Tíminn - 10.05.1960, Qupperneq 16
Þriðjudaginn 10. maí 1960.
103. blað.
Versta áfall
Bandaríkjanna
Málið mikið rætt um allan heim og hver
áhrif það muni hafa á ríkisleiðtogafundinn
Hernámsmorguninn: Vörður hjá herkastalanum í Kirkjustræti.
- fyrir 20 árum
NTB—Washington og London,
9. maí.
Njósnaflugvélin banda-
ríska, sam skotin var niSur
yfir Sovétríkjunum 1. maí,
Bandaríski njósnaflugmaSurinn:
Francis Garry Powers
er enn helzta umræðuefni
blaSa og stjórnmálamanna
um allan heim. Eru flestir
sammála um, að atburður
þessi hafi verið hinn mesti
hvalreki fyrir Sovétríkin, en
að sama skapi óþægilegur og
niðurlægjandi fyrir Banda-
ríkin.
Eisenhower forseti kallaði sam-
an öryggisráð Bandaríkjanna í
dag og var það þrem dögum fyrr
en ráð hafði v-erið fyi'ir gert. Þar
mun hafa verið rætt um flug
Franeis Garry Powers' inn yfir
Sovétríkin og afleiðingar þess
atburðar.
Eisenhower lætur til
sín taka
TaJsmaður Eisenhowers forseta
bar til baka lausafregnir blaða um
a'ð forsetinn hefði fyrirskipað al-
gert bann við öllu könnunarflugi
í grennd við iandamæri Sovétríkj-
anna. Hins vegar væri rétt, að for-
setinn hefði fyrirskipað rannsókn
á allri s'tarfsemi bandarísku leyni-
þjónustunnar, en henni er sem
kunnugt er sfjórnað af Allen
Ðulies, bróður John heitins F.
Dullesar fyirv. utanríkisráðherra.
j Yfirleitt er það hald manna, að
| Eisenhower hafi ekki haft hug-
't mynd um könnunarflug þetta,
enda hefði hann vafalaust bannað
það svo skömmu fyrir fund æðstu
manna.
Taka í lurginn á klíkunum
Brezk blöð ræða atburðinn mjög
j svo sem vænta mátti. Þykir þeim
Bandaríkjamönnum hafa farizt
(Framhald á 3. síðu).
í dag eru liðin 20 ár frá
því Bretar hernámu ísland.
Það var bjarta vornótt að
herskip og flugvélar Breta
komu hér öllum að óvörum
og settu her á land þrátt
fyrir eindregin mótmæli
ríkisstjórnarinnar í grein-
argerð frá fulltrúa lög-
reglustjóra, Einari Arnalds
til dómsmálaráðuneytisins
er fyrstu atburðum her-
námsins lýst með svofelld-
um orðum:
— Klukkan 3,40 í nótt
var tilkynnt á lögreglustöð
ina, að fjögur herskip sœj-
ust sigla inn á ytri höfn-
ina hér. Var hringt til full
trúa lösreglustjóra og hon
um tilkynnt þetta. Ók full-
trúinn siðan niður að höfn
og gekk úr skugga um, að
fjögur örezk herskip vœru
komin og flugvélar á
sveimi yfir þeim. Ákvað
fulltrúinn að fara um borð
í herskipin og tilkynna
þeim, að aðeins þrjú her-
skip sama ófriðarríkis
mœttu samtimis hafa dvöl
hér í höfninni og ekki leng-
ur en 24 klukkustundir í
íslenzkri lo.ndhelgi og að
flugvélum tilheyrandi her-
skipunum vceri óheimit að
yfirgefa þau. Fór fulltrú-
inn síðan ni&ur að höfn-
inni, en meðan hann beið
eftir toWbátnum, til að
flytja hann um borð í her
skipin, renndi brezkur
íundurspillir inn í höfnina
og lagðist að hafnarbakk
anum. Setti hann strax á
land herlið, sem gekk
fylktu liði upp i bœinn. —
Klukkan var þá 5 f.h. Mr.
Bowering aðalrœðismaður
var þarna staddur við land
setningu hersins, ásamt
öðrum mönnum frá rœðis
mannsskrifstofu Breta.
Gekk fulltrúinn til Mr.
Bowering og bað hann um
skýringu á þessu og lét í
Ijósi þá ósk, að hann fengi
að tala \íð skinherra tund-
urspillisins. Mr. Bowering
svaraði þessu aðeins, að til
slíks vœri enginn timi nú.
Fór fulltrúinn þá við svo
búið til bústaaðr forsœtis
ráðherra og tilkynnti hon
um, hvað skeð hefði.
Liðflutningar í land úr
herskipunum héldu síðan
áfram, og \oru íslenzkir
togarar teknir og notaðir
við það. Skipaði herlið það,
sem á land kom, vörð við
landsimastöðina, pósthúsið
ýmis gatnamót og við höfn
Hernámsmorguninn: HermaSur
meS hríSskotabyssu fyrir framan
LandssímahúsiS.
ina sjálfa. Landsímahúsið
var lœst, þegar brezká her
liðið bar þar að og var hurð
in sprengd upp. Tóku Bret
ar alla símaafgreiðslu í
sinar hendur og var sima-
sambandi til og frá Reykja
vík slitið. Lagði herliðið
strax leið sína að bústað
þýzka rœðismannsins og að
gistihúsum þeim, sem Þjóð
verjar af skipinu Baiha
Blanca hafa undanfarið
dvalið á. Voru Þjóðverjarn-
ir teknir fastdr ásamt rœðis
manni Þjóðverja og flutt-
ir um kl. 9 f.h. um borð í
eitt herskipið. Brezka her-
liðið tók margar bifreiðir
í þjónustu sína, og fluttu
þœr lið á helztu vegamót
i nágrenni bæjarins, til að
stöðva alla umferð að og i
frá bœnum. Miklu af alls
konar vörum, skotfœrum
og fleiru, hefur verið skip
að á land í dag, og hafa
Bretar tekið sér bækistöðv
ar viðsvegar um bœinn.
v
Þessi mynd er af góssi því, sem aS sögn Rússa fannst í fórum flugmannsins. MeSal muna, sem fundust,
voru rúbluseSlar í búntum.
j
Handalangur
handtekinn
Um helgina sá fólk, sem býr i
Kirkjustræti, aS maSur var aS pauf
ast vlS aS brjóta rúSu hjá verzl-
uninni Gefjun-ISunn. Hringdi það
strax til lögreglunnar, sem brá viS
og handtók rúSubrjótinn, sem kom
inn var þeirra erinda aS stela sér
fötum. ViS yfirheyrslu viSurkenndi
maSurlnn aS hafa brotiS rúSu í
sömu verzlun fyrr í vetur og dreg-
iS föt út úr glugganum. HafSi
hann ætlaS aS viShafa sömu kúnst
ir í þetta skiptiS.
Þá bar svo viS um helgina, aS
maSur nokkur ók þvert fyrir bil
lögreglunnar, sem var á eftirlits-
ferS. Lögreglunni þótti aksturs-
máti hans jullkynlegur og stöSv-
aSi hann. Kom þá í Ijós, aS ekill-
inn var fullur og farartækiS stol-
iS. —b.