Tíminn - 06.04.1960, Blaðsíða 2

Tíminn - 06.04.1960, Blaðsíða 2
TÍMINN, miðvikudaginn 6. april 1960. Fyririestur um Ijóstækniþróun AlþjóíJasamband ijóstæknilélaga fimmtíu ára í gær ræddu fréttamenn við lvar Flocker formann sænska Ljóstæknitélagsins og CIE, al- þjóðasambands ljóstæknifé- laga, en hann er hingað kom- inn á vegum Ljóstæknifélags- jns hér. Aðalfundur Ljóstækni íelagsins verður haldinn í Þjóðleikhússkjallaranum í uag og mun Ivar Flocker þá lialda ' fyrirlestur klukkan 11,30—12,30. Fyrirlesturinn íjallar um þróun ljóstækninn- ar. Alþjóðasamband ljóstæknifé- laga er nú 50 ára gamalt, en það starfar í 28 löndum. Fimmtán nefndir sérfræðinga starfa á vegum sambandsins hver á sínu sviði. Þessar nefndir fjalla um lýsingar svo sem á flugvöllum, vegum, verzlunum og heimilum. Sjónsvið augans og litamat hefur “einnig verið rannsakað og fjölda margt annað sem ljóstækni við- kemur. 15 nefndir Árangurinn af starfi þessara nefnda er.svo lagður fyrir fundi þurfi að draga miðað við hraða farartækisins. Flocker er raf- magnsverkfræðingur að mennt- un, en hefur unnið að ljóstækni- málum síðan 1925. Á vegum ljóstæknifélaganna á Norðurlöndum er gefið út tíma- rit um þessi mál og nefnist það „Ljuskultur". Ritið hefur komið út síðan árið 1928. Auk þess gef- ur alþjóðasambandið út skýrslur um niðurstöður sínar og í mörg- um löndum, sem eiga hlut að sambandinu eru gefin út sérrit um þessi mál. Stjórn Ljóstæknifélagsins hér skipa þessir menn: Steingrímur Jónsson, formaður, Jakob Gísla- son, ritari og Hans Þórðarson, gjaldkeri. Mðstjórnendur eru Kristinn Guðjónsson, Bergsveinn Ólafsson og Hannes Davíðsson. Framkvæmdastjóri er Aðalsteinn Guðjónssen. —B. Hreindýr á heiðunum Breiðdalsvík, 4. apríl. — Tíðar- farið hefur verið ljómandi í vet- vr, og nú má segja að _ það sé alveg vorveður. Enginn snjór hefur verið hér í vetur, að heitið geti, en í febrúar kom nokkur ' snjókafli. Engin rjúpa hefur alþjóðasambandsins, sem haldn sézt hér j vetur, en mikið er af ir eru fjorða hvert ar. Hafa Þessi (hreindýrum á Breiðdalsheiði og störf reynzt geysinytsamleg, svo sem til samræmingar við lýsingu á flugvöllum og akbrautum, sem gerðar eru samkvæmt niðurstöð- um þessara sérfræðinga og við- urkenningum sambandsins. Nefndimar eru nú 15 talsins og starfa þær að undirbúningi næsta fundar, sem verður hald- inn í Vín árið 1963. Lýsing verzlana Á seinasta fundi var Norður- löndunum í sameiningu falið að vinna að nefndaráliti um lýsingu ýmiss konar, svo sem skrautlýs- ingu, lýsingu á heimilum og í verzlunum. íslendingum var fal- ið að vera athuganir á lýsingu í verzlunum og hefur Aðalsteinn Guðjónsson unnið að því af hálfu félagsins. Ivar Flocker hefur ritað bók um götulýsingu, og vakti hún þegar mikla athygli. Hann hefur reiknað út hvað ljós bifreiða heiðunum þar fyrir innan. GA Þessi mynd var tekin þegar Krustjoff var í París. Hann sést hér ásamt de Gaulle fyrir framan Sigurbogann, er blómsveigur hefur verið lagður á leiði óþekkta hermansins. FARÞEGAFLUTNINGAR Á VATNAJÖKUL í VOR Þriggja daga ferð á Snæfellsnes Bifreiðastöð Stykkishólms og Helgi Pétursson gangast fvrir hópferð um páskana. Farið verður af stað kl. 10 n k. laugardag. Á vesturleið er fyrirhugað að skoða hina nýfundnu hraunhella í Gullborgarhrauni í Hnappadal. Á sunnudag verður gengið á Snæfellsjökul, ef veður leyfir og ekið um nágrenni, og skoðaðir Lóndrangar, Arnarstapi og Drit- vík. Á mánudag verður svo haldið til Reykjavíkur aftur og komið í bæinn á mánudagskvöld. Svefnpoki og nesti Þátttakendur verða að hafa með sér svefnpoka og nesti, en gist verður í samkomuhúsum. Upplýsingar um ferðina og farmiðasala er á Bifreiðastöð ís- lands við Kalkofnsveg. Fréttir frá landsbyggöinni Afli frekár lélegur Neskaupstað, 4. apríl. — Afli hefur verið frekar lélegur hér í vetur, og hafa bátarnir fengið bezt um 45 tonn. Þeir róa héðan fjórir, og eru til jafnaðar með þetta um 300 tonn frá áramót- um. Aflinn, sem er eingöngu þorskur, er allur frystur og salt- aður. Öll vinna hér hefur verið við þessa útgerð, og því heldur lítil. Annars er allt rólegt og eng- ar sérstakar fréttir. Hér hef- Breytilegt vefiurlag Eskifirði, 4. apríl. — Nú er gott veður í dag, vorblíða, en í gær var hálfgerður bylur. Á þessu má sjá, að hér er heldur breyti- legt veður, en yfirleitt má segja, að sæmilegt tíðarfar hafi verið í vetur. Nú er verið að moka Oddsskarð, og er vinnuflokkur- inn á háskarðinu í dag. Gert er ráð fyrir, að það myndi taka svo sem 4—5 daga að opna skarðið, j en ekki er ósennilegt, að þessi Neskaupstað, 4. apríl. Hér nef-; bylgusa í gær muni eitthvað ur verið mjög gott tíðarfar, tef.ja fyrir. þurrt, en fremur kalt. í dag er| Hér hefur verið heldur lélegt þoka og rigning, en í gær var j atvinnulíf í vetur. Bátarnir sem snjóhraglandi- Nú er verið að róa héðan eru aðeins tveir, og opna Oddsskarð, og var búizút það er of lítið til þess að allir við að það tæki svo sem 4—5 : hafi nóg. Fólkið fer héðan dálít- daga, því mikill snjór er i skarð- ið til verstöðvanna sunnanlands. inu. ÁM 1 og svo eigum við báta í Vest- mannaeyjum og á Hornafirði. Það skapar náttúrlega vinnu fyrir þá Eskfirðinga, sem eru á þeim. Að öðru leyti hefur at- vinnulíf verið lítið hér í vetur, aðeins þó átt við byggingar. ÁJ. Heildaraili um 300 tonn Breiðdalsvík, 4. apríl. — Héðan rær einn bátur með net. Það má segja að afli hafi verið frekar sæmilegur, góður í janúar, lak- ari í febrúar, en nú sæmilegur aftur. Heildarafli bátsins er nú um 300 tonn, en hann er 80 tonn að stærð. Hann veiðir i frost og salt, og hefur útilegu. Atvinnulíf hefur verið mest í sambandi við þennan bát, en nokkrir hafa farið i vinnu í ver- stöðvarnar sunnanlands. GA Pósthús starfrækt á jöklinum Ferðanefnd Jöklarannsókna félagsins hefur undanfarið unnið að því að kanna alla möguleika á því, að félagið standi fyrir farþegaferðum á Vatnajökul á vori komandi með svipuðu sniði og síðast liðið vor. Þessar athuganir hafa leitt til þess, að gerð hefur verið lausleg áætlun um þrjár ferðir á tíma- bilinu 4. júní (þ. e. laugard. f. hvítasunnu) til 5. júlí. Hver ferð stæði yfir í 12 daga, þar af 9—10 á jökli, en tveir dagar færu í ferðir til og frá Jökulheimum. — Tólf farþegar yrðu í hverri ferð. Ferðazt verður i tveimur snjó- bílum á jöklinum. Ætlazt er til, að dvalið verði aðallega á Gríms- vatnasvæðinu, — en þar er nú umbrotin frá í janúar. — Gist verði í skálanum á Grímsfjalli. Þó er gert ráð fyrir, að gerð verði ferð þaðan annað hvort til Kverk fjalla eða til Öræfajökuls, ef veð- ur leyfir. Enn fremur er ráðgert að koma að Pálsfjalli i annarri leiðinni. Fyrsta ferðin hefst 4. júní eins og áður segir og stendur til 15 júní. Önnur ferð hefst 14. júni og stendur til 25. júní og hin þriðja frá 14. júni til 5. júlí. 4000,00 kr. Fargjald verður kr. 4000.00 fyr- ir hvern farþega og skal greiðast með 2000.00 kr. þann 15'. maí, en eftirstöðvar áður en lagt er upp í ferðina: 1 þessu fargjaldi er innifalið fæði á jökli og í Jökul- heimum, en farþegar hafi nesti til ferðar til Jökulheima og kaupi veitingar, ef þeir óska, á heim- leið til Reykjavíkur. Séð verður fyrir tjöidum til gistingar á jökli, en allan annan ferðabúnað þurfa farþegar að sjá um sjálfir og gæta þess vel, að allur útbúnað- ur sé hæfilegur til jöklaferða. Væntanlegir farþegar skulu til- kynna þátttöku fyrir 30. apríl. Pósthús á {öklinum í sambandi við Vatnajökuls- ferðirnar er ráðgert að hafa póstþjónustu með svipuðu sniði og síðasta vor. Félagið mun gefa út umslög eins og í fyrra. Verða 5000 af þeim tölusett og með ein- kenni félagsins, en 7000 með sömu einkennum, en ótölusett, og verða þau ódýrari. Handhafar tölusettra umslaga frá í fyrra geta átt kost á að fá sömu núm- er a'ftur, ef þeir leggja inn skrif- legar pantanir fyrir 30. apríl. Vegna erfiðleika í flutningum er líklegt, að ekki sé hæg að flytja annan póst en umslög félagsins til póstmeðferðar á Vatnajökli. Félag Framsóknarkvenna í Reykjavík heldur fund í Framsóknarhúsinu uppi í kvöld kl. 8,30 síðd. Mörg mál á dagskrá, er konur varðs Eysteinn Jónsson fyrrv. fjármálaráðherra maetir á fundinum. Kópavogsbúar! Framsóknarvist verður l Félagsheimilinu næst komandi föstudagskvöld kl. 8,30. — Lokakappni. — Góð verð- laun. — Mætið öll. Framsóknarfél. Kópavogi,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.