Tíminn - 02.02.1960, Blaðsíða 3

Tíminn - 02.02.1960, Blaðsíða 3
TÍBtlNN, þriðjudaginn 2. febráar 1960. De Gaulle við frönsku hyggur á uppgjör fasistaöflir Uppgjöf öfgamanna í Alsír safnaði þjóðinni einhuga að bak; hans. Soustelle og jafnvel Debré vildu vægja fyrir uppreisnai mönnum. Forsetinn kveður saman þingið og biður um alræðisvalr NTB— París og Algeirsborg, 1. febr. — Frönsku uppreisnarmennirnir gáfust í morgu skilyrðislaust upp fyrir hersveitum Crepins hershöfðingja. Gaillard annar aðalforingi upp reisnarmanna hefur verið settur í fangelsi, hinum, Ortiz, tókst að flýja. Handtökum og hú‘" rannsóknum er haldið áfram um allt Frakkland og Alsír. Franska stjórnin er klofin, þing; kemur saman á morgun og de Gaulle mun biðja um alræðisvald. Lokað var fyrir vatn og raf- magn til uppreisnarmanna í gær. Konur og mæður komu fram í sjónvarp og grátbændu syni sína og menn um að hætta þessari vonr lausu baráttu. Harmleiknum lýkur Uppreisnarmenn máttu velja um þrjár leiðir: Hver og einn mátti hverfa til síns heima, en skilja eftir vopn sín. Heimavarnarliðs- menn máttu hverfa til stöðva sinna og í þriðja lagi gátu þeir, sem vildu gengið í sérstakar sveitir, sem yrðu innan franska hersins. Margir notuðu fyrsta kostinn og læddust brott um nóttina. voru ekki eftir nema um 1 þús. manns í morgun, sem gengu út úr virkjunum og báru fyrir sér franska fánann. Var þeim sam- stundis lilaðið á vörubfla og ekið brott. Gaillard var ekið brott í jeppa og hefur siðan verið settur í fangelsi. Margt fólk horfði á þessi endalok harmleiksins. Sum- ir grétu, aðrir æptu vígorð upp- reisnarmanna, nokkrir klöppuðu og enn aðrir æptu „Alsír er franskt". Sendir í úflendinga- hersveitina Síðar var tilkynnt, að uppreisn- armennirnir yrðu gerðir að deild í útlendingahersveitinni og myndu senn taka þátt í bardögum gegn uppreisnarmönnum Serkja. Leitað er að forystumönnum hægri afl- anna í Alsír og er tilkynnt, að þeir verði látnir sæta venjulegum refs- ingum. Fæddi barn í bifreið Kópaskerl, 1. febrúar. Sá sögulegi atburður gerðist hér i nótt að kona frá Þórunnar- seli f Kelduhverfi ól barn í bíi, en verið var að flytja hana f sjúkrahús. Gekk fæðingin furðu vel, þrátt fyrir erfiðar og óvenju legar kringumstæður, enda vlldi svo vel til, að f bílnum voru bæði læknir og Ijósmóðir. Nánari atvik eru þau, að Alda Þorbergsdóttir, Þórunnarseli f Kelduhverfi, var að því komin að ala barn sitt. Komu bæði læknir og Ijósmóðir til hennar en fæðingin virtist ætla að ganga erfiðlega svo talið var tryggara að flytja konuna til Húsavíkur. Var lagt á stað með hana f jeppa og fylgdu bæðl læknirtnn og Ijósmóðirin með. En þegar farin hafði verið um 40 km. leið varð konan léttari og fæddi 15 marka dreng þarna í jeppanum. Gerðist það á milli kl. ó og 7 í morgun. Var þá hætt við Húsa- víkurför en haldið heimleiðis og heilsast bæðl móður og barni vel. Öfgaöflin ekki sigruS Samtímis því, að uppgjöf upp- reisnarmanna hefur styrkt de Gaulle í sessi, svo að hann hefur aldrei haft frönsku þjóðina svo einhuga og almennt að baki sér, er augljóst, að baráttan við öfgaöflin heldur enn áfram og að hún nær alveg inn í innstu raðir valda- manna í Frakklandi. Klukkustundar verkfall um allt Frakkland í morgun, sem var svo algert, að eins dæmi mun vera, sýnir hollustu þjóðarinnar við de Gaulle. Um sama leyti bárust fregnir af ráðuneytisfundi de Gaulle forseta um samkvaðningu þingsins, þar sem stjórnin, eða í reynd forset- inn, mun biðja um heimild til að stjórna með tilskipunum um 6 mánaða skeið, en aðrir segja eitt ár. Stjórnin var klofin Fry upplýsingaráðherra upplýsti að ráðuneytisfundi loknum, að stjórnin hefði allan tímann vc klofin í afstöðunni til uppreisn manna. Soustelle aðstoðarforsæt raðherra og landvarnaráðherra Quillaumat og fleiri vildu 'væ; fyrir frönsku uppreisnarmönni um. De Gaulle krafðist þess h: vegar að lög fimmta lýðveldisin yrðu haldin skilyrðislaust. Þessir menn muni nú verða látnir fara úr ríkisstjórninni og sennilegt, að sjálfur Debré forsætisráðherra fari sömu leið. Þetta hins vegar kann að hafa þau áhrif, að þingmeiri- hluti de Gaulle sé í beinni hættu. Forsetinn er hins vegar sagður ákveðinn í að ganga milli bols og höfuðs á frönsku öfgamönnunum og fasistunum. Strax í morgun var Chassin hershöfðingi hand- tckinn, en hann var forystumað- ur 13. maí hreyfingarinnar. Hann hefur starfað við aðalstöðvar Natos í París. Fjöldi annarra kunnra hægri manna var einnig handtekinn í dag. Listi uppstillingar- nefndar í Trésmiðafél. Tekur sæti á Alþingi Listi uppstillingarnefndar víð stjórnarkjör í Trésmiða- félagi Reykjavíkur var lagður fram síðast liðinn laugardag, og er hann skipaður þessum mönnum: Formaður: Jón Snorri Þorleifs- son, Grundargerði 13. Varaformaður: Sturla H. Sæ- niundsson, Óðinsgötu 17. Ritari: Benedikt Davíðsson, Víg- hólastíg 5. Vararitari: Lórens Rafn Krist- vinsson, Rauðalæk 17. Gjaldkeri: Marvin son, Rauðalæk 17. Hallmunds- Helgi Bergs Helgi Bergs, verkfræðingur, fyrsti varaþingmaður Framsóknar- flokksins í Suðurlandskjördæmi, tók sæti í neðri deild Alþingis í gær. Tekur hann sæti vegna veik- indaforfalla Björns Fr. Björnsson ar sýslumapns, 4. þingmanns Suð- urlandskjördæmis. Varastjórn: Ásmundur Guðlaugsson, Rauðalæk 50. Elías Kristjánsson, Vindási við Nesveg. í Eli Jóhannesson, Bjarnhólast. 9. v J Trúnaðarmannaráð: Hallgeir Elíasson, Hólmgarði 16, Ásbjörn Pálsson, Kambsvegi 24, Helgi Þorkelsson, Bólstaðahlíð 39, Einar Þór Jónsson, Ljósheim. 10, Friðrik Brynjólfsson, Rauðal. 33, Kristján B. Eiríkss., Njörvas. 35, Hallvarður Guðlaugsson, Hofg. 1, Davíð Grímsson, Hjallavegi 54, Kristján Guðmundsson, Þinghóla- braut 13, Ilörður Þórhallsson, Jaðri við Sundlaugaveg, Helgi Valdimarsson, Skólabraut 1, Óli Kristjánsson, Skaftahlíð 34. SOUSTELLE Geislabrotið í glasinu Flutt af 1. síðu. Bóndinn i Víðinesi, Magnús Þorbergsson, var framml vlð með fólki sínu, utan eitt kornbarn lá í vöggu innl í stofu. Ætlaðl fólk Ið út, en leit áður inn í stofuna. Var þar þá allt á kafi í reyk og eldur kominn í húsmuni. Engar eðlilegar skýringar á þessu at- viki verða fundnar aðrar en þær að geislabrot sólar gegnum vatns glas hafi orsakaí fkvelkjuna. Stóð vatnsglas i glugga en á skáp indspænis stóð plastskál og var Sún bráðnuð en gat brunnið á Vápinn, þar sem skálin stóð, en skápnum voru bækur. Eldurinn ar og kominn í veggfóður á þili <á skápnum. Fljótlega tókst að ^fa eldinn en litlu hefur mátt <una með að þarna yrðl stórsiys. Þ. B. Bátar rekur brotna og upp í Eyjum Stórtjón á bátum í austan hvassviðri á sunnudagsnótt urinn Ófeigur annar var t. d. þannig útleikinn að leki kom að honum um dekkið. Fullví&t er tal- ið, að taka muni allt að þremur vikum að gera við suma bátana. Austanhvassviðri var í Vest- mannaeyjum s. 1. laugardags- kvöld og sunnudagsnótt. Varð stórtjón á bátum svo að talið er að það muni nema hundr- uðum þúsunda. Landlegur hafa verið í Vest- mannaeyjum að undanförnu. Á laugardagskvöld rauk upp með austanhvassviðri og var jafnframt stórstreymt. Hélzt rokið áfram á sunnudagsnóttina og á háflæði, um 6-leytið á sunnudagsmorgun, var svo komið, að sjór gekk yfir allar bryggjur nema Friðarhöfn og voru mikil sog og ferleg í höfninni. Allt í bendu Fjöldi báta sleit landfestar og ráku saman í eina bendu, sérstak- lega við Bálaskersbryggju. Brotn- uðu margir bátanna ofandekks. Þar á meðal voru tveir stálbátar og begldust þeir allverulega. Nýi bát- Stórfellt tjón Telja má víst, að beint tjón á bátunum nemi hundruðum þús- unda en þar við bætist að sumir þeirra missa vafalaust af róðrum fyrir vikið. Svo til hver formað- ur í Eyjum var ræstur þegar mest gekk á kl. 6—8. Róstusamt nokkuð hefur verið liér síðan vertíðarfólk kom hingað og er það raunar ekki nýtt né ó- eðlilegt. Vill þess einkum gæta þegar landlegur eru miklar. Er nú að því unnið að fá hingað aukið lögreglulið og er þess að vænta að at því geti orðið. Nýr bæjarstjóri er tekinn hér við, Gísli Gíslason, stórkaupmaður og er talið að hann eigi að gegna því starfi meðan Guðlaugur situr á þingi. S. K. Aímælishóf RIIF, Aðgöngumiða að afmælishófi F.U.F. má panta á flokksskrif- stofunni í Edduhúsi, símar 19613 og 16066. Stjórnmálanámskeið F.U.F. Fundur verður í Framsóknarhúsinu uppi í kvöld, kl. 8,30. Benedikt Árnason leiðbeinir um framsögn. Framsóknarfólk Munið fund Framsóknarfélaganna í Reykjavík um efna- hagsmálin í Framsóknarhúsinu næst komandi miðvikudags- kvöld kl. 8,30. Frummælandi Hermann Jónasson, alþingismaður. STJÓRNIRNAR.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.