Tíminn - 12.02.1960, Síða 5

Tíminn - 12.02.1960, Síða 5
TÍMINN, föstudaginn 12, febrúar 1960. 5 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN RitstiCtt-i og ábm. Þórarinn Þórannsson. Skrifstofur 1 Edduhúsinu við Lindargötu Simar 18 300. 18 301 18 302. 18 303 18305 og 18 306 (skrifst ritstjórnin og blaðamenn). Auglýsingasími 19 523. Afgreiðslan 12 323 Prentsm Edda hf. Árás á samvinnuf élögin Þegar litið er yfir félagsmálasögu íslendinga síðustu þrjá aldarfjórðunga mætir auganu margt, sem vert er að gefa gaum. Ber þar ekki sízt að nefna samvinnuhreyfing- una, svo gildan þátt sem hún hefur átt í framfarasókn þjóðarinnar undanfarna áratugi. Megintilgangur samvinnustefnunnar er sá, að laða hina efnaminni einstaklinga þjóðfélagsins til samstarfs um hagsmunamál sín, hjálpa þeim cii að standa á eigin fótum efnalega og glæða með þeim bann samhjálparanda, sem er undirstaða sómasamlegrar mannfélagsskipunar. En einmitt þessi grundvallarhugsjón hlýtur að egna til andstöðu þá menn, sem líta á mannlegt samfélag sem eins konar veiðiland, þar sem hver þykist beztur sem nær til sín sem mestu af þeim veraldlegu gæðum, er allir eiga þó jafnt tilkall til. Þessir menn hafa með sér harðvítug stjórnmálasamtök og skreyta flokk sinn með blekkjandi nafni er þeir gripu af önduðum flokki og óskyldum. Tak- mark hans er ekki sízt að vinna gegn samvinnunni. ið land í hverju héraði, við hverja höfn. Fólkið hefur Þrátt fyrir þessa andspyrnu hafa samvinnumenn sí- fellt verið að færa út kvíarnar. Hugsjón þeirra hefur num- ið land í hverju héraði, við hverja höfn Alls staðar var einhverjum furstum sérhyggjumannanna að mæta. En víðast hafa þeir hörfað af hólmi, einn af öðrum Enginn sagði þeim að fara. Þeim var frjálst að halda uppi sam- keppni við samvinnufélögin, en þeir hafa flestir kosið að draga sig þangað, sem meiri var veiðivonin. Fólkð hefur sjálft valið. Það hafði langa og bitra reynslu af því. að þegar hvað verst gegndi voru sérhyggjumennirnir vísir til að hlaupast í brott með það fjármagn, sem þeir voru búnir að sópa saman úr vösum þess fólks, er við þá hafði skipt, og skilja það eftir á bjargleysu. Samvinnufélögin aftur á móti lögðu allt sitt fjármagn í viðreisn heima fyrir. 'Fólkið bjó sjálft að framkvæmdum þeirra, átti þær og á. Þannig hefur þróunin verið. En sérhyggjumennirnir hugðu á hefndir. Og stundin kom, bandamennirnir fund- ust, — flokkurinn, sem kennir sig við alþýðuna. ætlar að hjálpa til þess að reka rýtinginn í bak samvinnufé- laganna. Samkvæmt efnahagsmálafrumvarpi ríkisstjórn- arinnar skal þeim ekki lengur heimilt að verja því fé, sem fólkið hefur sjálft fengið þeim til varðvezlu til um- bóta í þágu þess heima í héruðunum. Því skal nú að verulegu leyti rænt og það flutt til Reykjavíkur. Þannig þykist íhaldið loks hafa náð langþráðu marki. Fullsnemmt mun þó að hrósa því happi. Þó að þegar sé búið að sverfa allfast að fólkinu út um land, eru þó tafls- lokin engan veginn ennþá séð. Og stundum hefur það hent, að skamma stund verður hönd höggi fegin, Hreinn þjóínaður Ríkisstjórnin hefur nú gripið til þess bragðs að gefa út fyrir ríkisfé áróðursrit. þar sem reynt er með alls konar blekkingum að fegra efnahagsmálafrumvarp henn- ar. Rit þetta er sagt gefið út í 40 þús eintökum og er ætl- unin að dreifa því um allt land. Útgáfa þess mun kosta marga tugi þúsunda kr., jafnvei hundruð þúsunda króna. Við því væri ekkert að segja. þótt stjórnarflokkarnir gæfu út slíkt áróðursrit. ef þeir kostuðu það sjálfir Slíku er hins vegar ekki að heilsa. Rit þetta er gefið út fyrir ríkisfé og sjálft skjaldarmerki ríkisms er sett framan á það til þess að reyna að láta líta úr eins og hér sé um hlutlausa „hvíta“ bók að ræða. Þetta er ósvífni og þjófnaður af verstu tegund. / '/ / '/ '/ / '/ '/ '/ '/ '/ / '/ '/ / / '/ '/ '/ / '/ ‘i '/ / / / '/ ( / / / / / / / / / / '/ / / / / / / '/ '/ / '/ '/ / / '/ '/ '/ '/ '/ / / / '/ J / '/ / / '/ / '/ / / '/ / '/ / / / / / / '/ / / / / / '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ / / / '/ '/ '/ '/ ERLENT YFIRLIT Lange ræðir um alþjóðamál Ófri($arhættan mun minnka, en mikill vígbúnaður þó haldast um sinn HALVARD LANGE utan- ríkisráðherra Norðmanna, fylg- i- þeirri venju að flytja öðru hverju í Stórþinginu eins kon- ar yfirlitsræðu um ástand O'g horfur í alþjóðamálum. Slíkt er einnig venja margra annarra utanríkisráðherra. Lange hefur fyrir skömmu síðan flutt eina af slíkum yfirlitsræðum sín- um og þykir rétt að rifja hér upp nokkur atriði hennar, þar sem Lange hefur að baki sér langa reynslu og nýtur mikils álits sakir þekkingar sinnar og kunnugleika á mönnum og mál- efnum. Hann hefur og jafnan sýnt gætni og varkárni, þótt hann hafi fylgt markvissri st«fnu. Þannig á Lange vafa- laust einn mesta þáttinn í því, ásamt Gerhardsen forsætisráð- herra, að Norðmenn hafa synj- að Atlantshafsbandalaginu um herstöðvar fyrir erlent herlið, enda þótt eigin varnir Norð- manna séu mjög veikar og veiti ekkert raunhæft viðnám gegn skyndiárás. Reyndin hefur leitt í ljós, að þessi stefna hefur ver- ið rétt ráðin og án efa skapað Norðmönnum sterkari aðstöðu á alþjóðlegum vettvangi en ella. LANGE hóf áðurnefnda ræðu sína með því að segja, að sam- búð kommúnistaríkjanna ann- ars vegar og lýðræðisríkjanna hins vegar myndi setja megin- svip á alþjóðamálin á þeim ára- tug, sem nú væri að hefjast. Líkur bendi til, að samkeppnin milli kommúnistaríkjanna og lýðræðisríkjanna verði háð ■stórum meira en áður á sviði efnahagsmála og stjórnmála, en hins vegar dragi úr hinni hernaðarlegu árásarhættu, sem t. d. hafi hvílt yfir Vestur- Evrópu á áratugnum, er var að ljúka. Flest bendi til, að veru- lega muni draga úr spennunni, hvað ófriðarhættuna snertir, en þó megi reikna áfram með verulegum vígbúnaði í öryggis- skyni. Lange taldi að ein ástæða hlyti að ráða mestu um það að draga myndi úr stríðshætt- unni. Langfleygar eldflaugar og kjarnorkuvopn myndu sanna mönnum það enn betur en áður, að enginn gæti hagn- azt á styrjöld, heldur myndi hún verða báðum aðilum til tortímingar. Þetta hlyti að draga úr stríðshættunni, en þó því aðeins. að jafnvægi héldist milli stórveldanna á hernaðar sviðinu. Ef jafnvægið raskað- ist, t. d. vegna þess að dregið yrði úr hernaðarmætti vestur- veldanna einhiiða, gæti það haft hættulegar afleiðingar. Þetta blyti að hafa í för með sér ástand, sem ýmsum myndi þykja furðulegt. Á sáma tíma og heldur drægi úr póli- tískri spennu mílli stórveld- anna, yrði samt haldið áfram miklum vígbúnaði, nema því aðeins að meiriháttar breyting- ar verði á sambúð þeirra- Önnur ástæða, sem myndi svo ráða miklu um það, að samkeppnin milli austurs og vesturs færðist í vaxandi mæli inn á svið efnahagsmála og stjórnmála væri sú, að hin efnahagslega uppbygging í Sovétríkjunum væri mjög hröð og áhrifa af því myndi gæta í vaxandi mæli á þann veg, að Halvard Lange, utanríkisráðherra. Rússa myndi . gæta meira og meira á heimsmarkaðinum. Sovétrikin myndu ekki aðeins verða hernaðarlegt stórveldi, heldur einnig efnahagslegt stórveldi og það myndi h'afa í för með sér víðtækar afleiðing- ar. LANGE sagði, að milli aust- urs og vesturs væru ekki að- eins skoðanalegur, heldur og hagsmunalegur ágreiningur. Þessi ágreiningur myndi hald- ast enn um langa hríð. Það er ekki annað en óskhyggja, að þessum ágreiningi verði eytt í einni svipan. Vandinn, sem stjórnmálamennirnir þurfa hér að fást við, verður sá að reyna að finna leiðir til að leysa ágreiningsefnin með friðsam- legum hætti og á réttlátan hátt. Alveg sérstaka áherzlu bæri að leggja á réttláta lausn mál- anna, því að sagan sýndi, að mál yrðu aldrei leyst varanlega á annan hátt. LANGE vék þessu næst að hinum fyrirhugaða fundi æðstu manna og viðræðum þeim, sem senn hefjast um afvopnunar- málin milli fulltrúa frá ríkjum Atlantshafsbandalagsins annars vegar og Varsjárbandalagsins hins vegar. Hann kvað telja rangt, að Atlantshafsbandalags ríkin drægju einhliða úr vörn- um sínum meðan þessir samn- ingar stæðu yfir, því að það gæti veikt aðstöðuna við samn- ingaborðið. Margt athyglisvert hefði komið fram í ræðu Krustjoffs, er hann flutti á þingi S. Þ á síðastl. liausti, þótt tillögu hans um allsherjarafvopnun bæri fremur að meta sem fram tíðarmarkmið en framkvæman- lega skyndiráðstöfun. Einkum hefði tvennt verið athyglisvert í ræðunni. Annað var það, að Rússar féllust nú á að draga fyrst úr venjulegum vopnabún- aði en á síðara stigi úr kjarn- k,*V»V*V»V»V*V»"» orkuvopnum, öfugt við það> sem þeir hefðu viljað áður. Hitt væri það, að þeir heimtuðu það ekki lengur sem frumskil- yrði, að erlendar herstöðvar yrðu lagðar niður, heldur þyrfti það ekki að gerast fyrr en á síðari stigum afvopnunar- innar. ÞAÐ VERÐUR að vera ófrá- víkjanleg krafa, sagði Lange, að ekkert alþjóðlegt samkomu- lag verði gert um afvopnun, nema jafnframt sé tryggt nægi legt eftirlit með framkvæmd þess. Án þess geta slíkir samn ingar reynzt haldlitlir. f samn- ingum um afvopnunarmálin verða vesturveldin bæði að sýna varkárni. en líka að forð- ast óbilgirni. Það má ekki ganga svo langt, að nauðsyn- legt öryggi sé skert, en það má ekki heldur setja svo ströng skilyrði, að það raun- verulega loki öllum dyrum og ekki verði hægt að taka hin fyrstu skref. Lange ræddi nokkuð um samningaviðræður þær, sem undanfarið hafa farið fram í Genf milli fulltrúa Rússa og vesturveldanna um að stöðva tilraunir með kjarnorkuvopn. Hann kvað sig undra það, hve Rússar væru ófúsir til að fall- ast á eftirlit með neðanjarðar- tilraunum. þar sem þeir hefðu fallizt fúslega á nauðsynlegt eftirlit með tilraunum, er væru gerðar ofanjarðar eða í loftí. Von sín væri' sú, að Rússar féllust einnig á eftirlii með tilraunum neðanjarðar. Lange sagði, að Norðmenn fylgdu í öllum meginatriðum þeirri stefnu, sem vesturveldin hefðu markað í Berlínarmálinu, og mun hann þar einkum hafa átt við málamiðlunartillögur þær, sem vesturveldin buðu Rússum upp á á Genfarfundi utanríkisráðherranna í fyrra. Þ. Þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.