Tíminn - 09.02.1960, Page 16
Ársgamall drengur
ferst í árekstri
MótSir drengsms slasaíist alvarlega er tveir
bílar rákust saman á Reykjanesbraut
Síðdegis á sunnudaginn
varð banaslys á Reykjanes-
braut, er Volkswagenbifreið,
P-384, á leið suður og leigu-
bifreið, R-587, á leið til Reykja
víkur, rákust á í brekkunni
sunnan við Fossvogslækinn.
Firran manns voru í Volkswag-
anbifreiðmni og slösuðust allir.
Ársgamall drengur, Matthías Stef-
án Karlsson, hlaut mikið höfuð-
högg og andaðist á leið í sjúkrahús
og móðir hans, Líney Guðlaugs-
dóttir, slasaðist alvarlega. Hinir
þrír mörðust, skrámuðust og togn-
uðu.
í leigubifreiðinni voru auk
stjórnandans tvær konur, en ekk-
ert þeirra mun hafa sakað.
Leigubifreiðin var réttu megin
vegar, en Volkswagenbifreiðinni
var ekið skyndilega inn á veginn
fyrir leigubifreðna og telur stjórn
andi hennar, að Volkswagenbif-
reiðin hafi verið sveigð inn á veg-
nn svo seint, að árekstur hafi ver-
ið óumflýjanlegur. Staða Volks-
wagenbifreiðarinnar, samkvæmt
uppdrætti, sýnir að hún stefnir
skáhallt út af veginum. Stjórnandi
hennar gerir sér ekki grein fyrir
árekstrinum og telur sig hafa
fengið aðsvif, jafnvel fyrr en bíl-
arnir skullu saman.
Hvorugur bifreiðarstjóranna
hafði snert áfengi né heldur far-
þegar.
Áreksturinn var geysiharður og
maskaðist allur framhluti Volks-
wagenbifreiðarinnar, framrúðan
brotnaði við það að stjórnandinn
og farþegi við hlið hans skullu á
hana, sætin gengu úr skorðum og
stýrishjólið beyglaðist undan
þunga stjórnandans. Leigubifreið-
in skemmdist einnig verulega, og
er óökuhæf sem stendur, en hin
er aðeins rúst.
Hér er mynd úr þeirri geymslu á landinu, sem um þessar mundir er
nafntoguðust: frímerkjageymslu póststjórnarinnar. Úr þessum skápum
hurfu frímerkin umtöiuðu. f dyrum er rammefld hurð úr stáll. Ofan á
skápnum glyttir í „kilóvöruna".
Unnið að talningu á frímerkjabirgðum í geymslunni.
,Heppinn var ég að
vera ekki dauður’
Frímerkjaþjófnaðurinn hjá Pósti & síma verður umfangsmeiri
með hverjum deginum sem líður
Eins og skýrt hefur verið
frá hér í blaðinu, var alls ekki
líklegt að frímerkjamálinu
svokallaða væri lokið, þótt
játning á þjófnaði ákveðinna
merkja lægi fyrir. Lá þá þeg-
ar fyrir rökstuddur grunur
um, að stoiið hefði verið miklu
meiri verðmætum í frímerkj-
um, en hægt væri að ákvarða
fyrr en birgðatalning hafði
farið fram. Sú birgðatalning
stendur enn yfir og er hvergi
nærri lokð, en nú þegar hef-
ur komið í ljós að til viðbót-
ar þeim merkjum. sem máls-
rannsókn reis út af, eru horf-
in önnur merki að verðmæti
rúm ein milljón króna.
Vekur það nokkra furðu, að
ekki skuii hafa komið í ljós áð-
ur, að stórlega vantaði á frí-
merkjabirgðirnar, eða hefur eng
in birgðatalning farið fram í
geymslunni frægu árum saman?
Fréttamenn Tímans fóru í gær
á fund Benedikts Árnasonar en
hann sér um tainingu á frí-
merkjabirgðum póststjórnarinm-
ar. Eins og kunnugt er hefur
komið í ljós að þar vantar frí-
merki sem eru að verðmæti á
aðra milljón króna. Er þar um
að ræða 200 arkir af flugfrí-
merkjum frá árinu 1933. einnar,
fimm og tiu króna frímerki með
mynd Knsljána X en yfirprentað
Hópflug ítala 1933, í tiiefni af
komu Balbos kapteins það ár.
Póst og simamálastjórnin geym-
ir ætið 400 arkir af hverju frí-
merki, sem kemur úl og finnast
nú ekki nema 100 arkir af áður-
greindum frímeríkjum. Upplagið
ailt af þessum merkjum var ó-
venjulega lítið, samtals 14.500 frí-
merki og var því um mjög verð-
mæt merki að ræða. Samanlagt
verðmæti hinna horfnu merkja er
hvorki meira né minna en
1.305.000 krónur!
Þá er einnig ljóst að horfin eru
40 aura merki frá árinu 1904. Slík
merki voru yfirstimpluð með orð-
unum f gildi, en nokkur hluti
þeirra geymdur óyfirstimplaður í
vörzlum poststjórnarinnar. Talið
mjög senmiegt að eitthvað af þess
um óyfirstimpluðu merk.tum hafi
síazt út og gengið kaupum og söl-
um.
Talningu er ekki lokið í fri-
merkjageymslunni, enda er það
ærið tafsamt og seinlegt verk.
Einar Pálssor,. skrifstofustjóri og
Pétur Eggerz sitja enn í varð
(KrJimhaJd á 15. síðu).