Tíminn - 02.02.1960, Qupperneq 16

Tíminn - 02.02.1960, Qupperneq 16
Þriðjudaginn 2. febrúar 1960. 26. tölublað. Áskriftarverð kr. 35.00. Asgeir Bl. Magnússon að starfl. „Það er að lúra gegnum gler. Aldurhnigkn sómamaSur mölvar ruður og stelur kvenslæÓum Klukkan að ganga sjö á sunnudagsmorguninn handtók lögreglan innbrotsþjóf í rak- arastofu Kristjáns Jóhannes- sonar á Laugaveg 22 B. Hann hafði maskað hurðarrúðuna og vaðið þar í gegn hruflaður ug illa til reika eftir viðureign- ina við glerið. Lögregluna bar svo skjótt að. að þjófurinn fékk ekki næði til að at- hafna sig. Var það staurfullur eldri maður, sem aldrei áður hefur komizt í kast við lögregluna eða haft nein afbrot í frammi svo vitað er. Átti hann bágt með að gefa skýringar á þessu atferli sínu. Fleiri innbrot Fyrr um nóttina var brotizt inn í skartsriDaverzlun Jóns Dal- manns og Sigurðar Tómassonar við Skólavörðustíg og þar stolið borð- kveikjara og vindlingaveski. Einn- ig var brotizt inn í verzlun Guð- rúnar Heiðberg á Grettisgötu og stolið seytján kvenslæðum. Verks- ummerki á þessum stöðum voru þau sömu og í rakarastofunni, hurðarrúðurnar maskaðar. Telur lögreglan að þessi fítons-kröftugi eidri maður hafi borið niður á öll- um þeim stöðum. | Kvenmannsleit Fjórða mnbrotið sömu nóttinai var í kjallaraíbúð við Meðalhoit. j Drukkinn maður var handtekinn á staðnum, en eftir ýmsum sólar merkjum að að dæma þótti líklegra hann hefði verið í kvenmannsleii lieldur en fjárþröng. Fimmta innbrotið var í Efna laugina að Höfðatúni 2, en þar var óhægt að ganga úr skugga um biófnað. I upphafi var Unnið sleitulaust að samningu íslenzkrar orðabókar. Ný- komnar ljósmyndir af hinni stóra orðabók Grunnavíkur-Jóns í þröngum vistarverum á efstu hæS Háskólans sitja þeir þrír menn á íslandi sem sízt er að ætla að verði orðs vant. í ótal öskjum sem raðað er í hillur frá gólfi til lofts, eru skráð íslenzk orð og orðmyndir á 720 þúsund seðla. Þarna er unnið sleitulaust að samningu íslenzkrar orðabókar. Við hittuim að máli dr. Jakob Benediktsson forystumann þeirra iþremenninga, en auk hans starfa við orðabókina þeir Ásgeir Bl. Magnússon cand. mag. og Jón Að- alsteinn Jónsson cand. mag. Ekkert áhlaupaverk Fiimmtán ár eru liðin frá því verkið hófst, segir dr. Jakcb og engin leið að gizka á hvenær því lýkur. Byrjað var á dönsku orða- bókinni um aldamót og enn er hún ekki fullbúin, og þó hafa unn- ið við hana fleiri en þrír. Hún hefur gengið tiitölullega fljótt. Á þýzku orðabókinni var byrjað ári- ið 1840 og ekki er henni lokið enn. Þetta er ekkert áhlaupaverk. Fyrstu bindin úrelt? Ásgeir BI. Magnússon segir okk- ur að hentast væri að hafa mikinn liðsafla við samningu orðabókar og ljúka henni á sem styzL.m tíma, annars væri hætt við að fyrstu bindin væru orðin úrelt þegar kæmi loks aö þeim síðustu. • Við báðum dr. Jakob að segja okkur frá starfinu í stuttu máli. — Elzta bókin, sem við orðtök- um er Nýjatestamentkþýðing Odds Gottskálkssonar, svarar hann, hún er elzta bókin, sem til er prentuð á íslenzku. Kom út 1540. Síðan er orðtekin hver bók sem kemur út fram að 1870. Eftir það fer bókum fjölgandi og ekki tök á að orðtaka nema úrvalið. Með siðskiptum verður mikil breyting á bókmálinu og streyma ný orð inn í málið. — Orðabólc Grunnavíkur-Jóns Við höfum einnig hagnýtt okk- ur orðasöfn, sem liggja í handrit- um á söfnum hér heima og erlend- is. Við vorum nýlega að fá ljós- myndir af hinni geysistóru orða- bók Grunnavíkur-Jóns, hún er hvorki meira né minna en 9 fólíó- bindi að stærð. „Okursbrunnar" Hann sýnir okkur þetta aerka rit Jóns gamla Grinvicensis, skrif- að smárri og fíngerðri hönd, spáss- íur útkrotaðar í skýringum og at- hugasemdum svo blöðin hringsnú- ast fyrir augunum á lesandanum. Margt kvöldið hefur Jón gamli „setið í kulda og myrkri á varma- lausu kaimersi“ sínu við að bjarga ómetanlegu.n fjársjóðum frá glöt- un. I orðabók Jóns er að finna mýmörg orð úr daglegu tali, sem aldrei hafa komizt á prent, því ekki varðveitzt á annan hátt. Gam- an er að lesa sumar skýringar Jóns við orðin. Heldur hefur honum ver ið uppsigað við banka, því að slík ar stofnanir segir hann að kalla megi okur-sbrunna eigi grunna, fé- dráttarforsmið, gjaldagræði, fé- dráttardjöful, peningapló. o. s. frv. Enda var Jón alla ævi snauð ur af þessa heims fjársjóðum og teljandi þeir dagar sem hann átti fyrir ölglasinu sem nægði til að dreifa þunglyndi því er á hann sótti og stafaði frá bólguhnúð í lifrinni að því er hann sjálfur sagði. Dr. Jakob segir, að þeir félag- ar hafi haft ómetanlegt gag.. a£ vikulegum útvarpsþáttum en þá er leitað til fólks um land allt og óskað eftir sjaldgæfum orðum og orðtækjum sem ekki er senni legt að finnist á prenti. — Þess eru mörg dæmi, segir dr. Jakob, — að við höfu.. á þennan hátt rekist á orð se. eru í fullu gildi sem talmál en finn- (Framhald á 15. siðu). Dr. Jakob með orðabók Grunnavíkur-Jóns.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.