Tíminn - 10.05.1960, Qupperneq 8
8
T í MI N N, þriðjudagiim 10. mai 1960.
„Að
fiörtök stinn“
TamningastöS hestamannaíéiagsins Geysis á Hellu
hefur starfað í tvo vetur. Þar hefur verið reist hús
fyrir 32 hesta, 36 folar voru þar í tamningu í vet-
ur. - Starfsemi hestamannafélagsins færist í auk-
ana. - Rætt við Sigurð Haraldsson tamnmgamann,
og skroppið á hak með rangæskum hestamönnum.
— Þú ættir að bregða þér aust-
ur og skreppa á bak.
Það var Steinþór Runólfsson á
HéUu, sem stakk upp á þessu við
undirritaðan skömmu fyrir páska. |
— Þú ættir að koma heldur
fyrr en seinna, bætti hann við.
— Áttu eitthvað lipurt handa
mér í 'kiofið?
— Ég set þig á þann jarpa; iiann
ætti að bera þig.
Svo var það ákveðið mál.
Steinþór fór austur að gæta síns
starfa, en honum er falið að sæða
allar kýr milli Ytri-Rangár og
Eystri-Skóga með „extrakt“ úr
nautunum í kynbótastöðinni að
Laugardælum, er á daglegri fleng-
ferð um sýsluna þvera og endi-
langa nautgriparæktinni til við-
gangs, og 'hefur á járnum tvo harð
vítuga gangvara, brúnan og jarp-
an og lætur þá geisa þvert um
Rangárvaliasand að loknu dags-
verki í mörgum fjósum.
Vomur
Undfrritaður var kyrr í Reykja-
vík slituppgefinn við ekki neitt og
'hugsaði um það alla páskana hví-
lik upplyfting það mundi verða
að fara austur og ríða úr sér
slenið, fá loft í lungun og „finna
fjörtöfc stinn“, losna um stund frá
pappirsvinnunnni og koma blóð-
inu á hreyfingu. Á sumardaginn
fyrsta vafðist annað fyrir en laug-
ardagsmorguninn 30. apríl labbaði
undirritaður sig niður á BSÍ og
tók sér fari austur með Þykkva-
bæjaráætdun.
Það var sólskin og hvítir kló-
sigar hátt á lofti austur og vestur,
og ferákur vorþefur heiðarinnar
inn um gluggana. Þannig byrjaði
þessi ferð, sem átti eftir að verða
mjög ánægjuleg.
Hesthús
Bifreiðin staðnæmdist á vega-
mótunum vestanvið Rangá, undir-
ritaður hoppaði af og fór sína leið
■gegnum það mikla skarð, gert af
manna völdum, sem Rangæingar
'kölluðu Þj'óðgatið í eina tið og
kal'la máske enn, yfir brúna sem
nú á að endurbyggja á nýjum
stað, og faélt heim til Steinþórs,
sem var að koma að úr sinni vana-
legu skylduferð. Hann slengdi
tólakassanum á gólfið, heimtaði
kaffi, við drukkum, fórum í stígvél
og löþþuðum út í hestihús.
Þar voru fimm hestar við stall.
Tamningastö‘8
— Hvað átt þú toér?
Steinþór benti: — Þennan jarpa,
þann brúna og bleika tryppið. Þú
tekur Brún og ríður honum upp í
tamningastöð.
— Einmitt.
— Já, þú átt eftir að sjá meira
en þetta hesthús.
Við lögðum við hestana, gyrtum
reiðverin og stigum á bak.
— Varaðu þig á honum þegar
við komum hér austurfyrir þorpið,
kallaði Steinþór, hann er vanur að
taka á hér í kring.
Har'Övítugur
Sá brúni tók töltið og geystist
fram á veginn. Hann skók toaus-
inn frekjulega og harðnaði á taum
um en lét undan fyrir síendur-
teknum samningatilraunum og sef
aðist. Á brekkubrúninni austanvið
Gaddstaði sýndi hann vilja sinn
til að stökkva út af v-eginum heim
að nýrri byggingu, sem , stendur
þar innan girðingar.
— Hvað skal sá brúni þangað?
— Þetta er tamningastöðin,
sagði Steinþór.
Hestarnir glenntu sig á stökki
út af vegbrúninni, herptu sig sam-
an og stikJuðu á afturfótunum
heimundir stöðina, fnæstu af þung
um móði og snertu varla jörðina
með framfótunum.
Kennarinn
Við sti'gum af baki og gengum
inn.
— Hér eru 16 hestefni á básum
og hér er Sigurður Haraldsson,
tamningamaður. Hann kennir
þeim listirnar. — Sigurður hefur
orðið:
— Hvað ... ?
— Þú spyrð, sagði Sigurður.
— Hver rekur þessa tamninga-
stöð?
— Hestamannafélagið Geysir.
— Gg tók til starfa?
— Tamningastöðin var stofnsett
í fyrra haust og starfaði í fyrra
vetur. Við vorum í húsnæðishraki
þá, en þetta var byggt í haust sem
ieið. Hér er ptláss fyrir 32 hesta
eins og þú sérð.
Eina farartækiÖ
— Þú hefur failegan nemenda-
hóp.
— Og hann er vel heima í starf-
inu, sagði Steiniþór.
— Ég hef fengizt við þetta síðan
ég gat setið á hestba'ki. Er ættaður
frá Tjörnum undir Eyjafjöllum.
Þar var ekki hægt að komast til
Sigurður Haraldsson
á Flugar.
næstu bæja nema fara yfir stór
vatnsföll. Hesturinn var eina far-
artækið og ég hef aldrei sagt
skilið við hann.
— Hvaða vinnu stundar þú
aðra?
— Trésmíði.
— Hér á Helu ...
— Sigurður kinkar kolii: — Ég
íek mér fjóramánuði til að eiga
við tamningar og legg smíðatólin
á hiiiuna á meðan.
A'Ssto'Öarmenn
— Hvað varstu með marga hér
í vetur?
— Hér hafa verið 36 hestar í
Steinþór etur þeim jarpa út
á yztu nöf klettsins, sem
skagar út í Rangá við Ægi-
síðufoss.
Eftir Baldur Óskarsson