Tíminn - 16.02.1960, Page 14

Tíminn - 16.02.1960, Page 14
14 TÍHINN, þriðjndaglnn 16. febrúar 1960. Hann sá, að þetta var rétt ráðið, og kvaðst fús til að flytja hann heim til sin, jafn skjótt sem hún væri tilbúin. Að svo mæltu gekk hann ofan í bókastofuna og gekk þar um gólf meðan systir hans var að búa si'g; var hann að velta því fyrir sér, hvemig bezt yrði ráðið fram úr vandræð um hennar, en gat ekki kom izt að neinni niðurstöðu í svip inn. Hins vegar datt honum ekki í hug að álasa Marteini, þvi hann þekkti hann ekki að öðru e nöllu góðu, og vissi, að ást hans til Rósamundu var hrein og fölskvalaus. Um síðir kom Rósamunda ofan ti'l hans og var þá ferð- búin. Var hún mjög tekin til augnanna og föl yfi'rlitum. — Eg sendi Jessie heim á búgarðinn með það helzta, sem mig vanhagar um, sagði hún. en hitt annað, sem ég á eftir hér sendlir ráðskonan mér sefnna. En nú er vagninn tilbúinn, Guy, og ég vildi helzt komast af stað strax, ef þér sýnist svo. Hún bað hann að riða á undan til að gera föður þeirra aðvart, og segja honum frétt irnar, en sjálf ók hún í vagn inum og fannst henni í þetta skipti leiðin bæði löng og þreytandi, þegar hún rifjaði upp með sér allt, sem á und- an var gengið. Og gat hvergi séð rofa til fram undan sér. Faðir hennar beið í and- dyrinu og tók á móti hennl þar. Fannst honum eins og henni, að öll hamingja henn ar væri' nú á enda, og að hvor ugur þeirra feðga væri þess megnugur að bæta henni harma sína. Hann breiddi út faðminn á móti henni, og vafði hana að sér, eins og hún væri ang urvært barn, en hún losaði sig úr faðmlögum hans og mælti stillilega: — Eg ætla að komast upp í herbergið mitt, faðir minn, með þínu leyfi' — upp í gamla herbergið mitt. Hún var enn þá fölari á yfirbragð, en hafði annars ekki fleiri orð um þetta. Var hún svo í þann veginn að fara upp, þegar einn skógarvörður inn sást koma hlaupandi upp stíginn að húsinu, byssulaus og berhöfðaður, og var Rósa mundu, þrátt fyrir sorg sína hálfgerð forvitni á að vita, hverju þetta sætti. — Það gat máske verið eitthvað Mar teini viðkomandi. Maðurinn hljóp upp riðið, en þegar að hann kom auga á Rósa- mundu þá hikaði hann, eins og honum væri ekki um að segja fréttimar í návist henn ar, en hún varð þá fyrst til að yrða á hann. — Hvað gengur á, Bames? spurði hún. Tók hún þá ertir því að maðurinn virtist vera mjög óttasleginn, svo að hún greip I handlegginn á honum og spurði enn íremur: Hefur nokkuð komið fyrir herra —? Skógárvörðurinn leit á þau Rósamundu og föður hennar á víxl, og vissi ekki hvernig hann átti að snúa sig út úr þessu, en Rósamunda tók fastar um handlegginn á hon um og sagði: — Fyrir Guðs muni, segið þér mér hvað fyrir hefur kom ið! Er það nokkuð viðkom- andi manninum mínum? Hann vék sér nú að Sir Ralph og svaraði í hálfum hljóðum: — Eg kom til að segja yður frá hræðilegum atburöi sem orðið hefur í skóginum. Slr Ralph leit snöggvast á dóttur sína, en sá, að hún var staðráðin í því, að heyra hvað maðurinn hafði að segja. Skógarvörðurinn stundi þungan og hélt áfram: — Það er voðalegt herra. En þeir eru búnir að taka það og flytja það á brautarstöð- ina í Greymere, og lögreglan er á leiðihni hingað, alveg á hælunum á mér. —Við hvað ei'gið þér? spurði Rósamunda og varð enn föl- ari en áður. Hvað er voðalegt — og hvað hafa þeir flutt á brautarstöðina? — Kvenmann skal ég segja yður ungfrú, svaraði maður- inn í mikilli geðshræringu. Eg varð fyrstur til að finna hana í morgun, liggjandi á grúfu í pollinum, rétt hjá herragarðinum — og það hafði verið skotið í bakið á henni. Guy Fieiding hafði staðið hjá þeim allan tímann og gat hann varla varizt því að æpa upp yfir sig. Honum flaug þeg ar í hug óttaleg grunsemd, en það vildi hann um fram allt ekki láta systur sína vita um. Lagði hann því ekkert til mál anna, en faðir hans sagði: — Dauður kvenmaður! — myrtur! Guð komi ti'l. Segið mér nú allt eins og er, Bar- nes. Það er nú ekki mikið að segja, svaraði maðurinn í öng um sínum. Eg var að ganga um veiðilandið snemma í morgun, og varð gengið fram hjá pollinum, og sá þá eitt- hvað út í honum miðjum, en mér brá heldur en ekki í brún þegar ég gætti betur að, og sá, að þetta var kvenmannslík, sem lá þar á grúfu í vatninu. Eg tók til fótanna og kallaði á hjálp, og rakst þá á Crock- er lögregluþjón í trjágöngun- um. Hann sneri aftur með mér, og gátum við svo í sam- einingu dröslað henni á land. Hún var steindauð — dauð fyrir mörgum klukkutímum, að Crocker sagði. Hann skoð aði líkið meðan ég hljóp eftir börum og mannhjálp, og því næst báru þeir hana til Grey mere. Eg fór með þeim, og þegar ég heyrði að lögreglu- þjónninn sagðist ætla að snúa sér til yðar, sem næsta yfir- valds, þá hljóp ég hingað á undan til þess að gera yður viðvart — Já, einmitt það, sagði Sir Ralph og strauk ennið. Hann var að furða sig á hvern ig þessir óhappaatburðir ræki hvern annan. — Hvernig var þessi kven- maður í hátt? spurði Rósa- munda. Eftir því sem mér sýndist, ungfrú, sagði Barness — hann mundi ekki eftir því í augna blikinu að hún var gift — þá var hún dökk yfirlitum og hafði hringi í eyrum og þess háttar dinglumdangl. Eg held helzt að hún hafi verið út- lend. Rósamunda slepptl takinu á handlegg hans, rak upp lágt vein og féll í aungvit í annað sinn þann daginn. — Þér eruð mikill aula- bárðuir, Bames, sagði Guy, að þér skuluð vera að segja svona hroðasögur 1 áheym kvenmanns! — Hvernig átti ég að fara að? sagði Barnes vandræða- legur. Uugfrú Rósamunda — frú Dungal á ég við — neyddi mig ti'l þess. Guy lét sem hann heyrði ekki þessa afsökun hans. Hann tók systur sína i fang sér og bjóst til að bera hana upp á loft. — Talaðu ekki við lögreglu þjóninn fyrr en ég kem, faðir minn, sagði' hann höstuglega, því að hann sá, að gamli mað urinn var alveg að glúpna. Meðn Guy var að bera syst ur sína upp, fylltist hann bræði við Martein Dungal. Honum fannst það deginum ljósara, að Marteinn hefði myrt þessa konu í hefndar- skyni fyrir það, að hún hafði eyðilagt framtíð hans og gæfu. En hvers vegna var hann þá að sökkva mannorði Rósamundu enn þá dýpra of an i skarnið, eins og hann væri ekki búir.n að baka henni nóg mótlæti með þvi, sem á undan var gengið! Þetta var Guy að hugsa um. og áfelldi Martein að óro — sökuðu máli, og án hann gæti komið vörn fyrir sig, þar sem n ■ var ekki viðstaddur sjálfur t:J þess að bera hönd fyrir höíuð sér. m. Crocker lögregluþjónn ætl aði sér ekki að biðjast neinn ar aðstoðar frá höfuðborginni heldur ætlaði hann að leiða mál þetta til farsællgera loka á eigin rammleik, og láta það verða sér til vegsauka, þar sem þetta var eina morðið, sem frmið hafði verið í allri hans embættistíð. Líkið hafði fundizt í skóg- fnum rétt hj á herragarðinum. Það gat því vel hafa átt sér stað að skotið hefði heyrst þangað, og ásetti Crocker sér að halda próf yfir öllum heimamönnum þar, hverjum í sínu lagi. Sir Ralph gamli hafði sagt honum að Mar- teinn Dungal væri fjarver- andi, og þótti honum ekki að því, þar eð honum fannst hann þá hafa frjálsari hend ur með heimilisfólkið, og jafn vel geta notið góðs af gest- risni þess, ef hann vi'ldi láta svo Iítið. Spurði hasn nú hús karlana spjörunum úr, hvern út af fyrir sig, og var í þann vegin nað hætta rannsókn sinni, sem ekki' virtist ætla að gera hann neitt fróðari, en þá kom þar að Tómas sá, sem fyrr er um getið, og spurði Crocker hann sömu spurnng- ar, sem hann hafði lag fyrir hina þjónana: — Heyrðuð þér nokkurn- tíma í nótt eða snemma 1 morgun nokkurt hljóð, sem líktist byssu, í skóginum? — Byssu? Nei ekki minnist ég þess, svaraði Tómas, sem lögregluþjóninum virtist vera allra geðugasti náungi. Hér var glaumur og gleði í allt ......6pöá&-y5ui-KlacUp á .raiííi maxgraverzlana;1- DÖtdJOöL Á ÖllUM OtíUM! -iWwistiæö, Framhaldssagan Charles Garvice: OLL EL BIRTIR UPP UM SÍÐIR EIRIKUR víöförli Töfra- sverðið 62 Eiríkur g-engur út til að taka á móti Þorkatli hinum eiiimana, sem er mikill kappL >ú hefui sagt mér að mikil hætta ógni okkur öllum, segir hann. Ég fer ekki iim. Ég er minn eigin konungur. Eiríkur gengur rólegur út til kapp ans: Þú aettir að vita að ég hef aldr- ei ráðizt að neinum úr launsátri, Þor kell. Vortu ekki ókurteis. Hundurinn Rolf er skyndilega orð- inn órólegur, hann hefur greinitega fengið veður af einhverju, Skyndilega rýlrur hann af stað til hesfchúsanna, þar sem hann ræðst í ungan mann, sem er klæddur alít of stórri kápu. — Varið ykkur á hundinum, seg- ir Yark hiiro þrjózki Þetta er þjónn min-L, sem hann ræðst á.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.