Tíminn - 12.02.1960, Side 7

Tíminn - 12.02.1960, Side 7
Ríkisst jórnin gefur út áróðursbækl ing og kostar hann af almannafé í gær urðu umræður utan dagskrár í báðum deildum Al- þngis. Eysteinn Jónsson kvaddi sér hljóðs utan dag- skrár í neðri deild og beindi stuttri og hógværri fyrir- spurn til ráðherra, hvort á- róðursbæklingur sá, sem var útbýtt S Alþingi í fyrradag, væri kostaður úr ríkissjóði. Ráðherrar þögðu þunnu hljóði og endurtók EYSTEINN JÓNS- SON fyrirspurn sína, en enn þögðu ráðheirar. í þriðja sinn kvaddi Eysteinn sér hljóðs og fékk leyfi forseta til að endur- taka spurningu sdna. Sagði Ey- steinn, að það hefði aldrei komið fyrir áður að ráðherrar neituðu að svara fyrirspumum sem þess- um. Sagðist hann ekki draga það í efa, að ráðherrar myndu svara þessari spurningu, ef hæklingur- inn væri kostaður af rikisstjórn- inni sjálfri eða þeim flokkum, sem að henni stæðu. Þetta er ekki skýrsla um efna- hagsmál, heldur svæsið áró'ðursrit fyrir þeim ráðstöfunum, er stjóra in hyggst framkvæma, en væru mjög umdeildar með þjóðinni. — Ef þetta yrði látið viðgangast, þá gæti hver ríkisstjórn gefig út áróðursrit fyrir stefnu sinni í hin um ýmsu málum á kostnað al- mannafjár. — f því sambandi minntist Eysteinn á bókina, sem kölluð var Verkin tala, sem gef- in hefði verið út fyrir 30 árum síðan, en hún olli miklum deil- um og síðan hefði engir bækling- ar af þessu t.agi verið gefnir út af ríkisstjórnum. Rakti hann sáðan stuttlega á- róður þann og blekkingar sem eru í þessum bæklingi og mótmælti harðlega þessari útgáfu. Næstur tók til máls HALLDÓR ÁSGRÍMSSON. Mótmælti hann harðlega þeirri óvirðing, sem Umræður í báðum deildum utan dagskrár ríkisstjórnin hefði sýnt Alþingi með því að neita að svara hóg- værri fyrirspurn, — fyrirspura, sem mætti svana með já eða nei. Taldi hann þessa hvítu bók ein- hliða áróður og til vanvirðu að ætla sér að dreiifa henini um landið á kostnað almennings. — Kvað Halldór þetta athæfi ríkis- stjórnarinnar í engu óskylt frí- merkjamálinu svonefnda, þar sem farið hefði verið í fjármuna- hirzlur ríkisins og þaðan teknir fjármunir ófijál&ri hendi. ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON tók mjög í sama streng og taldi, að ríkisstjórnin hefði farið í fjár- hirzlur ríkisins og tekið ófrjálsri hendi fé til útgáfu áróðursins til frægingar stefnu stjórnarinnar. Dómsmálaráðherra hefði réttilega fyrirskipag i'annsókn vegna hins svokallaða frímerkjamáls, og væri því ærin ástæða til að spyrja hann, hvort haun teldi eldii nauðsynlegt að taka þetta þjófnaðarimál svipuðum tökum. Þá stóð BJARNI BEN. loks í pontu og taldi það furðulegt, að Framsóknanmenn skyldu vera að finna að því, þegar s'kýrsla, sem byggð er á niðurstöðum sérfræð- inga er send almenningi. Vi'ður- kenndi h.rnn að bæklingur þessi væri kostaður af almannafé, en taldi að Framsóknarmönnum fær ist ekki að vera að finna að því. Þeir hefðu staðið að bæklin'gnum „Verkin tala“ á sínum tíma. Jóhann Hafstein forseti deildar- innar vildi nú slíta umræðum, en gaf Eysteini Jónssyni leyfi til þess að bei'a af sér sakir. EYSTEINN sagði, að menn hefðu oft spurt sig að því, af liverju fjárlagaræðan væri ekki gefin út vegna upplýsinga, sem þar væri að finna um efnahags- mál þjóðarinnar. Ilann hefði ætíð svara'3 því til, að enda þótt Þetta er forsiða bæklings ríkis- stjórnarinnar um efnahagsmálin. — Nafnið eitt gefur til kynna, hvern áróður hér á að bera á borð þjóð- arinnar — á hennar kostnað. fjárlagaræðan væri skýrsla um efnahagsmálin, þá væri í henni túlkuð sjónarmið viðkomandi ríkisstjórnar og því væri ósæm .andi að gefa hana út fyrir al- mannafé. Eysteinn kvað bækling ríkis- stjóinarinnar óþvegin áróður, enda hefði enginn hagfræðingur viljað Ieggja nafn sitt við þessa „skýrslu". í efri deild kvaddi Ólafur Jóhannesson sér hijóðs utan dagskrár og beindi fyrrspurn- um til ráSherra: 1 Hverjir væru höfundar þessa bæk- lings. 2. Hver kostnaður yrði við prentun og dreifingu þessa bæklings og 3. Hvar væri að finna heimild fyrir fjárgreiðsl um í þessu skyni. Umræður urðu alllangar og kvöddu margir sér hljóðs' og stóðu umræður á annan tíma. Auk Ólafs töluðu þeir Hermann Jón- asson, Ólafur Björnsson, Páll Þor- steinsson, Finnbogi Rútur Valdi- marss'on, Emil Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason, Sigurvin Einarsson og Ólafur Thors. Ólafur Jöhannesson gat þess í sambandi við útgáfu ritsins „Verk in tala“, sem mjög var fordæmd á sínum tíma, að ef rangt hefði verið að eefa út slíkan bækling fyrir 30 árum, þá væri ekki síður rangt að gcfa slíkt rit út nú og því fremur, ef höfð væru í huga öll stóryrðin, sem þá voru við- höfð, en að bera það rit fyrir sig núna væri götustrákahugsunar- háttur. Þá taldi hann það fráleitt af ráðherrum að líkja útgáfu þessa bæklings við hvítu bókma, sem gefin hefði verið út í sambandi við landheigismálið og dreift er- lendis. Þjóðin hefði staðig óskipt að þeim skoðunum, sem þar hefðu verið túlkaöar gagnvart útlöndum. Mótmæiti Ólafur harðlega þessu Iagabroti ríkisstjóraarinnar og þeirri hlutdrægni, sem í bæklingi þessuni kænii fram, enda vildi enginn fræðimaður leggja nafn sitt við þeim blekkingum, sem í bókinni eru, enda ósæmandi hverj um heiðvirðum fræðimanni. Hermann Jónasson mótmælti kröftuglega bessari vanvirðu ríkis- stórnarinriar og minnti á það, að stjórnarandstöðunni hefði enzt í mörg ár að fordæma útgáfu á rit- inu „Verkin tal.a“ á dnum tíma, en samt bæri ríkisstjórnin þetta rit fyrir sig núna. Varðandi full- yrðingar Emils Jónssonar um að staðið hefði til að gefa út hlið- stætt rit um efnahagsmál í vinstri síjórninni, þá sagði Hermann, að það hefði aidrei komið til mála, að gefa út rit í þessum anda eða dreifa því um landið, en hins vegar hefði komið til tals að láta fjölrita skýrslur efnahagssérfræð- inga, erlendra og innlendra, en þá einungis á þann veg, að sér- hver sérfræðingur legði nafn sitt við þann kafla skýrslunnar. er eftir honum væri hafður. — Rakti Ilermann síðan sundur blekking- ar þær, sem í bæklingi ríkisstjóm- arinnar er og fordæmdi þessi v.nnubrögð ríkisstjórnarinnar. Taldi hann, að ef þetta yrði liðið, gæti stjórnin alveg eins tekið upp á því, að gefa út „Stjórnar- blað“ til áróðurs fyrir stefnu sinni og látið almenning í landinu borga brúsann. Páll Þorsteinsson benti á blekk- ingar og misfærslur ríkisstjórnar- innar í bæklingnum og fordæmdi það, með hverjum hætti sú laga- setning, sem stjórnin hyggðist fyrir væri sett fram. Þar væri látið eins og lögin væru þegar gengin í gildi og engu yrði um þokað. Væri þa® mikil móðgun við löggjafarsamkomu þjóðarinnar og misvirðing á störfum þingmanna í nefndum og á þingfundum, því látið er í það skína, að þetta sé allt þegar endanlega afráðið og í engu verði hvikað frá þvi, sem stjórnin hefði ákveðið ÓLAFUR THORS viðurkenndi aö ríkisstjórnin væri höfundur bæklingsins eða skýrslunnar eins og hann kallaði hann. Ríkisstjórn- in bæri ábyrgð á þessum bæklingi og í honum væru skoðanir henn- ar settar fram, en „stuðst væri við skýrslur hagfræðinga.“ Finnbogi Rútur atyrti mjög stjórnina fyrir útgáfu bæklingsins og taldi hana skýlaust brot á lög- um. Spurðist hann einnig fyrir um það hvaðan ríkis'stjórnin hefði það, að gjaideyristekjur þjóðarinn- ar hefðu orðið 1466 milljónir 1959. Taldi Finnbogi, að enginn hagfræðingur eða hagfræðistofn- un hefði ieyft sér að gefa upp þessar tölur og taldi að hér væri (Framh&ld á 15. síðu) Frumvarpiö er andstætt áframhaldandi uppbyggingu iandsins og mun hefta framfaragöngu þjóðarinnar Stuttur útdráttur úr ræðu Skúla Guðmundssonar framsögumanns 1. minnihluta fjárhagsnefndar Efnahagsmálafrumvarp rík- isstjórnarinnar var tii 2. umr. í neSri deild í gær. Skúli Guð- mundsson skilaði séráliti um frv. og flutti fyrir því mjög glögga og greinagóða ræðu. Fer örstuttur útdráttur úr henni hér á eftir. Ræðumaður vék fyrst að Útflutn ingssjóði og rakti sögu hans bæði að því er snerti tilgang hans og afkomu á undanförnum árum. SamkVi upplýsingum, sem fylgja frv. nam halli Útflutningssjóðs á árinu 1959 u.m 180 millj. Fjárm.rh. hefði þó upplýst. að hallin.n væri oftalinn um 30 millj.. Uin sl. ára- mót hefðu hvilt á sjóðmmi kröfur er námu 70 millj. Hvað ríkissjóð áhrærði þá hefði fjárm.rh. upplýst að greiðsluafgangur hans hefði numið 8 millj. En þá hefði verið notaður 435 millj. kr. greiðsluaf- gangur frá fyrri tíð- En hvað þyrfti þá að gera til þess að ríkissjóður geti verið halla laus og Útflutningssjóður gegnt hlutverki sínu? Ríkisstjórnin hefði lýst yfir að ekki þyrfti að gera sérstakar ráðstafanir vegna stærstu greinar útflutningsfram- leiðslunnar en einnhvað þyrfti að bæta liag togaraútgerðarinnar og síldarútvegsins. Sýndist því hægt að leysa málið fyrir árið án þess að leggja út í stórbreytingar. Andstæð uppbyggingar- stefnunni Með frv. sínu væri ríkisstjórnin að taka upp nýja þjóðmálastefnu, fullkomlega andstæða þeirri, sem fylgt hefði verið undanfarin ár. Kjördæmabreytingin hefði verið undirbúningur þeirrar stefnubreyt ingar. Byrjað hefði verið á fram- kvæmd stefnunnar í fyrra þó í smáum stíl miðað við þau her- virki, sem nú væru boðuö. Miklar framkvæmdir hefðu verið á öllum sviðum undan farin ár. Þjóðinni stórfjölgaði með hverju ári. Því væri það nauðsyn að byggja land- ið allt, nytja gæði þess alls staðar. Til þess þyrfti að skapa fullnægj- andi skilyrði og viðhalda þeim. Grundvöllur þess væri jöfnun lífs- kjara og aðstöðu fólksins hvar sem það byggi- Boðskapur frv. gengi þvert á þessa stefnu. Það boðaði samdrátt, minnkandi opin- beran stuðningviðframfaramálin. — Allar aðkeyptar vörur stór- hækkuðu í verði. Vextir ættu að hækka og sljórnin að fá heimikl til þess að kveða á um vaxtakjör og lánstíma hinna ýmsu sjóða, sem veitt hafa hagstæð lán til nauðsyn legustu framkvæmda í landinu. Aidrei hefði nein ríkisstjórn seilzt eftir slfkri heimild fyrr. Þá ætti að skylda sparisjóði til þess að leggja nokkuð af fé sínu inn í Landsbankann. Sú heimild hefði verið til en aldrei notuð. Starfsemi sparisjóðanna hefði ver ið þýðingarmikil fyrir byggðariög in. Undantekningarlítið hefði þeim verið stjórnað gætilega og skynsaonlega. Á því yrði varla breyting til bóta en hitt víst, að fjármagn þeirra kæmi í minna mæli byggðariögunum að notum en verið befði. (Fmnhdd á 15.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.