir hreinsa sig
eða kjósa þeir að játa hneykslið
rrteð þögn?
s J*
ur í Eyjum
Framsóknarflokkurinn efnir
til almenns kjósendafundar
í Vestmannaeyjum annað
kvöld (mánudag) kl. 8;30 í
samkomubúsinu.
Frummælendur á fund-
inum verða Eysteinn Jóns-
son, alþm., Helgi Bergs,
verkfr., Óskar Jónsson, al-
þm. og Sigurgeir Kristjáns-
son, lögregluþjónn.
Ekkivon heldur
örugg vissa
NTB—Moskva, 19. sept. —
Á fundi rússneskra vísinda-
manna í Moskvu var það stað-
liæft, að ferðalag manna til
(Framhald á 11. síðu)
Þýzkir hrossakaupmenn
í göngum og réttum
Akureyri í gær. — Þessa
dagana eru hér tveir Þjóðverj
ar á ferð í hrossakaupum.
Ætla þeir að kaupa hér nyrðra
25 hesta.
í gær keyptu þeir 5 hesta, og
var verðið 3—3500 kr. Hestarnir
eiga allir að vera tamdir, og í hópn
um nokkrar liryssur og einn stóð-
hestur. Þegar hrossakeupin hafa
verið gerð, ætla Þjóðverjarnir að
ríða vestur í Skagafjörð á vit Páls
Sigurðssonar, fara með honum í
göngur og réttir, m. a. í Vatns-
dalsrétt. Er annar mannanna ljós-
myndari og blaðamaður og hyggst
taka myndir margar og góðar,
bæði af stóði og sauðfé.
Að göngum loknum ætla hinir
þýzku hestamenn að ríða suður
um fjöll til Reykjavíkur og flytja
hesta sína með sér út. Báðir hafa
menn þessir dvalið á hrossarækt-
arbúinu í Kirkjubæ. E.D.
Opin leið til