Tíminn - 16.02.1960, Qupperneq 4
4
T f MI N N, þriUJndaginn 18. febráar 1988.
4. AÍ$U
HORNIÐ
Þekktur kvenrithöfundur,
sem er gift og tveggja barna
móðir hefur skrifað ástarsögu
sem hún nefnir „Andlitið í
speglinum“ og sent hana til
stórs kvennablaðs, sem er gef-
ið út í 3 milljón eintökum.
Handritinu var skiiað aftur.
Lord Beatty og hin átján ára gamla brúður hans.
Þokki gráu háranna
Ritstjórnir gerði þá athuga-
semd, að sagan væri ágæt, en
það væri ófær endir, að hin nítján
ára gamla söguhetja giftist snotr-
um ungum manni sem elskaði
hana heitt. Hún mætti giftast
manni yfir 35 ára aldri og þá
myndi fólk fremur kaupa söguna.
Ritstjórn timaritsins hefur látið
svo ummælt síðar: Við þessu er
ekkert að gera, svona vilja lesend-
ur hafa hlutina nú á dögum. Sög-
unni var breytt. Hún hefur verið
prentuð og hetjan er nú fertug.
Annar kvenrithöfundur, sem
hefur skrifað 70—80 bækur ber
vitni um það, hvert stefnir.
Betri elskhugar
Hún segist aldrei hafa haft hetj-
ur sínar mann á bezta aldri. Það
ei staðreynd segir hún að ungu
stúlkurnar á vorum dögum hafa
lítinn áhuga á jafnöldrum sínum.
Hinir eldri segir hún, eru betri
elskhugar, hafa meira sjálfstraust,
meiri sjarnia, reynslu og meiri
fjárráð.
Fegurðardrottning
Winnipeg-borgar
Þessi mynd er af ungfrú Heath
er Öldu Sigurðsson, en hún var
kjörin fegurðardrottning Winni-
peg-borgar fyrir skömmu. Hún
er dóttir Jóhannesar Sigurðssonar
deildarstjóra hjá Eaton-félaginu í
Kanada og konu hans Bergljótar
Guttormsdóttur, Guttormssonar
skálds. Heaher stundar háskóla-
nám í söng og þykir efnileg söng-
kona. Hún er 19 ára að aldri.
Táknrænt dæmi
í Bandaríkjunum hefur lengi
verið þekkt fvrirbæri sem nefnist
„The cult of the grey haired man“.
Sagan um ást hinnar sautján ára
gömlu Beverley Adlands á Errol
Fiynn er táknræt dæmi. Brezk
blöð halda þvi fram, að tir 'ðsla
ungra stúlkna á mönnum sein eru
lítið eitt farnir að grána í vöng-
um sé mjög algeng í Stóra-Bret-
Iandi.
Svo líður varla vika að blöðin
geti ekki um hjónaband milli
ungra stúlkna og eldri manna. Það
er ekki langt síðan hinn 54 ára
gamli Lord Beatty, sonur sjóhetj-
unnar, einn ríkasti maður Eng-
lrnds var á forsíðum allra blaða.
Brúður hans var átján ára gömul.
Miklar deilur
Allur þessi gauragangur hefur
vakið miklar deilur og enska kirkj
an hefur látið til sín heyra i litl-
um bæklingi, sem nefnist „Hinn
miðaldra maður“. Bæklingur
þessi er skrifaður af þekktum sál-
fræðingi, sem nefnist Fred Torrie
og tekur hann vandamálið til ræki-
legrar meðferðar. Hann heldur
því fram, að sá tími komi í lífi
hvers manns, að honum finnist
að öll æska sín sé glötuð Honum
fellur ekki vel að hár hans skuli
tekið að grána. Hann byrjar
kannske að drekka og það hjóna-
band, sem hann lifir í, hangir á
biáþræði.
GlötuS æska
Hann reynir að geyma mynd af
konu sinni. sem hinni ungu brúði,
en þegar ruanveruleikinn rann
ur upp fyrir honum sér hann að
einnig hún er tekin að eldast. Nú
fer hann að leita að einhverri,
sem er á sama aldri og kona hans
var er hann kvæntist henni. Hann
stendur í þeirri meiningu að slík
slúlka muni vera hin sanna gyðja,
sem getur fært honum aftur glat-
aða æsku.
Dr. Torríe skrifar að þetta sé
allt því að kenna, að maðurinn,
sem er kominn yfir fertugt neitar
að viðurkenna að hann er að verða
gamall. í huga hans myndast ýms-
ir hugarórar frá þeim tíma er
hann var sjálfur ungur. Hann reyn
ir að sannfæra sjálfan sig um að
það, sem hann óskaði sér er hann
var ungur: hamingju, ást. viður-
kenningu og heilbrigt kynferðis-
lif hafi hann farið á mis við, af
því að hann sá ekki drauma sína
raRast hjá konu sinni.
í hinum vestræna heimi kunna
menn ekki að taka aldrinum með
sama jafnaðargeði og Austurlanda
búar, segir dr. Torrie.
Aðvörun
um stöSvun atvinnurekstrar vegna vanskila á sölu-
skatti, útflutningssjóðsgjaldi, iögjaldsskatti og far
miSagjaldi.
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og heim-
ild í lögum nr. 33, 29. maí 1958, verður atvinnu-
rekstur þeirra fjrrirtækja hér í umdæminu, sem
enn skulda söluskatt, útflutningssjóðsgjald, ið-
gjaldaskatt og farmiðagjald IV ársfjórðungs 1959,
svo og söluskatt eldri ára, stöðvaður, þar til þau
hafa gert full skil á hinum vangreiddu gjöldum
ásamt áföllnum dráttarvöxtuin og kostnaði Þeir,
sem vilja komast hjá stöðvun, verða að gera full
skil nú þegar til tollstjóraskrifstofunnar. Arnar-
hvoli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 15. febr. 1960.
Sigurjón SigurSsson.
ÁTTHAGAFÉLAG STRANDAMANNA
Árshátíð
verður að Hlégarði laugardaginn 20. febr. kl. 7
síðdegis. Miðar hjá Magnúsi Sigurjónssyni. Lauga-
vegi 45 fyrir félagsmenn til fimmtudagskvölds.
Stjórnin
•V‘V*VX*X*VV»V*'V«X*VV‘\.»‘
F ramsóknar-
vistarkort
fást á skrifstofu Framsókn-
arflokksms i Edduhúsinu.
Sími 16066
Við kaupum
GULL
Jón Sigmundsson
Skartgripaverzlun
Laugavegi 8
Kennsla
í þýzku. ensku frönsku,
Sigurðu* Ólason
og
Þorvaldur Lúðvíksson
sænsku dönsku bókfærslu
og reikningi.
Harry Vilhelmsson
Kjartansgötu 5 Sími 18128
Málflutningsskrifstofa
Austurstræti 14.
Símar 15535 og 14600.
Rafmagnsrör
Höfum ennþá fyrirliggjandi
stál- og plaströr 5/8.
RAFRÖST H.F.
Þingholtsstr. 1. Sími 10240.
Atvinna
Vetrarmann vantar á stór-
býli í Húnavatnssýslu Upp-
lýsingar í síma 35452
Notað mótatimbur
2500 fet, til klæðningar á
þak óskast keypt Uppl. í
síma 36085 eftir kl. 7.
Lítil dráttarvél
óskast til kaups. Tilboð um
verð, stærð, aldur og gerð,
sendist ’ pósthólf 1166,
Reykjavík
v*x.*v*v*v*v*v*v*v*v*v*v*v*v
Kyn ning
Tuttugu og tveggja ára
, piltur í góðri atvinnu óskar
eftir sambandi við stúlku,
sem hefur áhuga á að
stofna heimili. Fyllstu þag-
mælsku heitið. Tilboð send-
ist blaðínu merkt „Trúnað-
ur—1237“
Bifreiðasalan
Ingólfsstræti 9
Sala er örugg hjá okkur.
Símar 19092 og 18966.
Pússningasandur
Aðeins úrvals pússninga-
sandur.
Gunnar Guðmundsson
Sími 23220
100 mismunandi
frímerki
frá mörgum löndum + 5
aukamerki sendum vér í
staðinn fyrir 50 íslenzk not
uð frímerki (afklippur af
bréfum).
ASÓR
Pósthólf 1138
Reykjavík
B R A U N
rakvélar Verð kr 412,00.
Varahlutir fyrirliggjandi í
allar gerðir.
Viðgerðaþjónusta.
RAFRÖST H.F.
Þingholtsstr. 1. Sími 10240.
•V*,V*V*‘V*V*V«V*V*V*V*V*V*V*V
Hughellar þakkir færum við öllum, sem sýndu vináttu og hlýhug
vi8 andlát og jarSarför konu minnar og móSur okkar,
Sigríðar Sigurðardóttur
frá EskifirSi.
Sérstakar þakkir færum vi8 læknum og starfsfólki FjórSungs-
sjúkrahússins í NeskaupstaS fyrir umhyggju vi8 hina látnu í bana-
legu hennar.
Björgólfur Runólfsson,
Hulda Björgólfsdóttir,
Bergur Björgólfsson.
Þökkum samúS og alla hjálp viS andiát og útför
Önnu Sigríðar Jóhannsdóttur
fyrrum IjósmóSur.
Jónína Kristjánsdóttir,
Halldór Andrésson,
Andrés Markússon.
Innilegar þakkir fyrir auSsýnda samú'ð og vinarhug viS andlát
og útför föSur okkar, tengdaföSur og afa,
Guðmundar Rósmundssonar,
frá Urri'ðaá.
Sigrún Guðmundsdóttir, Ágúst Hróbjartsson,
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir, Rósmundur Guðmundsson
og barnabörn.