Tíminn - 09.02.1960, Page 1

Tíminn - 09.02.1960, Page 1
44. árgangur — 19CT. Fylght me5 breytlng I unnl á blaðinu, hrlngið í síma 1 23 23 og geriz' áskrifendur. Þriðjudagur 9. febrúar 1960. VEGIR VlDA ÓFÆRIR OG VATN FLÆÐIR INN I HUS Jakaru%ningur í Blöndu braut tíu símastaura — vegir ófærir í BorgarfirtSi, Húnavatnssýsl- um, Dölum og Laugardal — Vatn rann í hús á Selfossi og Dalvík Nú um helgina gekk á með roki og rigningu víða um land, nema á Austfjörðum, og fylgdu miklir vatnavextir í kjölfarið. Hafa orðið mikil spjöll á vegum, einkum í Borgar- flrðl og í Austur-Húnavatnssýslu. Blaðið átti í erfiðleikum með að ná sambandi við fréttaritara sína í Skagafirði og Húnavatnssýslum í gær, þar sem símasamband hafði rofnað við þá staði í óveðrinu. Hvitá í Borgarfirði flæddi yfir veginn milli Hvítárbrú- ar og Hvítárvallaskála, svo og norðan við Ferjukotssíki. í gærmorgun var þó komizt yfir á þessum stöðum á stórum bílum, en gekk erfiðlega og var ekki hættulaust, því veg- inn gat hafa tekið alveg af. Síðast þegar fréttist var ekki vitað hve skemmdir voru miklar á þessum kafla. Meira á 3. síðu. Hús fuku í Hólminum Stykkishólmi, 8. febr. — Síðast Iið’ð laugardagskvöld gekk npp með hamfararoki af suðri hér í Stykkishólmi. Jafnframt rigndi verulega. f þessum ógangi fauk hér hlaða og fjárhús, eign Þórólfs Ágústssonar, útgerðarmanns. Byggingar þessar voru úr timbri og járni. Svipti rokið þeim gjörsamlega burtu svo aðeins stendur ber grunnurinn eftir. Húsin voru auð og mun Þórólfur hafa ætlað að nota þau sem fiskgeymslu. Er tjón hans verulegt því ekki þarf að búast við að mikið verði nýtilegt af efninu þó að eitthvað af því væri hægt að tína saman. Ekki er kunnugt um aðra skaða hér um slóðir af völdum þessa veðurs. K.B.G. ----------------------------------—----------------------—, —J Það er ekki nema von, að kertin vökni í þessum vatnagangi Vaxtahækkunin kemur mjög bungt niður á hinum almenna horgara Vaxlahækkun sú, sem ríkisstjórnin hyggst koma á í sambandi við efnahagsaðgerðir þær er fyrir dyrum standa, mun koma mjög þungt og ranglátlega niður. Hún kemur þunglega niður á öllum þeim, sem staðiÖ hafa í byggingum og hafa veríð að koma sér upp þaki yfir höfuðiÖ af miklum vanefnum. Hún múlbindur einnig alla þá, sem enn eiga eftir að byggja yfir sig og mynda sér heimilL Vaxtahækkunin mun einnig stórlega draga úr framkvæmdurr til uppbyggingar og gera mönnum erfiðara að koma upp sjálfstæð- um atvinnurekstri. Hins vegar mun vaxtahækkunin ekki lenda á þeim, sem geta velt vöxtunum yfir á aðra, yfir á vöruverðið og almenning —, vaxtahækkunin mun ekki íþyngja þeim. Það er sama upp á teningnum þar, eins og í öðru því, er ríkisstjórnin hyggst gera. Það á að reyra hinn almenna borgara við klafann, en hinir fáu og stóru þurfa ekkert að bera og völd þeirra og áhrif í efna- hags- og atvinnnlíf’ bió'ðarinnar á að stórauka. Það ber allt aíf ama brunni: Það á að skipta þjóðinni i þá sem eiga og þá, sem ekki eiga! Byggðarlögum stefnt í voða mmmmgm ■ bls. 7 ísmBmBmmmmmm

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.