Tíminn - 13.11.1959, Blaðsíða 9

Tíminn - 13.11.1959, Blaðsíða 9
ííMINN, föstudaginn 13. nóvember 1959. 9 ESÍHER WINOHAM ...................................................................................................aiiiiMimiiiiiiiiiiiiiiiMiiii hún gat ekkert gert, og þar á ofan varð hún nú gripin af sárum höfuðverk. Af þessum sökum leið henni engan veginn vel, er hún kom niður aftur. Allar stofurnar voru mannlausar, og fyrst er hún kom út, sá hún Valeríu og Frankie, er sátu saman úti í garðinum. Frankie sat makindalegur í hægindastól, og Valería hafði setzt á skemil við hlið hans. Þau höfðu ekki veitt Júlíu athygli. Hún fann til nokk- urrar afbrýðisemi, er hún sá hve ánægð þau voru. Hún áleit, að óviðeigandi væri að fara ekki til þeirra þegar i stað, en hún varð að bíða um hríð til að koma ekki upp um sig. Er hún hafði jafn að sig, gekk hún niður í garð inn. Frankie spratt á fætur, er hann kom auga á hana, og hún sá betur en nokkru sinni fyrr, hve giæsilegur hann var. — Velkominn, sagði hún. — þú verður að afsaka hve seint ég kem, en það sprakk hjá okkur á heimleiðinni. — Það var ekki mjög hættu legt, sagði hann. — Valería hefur stytt mér stundir sem bezt varð á kosið. — Hvernig líkar þcr iher- þjónustunni? spurði hún. — Ég var að enda við að segja Valeríu það, svo að ég vil ekki þreyta hana með end urtekningum. Það er ekki sem verst. Júliu lá við að vatna mús- um. — Langar þig til að leika tennis strax? spurði hún. — Nei, það er svo mikið um stang við að hafa fataskifti. Ég vil heidur liggja hér í leti. — Við getum leikið, er við höfum drukkið te, sagð Valer ia. — Þá verður líka orðið svalara. Júlía fékk ekki tækifæri til að vera ein með honum, fyrr en að því kom, að hann æki aftur til Linwood, og þá skift ust þau aðeins á nokkrum setningum rétt áður en hann ræsti bílinn. Hún réyndi eins og hún gat að leyna því, hve illa henni leið, er hún sagði: —- Ég fæ vonandi að sjá þig á laugardaginn? — Það er ákveðið mál. Þessi frænka þín er hörkuskutla! — Hún er ekki frænka mín. Nei, það mun rétt vera. Þið eruð heldur ekki likaar. Segðu mér eitthvað um hana. — Hvað á ég að segja þér? — Er hún trúlofuð? — Nei, hvi skyldi hún vera það? — Það er furðulegt að hún skuli ekki vera löngu upp- tekin, svo glæsileg sem hún er. — Hún er þó ekki nema tuttugu og tveggja ára. — Já, en samt sem áður.... Jæja, þökk fyrir daginn. Sjá i umst á laugardaginn, Júlía! Hún gekk hægt upp í her- bergi sitt án þess að tala við nokkurn, því skyndilega fann hún, að hún hafði enga ástæðu til að hlakka til heig , arinnar. i Frankie yrði auðvitað hrif inn af Valeríu, enda eðlilegt. Ef til vill hafði hegðun henn- ar siálfrar ekki verið æskileg, því fátt verkar jafn fráhrind anndi og afbrýðisemi. | Hún fór að hátta eins fljótt j og hún gat því viðkomið og ^ dró sængina upp fvrir höfuð. 10. kafli Síðla á laugardag, er Júlía kom niður eftir að hafa búið : s;g, sá hún, að hún hafði i ástæðu til að óttast. hið versta. Frankie var þegar kominn og farinn út í garð með aleriu. Júlía staðnæmdist í dyrum ! garðstofunnar og horfði á. Sér til skelfingar sá hún fýlu svip færast yfir andlit Frank i ies, er hún truflaði þau. i Al!t í einu hevrði hún rödd á bak við sig segja: — Gott kvöld! Þetta var Hróðrekur. Hann hafði komið fyrirvaralaust, og hún varð hissa, er hún gerði sér Ijóst, að hún hafði aigjörlega gleymt, að hann ætlaði með þeim út. — Er nokkuö að? j' — Nei. i — Ekki það? Þér virðist vera mjög sorgbitin. j ■— En hvernig er það með yður? spurði hún til að leyða talið að öðru. Var heitt í borg inni í dag? — Já, og ég varð feginn að sleppa þaðan. Ég tók sömu lestina og við ferðúðumst með síðasta laugardag. Það er sann arlega furðulegt að aðeins ein vika skuli vera liðin siðan við sáumst fyrst. — Já, miklu meiri tími virð ist vera liðinn siðan. Rödd hennar var döpur, og hann horfði rannsakandi á . hana. — Júlia, gæti ég gert eitt- hvað fyrir yður? — Nei, i öllum bænum reyn ið það ekki. — Hjálpi okkur alliT heilag ir. Þér getið naumast haldið aftur af tárunum. Hvað er að ske? — Ég er einungis óhamingju söm! Farið út til hinna. Ég kem bráðum. Júlía sneri í hann baki og hljóp upp í herbergi sitt, en hann gekk hægt út í garðinn. Hann veitti því þegar athygli, að Valeria hafði gert óvenju mikið til að auka á fegurð sína, og þegar hann var kynnt ur fyrir Frankie, hugsaði j hann: I — Svo hún hefur orðið sér úti um nýja bráð! | — Hvað gengur að Júlíu? | spurði hann upphátt. | — Veit það ekki, svaraði | Valería fljótmælt. — Hefur ! þú heilsað henni? i — Já, og hún leit mjög I þreytulega út. Er hún ekki i heilbrigð? | — Hvar var hún? | — í garðstofunni. Hún sagð I ist koma eftir andartak. En nú i vildi ég gjarnan tala við móð- 1 ur þína. Veistu hvar hún er? í — Hún fór í te til eins ná- I grannans en ég býst við, að i hún komi fljótlega aftur. Þú } þarft ekki að hafa áhyggjur i út af Júlíu. Kvartaði hún um I eitthvað við þig? — Auðvitað ekki! Sökum þess, að bíll Frank- ies var of lítill, fóru þau i bif reið Hróðreks. Valería settist við hlið hans, en Frankie og Júlía í aftur- sætið.En Valería leit um öxl, og hélt uppi glaðværu samtali við hann, og fóru þá svo leik ar, að Júlía hvarf inn í sjálfa sig og sat þegjandi. Hún vissi ekki, hvernig hún átti að lifa þetta kvöld af. Hróðrekur þagði lika, því að aðstaðan var honum þegar ljós. Valería var sannarlega grimm og tillitslaus norn! Ösjálfrátt steig hann fastar á benzíngjafann, og enginn veitti því athygii, að hann ók á yfir hundrað km. hraða. í Bartington ákváðu þau að snæða miðdegisverð á gisti- húsi sem var þekkt fyrir góða hljómsveit. Þegar þau komu inn í forstofuna, dró Hróðrek ur Valeríu afsíðis. — Láttu þennan unga mann aískiftalausan, sagði hanii rólega. Hún roðnaði af gleði. Að lokum hafði henni tekist að gera hann afbrýðisaman. | — Kannske og kannske ekki svaraði hún stríðnislega. — Gott og vei, hafðu það eins og þú vilt. — Nei, það veröur eins og þú vilt, Hróðrekur. — Hvað ætti mér að koma það við? j _ f>ú hefur ekki verið sér- staklega skemmtilegur við mig upp á síðkastið, eins og þú sjálfur veist bezt. Hann skildi, við hvað hún átti, og áður en hann snéri sér frá henni, sagði hann kuldalega: — Svo aúðveldur viöfangs er ég ekki Valería. Undir boröum sá hann, að Júlía gerði allt hvað hún gat til að spilla ekki andrúms- loftinu með ógleði sinni, en það var henni sýnilega um megn, svo að hann reyndi að hjálpa henni. Hún var honum þakklát fyrir þennan óvænta stuðn- ing, og þó furðulegt væri, varð miðdegisverðurinn vel hepn- aður. Hróðrekur reyndi að treyna kaffidrykkjuna eins lengi og mögulegt var, því að hann taldi, að öllu erfiðara yrði að viðhalda hinu fágaða yfir- borði, er þau kæmu yfir í Quay Club. .... i^pariö j6ur iuaup a milii ixiargm verzlana! ÚÓWJWÖL (ifl -JWburebræti Umboðssalan selur ÓDÝRT Lakkskór, (barna) Stærðir: Mo. 19, 20, 21, 22. Seldir fvrir aðeins 40.—50.— kr. (§713 Smásala) Laugavegi 81 Póstsendum Eyfirðingar í Reykjavsk Fjölmennið á skemmtun félagsins í Framsóknar» húsinu, laugardaginn 14. þ. m. kl. 8,30. [ Svarfdælska skemmtinefndin | Rafgeymar 6 og 12 volta hla<$nir og óhlaftnir GARÐAR GÍSLASON H.F. Bifreiðaverzlun NESSÓKN Aðalsafnaðarfundur Nessóknar verður haldinn mánudaginn 16. nóvember 1959 í Neskirkju og hefst kl. 8,30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarnefndin Aðvörun um stöðvun atvinnurekstrar vegína van- skila á söluskatti, útflíiimngssjóÖsgjaldi, itigjaldaskatti og farmiðagjaídi Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og heimild í lögum nr. 33, 29. maí 1958, verður at- vinnurekstur þeirra fyrirtækja hér í umdæminu, sem enn skulda söluskatt, útflutningssjóðsgjald, iðgjaldaskatt og farmiðagjald III. ársfjórðungs 1959, syo og söiuskatt og útflutningssjóðsgjald eldri ára, stöðvaður, þar til þau hafa gert full skil á hinum vangreiddu gjöldum ásamt áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir, sem vilja kom- ast hjá stöðvun, verða að gera full skil nú þegar til tollstjóraskrifstofunnar, Arnarhvoli. Lögreglustjórinn í Reykjavík, i 12. nóvember 1959. J Sigurjón Sigurðsson Sendisveinn óskast fyrir hádegi. Þarf að hafa hjól. 1 AFGREIÐSLA TÍMANS. '

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.