Tíminn - 16.02.1960, Blaðsíða 9
TfMINN, þriTJJudaginn 16. febráar 1960.
9
starfa ári6 1949. HafSi verið unniö
aC framkvæir.dum og undirbúningi
vi8 þá stöð frá því árið 1941. Þótti
mönnum þær áætlanir bera vott
um mikinn stórhug og það ekki
að ástæðulausu þá. Stærð stöðvar-
innar var nefnilega miðuð við það,
að hún yrði ekki fullnotuð fyrr en
um næstu aidamót, miðað við svip-
aða aukningu mjólkurneyzlunnar
er orðið hafði á árunum fyrir
styrjöldina. Þær áætlanir hafa all-
ar ruglazt svo rækilega vegna auk-
innar framleiðslu og afurðasölu
um leið, að stöðin er nú þegar
crðin of lítil og þarf stækkunar
við.
Leyst var úr brýnustu þörfinni
með því að rýma efstu hæð bygg-
ingar stöðvarhússins, en þar voru
skrifstofur. Voru þær fluttar á þak
hæð, sem byggð var ofan á brauð-
gerðarhús stofnunarinnar. Frekari
Úr vélasal Miólkurst-öSvarinnar
stækkunar er svo þörf en í því
sambandi hafa risið upp vanda-
mál um umferð og aðkeyrslu til
stöðvarinnar, ef lóðir Samsölunnar
verða frekar en nú er nýttar undir
r.ýjar byggingar.
Aka dagloga með vöru
á 220 staði
Á degi hverjum er unnið um-
fangsmikið starf við dreifingu
mjólkur á verzlunarsvæði Mjólk-
uisamsölunnar.
Segja má að dagurinn byrji með
þvi að mjólk og skyri er ekið frá
mjólkurstöðinni á degi hverjum til
eitt hundrað mjólkur- og brauð-
búða og jafnframt á 120 aðra staði
t;l stofnana, sjúkrahúsa, veitinga-
húsa og stórra fyrirtækja. Mjólk-
urbílarnir eru 20 talsins og þeir
hefja morgunferðir sínar klukkan
sjö á morgnana. Af þessum 100
mjóikur- og brauðbúðum rekur
Mjólkursamsalan sjálf 51.
Sjá um mjólkursölu
til 101 þúsund manns
Á verzlunarsvæði Mjólkursam-
sölunnar búa um 101 þúsund
manns, eða bróðurparturinn af
öllum íslendingum, sem taldir eru
r,ú um 170 þúsund eins og kunn-
ugt er. Þegar samsalan tók til
starfa var sölusvæði hennar aðeins
bundið við Reykjavík og Hafnar-
fiörð með um 26 þúsundum íbúa.
Miólkurneyzla á íbúa var 0,58 lítr-
ar á dag, þegar samsalan tók til
starfa, en nú er hún 0,93 lítrar.
Er þessi mjólkurneyzla meiri, en
í nokkru öðru landi, sem skýrsl-
ui kunna frá að greina.
Mjólk í pappaumbúSum
Mjólkursamsalan hefur jafnan
reynt að fylgjast með þeim fram-
förum, sem verða á sviði mjólkur-
dreifingar, en erfiðar aðstæður
hér á landi valda því að ekki er
alltaf hægt að taka upp allar nýj-
ungar, sem til bóta þykia horfa
jafnóðum og þær Koma fram.
Þannig var af styrjaldarástæðum
eKki hægt að koma við sölu flösku
mjólkur um skeið, en nú er nær
öl' neyzlumjólkin til heimila seld
í flöskum.
í haust var tekin upp sú nýjung
að selja mjólk í sænskum pappa-
umbúðum. Hefur það gefizt vel,
þótt aðeins litill hluti mjólkur-
sölunnar fari þannig fram. Valið
var sænskt fyrirkomulag á þessum
umbúðum, hyrnulagaðar, vegna
þess að það voru hagkvæmustu
umbúðirnar, sem völ var á miðað
við verð og tilkostnað við pökkun
mjólkurinnar á þennan hátt.
Varðandi heimsendingu mjólk-
ur, sem margar húsmæður í
Reykjavík og jafnvel víðar hafa á-
huga á, sagði forstjóri Mjólkur-
samsölunnar, að það fyrirkomulag
væri þæði erfitt og mjög dýrt neyt
endum, eins og sakir standa hér
á landi um allan tilkostnað og
vinnu. Víða um lönd teldu menn
þetta einnig orðið of dýrt fyrir-
komulag.
Höfðu næga mjólk í 72 daga
og komu heim með afgang
Framtíðin mun e.t.v. verða sú,
af sala mjólkur gæti átt sér stað
í miklu stærri kaupum en gert
ei ráð fyrir með daglegri af-
greiðslu. Nýjar umþúðir mjólkur
gera það að verkum að með fryst-
ingu er hægt að geyma mjólk
mjög lengi án skemmda.
Hefur Mjólkursamsalan hér
reynt þessa nýju aðferð með góð-
um árangri. Skip, sem fór til Arg-
entínu héðan hafði meðferðis
nijólk í hyrnum. sem hfaði verið
frysft og var geymd í kæligeymslum
skipsins á leiðinni. Skipið va 72
daga í þessari ferð og skipverjar
notuðu eingöngu þessa frystu
mjólk á hyrnunum og áttu af-
gang þegar heim kom. Reyndist
þessi mjólk í alla staði hin prýði-
legasta og fann enginn mun á
mjólkinni sem úr Argentínuferð-
inni kom og annarri nýmiólk.
Þegar frystikistur verða orðhar
til á mörgum heimilum virðist
opnast leið til mjólkurkaupa í
siórum stíl fyrir heimili. er það
vilja og geta og þá yrði auðvelt
um heimseudingu mjólkur. sem
nægja myndi heimilinu í tvær til
fiórar vikur.
Nýtt heitingapláss
Hraðifrystihúsið Norðurtanginn
h.f. fsafirði hefur tvö undanfarin
ár unnið ag byggingu stórhýsis
við Sund'Stræti.
Húsið er 12x20 m. að stær'ð,
tvær hæðir með pt>rtrisi, og allt
úr steinsteypu.
Á neðri hæð eru fjórir rúmgóð
ir byggingaskúrar, en bak vig þá
er frysti'geymslurúm fyrir beitt-
ar lóðir og einnig á hæðinni fisk
verkun með fullkomnum tækjum.
Á efri hæð er geymsla fyrir
ýmsan útbúnað fyrir fjóra báta,
og stór salur, og risið er enn ó-
ráðstafað.
Með þessarí þyggingu hefur
Norðurtanginn h. f. bætt úr
brýnni þörf báta hér, því mikil
vöntun er á nýjum beitingapláss
um.
trúa á fyrirgefningu synd-
anna. Þær syndir, sem
grimmd mannanna og smá-
sálarskapur dæmdi harðast,
taldi hann smámuni hjá öör
um verri, svo sem harðúð
hugarfarsins, kúgun og yf-
irgang sem einn maður
hefði í frammi við annan.
„Ég þekki engan kristindóm
og engan fagnaðarboðskap
annan en frelsið,“ segir
hann, og það er hans inni-
legasta skoðun, að allt W sé
heilagt og ekkert sé synd-
samlegt við eðlilegar til-
heigingar manna. Bæling
þeirra skapi miklu fremur
óhamingju. í Paradís frels-
isins er ástin hið eina áríð-
andi boðorð, og vissulega
mundi Blake aldrei hafa
fallizt á þann mismun á Er-
os og Agape, sem sænskir
biskupar fundu upp seinna,
og þóttust gera mikla upp-
götvun í guðfræði. Allt er
lítið á jörðu nema grimmd-
in og heimskan. Og það sem
mestu máli skiptir af öllu:
kærleikurinn, er kúldaður
og einokaður, yfir honum
vakað af öfundsjúkum og
grimmum hræfuglum hræsn
innar og smásálarskaparins,
unz hann verður feiminn og
uppburðarlaus, eins og hann
skammist sín fyrir sjálfan
sig.
Því fór auðvitað víðs
fjarri, að Blake væri nokk-
ur siðleysingi, þó að skoð-
anir hans stingju í stúf við
hefð og tízku samtímans
Hann var iðjusamur maður
sístarfandi að list sinni og
lifði í sjöunda himni henn-
ar: „Engillinn, sem kom að
vöggu minni mælti: „Litla
vera, sköpuð til yndis og
fagnaðar: Stattu upp og
elskaðu, þó að enginn leggi
þér lið á jörðu.“ Og í annað
sinn mælti hann fyrir munn
Albionsdætra:
„Rísið upp og lyftið yðar
ljómandi vængjum,
syngið um æskugleði yðar,
rísið og bergið fagnaðar-
full,
því að allt, sem lifir,
er heilagt."
Enn mælti hann: „Ef vér
gerðum hreint fyrir dyrum
vitundar vorrar, mundum
vér skynja alla hluti eins og
þeir raunverulega eru: eilíf-
ir.“ Og bæn hans var þessi:
„Ó frelsari, hell þú yfir mig
anda hógværðar þinnar og
mildi. Eyddu sjálfselsku
minni, og vert þú fyrir mér
allt í öllu. Stýr hendi minni.“
Það var endurfæðing sáln-
anna og umsköpun hins jarð
neska lífs, sem vakti fyrlr
Blake. Og þó að honum gæti
vitanlega skeikað eins og
öðrum dauðlegum mönnum,
var hann hjartahreinni og
hógværari flestum samtíma-
mönnum sínum, svo fjölhæf
ur listamaður, að undrum
sætir, og jafnframt gæddur
skyggni spámannsins.
Þessi ljóð, sem Þóroddur
Guðmundsson hefui- íslenzk
að, orti Blake um þrítugs-
aldurinn, og eru þau af
mörgum talin einna snilld-
arlegust af Ijóðum hans,
enda oftast tí’ '....ntnað
Þessi ljóð eru á margan hátt
sérstæð. Þau virðast vera
einföld að gerð og yfir þeim
hvílir yndisleikur, sem minn
ir á sönglist.
í Söngvum sakleysisins er
túlkuð á bjartsýnan hátt
sakleysi og gleði barnsins.
Lífið er yndislegt, hvort
heldur það er líf manna eða
málleysingja. Englar standa
vörð yfir vöggu hvítvoðungs
ins, og í hjörtum mannanna
ríkir: mildi, friður, misk-
unn, ást. Lambið er hér tákn
þessa grunlausa sakleysis.
Þetta stórfræga kvæði hljóð
ar þannig í þýðingu Þór-
odds:
Veiztu hver á verði
vakir, hver þig gerði,
litla, hvíta lambið mitt,
leiddi þig um engið sitt,
gaf þér líf og gaf þér mat,
gaf þér mjúka ull í fat,
svona bl'ðan barnaróm,
berjahlíðum glaðan óm?
Veiztu hver á verði
vakir, hver þig gerði?
Lamb mitt, satt ég segi,
svo þú gleymir eigi:
Lamb hann nefnir sjálfan
sig,
sama nafni eins og þig,
miskunnsamur, mildigjarn.
mannsins son, er gerðist
barn.
Nafn hans berum bæði trú.
barnið ég og lambið þú.
Góður guð þig blessi'
Góður guð þig blessi!
Þetta kvæði er dæmi um
hinn fagnaðarljúfa blæ, sem
hvílir yfir Söngvum sakleys-
isins. En í Ljóðum lifsreynsl
unnar kemur annað hljóð 1
strokkinn, og önnur ugg-
vænlegri rödd heyrist. Hér
er það ekki lambið, sem er
bæði ímynd skaparans,
barnsins og skepnunnar,
heldur er það tígrisdýrið í
skóginum, fagurt og ægilegt
í senn, sem er tákn háskans,
er hvarvetna liggur I leyni í
tilverunni:
Ljónabróðir, logi þinn
læsir sig um myrkviðinn.
Hann, sem skóp þig, hugar
frýr,
hræðilega kynjadýr.
Nú er hin guðlega mynd
mannsins búin að fá illúð-
legra útlit:
í hjarta manns er harðúð
grimm,
og hræðslu speglar auglit
manns,
en geymir ógn hans guðleg
mynd,
og gervið dylur launung
hans.
í þessum flokki er hvert
kvæðið öðru snillilegra, er
spegla angist skáldsins yfir
grimmd mannanna, heimsku
og þjáningum, og þeim hætt
um, sem hvarvetna bíða
hins saklausa barns: Fluga,
Eiturtré, Sjúka rósin, Glötuð
stúlka, Sótarinn, Kærleikans
garður. Öll eru þessi kvæði
snillileg En þó kemur sam-
þjáning hans með öllu mann
legu lífi ef til vill hvergi
skýrar í ljós en í kva>ðinu
Lundúnaborg, þar sem hon-
um virðist hvert andlit, sem
hann mætir, markað brest-
um, kvöl og sorg:
Hve sótaranna sorgarljóð
þeim svörtu kirkjum valda
beyg,
og raunadátans dreyraflóð
sem dögg á hallarmúra
seig.
Þó glymur meir en grátur
sár
það gleðikvenna blót og
ragn,
. er svívirt hefur saklaus tár
og sent í dauðann brúðar-
vagn.
Þó að kvæðin sýnist vera
einföld að gerð, leyna þau
margslunginni hugsun, og
verða lesandanum ógleym-
anlegt viðfangsefni. Þýðing-
in er án efa mjög vandasöm,
þar sem oft getur verið vafa
undirorpið, hvað fyrir höf-
undinum vakir. En þýðing
Þórodds er gerð með frá-
bærri alúð og vandvirkni, og
ljómandi fallega gengið frá
allri útgáfunni. Myndir af
listaverkum Blakes prýða
bókina. Þetta er ein af þeim
bókum, sem mönnum verð-
ur því kærari sem þeir lesa
hana oftar.
Enginn, sem bókmennt-
um ann, getur látið William
Blake fram hjá sér fara.
Hann er eitt af merkileg-
ustu skáldum allra alda og
jafnframt einn af furðuleg-
ustu persónuleikum, sem
nokkru sinni hafa gist þessa
jörð.
Benjamín Kristjánsson.